Tíminn - 05.11.1961, Qupperneq 5
TÍMINN, sunnudaginn 5. nóvember 1961
5
Úfgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Rit
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb ), Andrés
Kristjánsson. Jón Helgason Fulltrúi rit
stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga-
stjóri: Egili Bjarnason. — Skrifstofur í
Edduhúsinu — Símar- 18300—18305 Aug
lýsingasími: 19523 Afgreiðslusími' 12323
- Prentsmiðjan Edda h.f —
Áskriftargjald kr 55 00 á mán ínnanlands
í lausasölu kr 3 00 eintakið
Þingræðið í voða
Það er sérstök ástæða til að minna á stjórnmálaálykt-
un þá, sem gerð var á seinasta kjördæmisþingi Framsókn-
armanna í Vesturlandskjördæmi. Þar segir m. a.:
„Kjördæmisþing Framsóknarmanna í Vesturlands-
kjördæmi vekur athygli þjóðarinnar á þeim stórstígu
framförum er átt hafa sér stað síðan hún öðlaðist sjálf-
stæði sitt og bendir á hve þingræðis- og lýðræðisskipulag
á vel við þjóðareðli íslendinga og hefur reynzt þjóðinni
aflgjafi í framsókn síðustu áratuga.
Kjördæmisþingið vill jafnframt minna kjósendur í
Vesturlandskjördæmi, og þjóðina alla á þær skyldur sem
fylgja frjálsum kosningum og rétti ti! þeirra, svo sem að
vera vel á verði um að undirstöðuatriði þingræðis og
lýðræðis séu í heiðri höfð, þ. e. að réttur Alþingis og
sjálfstæði þjóðarinnar sé virt og fyrirheit stjórnmála-
manna haldin.
Sérstakar ástæður telur þingið til þess nú að brýna
fyrir kjósendum að vera minnuglr þessara atriða, þar
sem núverandi valdhafar hafa að þeim sótt og það æ
ofan í æ, svo sem með dæmum skal sannað:
Ríkisstjórnin hóf samninga við Breta um (andhelgis-
málið án alls samráðs við Alþingi og gerði þá samninga
án þess að gefa Alþingi skýrslu um málið, fyrr en samn-
ingar voru lagðir fyrir það fullgerðir.
Þýðingarmikill þáttur löggjafarvaldsins hefur verið
með bráðabirgðalögum um gengisskráningu tekinn úr
höndum Alþingis.
Kjördæmisþingið lýsir þeirri skoðun sinni, að ef slikir
stóratburðir, sem hér hefur verið minnzt á, falla í
gleymsku hjá kjósendum, svo að þeir, sem fyrir þeim
standa, halda trausti og fýlgi þeirra, eftir sem áður, þá
sé þingræði í þessu landi stefnt í voða og sjálfstæði þjóð-
arinnar í hættu."
ÞaS er ekki sízt ástæða til að minna á þetta eftir að
það upplýstist í vantraustsumræðunum, að ríkisstjórnin
gafst alveg upp við að andmæla því, að hún hefði framið
stjórnarskrárbrot með áðurnefndum bráðabirgðalögum.
Þurfti ekki að spyrja
Mbl. spyr í gær, hver sé afstaða Framsóknarflokksins
til Atlantshafsbandalagsins í tilefni af umræðum og at-
kvæðagreiðslu í bæjarstjórn Reykjavíkur, þar sem Val-
borg Bentsdóttir mætti í forföllum þeirra Þórðar Björns-
sonar og Kristjáns Thorlaciusar. Þessi spurning Mbl. var
þó alveg óþörf, því að Eysteinn Jónsson hafði svarað þess-
ari spurningu í Vísi daginn áður. Svar hans var:
„Mér er ókunnugt hvað gerðist á þessum bæjar-
stjórnarfundi en fyrst þér spyrjið um afstöðuna til NATO
vil ég gjarnan nota tækifærið til að segja að Framsóknar-
flokkurinn hefur ætíð staðið og stendur með þátttöku í
NATO, sem fullkunnugt er og telur hlutleysisstefnu alveg
óraunhæfa eins og málum háttar hér.
Ég hef nýlega á Alþingi látið í ljós þá von að hel-
sprengingar Rússa verði til þess að frjálshuga fólk standi
fast gegn yfirgangi alþjóðakommúnismans og láti hótanir
og sprengingarógnanir ekki hræða sig til undanhalds.
Eins og ég sagði er mér ókunnugt hvað fram hefur
farið á bæjarstjórnarfundinum varðandi þessi mál, en ég
vil taka fram, að skoðanafrelsi ríkir að sjálfsögðu innan
Framsóknarflokksins og auðvitað eru ekki allir sammála
þar um allt fremur en annars staðar.“
/
)
'/
'/
?
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
?
'/
'/
'/
)
)
)
)
)
/
)
)
'/
/
/
/
/
/
/
'/
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
)
'/
'/
/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
ERLENT YFIRLIT -
Einræðisherrann í Albaníu
Hann hefur framkvæmt margar „hreinsanir“ í anda Stalíns
SIÐAN flokksþi.ng kommúnista
hófst í Moskvu fyrir tæpum
þremur vikum síðan, hefur at-
hyglin mjög beinzt að einu
minnsta landi Evrópu, sem ligg
ur utan alfara'lieiðar og er
mjög sjaldan nefnt í heimsfrétt
unum. Þetta Iand er Al'banía.
