Tíminn - 03.10.1961, Blaðsíða 6
6
TÍ MIN N, ÞriSjudaginn 3. október 1961.
IVI I N N I N G:
Þorsteinn Loftsson
vélfrætSiráftunautur
Útför Þorsteins Loftssonar vél-
fræðiráðunauts Fiskifélags íslands
er gerð í dag frá Dómkirkjunni
í Reykjavík, en hann lézt eftir
stutta legu í Landsspítalanum 26.
september Sl.
Þorsteinn var Árnesingur að
ætt, fæddur að Krossi í Ölfusi
14. nóvember 1890. Foreldrar
hans voru Loftur Þorsteinsson,
bóndi þar og síðar sjómaður í
Reykjavík og kona hans Gróa
Gottskálksdóttir frá Reykjum í
Ölfusi. Þótt Þorsteinn ætti
skemmst ævi dvöl í Ölfusi, mátti
glöggt á máli hans merkja, að hon
um var Ijúft að hugsa til æsku-
byggðar sinnar og ættmenna aust
an heiðar.
Þorsteinn Loftsson fermdist
sama árið og íslendingar hlutu
heimastjórn. Skeiðið, sem þjóði-n
hefur síðan runnið, er tími mik-
illa tíðinda og fagnandi. Á þeirri
rösku hálfu öld, sem síðan er
liðin, hefur hún ekki einungis
setzt á bekk með fullvalda ríkj-
um, heldur jafnframt vaxið upp
úr þeim serk, er hún hafði nálega
borið allar aldir frá upphafi sínu;
og var símerktur vanefnum og
verkmenningarskorti.
Kenna má minni mun en er á
spík og sláttuvél, árablaði og
dieselvél, rafljósinu á lampanum
okkar og týrunni á kolukveikn-
um.
En þrátt fyrir þessi breiðu og
miklu skil, er tíminn ótrúlega
skammur frá umskiptunum. Mað-
ur nærri veigrar sér við að segja
frá því sem staðreynd, ag ekki
er nema öld liðin, síðan orfhólk-
urinn leysti ljábandið af hólmi,
og það þótti vert að greina frá
því í blöðum sem tákni um þró-
un í verkmenningu á íslandi. Eða
mætti ekki ætla allt að því eins
ýkjuborið, að miðaldra menn
skuli geta sagt frá því með sanni,
að þeir hafi tekið í hönd sláttu-
mannanna, er fyrstir báru skozka
ljáinn í íslenzka túnkargann. Þor-
steinn Loftsson var orðinn tólf
ára, þegar fyrst var sett vél í ís-
lenzkan fiskibát, sexæringsfleytu
,v.,Mvyv.w.wmv.vAv.wwMW.v.vm%v.i
MINNING:
Guðjón Kr. Ólafsson
bóndi á Ölvaldsstöftum
F. 30. júní 1920 — D. 19. september 1961.
f lotning drúpa byggðir Borgarfjarðar,
sem blær um vanga þýtur harmafregn,
í fullum blóma fallinn er til jarðar
flestum þar efra betri búandþegn.
Það dregur fyrir sól, og daggarúði
af djúpum harmi vætir feðragrund,
að hausti fölna blóm og byggðaskrúði,
og bjartar nætur verða liðin stund.
Þú áttir vonir, æskudrauma bjarta
og öllum réttir glaður hjálparhönd,
þvi lipurmennskan lá þér efst á hjarta
af léttu hjali tengdust vinabönd.
f öllum störfum þitt var mark og miðið
að mega gleðja, engan sakandi,
og þegar dauðinn opnar sjónarsviðið,
er sætust minning ofar vakandi.
Það er svo vont að bæla tregatárin
og taka því, sem snöggt að höndum ber,
en drottins miskunn græðir sviðasárin
og sínum örmum vefur alla hér.
í dýpstum harmi götur allar greiðir,
svo gleðin stígur upp af hjartans sorg,
og þó að myrkur hylji lönd og leiðir
er ljós í stafni. Drottins friðarborg.
