Tíminn - 05.11.1961, Blaðsíða 7

Tíminn - 05.11.1961, Blaðsíða 7
TÍMINN, sunnndaginn 5. nóvember 1961 7 SKRiFAÐ OG SE'RAFAÐ — Stórsprengingar Rássa vekja ótta víða um heim - Ömurleg hjáseta fráigmanna Sósialista- íiokksins - Stalin afhjúpaður tii fullnustu - „Fullkomnustu máiaferli heimsins“ - „Heimurinn er fátækari á eftir“ - Vatná myilu afturhaldsstjórnar - Eina von ísl. kommúnista - Rétt svar Það' fór svo, að ráðamenn Rússa létu allar óskir og á- skoranir, sem þeirn höfðu borizt, sem vind um eyru þjóta, og sprengdu hina 50 megatonna kjarnorku- sprengju sína á mánudaginn var. Hún mun jafnvel hafa verið enn öflugri, enda sagði Krústjoff frá því sigrihrós- andi á flokksþinginu, að sér- fræöingarnir hefðu víst reikn að eitthvað skakkt! Enn er ekki fullreynt á það hve hættan frá sprengingum Rússa mun reynast mi£il, en víst virðist þó, að hún geti orðið veruleg víða um heim. Sumir sérfræðingar telja lík- legt, að hún geti orðið einna mest á því svæði, sem ísland liggur. Þeim atburðum mun seint verða gleymt, að þegar það kom til meðferðar á Alþingi, fengust ekki þingmenn Sósí- alistaflokksins, sjö talsins, til þess að skora á Rússa, að hætta sprengingum sínum. Fyrst reyndu þeir að dreifa athygli frá málinu með því að flytja tillögu um mótmæli gegn kjarnorkusprengingum almennt, enda þótt það séu Rússar einir, sem stunda slíka iðju nú og hafi með því rofið hið óbeina samkomulag, sem orðið var með helztu kjarn- orkuveldunum um að hætta slíkum ófögnuði. Þegar þing- menn Sósíalistaflokksins fengu ekki þessa breytingar- tillögu fram, sátu þeir hjá um aðaltillöguna. Ástæðan var vitanlega ekki önnur en sú, að þeir vildu ekki móðga leiðtoga sína og lærimeistara í Kreml. Það hefur þannig sannazt enn á ný, hve algerlega leiðtogar Sósialistaflokksins eru háð- ir húsbændunum í Moskvu. Af þessum ástæðum, hafa þeir líka haft flokkinn í eins konar feluleik undanfarið og breitt yfir hann skikkju Al- þýðubandalagsins. Sú skikkja mun þó ekki reynast betur en nýju fötin keisarans, eins og nú er komið. Stalín útskúfaður En það er fleira en afstaða Sósíalistaflokksins til kjarn- orkusprenginga Rússa, sem hefur afhjúpað þá að undan- förnu. Austur í Moskva hefur stað- ið yfir flokksþing rússneskra kommúnista. Þar hefur Krúst joff afhjiipað það endanlega hvílíkur glæpamaðiw Stalín var. í framhaldi af því, sam- þykkti flokksþingið einróme að fjarlægja lík Stalíns úr grafhýsi Lenins. Jafnframt hefur að undirlági Krúst- joffs verið hafinn undirbún- ingur að því að reisa sérstakt minnismerki um fórnardýr Stalíns. Sú var tíðin, að málgagn Sósíalistaflokksins, Þjóðvilj- inn, átti ekki nógu sterk orð til að lofa Stalín og stimpla það hina fullkomnustu lygi, ef einhverjar efasemdir voru látnar í ljós um réttvísi hans. Foringjar Sósíalistaflokksins kepptust við að lofsyngja hann og lýsa aðdáun sinni á stefnu hans og verkum. Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn í Þjóðviljanum og hjá leiðtog- um Sósíalistaflokksins. „Fullkomnustu mála ferli heimsins” Dag eftir dag eru nú birtir í Þjóðviljanum útdrættir úr ræðum Krústjoffs, þar sem hann rekur réttarfarsbrot og glæpi Stalíns. T. d. sagðist Þjóðviljanum svo frá á mið- vikudaginn var: „Krústjoff nefndi einni? líflát Túkatsévskís og ann- arra vfirmanna sovézka hers- ins. I því sambandi minntist hann á bandarískar heimild- ir þess efnis aff hýzka Ieyi-- þjónustan hefði falsað skjöl sem áttu að sanna sök beirr" Túkatsévskís og látið Benes, foi*seta Tékkóslóvakíu, koma þeim í hendur sovézkra. Istjórnarva'.da. ,Sta\in lét á ■ grundvellí þessara skjala líf- láta beztu foringja sovézka hersins,“ sagði Krústjoff. ,.En hvernig gat hann gert slíkt? Hvernig gat hann ímyndaö sér að þessir hermenn væru þýzkir njósnarar“?“ Þetta er talsvert annaö en það, sem stóð í Þjóðviljanum, þegar þessi málaferli voru á döfinni. Þann 9. marz 1938 fórust t. d. Einari Olgeirssyni svo orð í Þjóðvilianum: „En ef 7 hershöfffingjar i Rússlandi verða uppvísir að njósnum og landráðum og því skotnir eða 20 fyrrverandi embættis- og trúnaðarmenn Sovétstjórnarinnar reynast sekir um landráð og aðra glæpi — og verða að játa sekt sína og fá sinn dóm af opin- berum rétti eftir að hafa get- að variff sig — þá ætlar Al- þýðublaðið af göflunum að ganga.