Tíminn - 05.11.1961, Page 1
/
283. tbl. — 45. árgangur
Sunnudagur 5. nóvember 1961
Suðaustanrok
og engin síld
2000 tunnur af síld til Reykjavíkur í fyrradag
Tjaldið slitnaði upp
Á föstudag var allgóð síld-
veiði, en engir bátar fóru út í
gær vegna veðurs.
Á Akranesi var í gær suðaustan
rok og vitlaust veður. Nokkrir bát-
ar fóru út á föstudagskvöld, en
komu allir inn í fyrrinótt nema
tveir, sem liggja í vari vestur af
Jökli.
Til Reykjavíkur komu sex bát-
ar á föstudag með samtals um
2000 tunnur af -síld. Bátarnir voru
með 300—400 tunnur hver af
ágætri síld, og fór hún í söltun og
frystingu. Enginn bátur fór út í
gær vegna veðurs.
Tveir .bátar komu með síld til
Hafnaífjarðar á föstudag, annar
með 302 tn. en hinn með 112 tn.,
og var síldin söltuð og fxyst. Bát-
arnir lágu ajlir í höfn í gær, þar
sem mikið suðaustan rok var á
miðunum.
Frá Keflavík stunda nú 13
heimabátar síldveiðar. Mikill
stormur var framan af vikunni og
fram á fimmtudag.
Á föstudag var góð sildveiði og
12 bátar komu inn með samtals
urn 3050 tunnur. Mestan afla fengu
Bergvik 520 tunnur og Guðfinnur
463 tunnur. Bátarnir fóru út aftur
jafnóðum og þeir losuðu, en komu
flestallir inn á föstudagskvöld og
lágu í höfn í gær. Suðaustan rok
var á miðunum og spáð sama veðri
áfram.
Þrír bátar komu til Sandgerðis á
föstudag með um 1000 tn. samtals.
Það voru þcir Jón Garðar með 432
tn., Jón Gunnlaugsson með 295 tn.
og Guðbjörg með 239 tn. Síldin
var sæmileg og var söltuð og fryst.
Siðdegis á föstudag tók að bræla
og um kl. sex var ekki hægt að
kasta. Sama veður var í gær og
lágu bátarnir allir inni.
Allir bátar lágu inni á Grinda-
vík í gær, því að þar var su^Saust-
an rok og vont veður. Á föstudag
komu nokkrir bátar með síld og
fékk sá hæsti 450 tn. Síldin var
söltuð og' fryst úr öllum bátunum
nema einum þar sem hún fór í,|
bræðslu.
Risaútvarpsskermar
reistir á Stokksnesi
Miklar framkvæmdir standa
nú yfir á Stokksnesi við Horna
fjörð á vegum varnarliðsins.
Er verið að vinna að uppsetn-
ingu geysistórra útvarps-
skerma, svonefndra tropo-
scope, en þeir eru notaðir við
talsímasamband yfir miklar
vegalengdir.
íslenzkir aðalverktakar sjá um
þessar framkvæmdir og eru um
100 manns í stöðugri vinnu við
þær. Reiknað er með, að þessum
framkvæmdum Ijúki á næsta
sumri, ef allt gengur að óskum.
Nú er verið ag vinna við að setja
upp loftnetsstengur og nýbúið að
reisa stöpla undir skermana. Jafn
framt þessu er verið að reisa bygg
ingar undir vélasamstæður við
Stokksnes, séð úr lofti. Um hundrað manns vinna nú að uppsetningu
útvarpsskerma, mikiu stærri en þeirra, sem sjást efst tll vlnstri á mynd-
inni. Atlantshafið brimar um nesið á þrjá vegu.
skermana, en vélarnar verða senni
lega settar upp í vetur.
Þessir útvarpssikermar eru tveir
og verða þeir liður í kerfi slíikra
víða um heim. Sendinigar þeirra
endurkastast frá troposfærunni í
andrúmsloftinu og geta flutt tal-
samband laniga vegu. Er þetta til-
tölulega ný tækni í talsamgöngum.
Á Stokksnesi starfa sem fyrr
■segir hundrað manns við þessar
framkvæmdir. Þar fyrir utan
vinna þar nokkrir við rekstur og
eftirlit stöðvarinnar.
