Tíminn - 19.11.1961, Síða 2
2
TÍMINN, siuunudaginn 19. nóvember 196J
Sama sem
engin síld
í gær
í fyrrinótt var bræla og leiðinda
veður á miðunum, og réru fáir
bátar. Einn kastaði út af Jökli,
en reif nótina og hætti við svo
búið.
Síldarleitarskipið Fanney leitaði
síldar i, Grindavikursjó og út af
Selvogi, og lóðaði á nokkra síld á
síðari staðnum. Einn bátur kastaði
þar eftir fyrirsögn Fanneyjar, en
fékk lítiö af síld og smátt það sem
var, og sleppti henni aftur. —
Fanney mun leita betur á þessum
slóðum í kvöld, ef viðrar.
Prjóna á Rússa
(Framhald at l síðu),
Gefjunar og Friðrik Adolfsson,
verkstjóra I Heklu. Gefjun fram-
leiðir prjónagarnið fyrir Heklu,
en verksmiðjan verður einnig að
sinna framleiðslu á fataefni fyrir
innlendan markaff; auk þess er
þar ramleitt band fyrir gólfteppa
gerðtna Vefarann, nokkrir tugir
tonna á ári.
Alull
Teppín eru úr 100% ull í sex
litagerffum. Peysurnar eru úr al-
ull, tnynstraðar, þykkar vetrar-
peysur, Framleiðslan er send út
jafnóðum. Umsamið er, aff pönt-
unin verði futlafgreldd í janúar-
iok 1961.
f Gefjun vinna nú 180 manns
og um 125 í Heklu. í Gefjuni hef
ur jafnan verig unnið á tveimur
vöktum, en nú hafa vaktirnar ver
ið tengdar, svo ekki þurfi að
stöðva vélarnar.
Nýtt íslenzkt
olíuskip
Eins og lítillega var minnzt á í
bláðinu í fyrra dag, er nú hafin
smíði nýs sambandsskips. Tíminn
spurðist fyrir um það í gær hjá
Skipadeild SÍS, hvar skip þetta
væri smíðað og hve stórt það væri.
Þetta er um 1100 tonna olíuskip,
smíðað í skipasmíðastöð Kremer
& Sohn í Elmshorn, skammt utan
við Hamborg. Áætlað er, að það
verði tilbúið til afhendingar í októ
bermánuði næsta ár. Skipið mun
eiga að vera í olíuflutningum við
fslandsstrendur, og í förum til út
landa, þegar þurfa þykír. Hið
nýja olíuskip verður lítið eitt
stærra en Litlafell,
Ráðstafanir til úrbóta
á högum fatlaðra
Eftirfarandi útskrift úr fundar-
gerðarbók „Sjálfsbjargar" í Vest-
mannaeyjum hefur verið send Al-
þingi og ríkisstjórn:
Aðalfundur „Sjálfsbjargar“ í
Vestmannaeyjum, haldinn 1. þ.m.,
tekur undir og minnir á samþykkt
ar tillögur síffasta ársþings „Sjálfs
bjargar" — landssambands fatl-
aðra — þar sem skorað er á Al-
þingi og ríkisstjórn að gera nú
þegar ráðstafanir til aðkallandi úr
bóta á högum fatlaðra, sem í þess-
um tillögum felast.
f.h. „Sjálfsbjörg" Vestm.
Richard Þorgeirsson
25. sýning
Gamanleikurinn „Allir komu þeir aftur'' verður sýndur í 25. sinn í Þjóð-
lelkhúsinu í kvöld. Aðsókn að leiknum hefur verið ágaet og undirtektir
lelkhúsgesta mjög góðar. Þessi gamanlelkur er einn sá vinsælasti, sem
Þjóðleikhúsið hefur sýnt um langan tfma. — Myndin er af Bessa Bjarna-
syni og Rúrlk Haraldssynl í hlutverkum sínum í leiknum
Sex nýjar barna
og unglingabækur
Nýlega eru komnar út sex nýj-
ar baina- og unglingabækur á veg-
um bókaútg. Setberg, sem ætlaðar
eru mismunandi aldursflokkum.
Fyrst skal nefna bókina ÞRÍR
KÁTIR KETTLINGAR, sem er í
stóru broti og með fallegum lit-
myndum á hverri opnu. Þetta er
saga um þrjá kettlinga, þá Klóa,
Gepil og Snepil. Letrið er stórt og
greinilegt, enda er bókin ætluð
yngstu lesendunum. — Þá er bók-
in MAMMA SEGÐU MÉR SÖGU.
