Tíminn - 29.09.1961, Blaðsíða 3
I l^tfltlN^föstudaginii 29.- september 1961.
Haustverð komið
á bunaðarafurðir
Neytendur fá súpukjöt á 27.50 og mjólkurflösk-
una á 4.15 — bændur fá 4.71 fyrir mjólkurlítr-
ann og 23.05 fyrir kíló af dilkakjöti
Bílarnir, sem rákust saman hjá BeitistöSum í Leirársveit
Hörkuárekstur á beinum
vegi gegnum Leirársveit
Kona slasaðist mikið. Verkfræðingur
skarst í andliti
í gær varð mjög harðurj
bifreiðaárekstur á þjóðvegin-:
um um Leirársveit, og slasað-
ist kona, sem í öðrum bílnum
var, allmikið, og liggur hún nú
í sjúkrahúsinu á Akranesi.
Yfirverkfræðingur Vegagerð-
ar ríkisins skarst nokkuð í
andliti, en fór heim að aðgerð(
lokinni.
Árekstur þessi varð á veginum
rétt fyrir vestan Beitistaði í Leir
ársveit. Þarna er ágætur vegur,
engin blindhorn eða beygjur, en
ag yísu er hann mokkuð mjór.
Vörobíll fór um veginn á norð-
Bleyta
urleið. Á móti honum kom fólks-
bíllinn R-11062, sem kom fráj
Hvanneyri og var á suðurleið. Ók
honum Viggó Jóel Jensen frá‘
Hvanneyri. Um leið og R-11062
imætti vörubílnum ætlaði annar
fólksbíll, R-2966, sem kom á eftir
vörubílnum, að aka fram úr hon-
um. Þeim fólksbíl ók Jón Kr. Ein
arsson. Varð þarna harður árekst-'
ur við hlið vörubílsins, og skemmd
ust báðir fólksbílarnir mjög mikið.
Konan meiddist alvarlega
Tvær manneskjur voru í hvor-
um bílnum. Báðir ökumennirnir
sluppu ómeiddir. í bílnum, sem
kom frá Hvanneyri, var ung kona
auk ökumannsins, Ragna Einars-
dóttir. Slasaðist hún talsvert og
liggur nú í sjúkrahúsinu á Akra-
nesi. í hinum fólksbílnum var
Árni Pálsson, yfirverkfræðingur
Vegagerðar ríkisins, farþegi. Hann
skarst dálítið í andliti, en þó ekki
meira en svo, að hann sneri aft-
ur til Reykjavíkur að aðgerg lok
inni.
Strax eftir slysið var allt fólkið
flutt í sjúkrabifreið til Akraness.
Dráttur hefur oráið á því að
þessu sinni, að ákvarðað væri
verð á búnaðarafurðum. Staf-
aði það af því, að beðið var
eftir samkomulagi í sexmanna-
nefndinni svonefndu um dreif-
| ingarkostnað á kjötafurðum
. og ákvörðunum um hlutfall
verðlags á mjólk og mjólkur-
, afurðum annars vegar og kjöti
og kjötafurðum hins vegar.
i j
Samkomulag um þetta náðist íj
fyrrinótt, og hefur nú afurðaverð
ið verið fastákveðið.
Heildsöluverð á fyrsta flokks
jdilkakjöti hækkar úr 17.24 kílóið'
í 21.65. Verg á súpukjöti í smá-1
sölu verður 27.50 í stað 22.00 áður.
Slátur með sviðnum haus kostaði
í fyrra 34.30, en verður nú 36.50.
Kjötið verður greitt niður eins
og í fyrra um 7.80, miðað ,við
dilkakjöt og geldfjárkjöt.
Brúsamjólk hækkar í útsölu úr
3.32 í 3.90, en flöskumjólk úr 3.52
í 4.15. Heilflaska af rjóma hækk
ar úr 42.27 í 46.25, skyr úr 10.60
í 11.60, smjörkíló úr 57.40 í 69.00
og 45% ostur úr 56.85 í 63.30.