“ Þann 10. apríl 1938 fórust Þjóðviljanum orð á þessa leið: „Menn verða að gæta þess, að þessi réttarhöld voru á allan hátt rekin þannig, að hinum ákærðu var tryggt hið fyllsta öryggi sem hugsanlegt var Það er vafamá', hvort nokkru sinni hafa farið fram í heiminum máliferli, sem rekin kafa verið á fullkomnari hátt að öllu leyti, en m'álaferlin í Moskvu.“ Þegar þetta var ritað, du’d- ist það ekki neinum, sem ekki hafð' lokuð augu og eyru, að Stalín var að fremja ein verstu réttarmorð sögunnar. En Þjóöviljamenn hafa hald- , 3óSi félaginn" ið áfram að kalla þetta „heimsins fullkomnustu mála ferli“, unz sjálfur Krústjoff gerist til að afhjúpa það. Og þá stendur ekki á Þjóðviljan- um að trúa. „Góði féíaginn” Það er sannarlega ótal margt, sem mætti rifja upp af þessu tagi. T. d. skrifaði Einar Olgeirsson grein í Þjóð viljann og Nýja Tímann við fráfall Stalíns í marzbyrjun 1953. Þar segir á þessa leiö: ,Stalín er látinn. Með hon- um hafa allir hinir fjórtr miklu brautryðjendur og lærifeður sósíalismans: Marx, Engels, Lenin, Stalín, kvatt oss. E'nhverri stórbrotnustu ævi, sem lifað hefur verið er lokið. Vér minnumst mannsins Stalíns, sem hefur verið elsk- aður og dáður meir en flestir menn í mannkynssögunni áff- ur og naut slíks trúnaðar- trausts, sem fáir menn nokkru sinni hafa notið, — en Iét sér aldre' stíga þá ást og aðdáun til höfuðs, heldur var til síðustu stundar sami góði félaginn sem mat mann- gildið öllu ofar, eins og þá er hann fyrst hóf starf sitt. Gagnvart mannlegum mik- illeik þessa látm baráttu- j manns drúpum við höfði — j í þökk fyrir allt, sem hann I vann fyrir verkalýðshreyfing- una og sósíalismann — í djúpri samúð við flokk hans og alþýðu Sovétríkjanna.“ Kristinn Andrésson varð enn hástemmdari en Einar. Honum fórust svo orð um Stalín í minningarræðu, sem haldin var á vegum Máls og menningar: „Við andlát Stalíns hefur í svip slegið þögn á heiminn og það er sem allir finni ljóst eða leynt, hve hann er fátækari eftir . . .“ Þannig var Stalín dýrkaður lífs og liðinn af forkólfum Sósíalistaflokksins áður fyrr. Nú er dansað með verja hvers konar- afglöp og , óhæfuverk, sem unnin hafa verið af einræðisherranum í Kreml, hver sem hann hefur verið. Ef Krústjoff efndi til nýrra málaferla í stíl Stalins, myndi ekki standa á Þjóðvilj- anum að kalla þau „fullkomn ustu málaferli heimsins". Af- staða hinna sjö þingmanna Sósíalistaflokksins, er eklci fengust til að mótmæla kjarn orkusprengingum Krústjoffs, vitna bezt um það. Vatn á myllu aftur- haldsins Ef foringjar Sósíalista- , flokksins væru aðeins lítill sértrúarsöfnuður, myndu menn veita þeirri skurðgoða- dýrkun sem þeir stunda, litla athygli og láta sér nægja að gera hæfilegt skop að henni. Slíku er hins vegar ekki að fagna. Þe’m hefur með ýmiss konar áróðri tekist að afla sér verulegs fylgis og ná ítökum í áhrifamiklum stéttarfélög- um. Með þessum hætti hefur foringjum Sósíalistaflokksins tekizt að sundra samtökum íhaldsandstæðinga og útilok- að starfhæfa vinstri stjórn í landinu um nær þriggja áratuga skeið. Alltaf þegar til einhvers alvarlegs sam- starfs hefur komið, hafa hin framandi og annarlegu sjónarmið þeirra orðið til að sundra því. Og nú þegar óvinsæl aftur- haldsstjórn reynir með ofríki og ofbeldi að treysta sig í sessi telur hún sér vænlegast að geta bent á Moskvuþjónustu leiðtoga Sósíalistaflokksins og notað hana til aö rang- túlka. afstöðu verkalýðsfélag- anna vegna þess, hve áhrifa þeirra gætir mikið innan þeirra. Af þessu öllu geta hinir óbreyttu liðsmenn, sem hing- að til hafa fylgt leiðtogum Sósíalistaflokksins og Al- þýðubandalags’'ns, ekki dregið nema eina ályktun: Hún er aö snúa endanlega baki viö þessum mönnum og efla einn sterkan, umbótasinnaðan flokk íhaldsandstæðinga, Framsóknarf lokkinn. Krustjoff Nú er hins vegar komið annað hljóð í dálka Þjóövilj- ans. Nú er tekið undir allt það, sem Krústjoff segir um Stal- ín. Þegar til kom var það ekki Stalín, sem þeir Einar og Co. fylgdu, heldur einræöis- herrann, sem stjórnar hverju sinni í Kreml. Sýnishornin, sem eru til- greind hér að framan sanna að það hefur aldrei staðið á Þjóðviljann og útgefanda hans, SósíaiLtaflokknum, að Rétta svarið I þessum erfiðleikum, sem ísl. kommúnistar eiga nú í. telja þeir sig geta eygt von um að viðhalda aðstööu sinni, þrátt fyrir þá. Þessi von er byggð á því, að sú rangláta stjórnarstefna, sem nú er fylgt skapi þá kjaraskerðingu og fátækt, sem hjálpi þeim til að þrífast, þrátt fyrir allt. Þetta er vissulega ein af ástæöunum, sem gerir það Framhald á bls 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.