Tíminn - 05.11.1961, Blaðsíða 11

Tíminn - 05.11.1961, Blaðsíða 11
(TÍMINN, sunnudaginn 5. nóvember 1961 11 Þau eiga ekki illa saman þessi, eSa hvað finnst ykkur? Vinsælasti leik- ari ítala, Marcello Mastroianni, og þekktasta stjarna Frakka, Brigitte Bardot, leika saman í kvikmyndinni „Elnkallf". Brigltte dvelst nú í litla bænum Spoleto á Ítalíu. ítalir eru dálítið kvíðnir vegna þessarar nýju myndar. Þeir eru nefnilega hræddir um, a3 Brigitte muni stela áthyglinni frá eftirlætisbarninu þeirra En Marcello er ekki miklð hrædd ur, og hann hefur opinberlega svarið, að hann' muni nú ekki aldeilis finna upp á því að verða ástfanginn í Brigltte. Mynd þessl er tekin í Spoleto, en þessi litli bær er nú alveg á öðrum endanum vegna þessara frægu gesta. Lemmy p — Maður má ekki gleyma því, að það er fleira til í heim- inum en whisky og löðrungar. Þetta er kjarninn í lífs- reynslu Eddie Constantine. Hann hefur nú árum saman, við góðan orðstír, sýnt sig á hvíta tjaldim'U, þar sem hann deilir löðrungunum á báða bóga, faðmar og kyssjr ljós- hærðar kynbombur og drekk- ur hvert whiskyglasið á fætur öðru í botn. Hann segir það með sama sæta og ógnandi brosinu og hann er frægur fyrir í myndum sínum, og menn beygja sig fyr ir þessum myndarlega og há- vaxna manni. í einkalífinu er Lemmy ekki sá ógnvekjandi sjarmör, sem greiðir mönnum eyrnafíkjur við mitmsta tilefni, eins og hann er í kvikmyndunum. Það eru vissulega margt, sem er meira virði en löðrungar, en Lemmy hafa þeir reynzt imiik- ils virði, hann hefur grætt milljónir á þeim. í dag er Lemmy milljóneri. Að vísu er það ekki eingöngu myndum hans að þakka, held ur einnig söng hans. Það gleym ist nefnilega æði oft, að upp- runalega var hann, og er reynd ar enn þá, aldeilis ágætur vísna- söngvari. Þegar Lemmy var aðeins sex ára, seldi hann snæri í New York. Hann gat unnið sér inn nægiiegt fé til að öðlast nokkra kenmslu í söng, og með þá menntun upp á vasann, fór hann til borgar borganna, Par ísar. Þar hefur hanm verið sdðan. Og nú er hann orðinn meiri Frakki en Ameríkumaður og einn af dáðustu kvikmynda- hetjum heims. Margur mundi líklega varla trúa þvi, en í einkalífi sínu er varla hægt að hugsa sér nægju samari og meir friðelskandi mann heldur en Lemmy. í þeim fáu frístundum, sem hann á, sýslar hann á sínu fagra herrasetri í útjaðri Par- ísar meðal eplatrjáa, leikur sér við börn sín, fær sér stöku sinnum reiðtúr á eftirlætis- hestinum sínum eða bara til- biður konuna sína. Lemmy er nefnilega einn af beztu eiginmönnunum, sem til eru í Frakklandi. Nafn eigin- konunnar er Helene, og var hún ballettdansmær í París, áður en hún giftist Lemmy. Og þið ráðið, hverju þið trú- ið, en satt er það, að Lemmy og kona hans sofa í himin- sæng! Og verið svo ekki með nein mótmæli, þið fáið þá bara löðr ung. f¥Sistiappna5 hjónaband? Nú er mjög í tízku, og hefur lengi verið, að leggja alls kon- ar spurningallsta fyrir fólk, sem það á að svara eftir beztu samvizku. Útkoman á síðan að sýna því greinilega, hvers kon- ar fólk það eiginlega er. Og fólkið gín yfir þessari fíflsku og leggur trúnað á, að í raun inni sé það eins og úikoman gefur til kynna. Ein amerísk húsmóðir segir frá því, sem hún komst að, þegar hún svar- aði spurningalista um, hvernig hjónaband hennar væri. Við skulum gefa