Ung svissnesk stúlka, Beatrix
Liver, sem hefur stundað nám
í norrænu í háskólanum hér,
opnaði í gær málverkasýn-
ingu í tjaidi á horninu milii
Tjarnargötu og Vonarstrætls.
Hún setti upp tjaldið í fyrra-
kvöld, en þegar hún kom að
því í gærmorgun, hafðl önn-
ur hlið þess fokið upp i rok-
inu um nóttina. ‘Ljósmyndari
Tímans tók þessa mynd um
morgunin, þegar hún og vin.
kona hennar voru að reisa
tjaldlð upp aftur. Hér er vin
konan að festa síðasta hælinn.
Sú svissneska sagðist fegin að
hafa ekkl flutt málverkln í
tjaldið um kvöldið, nú þori
ég ekki öðru en að faka þau
með mér á hverju kvöldi, ef
veðrið verður svona.
Askja að
færast í
aukana?
Ekki fréttist neitt frekar í
gær af gosinu í Öskju. Eins og
skýrt var frá í blaðinu í gær sá-
ust óvenjulega miklir glaimpar
flrá gosstöfflvumun í fyrrakvöld
og þessir glampar sáust í alla
nótt víða að'. Blaðið hafði sam-
band við fréttaritara sína í Reyni
Iilíð, Möðrudál og Grímsstöðum
síðari hluta cfags í gær. Var þá
loft orðið þungt og skafrenning-
ur á Grímsstöðum og rigning í
Reynihlíð. Er því líklegt að veð'-
ur hafi verið slæmt við Öskju,
hvassviðri og slydduhríð.
í gærdag varð ekki vart við
neina eldglampa.
í fyrrinótt virtist eldsúlan stíga
óvenju hátt til lofts, að því er
sjónarvottar greina, hærra en
þegar gosið var sem mest í Öskju
áður. Fyrir ofan eldsúluna var
eldrautt ský. Eldsúlan virtist á
sama stað og gosið hafði sézt
áður.
f fyrradag héldu jarðfræðing-
arnir inn að Öskju á tveimur bíl
um, fjallabíl og vörubíl og var
snjóbfll á palli vörubflsins. I
gær og fyrrakvöld héldu svo 10
afflrir bflar iim að gosstöðvun-
um. Síðast fréttist af Úlfari Jac
obsen, er liann lagði úr hlað'i á
Grímsstöðum seint í gær áleiðis
til Herðubreiðalinda. Þar ætlaði
ferðafólkið að gista í nótt, en
halda svo inn til gosstöðvanna
í dag.
Málningin losnar
Málningin heldur áfram að
renna hér af húsþökum. Flest
húsþök í þorpinu eru máluð með
rauðri lohnnálningu, og hefur
runnið af þeim öllum. Málning-
in virðist losna jafnt í rigningu
óg snjóbráð. Hér er nú suðaust-
anátt og rigning. -j- Kr. Víum.
Hér í Reykjavík hefur rauð
málning einnig runnið af húsum.
Veðurstofunni var í gær tilkynnt
frá Vífilsgötu 23 að málning hafi
runnið af húsinu. Þá tilkynnti
Leifur Ásgeirsson, prófessor, Veð
urstofunni, að hann hefði orðið
þess var, að málning rynni af
nokkrum húsum við Hverfisgötu.
Flest virðist mæla með því, að
hér sé um áhrif frá Öskjugosi að
ræða, þótt ekki hafi tekizt að
færa sönnur á það ennþá, eða
greina efni það, er þessari upp-
Iausn málningarinnar veldur.
St. Mirren vann
Lið'ið, sem Þórólfur Beok leik-
ur með í Skotlandi, St. Mirren,
vann á heimavelli sínum, Paisley,
í gær Mothervell með 2 mörkum
gegn T.
Skozka útvarpið skýrði svo frá
í gærkvöldi, að íslendingurinn
Þórólfúr Beck hefði verið bezti
maðurinn á vellinum, og átti hann
mestan þátt í siigri St. Mirren.
Þórólfur skoraði1 mjög glæsilegt
mai’k á 30 mínútu leiksins og óx
St. Mirren mjög ósmegin við það
mar'k. Kerrigan sfcoraði síð'ara
mark St. Mirren á 40 mínútu