Tíminn - 03.10.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.10.1961, Blaðsíða 1
Á&kriftarsími Tímans er 1-23-23 >W- — 45. árgangur. 60 gildrur á 26 km. leið bls. 8—9. Þriðjudagur 3. október 1961. i Á fundi fullskipaðrar sambandsstjórnar ASÍ í gærdag. Að baki forseta er eitt af málverkum þeim, sem Ragnar Jónsson í Smára gaf Alþýðusambandinu í sumar. — Nánar er sagt frá fundum og ákvörðunum ASÍ á bls. 2. (Ljósmynd: TÍMINN — GE). Einróma ályktun formannaráðstefnu Alþýðusambands íslands: Kaupgjaldssamningum verði sagt upp þegar í stað Sýnum samúð okkar í verki ÖUum er í fersku minni, er vélbáturinn Helgi frá Homa- firði fórst nýlega, á heimleið frá Englandi. Á honum vom 9 menn. Aðeins tvcir björguðust, en sjö drukknuðu. Allt vaskir menn á bezta aldri. Fjórir þeirra voru tengdir nánum fjölskyldu böndum. AHir skilja eftir sig fleiri eða færri harmþrungna ást- vini. Þar á meðal ellefu börn, sem flest eru á unga aldri og öll nú orðin föðurlaus. Aldraðir foreldrar hafa og' misst fyrirvinnu sína. Víst er, að þjóð'in öll harmar þennan mikla mannskaða, en samúð vora í garð þeirra, sem um sárast eiga að binda, getum vér einna helzt vottað með því að efna til nokkurs fjárstyrks þeim til handa, sem mest þurfa þess með. Vér vitum að margir munu einmitt á þennan veg vilja votta syrgjendunum hlýhug sinn og hluttekningu. Dagblöðin í Reykjavík og vér undirritaðir sóknarprestar munu veita gjöfum manna viðtöku. ■J Gunnar Árnason. Skarphéðinn Pétursson, Sváfnir Sveinbjarnarson. og kaupmáttur veríi ekki lægri en hann var 1. júlí sl. og varanleikur kaupmáttarins tryggtJur A formannaráðstefnu Al- þýðusambands íslands um kjaramálin, sem haldin var um helgina var eftirfarandi álykt- un samþykkt: ___ I. kafli. „Með gengislækkuninni í febr- Þá var verkalýðurinn einnig rændur þeirri kjaravernd, að kaup skyldi hækka meg vaxandi dýr- tíð. Með gengislækkuninni í ágúst byrjun í sumar hækkaði verð alls erlends gjaldeyris enn um 13,16%. Hinni fyrri gengislækkun fylgdi mikil verðhækkunaralda. Og þeg- ar er séð, aff verðlag fer strax úar 1960, hækkaði verð alls er- stórhækkandi vegna hinnar síðari. lends gjaldeyris um 50—79%. — Þar við bætist, áð álagningarregl- Nakinn farþegi við rúmstokkinn Dólgslæti og stimpingar um borí í Esju um hefur verið breytt og verð- lag einnig gefið frjálst á þýðing- armiklum vöruflokkum. Þá er og boðað, að söluskattar verði hækk aðir. Nýrri verðhækkunaröldu hefur því verið hleypt af stað, og árang ur þeirra frjálsu samninga, sém tókust á síðastliðnu vori milli verkalýðssamtakanna og atvinnu- rekenda, að engu gerður, áður en varir. (Framhaid á 2. síðu) Forsetinn kominn heim frá Kanada Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og forsetafrúin, Dóra Þórhallsdóttir, komu til landsins kl. 6.30 á sunnudags- morgunihn úr opinberri heim- sókn til Kanada. Forsetinn boðaði blaðamenn á sinn fund í gær og s|<ýrði lítillega frá för sinni og tildrögum hennar. Fyrir nokkrum árum var hér á ferð Pearson, formaður frjáls- lynda flokksins í Kanada, sem þá var við stjórn. Hann vakti fyrstur máls á því við forsetann, að hann kæmi í opinbera heimsókn til Kan- ada. Formlegt boð kom þó ekki fyrr en fyrir rúmu ári. Stóð það boð í sambandi við landhelgismál- ið, sem þá stóð sem hæst, og vildi Kanadastjórn sýna íslendingum samúð sína í því