Þetta er bók fyrir börn á aldrin-
um 6—10 ára. í henni eru stuttar
og lærdómsiíkar sögur, sem hollt
er fyrir börnin að kynnast. Vil-
bergur Júlíusson valdi sögurnar,
sem prentaðar eru með greinilegu
letri. Bókin er prýdd 32 teikning-
um. — HELGA OG VINKONUR
HENNAR er skáldsaga um heil-
brigðar og tápmiklar stúlkur. Þessi
bók er eftir sama höfund og bókin
Fríða fjörkálfur, sem gefin var út
í fyrra og seldist upp. Bókin Helga
og vinkonur hennar er skrifuð á
léttu máli og ætluð stúlkum á
aldrinum 10 til 13 ára. — GUNN-
AR GEIMFARI er spennandi saga
fyrir drengi um ævintýralega ferð
til stjörnunnar Marz. Hún er ætl-
uð strákum á aldrinum 12 til 15
ára. — HEIÐA OG BÖRNIN
HENNAR, sem er framhald bók-
arinnar Heiða í Heimavistarskóla.
Bækurnar um Heiðu, Pétur, Klöru
og afa gamla á fjallinu, eru ein-
hverjar vinsælustu barna- og ungl-
ingabækur, sem þýddar hafa verið
á íslenzku. — Þá er að síðustu bók
in ANNA FÍA GIFTIST. Þetta er
þriðja og síðasta bókin um Önnu
Fíu og vinkonur hennar. Hinar
bækurnar, Anna Fía og Anna Fía
í höfuðstaðnum, sem komu út í
fyrra, vöktu strax hrifningu ungra
stúlkna á skólaaldri. Þessar Önnu
Fíu-bækur fjalla um heilbrigðar
og tápmiklar stúlkur, skólann
þeirra, heimilið og þær sjálfar.
Freysteinn Gunnarsson skólastj.
hefur þýtt allar bækurnar um
Önnu Fíu.
(Fréttatilk. frá bókaútg. Setberg)
Lækkuö vetrarfargjöld
Eimskipafélag íslands hefur gef-1
ið út ferðaáætlun m.s „Gullfoss"
fyrir árið 1962, og byrjar að taka
á móti farpöntunum fyrir næsta j
sumar.
í þessari nýju áætlun er gert
ráð fyrir að siglingum „Gullfoss"
verði hagað á sama hátt og veiið
hefur síðast líðið ár. Skipið verður
í hálfsmánaðar ferðum yfir sumar-
tímann milli Reykjavíkur og Kaup-
mannahafnar með viðkomu í Leith
í báðum leiðum. Yfir vetrartímann
verða ferðirnar með þriggja vikna
millibili og viðkomur í Leith í út-
leið felldar mður
Sú breyting verður geið á brott-
fai-artíma skipsins frá Reykjavík
næstkomandi sumar að skipið fer
kl. 3 síðdegis á iaugardögum í stað!
Innbrot
í gær var brotizt inn i bílaverk- j
stæði í Siðumúla og stolið þar j
tveim rifflum og pakka með skot-j
um. Auk þess var stolið nokkrum.
Ijósasamlokum.
þess að fara kl. 12 á hádegi, eins
og verið hefur undanfarin sumur.
Bæði er, að síðdegistíminn mælist
vel fyrir meðal farþega, svo og að
rýmri tími verður til afgreiðslu
skipsins, en sá tími hefur jafnan
verið mjög naumur. Jafnframt er
þessi breyting gerð í samráði við
umferðarlögregluna til þess að
greiða fyrir umferð við höfnina,
sem er mjög mikil um hádegið á
laugardögum. Seinkunin á brott-
farartímanum frá Reykjavík breyt-
ir þó ekki komutíma skipsins tii
Leith á þriðjudagsmorgnum.
Síðast liðinn vetur var sú ný-
breytni gerð á Gullfossi að einung-
ip I. farrými var haft opið fyrir
farþega og fargjöldin á því far-
rými stórlækkuð þannig, að ódýr-
ari farmiðaverðin á I. farrými voru
ekki dýrari en venjuleg 2. fariým-
is farmiðaverð. Þessari nýbreytni
var tekið mjög vel af farþegum og
reynslan hefur að öðru leyti orðið
góð einnig. Þessu fyrirkomulagi
verður því haldið áfram í vetur, og
gefst þeim farþegum, sem nú taka
sér far með skipinu kostur á I.
farrýmis íarmiða fyrír 2. farrýmis
verð á tímabilinu nóvember til
marz í vetur.
\
Kornmyllur í
félagsdeildum
Náttúrulækningafélag ís-
lands háSi 8. landsþing sitt í
Reykjavík dagana 20.—21.
okt. 1961 í upphafi þingsins
flutti frú Arnheiður Jónsdótt-
ir, varaforseti bandalagsins,
minningarorð um Jónas Krist-
jánsson, lækni og minntist
annarra látinna félaga. Þing-
forseti var kosinn Klemenz
Þórleifsson, kennari.