henni orðið. Er hjónaband mitt vel hepp.n að? Eigum við hjónin vel sam- an? Giftist ég þeim rétta? Er ég honum góð kona? NEI! Það er varla hægt að segja. áð hjónaband mitt sé mis- heppnað. Nær er að segja, að það sé eitt ægilegt slys. En það hafði ég ekki hugmynd um, fyrr en ég dag nokkurn rakst á spurningalista með yfirskrift inni: Eruð þér hamingjusam- lega giftar? Eftir nítján ára hjónaband, hef ég nú komizt að því, að maðurinn minn og ég eigum ekki betur saman en hundur og köttur. Ef ég á að vera hrein skilin, get ég ekki svarað einni einustu spurningu fullkomlega. Og ekki varð útkoman glæsi- leg, þó að ég svaraði öllu eft- ir beztu samvizku. Og hér getið þið séð spurning arnar og svörin. 1. sp.: Eruð þið hjónin san/. mála um fjármál heimilisins? Svar: Tja, hvorugt okkar get ur þolað eyöslusemi. Hann get ur ekki þolað eyðslusemi mína og ég ekki hans. 2. sp.: Hafið þið sameigin- leg áhugamál? Svar: Nei. Hann er ákafur fiskveiðimaður, ég beinlínis hata að vaða í köldu vatni. Hann vill helzt sjá kvikmynd- ir um flugmenn, mér finnst mest gaman að myndum um milljónera. Báðum finnst okk- ur gaman að leika tennis, en alls ekki hvort við annað. Eg fæ höfuðverk af jassplötum, sem hann spilar sí og æ, og hann fær magapínu, þegar ég spila Strn"ssvalsa 3. sp.: Móðgizt þér auðveld- lega við mann yðar? Svar: Auðveldlega og auð- veldlega ekki! Hvað nú, ef ég spyr hann hvort ég sé orðin of gömul til að ganga í stuttbux- um, og hann segir já? 4. sp.: Nöldrið þér mikið við mann yðar? Svar: Hvernig í ósköpunum ætti ég annars að fá hann til þess að slá grasflötina? 5. sp.: Hafið þið eitthvert sameiginlegt takmark í lífinu? Svar: Ja, við vildum bæði mjög gjarnan vera rík. En það getum við aldrei orðið úr því að við g*iftumst hvort öðru. 6. sp.: Gerir eiginmaður yð- ar oft eitthvað, sem fer í taug arnar á yður? Svar: Hvort hann gerir! Þeg- ar hann fer í sturtu, getur mað ur ekki séð sig í speglinum næsta hálftímann. Hann still- ir útvarpið svo hátt, að hann heyrir ekki einu sinni, þegar ég öskra á hann að lækka í því. Og hann setur eplaflus í öskubakkana. 7. sp.: Fara smáatriði í taug arnar á honum? Svar: Já, hin hlægilegustu smáatriði. Eins og blautir sokk ar, sem drýpur af niður í bað- kerrið. Billyklar, sem ekki finnast. Símtól, sem ekki hef- ur verið lagt á. Reikningar og annað smávegis. 8. sp.: Finnst yður þér vera of góð til að vera húsmóðir og móðir? Svar: Nei, ekki of góð, heid- ur of þreytt. 9. sp.: Njótið þið þess að tala saman? Svar: Ja, okkur þykir báðum gaman að tala, en hvcrugt vill hlusta. 10 sp.: Eyðið þér jafnlöng- um tíma í að snyrta yður fyrir mann yðar, eins og bér væruð að fara í stóra veisiv? Svar: Bölvuð vát’cysa er þetta. 11. sp.: Reynið þið hvort um sig að auka sjálfstrarst hins? Svar: Já, ég er að minnsta kosti alltaf að segja honum, að maður með hans' skynsemi og hæfileika ætti sjálíur að geta útbúið sinn eigin morgun mat. Og hann segir mgr, að jafnvel seinlætispadda eins og ég ætti að geta skipt um ör- yggi, þegar það springur. 12. sp.: Kennið þið hvort öðru um, ef eitthvað er ekki eins og það á að vera? Svar: Ekki alltaf. Stundum kennum við börnunum um það. Stundum rikisstjórninni. Stund um ske’lum við bara hr.rðum. i'rainiialci a 15 siðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.