máli með þessu boði. Forsetinn lýsti yfir ánægju sinni með ferðina og viðtökur allar, sem hefðu verið ógleymanlegar, Hann kvaðst hafa hitt þar vestur frá fjöl- marga merkismenn af íslenzkum ættum, sem ástæða væri til að nefna á nafn, en það yrði of langt mál, ef nefna ætti þá a.lla. Það vakti undrun hans, hve íslenzkan lifir enn meðal þessa fólks. Forsetinn og fylgdarlið hans ferðaðist aðallega með flugvélum. ■ (Framhald á 2. sfðu.) Maður banar konu sinni í ölæði Blaðið hefur fregnað að öl- óður farþegi hafi ruðzt inn í klefa skipsþernu á Esjunni og svipt sig þar klæðum, er skipið var á leið til Reykjavíkur í síð- ustu ferð. Þernan mun hafa vaknað um leið og maðurinn ætlaði að troð- ast upp í kojuna hjá henni. Var ihún blóðug í andliti eftir viður- eignina við dólginn, er hjálpin barst. Skipshöfnin mun hafa lent í miklu stímabraki við að handsama þann ölóða og félaga hans, sem einnig var drukkinn, en þeir voru settir í klefa og vaktaðir þar, unz skipið kom í höfn. Síðan tók lög- reglan þá til meðferðar. Blaðið hefur leitað nánari upp- lýsinga um málið hjá rannsóknar- lögreglunni, en aðeins fengið stað- fest að kæra hafi borizt vegna ölvunar og dólgslegra láta þar um borð. Klukkan 13.30 á sunnudag- inn var 35 ára gömul kóna, Ás- björg Haraldsdóttir, til heim- ilis að Laugarnesvegi 118, flutt á slysavarðstofuna, þá liðið lík. Maður hennar, Húbert Rós- man Morthens, 36 ára gamall sjómaður, flutti líkið á slysa- varðstofuna. Þar kom strax fram, að hann mundi á ein- hvern hátt valdur að áverkum á líki konunnar. Rannsóknarlögreglan tók þetta hryggilega mál strax til athugunar, og í gær skýrði Sveinn Sæmunds- son, yfirlögregluþjónn, fréttamönn- um frá tildrögum þess eins og þau hafa nú verið rakin. Sveinn tók fram, að ýmsir þættir málsins væru ekki fyllilega ljósir og því aðeins hægt að gefa yfirlit um það, sem komið hefur fram við rannsókn og yfirheyrslur. • Kom um borð Húbert Morthens viðurkenndi strax við yfirheyrslu, að hann mundi valdur að dauða konunnar. Á laugardagskvijjdið kom hann með togaranum Neptúnusi úr söluferð til Þýzkalands. Ásbjörg kom þá um borð til að taka á móti manni sínum. Þar byrjuðu þau að drekka bjór, og drakk Húbert áfengi með bjórnum. Hjónin yfir- gáfu svo skipið og komu heim laust fyrir klukkan tvö um nóttina og héldu drykkjunni þar áfram. „Þá skeði hörmungin" Húbert sagði, að þau hefðu snemma farið að kýta, enda bæði mjög drukkin. Taldi hann það ekk- ert óvanalegt undir slíkum kring- • umstæðum og dró ekki dul á, að þá hefðu komið fram ágreinings- ' mál, sem þau hefðu að öðru jöfnu t ekki rætt. Tímamörk voru honum mjög óljós, en einhvern tíma seinni hluta nætur eða undir morg- un virtist honum að afbrýðisemi hefði gagntekið hann. Sagðist hann þá hafa „alveg tryllzt, og þá skeði hörmungin". Innvortis áverkar Líkið ber með sér, að handalög- mál hefur átt sér stað, og að kon- an hefur verið lostin hnefahöggum, en ekki með barefli. Höfuð henn- ar var marið og bólgið og marblett- ir hingað og þangað á líkamanum. Hins vegar varð ekki ráðið, að út- vortisáverkar hefu valdið dauða hennar. Við athugun kom í ljós að innvortisáverkar voru þeim mun meiri, en krufningarskýrla var ekki tilbúin, þegar fréttamenn ræddu við Svein Sæmundsson í gær. (Framhald á 2. síðu.J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.