Tíminn - 22.10.1961, Page 3
| TjMINN, sunnudaginn 22. oktfiber Xgpi
Gott veiðiveður
og aflinn er góður
Blaðið hafð'i í gær tal af Stur-
laugi H. Böðvarssyni framkvæmda
stjóra á Akranesi og spurðist
frétta af síldinni á Faxaflóa. Hann
sagði, að veiðiveður væri'gótt og
margir bátar væru á leið í land
með góðan afla, þar á meðal Höfr-
ungur II. með 700 tn., Haraldur
með 500, Sigrún 500, Sæfari 350,
Sigurfari 250 og Skírnir 250 tn.
Einnig hefði frétzt af bátum frá
öðrum verstöðvum með 200—700
tunnur, þar á meðal Rifsnesi frá
Reykjavík með 700 tunnur.
Síldin er nokkuð langt undan
Jökli, og eru bátarnir 7—9 tíma á
miðin. Aflinn er saltaður og fryst
ur og allir eru í vinnu, sem vettl-
ingi geta valdið.
Buizt var við veiðiveðri í nótt
og spáð austan kalda á miðunum.
Á fundi bæjarstjórnarinnar í
Reykjavík hinn 19. október 1961,
var samþykkt einum rómi, með
15 samhljóða atkvæðum, að gera
sr. Bjarna Jónsson heiðursborg-
ara í Reykjavík á áttræðisafmæli
hans, 21. október 1961.
Bæjarfulltrúar heimsóttu þau
hjón, sr. Bjarna Jónsson og frú
Áslaugu Ágústsdóttur, fyrir há-
degi í gær.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
hafði orð fyrir bæjarfulltrúum og
skýrði frá samþykkt bæjarstjórn-
ar og afhenti hinum nýkjörna
heiðursborgara bréf bæjarstjórnar
um kjör hans.
Sr. Bjarni Jónsson þakkaði síð-
an með stuttri ræðu.
Bréf bæjarstjórnar er ritað af
Halldóri Péturssyni listmálara,
sem jafnframt hefur verið með í
ráðum um gerð sérstakrar skinn-
möppu, sem bréfinu fylgir og út-
búin er af Gunnari Þorleifssy-ni,
bókbandsmeistara.
Skipt um myndir í
Ásgrímssafni
f dag er opnuð ný sýning í Ás-
grímssafni, og er hún fjórða sýn-
ingin síðan safnið var opnað á síð-
astliðnu hausti.
Að þessu sinni eru sýnd 17 olíu-
málverk í vinnustofu Ásgríms Jóns
sonar, og eru flestar myndirnar
málaðar á árunum 1930—57.
í heimili Ásgríms, tveim litlum
stofum, eru sýndar 16 vatnslita-
myndir. í annarri þeirra eru ein-
göngu myndir málaðar á árunum
1902—1912, að einni undanskilinni,
en sú mynd er af Skjaldbreið, mál-
uð vorið 1922. Tvær af eldri vatns-
litamyndunum eru frá Ítalíu, mál-
aðar 1908.
í hinni stofunni eru sýndar síð-
ari tíma myndir, m. á. frá Krísu-
vík og úr Mývatnssveit.
Ásgrimssafn, Bergstaðasræti 74,
er opið sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Að-
gangur ókeypis.
Tjónið af brunan-
um í Meistaravík
mjög mikið
Tímanum barst í gær svohljóð-
andi skeyti frá Meistaravík í Græn
landi.
Brunans varð vart um klukkan
02.00. Var húsið þá alelda. í hús-
inu, sem var timburhús, voru
geymdir þrír bílar og tvær mjög
vandaðar snjóýtur. Einnig var í
því rafstöð fyrir radio- og flugstöð
ina, sem riú notast við litla vara-
rafstöð, sem drifin er af Volks-
wagenmótor. Tjónið er mjög mik-
ið, eða um 1 milljón danskar krón
ur. Radiostöðin er aðeins hálfvirk
vegna rafmagnsskorts. Veghefill
frá Námufyrirtækinu heldhr flug-
brautinni opin.ni.
Almennur
kirkjufundur
Dagskrá Hins almenna
kirkjufundar í Reykjavík 22.
—24. október 1961.
Sunnudagur 22. október: 10.30
f. h. Messa í Neskirkju. Sr. Bjarni
Jónsson vígslubiskup prédikar, Sr.
Jakob Einarsson frá Hofi þjónar
fyrir altari. Altarisganga. Kl. 2 e.
h. Kirkjufundurinn settur í Nes-
kirkju. Kr. 2.30 e. h. Framsöguer-
indi: Framtíð Skálholts. Framsögu
maður: Páll V. G. Kolka læknir.