Ástæðan fyrir því að það ber
nú svo mjöig á góma í heims-
fréttunum, er sú, ag hinn
kommúnistisiki einræðis'herra
þar, Enver Hoxha, hefur dirfst
að standa upp í hárinu á Krustj
off, og gagnrýna kenningar
hans um, að frlðsamleg sam-
búð kommúnistískra og kapí-
talískra landa sé möguleg. Þetta
hefur aflað Hoxha mikillar
andúðar Rússa, en í staðinn
hefur hann hlotið stuðning
Kínverja. Á flokksþinginu í
Moskva var mjög deilt á Hox-
han og hafði Krustjoff þar
sj'á'lfur forustuna. Hins vegar
báru Kínverjar Mak af hon-
um og deildu óbeint á Krustj-
off fyrir að gera þessa deilu
opinbera. Kommúnistaríkin
ættu að jafna slíkar dei'lur í
kyrrþey. Kommúnistaflokkur
Albaníu var eini kommúnista-
fiokkurinn, sem efcki átti fuil-
trúa á þinginu.
EINS OG áður segir, liggur
Albanía utan alfaraleiða á
Balkanskaga. Stærð landsins er
um 10 þús.. fermilur og íbúa-
talan um 1.6 milljón. Landbún-
aður er helzti atvinnuvegurinn,
en tálsverð iðnvæðing hefur átt
sér þar stað seinustu árin.
Land.ið laut Tyrkjun fram til
1912, en þá hlaut þag sjálf-
stæði. ítalir lögðu Albaníu und-
ir sig í april 1939 og fóru þar
með stjórn til stríðsloka, ásamt
Þjóðverjum. Öflug andspyrnu-
hreyfing reis gegn þeim ’og
tókst kommúnistum að ná þar
forystu. Þeir tóku því völdin
í stríðslokin, enda veitti Tító
þeim aðstoð’ til þess. Þegar
samvinna Títós og Rússa slitn-
aði, fylgdu kommúnistar í Al-
baníu Rússum að málum og
hefur síðan verið miki'll fjand-
skapur milli þeirra og Títós.
ALLT síðan að kommúnistar
hófust til valda í Albaníu hef
ur Enver Hoxha drottnað þar
með harðri hendi. Hann er nú
52 ára gamall, Sagt er, að hann
hafi búið við fátækt í uppvext-
inum, en vegna námshæfileika
hlaut hann ríflega námsstyrki
og var um skeið við háskóla-
nám í París. Eftir heimkomuna
varð hann háskólakennari.
Hann var þá orðinn kommún-
Krustjoff og Hoxha áSur fyrr
Hoxha getur verið alþýðlegur
isti og hóf þegar að skipuleggja
starfsemi kommúnista í Alban-
íu. ítalir settu hann í fangelsi,
er þeir hertóku Albaníu, en
slepptu honum fljótlega úr
haldi. Eftir það gerðist hann
leiðtogi andspyrnuhreyfingar-
innar og fór huldu höfði. Bæði
Þjóðverjar og ítalir reyndu að
klófesta hann en tókst það
ek'ki.
Hoxha hefur stjórnað með
mikilli jhörku síðan hann varð
einvaldur. Hann hefur hvað eft
ir annað framkvæmt „hreins-
anir“ innan kommúnistaflokks-'
Albanía og nágrannaríki hennar
ins og látið taka af lífi þá
samherja sína, sem hann
hefur talið líklegasta til upp-
reisnar gegn sér. Þamnig er
talið, að 14 þeirra, sam sátu
í miðstjóm komimúnistaflokks-
ins 1944—’48, hafi nú verið
teknir af lífi, en alls voru mið-
stjórnarmeninirnir þá 31. Öll
gagnrýni hefur veri.ð barin nið
ur með fyllstu grimmd. Leyni-
lögreglan í Albaníu er nú hin
illræmdasta í Evrópu og minna
flestir stjórnarhæt.tir þar ó
stjórnarfar Stalíns, þegar það
var hvag verst.
Lífskjör í Albaníu munu hin
lökustu í Evrópu og - sízt betri
en þau voru fyrir stríðið.
Hoxha kemur ekki mikið
fram opinberlega, en þá sjald-
an hann gerir það, er honum
oftast klæddur skrautlegum ein
kennisbúningum. Jafnan er
margt leynilögreglumanna i
fylgd með honum. Hann er
myndarlegur maður í s'jón og
er sagður vera fremur skemmti
legur samkvæmismaður. Sá
dómur er oft felldur um hann,
að hann sé sambland af eldrauð
um kommúnista og einvalds-
fursta frá miðöldum. Sjálfur
telur hann sig vera tryggan
fylgismann Marx í orði og
verki, en að Krustjoff hafi svik
ið kommúnismann og ag Sovét
ríkin séu að verða smáborgara
legt ríki undir stjórn hans.
Þ.Þ.
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
"/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
/
'/
'/
'/
'/
/
/
/
?
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
/
'/
)
)
)
)
'/
/
/
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)