Vers til bænda hækkar sam-
kvæmt úrskurði yfirnefndar um
verðlagsgrundvöllinn. Þeir fá 4.71
kr. fyrir mjólkurlítrann í stað
4.18 áður, hækkun 12.6% og 23.05
fyrir dilkakjötið í stað 19.69 áður,
hækkun 17.06%.
Verð, sem bændur fá fyrir aðr
ar afurðir, hækkar yfirleitt um
13.5%, að undanskildum gærum
og ull, sem hækkar nokkuð meira.
Sýrlenzki herinn
gerir uppreisn
Ringulreið í landinu - Nasser ákveðinn
Hver heytugga hrakin
Hóli, Svarfarðardal, 27. sept. — eru mjög rýrir. Heyskapur hefur
! Lokið er nú síðari smölun { gengið mjög illa í sumar, og munu
sauðfjár hér um byggðir, og stend margir bændur verða að fækka
I ur sláturtíðin sem hæst. Dilkarj bústofni sínum talsvert.
Féð kom ákaflega rýrt af fjalli
tefur
kartöflu-
uppskeru
Hornafirði, 28. sept.
Það leit vel út um uppsker-
una á hinum miklu kartöflu-
ökrum Hornfirðinga, en sýnu
verr gengur að ná þeim upp,
vegna bleytu í görðum. Mun
upptakan varla mikið meira en
hálfnuð.
Einstaka maður hefur ef til vill
lokið sínu, en aðrir eiga langt í
land. Geysimiklar úrkomur hafa
valdið því, að erfitt er að beita
hinum stórtæku vélurn við upp-
tökuna. Menn eru orðnir hræddir
um, að ef bregður til norðanáttar,
kunni að frjósa, og þá er skammt
til skemmda á uppskerunni, svo
rennblautir sem garðarnir eru
yfirleitt. — En ef allt næst far-
sællega upp úr görðunum, verð
ur heildaruppskeran varla undir
15 þúsund tunnum, að ætla má.
NTB—Amman, 28. sept.
Sýrlenzki herínn gerði upp-
reisn gegn Nasser forseta í
dag. Fyrsta fréttin um þetta
kom í Damaskus-útvarpinu í
morgun, og var þar sagt, að
sýrlenzkir herforingjar hefðu j
gerf uppreisn til að endur-
heimta frelsi og virðingu Sýr-
lands, sem er annað aðildar-
ríki Arabíska sambandslýð-
veldisins. Nasser forseti svar-J
aði þessari uppreisn strax með
fyrirskipun um að senda þegarj
í stað hersveitir til Damaskus.!
Um hádegisbil var sagt í út-j
varpinu í Damaskus, að AbHel,
Amer, marskálkur, yfirmaður,
herafla sambandslýðveldisins
hefði kveðið uppreisnina niður
sjö tímum eftir að hún hófst,
en ekki leið á lönqu, unz sagt
var í nýrri frétt, að hann hefði
qenqið á loforð sín um að
kveðs hana niður. Miki! ringul-
reið og samgöngutruflanir
voru í landinu í kvöld, en
Nasser sagði í útvarpsræðu í
dag, að engin málamiðlun
kæmi til greina.
Fyrsta tilkynningin, sem hinir(
' sýrlenzku uppreisnarmenn sendu
frá sér, var undirrituð af arabísku
byltingarnefndinni, en þar var
sagt, að uppreisnin styddist ekki
við neina sérstaka þjóðfélagsheild
öðrum fremur. í tilkynningum
Damaskusútvarpsins var ráðizt
harkajega á stjórn Arabíska sam-,
bandslýðveldisins og sagt, að hún
hefði sterkar tilhneigingar til harð
stjórnar og hugsaði um það eitt,
að halda völdum, en í henni sætu
spilltir valdaklíkumenn. Uppreisn
arhreyfingin fullyrti í morgun, að
hún hefði náð á sitt vald ýmsum
mikjlvægum stöðum, lokað flug-
völlum og sett hafnbönn, en fólk
var jafnframt hvatt til að forðast
árásir á egypska borgara og opin-
berar byggingar og stofnanir.