Umræður. 4—5 e. h. Kaffihlé. 5
e. h. Söngmálástjóri Róbert A.
Ottóson flytur ávarp. Jón H. Þor-
bergsson flytur erindi.
Mánudagur 23. október. 9.30 f.
h. Morgunbænir. Framhaldsfundur
í húsi K.F.U.M. 10—12 f. h. Um-
ræður um framtíð Skálholts. 2 e.
h. Framsöguerindi: Um veitingu
prestsembætta. Framsögumaður
Hákon Guðmundsson hæstaréttar-
ritari og Ásmundur Guðmundsson
biskup. 3.00—4.30 Kaffihlé. 4.30 e.
h. Umræður um veitingu prests-
embætta. Eftir kvöldverð: Erindi:
Kirkjan og ríkið. Dr. Árni Árna-
son. læknir.
— Það sem aðallega háir okkur
hérna, sagði Sturlaugur ag lokum,
er fólksleysið, en við vonumst nú
til að það lagist þegar fólk fréttir
af þessu.
Ljósið skammt
frá Færeyjum
Síðan fregnin barst um furðu-
ljósin út af Austfjörðum, sem Tím-
inn sagði frá í gær, hefur verið
haldið uppi fyrirspurnum út af
ljósaganginum. En það hefur kom-
ið fyxlr ekki, því enginn sá hvaðan
Ijósið kom, og enginn hefur gefið
sig fram tii þess að skýra nánar
frá því. Fjöldi skipa í grennd við
Færeyjar sá þetta ljós, og benda
allar líkur til, að það hafi komið
upp einhvers staðar í grennd við
eyjarnar. Ber öllum, sem til
þekkja, saman um það, að þetta
hafi verið bæði mjög stór eld-
hnöttur og að það hafi farið ótrú-
legaihátt.
„Bágur er blómlaus maður“
Sigurður Kristjánsson
opnar málverkasýningu
Sigurður Kristjánsson opn-
aði í gær málverkasýningu að
Laugaveg 28. Hann sýnir yfir
70 myndir, flest olíumálverk.
Sýningin verður opin til 12.
nóvember frá kl. 2 til 10 dag-
lega. Flest málverkin eru til
sölu.
Þetta er fimmta málverkasýn-
ingin sem Sigurður heldur síðan í
vor. Hann sýndi í bogasal Þjóð-
minjasafnsins 22. júlí til 3. ágúst.
Þá sýndi hann á Akureyri, í Nes-
kaupstað og Vestmannaeyjum.
Sýningum Sigurðar var hvar-
vetna vel tekið og nokkur málverk
seldust á hverjum stað. Sýningar-
salurinn á Laugaveg 28 er á ann-
arri hæð, gengið inn sundið.
Gróðrastöðin Alaska hefur opn-
að blómasýningu, sem jafnframt
er sölusýning, og verður hún opin
fram yfir næstu mánaðamát.
Fréttamönnum var í gær boðið
að skoða sýninguna, sem er mjög
fjölbreytt og falleg. — Bágur er
blómlaus maður, — er orðtæki
þeirra í Alaska. Viðleitni blóma-
ræktarmannsins er ekki aðeins
að græða peninga, heldur að opna
augu fólks fyrir því, hversu rík-
ara og skemmtilegra lífið verður
hverjum þeim, sem elskar blóm og
hlúir að þeim, sögðu þeir enn
fremur.
Myndin hér að ofan er »:kin á
sýningunni. Blómarósin heitir _
Elísabet Eiríksdóttir. Hún vann'
hjá Alaska í sumar, en íékk frí
úr skólanum til ag prýða sýning-
una í gær. (Ljósm. Tírninn—GE)
myndasýning
I dag klukkan fjögur opnar
Helgi Bergmann málarameistari
sýningu á mannamyndum í hús-
næði því í Bankastræti 7, sem
verzlunin Ninon var í til skamms
tíma. Á sýningunni eru 200
teikni og skopmyndir af ýmsum
þekktum og óþekktum framámönn
um þessa lands.
Helgi Bergmann hefur lengi
fengizt við málaralist og teikning-
ar, en þetta er í fyrsta sinn, sem
hann heldur sýningu á teikning-
um sínum. Þarna getur meðal ann
ars að líta stjórnmálamenn, er-
lenda og innlenda, listamenn, iðn
meistara og fjölda annarra. Segja
má, að cnginn sá, sem hefur sýnt
sig á götu eða öðrum opinberum
stað, sé óhultur fyrir teikni-iðju
Ilelga.
Er ekki að efa það, að margir
munu leggja leið sína upp á loftið
í Bankastrtæi 7, og hlægja þar
hjaitanlega að samborgurum sín-
um — og jafnvel sjálfum sér.