Þér guðshönd bendir heim um Ijóssins lendur
að logagylltri hallar súlnaborg,
og svifið létta ótal englahendur
við unað slíkan hverfur jarðnesk sorg.
Þá er á enda runiíin nóttin nauða,
þið nístir ekki lengur dauðans él.
Við hittumst aftur handan grafardauða
í herrans nafni, vinur, farðu vel.
Valdimar Guðmundsson.
vestur á fjörðum. Lengra er ekki
um liðið, siðan langþreyttir barn
ingsmenn sannreyndu að komast
mátti á og af miði án ára og segla.
Allt er þetta deili úr framþró-
unarsögu þjóðarinnar sfðustu ára-
tugina. Margar hendur hafa átt
hlut í raunveru hennar og enn
fleiri orðið til þess að styðja að
framhaldi hennar og auka við nýj
um þáttum, unz við blasir, sem
nú má sjá í byggð og bæ, á sæ
og í lofti. Einn þeirra manna, sem
eiga hér hlut að máli með eilítið
öðrum hætti en gengur og gerist,
er Þorsteinn Loftsson.
Hann lærði járnsmíði og lauk
því námi 1915. Meðan hann var
í iðnskóla, hlaut hann tvívegis
verðlaun fyrir námsafrek og var
það talið fátítt. Þegar Vélstjóra
skólinn var stofnaður, 1916, sett-
ist Þorsteinn í fyrsta bekk og út-
skrifaðist þaðan vorið 1917. Næstu
•níu árin var hann vélstjóri á ís-
lenzkum skipum, sem ýmist voru
í eigu Eimskjpafél. íslands eða
á vegum ríkisins.
Með fullveldissamningnum 1918
var gert ráð fyrir því, að íslend-
ingar tækju í sínar hendur gæzlu
landhelginnar, þótt svo um semd
ist, að Danir aðstoðuðu f því efni j
um sinn. Nokkur bið varð á því,;
að landsmenn eignuðust gott og
hraðskreytt skip til gæzlunnar. j
Þór og Óð'inn voru að vísu mikil;
skip miðað við vélbátana. sem
lengst af hafði verið notazt við
samhliða dönsku varðskipunum,
en ganghraði þeirra var f minnsta
lagi og auk þess voru þau dýr í
rekstri. Það er fyrst með komu
Ægis árið 1929, að við fáúrn til
gæzlunnar skip, sem samsvaraðif
kröfum tímans. Ægir var að því
leyti nýjung í skipastólnum ís-
lenzka, að í honum var dieselvél.
En enn þótti kunnátta landsmanna
ekki meiri á vélum en svo, að
ráðslagað var um. að fá danskan
vélfræðing til þess að vera yfir-j
vélstjóra á nýja varðskipinu. Með-j
an á þessu stóð atvikaðist svo, að
skip það, sem Þorsteinn var þá
á, kom til viðgerðar f skipa- og
vélsmíðastöð Burmeister og Wain
í Kaupmannahöfn, en þar var
Ægir þá í smíðum. Hinir dönsku
vélfræðingar kynntust Þorsteini
og töldu sig marka það á kunn-
áttu hans og verkhæfni, að úr-
skeiðis væri fyrir fslendinga að |
leita til Dana með yfirvélstjóra J
á Ægi. ef honum væri gefinn kost •
ur á þjálfun í meðferð diesélvéla.;
Fengu ráðamenn hér heima boð
um þessar ráðleggingar Dana og
var þeim hlýtt.
Þorstéinn brást ekki þeim vanda,
sem í því var fólginn að stjórna
fyrstu dieselvél í íslenzku skipi,
né heldur að þjálfa vel og leið-
beina þeim mönnum sem með hon
um völdust til þessa starfs. Síðan
þetta gerðist eru að vísu ekki
liðnir nema röskir þrír áratugir,
en eigi að síður hefur sú breyting
á orðið, að allur íslenzki skipa-
flotinn er búinn dieselvélum, þeg;
ar undan eru skildir eimtogararn j
ir. Lengi býr að fyrstu gerð. En
sagan af forustuhlutverki Þor-
steins Loftssonar í þessari bylt
ingu. er engan vcginn þar með öli;
sögð.