Nasser ákveðinn
Stuttu eftir að uppreisnarhreyf-
ingin hætti að senda út tilkynn-
ingar, hólt Nasser forseti ræðu og
skýrði frá því, að hann hefði gef-
ið fyrsta hernum í Sýrlandi skip-
un um að halda þegar í stað til
Damaskus til að kveða niður upp-
reisn þessa með vopnavaldi. Hann
sagði, að það væri ekki nema hluti
sýrlenzka hersins, sem stæði að
baki þessari uppreisn og kvaðst á-
kveðinn í að varðveita einingu sam
bandslýðveldisins. í kvöld hafði
brezka útvarpið eftir honum, að
engar tilslakanir við uppreisnar-
menn kæmu til greina. Hann
reyndi ekki að breiða yfir hina al-
varlegu hlið þessa máls, og þeir,
sem á hlýddu sögðu, að rödd hans
MA5SER
hefði skolfið af tilfinningu,
hann hélt ræðu sina.
er
Óvissa ríkir — ósamhljóöa
fregnir
í allan dag hafa verið sendar út
fregnir um útvarpsstöðina í Dama
skus, en þær eru mjög ósamhljóða
og gera ýmist að fullyrða eða bera
til baka, svo að óhægt er um vik
að gera sér glögga grein fyrir á-
standinu. Fullyrt var m. a., að upp
reisnarherinn hefði umkringt aðal
stöðvar Abdel Amers og væri
hann byrjaður samninga við upp-
reisnarmenn, en Nasser bar það
íFramhald á 2 slðu.)
í þetta sinn, og hefur það ekki
verið jafn rýrt á haustdegi nú
um fjölmargra ára skeið. Telja
menn það mest stafa af því, hve
vorið kom seint, svo að nytin féll
úr ánum áður en jörð náði að
gróa. Göngur og róttir gengu ann
ars vel. Rétt þá' dagana var sæmi
legt veður, svo að allvel heimtist.
Sumarið hefur annars verið eitt
hvert liið allra versta, sem menn
muna eftir, og er heyfengur bæði
stórum minni og lakari en í
fyrra. Er útiit fyrir bústofnsfækk
, un hjá bændum af þeim sökum.
] Heita má, að þurrkur væri aldrei
! nema einn dag í senn, og margir
hafa ekki náð órigndri tuggu alit
sumarið.
Nokkuð vantar enn á, að hey-
skap sé lokið. Allmargir eiga enn
úti bey, sem verið er að þurrka.
Annars brá dálítið til veðurbata
í vikunni fyrir göngur og í vik-
(Framhald á 2. síðu.)
2000 samlagsnúmer
í frétt Tímans í gær um samn
ingsslit milli Læknafélags Reykja
víkur og Sjúkrasamlags Reykja-
víkur kemur fram sú missögn, að
greiðsla fyrir 1500 samlagsnúmer
mundi nema 600 þús. krónum á
ári, ef gengið yrði að kröfum
lækna. Greiðsla þessi miðast við
2000 númcr, þ.e. það hámark, sem
L-R. hefur lagt til í uppkasti sínu,
að gildi um heimilislækna, sem
ekki hafa á hendi fastlaunastörf
né sérfræðistörf. Kostnaðaráætl-
un L.R. miðast hins vegar við
1500 númer, og er þá gert ráð
fyrir 224 þúsund króna reksturs-
kostnaði á ári.
Þá skal tekið fram, að ekki er
hægt að áætla, hve mikið greiðsl-
ur fyrir heimilislæknastörf muni
hækka, þar eð læknar munu taka
greiðslu fyrir hvert verk í stað
fasts árgjalds fyrir hvern sam-
lagsmann. Kröfur L.R. um hækk-
un fastagjalda fólu að öllu sam-
anlögðu í sér 100% hækkun.