Að undanförnu hefur aðalstarf
samtakanna verið uppbygging og
rekstur heilsuhælisins í Hvera-
gerði. Á siðustu 2 árum hefur ver-
ið byggt þar starfsmannahús og
gróðurhús og unnið að fegrun lóð-
ar. Hælið sækja nú um þúsund
manns. Læknar hælisins eru Karl
Jónsson, gigtlæknir, og Högni
Björnsson, sem tók við af Úlfi
Ragnarssyni, er hann lét af störf-
um. Félagið hefur gefið út tímarit
ið Heilsuvernd, og er ritstjóri þess
Björn L. Jónsson, læknir.
Þingið samþykkti ýmsar tillög-
ur, svo sem ályktun þess efnis, að
haga viðurværi í heilsuhælinu eins
og að undanförnu, koma á mat-
reiðslunámskeiðum sem víðast um
landið og stuðla að því, að korn-
myllum verði komið upp meðal
félagsdeildanna og þeim veitt að-
stoð til að afla sér heilnæmrar
matvöru, og að athugaðir verði
möguleikar á að koma upp mat-
stofu í Reykjavík.
Forseti félagsins var kosinn frú
Arnheiður Jónsdóttir, varaforseti
Pétur Gunnarsson, tilraunastjóri,
og meðstjórnendur frú Guðbjörg
Birkis, Klemenz Þórleifsson, kenn
ari og Óskar Jónsson, útgerðarmað
ur. Framkvæmdarstjóri félagsins
er Arni Ásbjarnarson.
Sunnud. 22. okt. s. 1. bauð stjóm
félagsins fulltrúum til hádegisverð
ar í heilsuhælinu í Hveragerði.
Fiugvöllum
iokaö í Kongó
NTB—Leopoldville, 17. nóv,
Hersveitir S.Þ. í Kongó lok-
uSu í dag öllum flugvöllum í
grennd viS Kindu í Kivuhér-
aði til að reyna að einangra þá
herdeild Kongóhers, sem ber
ábyrgð á morði ítölsku her-
mannanna þrettán.
í heimildum herstjórnarinnar f
Leopoldville segir, að þessi her-
deild hafi tekið að ræna og rupla
í húsunum í Kindu og leiki enn
lausum hala, svo að bæði Evrópu-
mönnum og Kongóbúum stafi
hætta af,
HAPPDRÆTTIÐ
Á Þorláksmessu verSur dregið um íbúðlna pg ferðalög utan-
lands og Innan. Það er þrlðji og síðasti dráttur I happdrattinu.
Þeir, sem fenglð hafa helmsenda mlða, og ekki hafa gert skll,
eru beðnlr að hafa samband við skrifstofu happdrœttlslni á Lindar-
götu 9a, — Sfml 12942.
Aðalfundur Framherja
verður haldlnn i dag klukkan 2 í Edduhúsinu.
Venjuleg aðalfundarstörf,
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON, alþm., mætlr á fundinum,
St|órnln,
Námskeíð í verkalýðsmálum
á vegum Félagsmálaskóla Framsóknarflokksins hefst næstkomandi
miðvlkudagskvöld, 22. nóvember klukkan 8,30. Karl Krlstjánsson,
alþinglsmaður, flytur erlndi um vinnulöggjöflna. — Á eftir verða
frjálsar umrœður. — Væntanlegir þátttakendur eru beðnlr að hringja
í slma 16066 eða 19613, þar sem þeir fá nánarl upplýsingar. — Fólk
úr verkalýðsfélögunum er sérstaklega hvatt tll þátttöku i námskeiðlnu
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksíns
Mánudagskvöldið klukkan 8,30 verður fundur í Edduhúslnu og
verða frjálsar umræður um Efnahagsbandalagið og verkalýðsmál.
Allt Framsóknarfólk, eldra sem yngra, velkomið. Mætum stundvíslega.
Almennir stjórnmálafuntfir i Suðurlands-
kjördsmi
K|ördæmlssamband Framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi
e-fnlr til almennra st|órnmálafunda í dag, sunnudag, sem hér seglr:
VÍK ( MÝRDAL kl. 2 e.h.
Frummælendur: Ágúst Þorvaldsson, alþm. og Ragnar Þor-
stelnsson, bóndi.
BRAUTARHOLTI, Skeiðum, kl. 2 e.h.
Frummælendur: Ásgeir Bjarnason, alþm., Jón Eiriksson,
bóndi og Óskar Jónsson, fulltrúl.
HVERAGERÐI kl. 2 e.h.
Frummælendur: Árni Benediktsson, skrifstofustj., Helgi
Bergs, alþm. og Halldór E. Sigurðsson, alþm.
rélagsmálaskóli Árnessýslu
Fyrstu tvö námskeiðin verða haldin á Selfossi, miðvlkudaglnn
22. og 29. nóv. n.k.
HELGI BERGS, verkfr. flytur érlndi um Efnahagsbandalagið.
Frekari upplýsingar hjá
MATTHÍASI INGIBERGSSYNI, Selfossi, forstöðumanni Félagsmála-
skólans.
)