Árið 1931 réðst Þorsteinn til
Fiskifélags íslands sem vélfræði-
ráðunautur og jafnframt til þess
að stjórna kennslu í vélfræði á
vegum félagsins í Reykjavík. Fé
lagið hafði þá nýverið eignazt veg-
legt hús miðsvæðis í bænum og
í því var salur ætlaður fyrir verk-
lega mótorkennslu. Síðan stýrði
Þorsteinn mótornámskeiðum Fiski
félagsins í Reykjavík og kenndi
þar mótorfræði fram tii þessa.
(TTramhalr1 ó oftn \
Góð stofa
með innbyggðum skápum,
móti suðri á hitaveitusvæði
á Melunum, er til leigu fyr-
ir reglusaman mann. Enn
fremur bílskúr á sama stað.
Upplýsingar í síma 12954.
Frímerki
Óska eftir að kaupa Evrópu-
sett 1960 og 1961. Kaupum
einnig ný og notuð íslenzk
frímerki.
FRÍMERKJASTOFAN
Vesturgötu 14
sími 24644
Húseigendur
Gen við og stilli olíukynd-
ingartæki. Viðgerðir á alls
konar heimilistækjum. Ný-
smíði Látið fagmann ann-
ast verkið Sími 24912 og
34449 eftir kl 5 siðd.
Fimm tonna
Austin
í góðu standi. Selst ódýrt.
Skipti á fólksbíl koma til
greina. Upplýsingar í síma
36369.
Til sölu
Húseign mín, Suðurgata 88,
Akranesi, er til sölu nú þeg-
ar, ef viðunandi tilboð
fæst. Nánari upplýsingar
gefur Hannes Jónasson.
Sími 292.
.•■x.«gx.«~x.*',x,« -x-
Barngóð stúlka
óskast til heimilisstarfa. Öll
nýtízku þægindi. Upplýs-
ingar í síma 24201.
Stúlkur
Ungur bóndi óskar eftir
stúlku. í sveit. Má hafa með
sér 1—2 börn. Uppl. í síma
37287.
ÞAKKARAVÖRP
Þökkum innilega auðsýnda samúð viS andlát og jarSarför
mannsins mins og föSur okkar,
Guðjóns K. Ólafssonar,
ÖlvaldsstöSum.
Sérstakar þakkir færum viS séra Leó Júlíussyni, Borgarnessöfn-
uSi og sveitungum fyrir ómetanlega aSstoS.
Margrét Ágústsdóttir og börn.
Börnum mínum, tengdabörnum, barnabörnum,
barnabarnabörnum og öllum vinum sem glöddu
mig með stórkostlegum gjöfum, blómum, skeytum
og heimsóknum á sjötugsafmæli mínu þakka ég af
heilum hug og bið guð að blessa vkkur öll.
Margrét Sigfúsdóttir.
Þórunn E. Hafstein
sýslumannsekkja.
andaSIst sunnudaginn 1. okt. í Bæjarsjúkrahúsinu.
\ Vandamenn.
Þökkum innilega auSsýnda vináttu og samúS viS andlát og
útför sonar okkar,
Ingólfs Vignis.
HafnarfirSi, 1. október 1961.
Rósa Ingólfsdóttir GuSmundur í. Guðmundsson.
BróSir okkar,
Guðjón Jónsson,
bóndi á Búrfelli I MiSfirSi,
sem lézt í Landsspítalanum 23. f. m„ verSur jarSsunginn aS Melstað
laugardaginn 7. okt. Húskveðja heima á Búrfelll sama dag, stund-
víslega kl. 2 e.h. Kveðjuathöfn verSur r Fossvogskirkju í Reykjavík,
fimmtudaginn 5. okt. kl. 10,30. Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim,
scm vildu minnast hans er bent á Elliheimilið á Hvammstanga.
Systkinln.
Faðir okkar og tengdafaðir
Aage M. C. Frederiksen,
vé'stjóri,
andaðist í Elliheimiiinu Grund, aðfaranótt 1. þ. m.
Börn og tengdadætur.