Tíminn - 19.11.1961, Page 11

Tíminn - 19.11.1961, Page 11
TÍMINN, sunnudaginn 19. nóvcmber 1961 11 VIO naut Þeir íslendingar eru lík- lega teljandi, sem séð hafa þjóSaríþrótt Spánverjanna, nautaatið, öðruvísi en á kvik- mynd. Og þeir eru áreiðan- lega teljandi, sem séð hafa konu berjast við naut. Þetta er nú samt til, og nú ætlum við að segja ykkur ofurlítið frá einni konu, sem árum saman hefur barizt við naut í Portúgal og Mexíkó og get- ið sér frægðarorð fyrir, eins og nærri má geta. Nafn hennar er Tamara, og þykir hún góð í listinni. Að sögn er hún mjög kvenleg, þótt mað- ur geti freistazt til að álíta annað. En skýringuna á því seg- ir hún vera, að hún sé fyrst og fremst kona, þar næst komi nautaatið. Á daginn berst hún við nautin í sólheitum hringn- um, en á kvöldin er hún aðeins venjuleg kona. Kona, sem þarín ast eiginmanns, ástar og ef til vill barna til þess að verða reglulega hamingjusöm, eða svo segir hún sjálf. Svaiar reiði sinni á nautum Hún hefur átt heldur storma- samt líf, hvað karlmennina áhrærir. Tvisvar hefur hún ætl- að að ganga í hjónaband. í ann- að sinn mátti hún bíða í kirkj- unni eftii' brúðgumanum, sem aldrei kom, og í hitt skiptið var það hún, sem hljóp á brott úr brúðkaupinu, því að henni varð ailt í einu ljóst, að það vaír alls ekki rétti maðurinn, sem hún ætlaði að fara að giftast. — Ef til vill er það þess vegna, sem ég lagði nautaatið fyrir mig, segir Tamara, svo að ég gæti svalað reiði minni í garð karlmannanna á nautunum. Hún dregiur epga dul á líf það, sem hún lifir. Hún er mikil gleðskaparkona, drekkur mikið og skemmtir sér. Hún hreykir sér af því, að hún þekki margt frægt fólk. Og sá, sem henni líkaði bezt við, var enginn annar en leikarinn frægi, Cary Grant. Kenndi Gary nautaaf Vegna atvinnu þeirrar, sem Tamara stundar, er hún í lönd- um nautaatsins hyllt eins og hetja og boðin hvarvetna, sem eitthvað er um að vera. Og í einum slíkum gleðskap var hún kynnt fyrir Cary Grant. Hún hreifst þegar í stað af honum og segir, að hann sé enn dásam- legri í einkalífinu heldur en á sviðinu. Fyrst í stað reyndi hann að stríða henni, en síðan viður- kenndi hann fyrir henni, að í raun og veru væri hann mikill aðdáandi nautaatsins. En hann vissi bara svo skelfing lítið um það, og hann gæti ekki fengið sig til þess að fara og horfa á það. Og nú væri líann viss um, að þegar hann kæmi aftur til Hollywood, yrði ætlazt til þess, að hann vissi allt um nautaat. Þess vegna bað hann Tamara að segja sér það helzta um það, sem máli skipti. Tamara var alls ekki viss um, hvort honum var alvara eða hvort hann var aðeins að gera að gamni sínu. Þau fóru samt nokkrum sinnum út saman, og Tamara sagði Cary allt, sem henni fannst máli skipta. En enn þann dag í dag er hún að velta því fyiir sér, hvort hann hafði í raun og veru einhvern áhuga fyrir nautaati, eða hvort hann hafði aðeins áhuga á henni sjálfri. Yfir glasi af víni Eiginlega var það algjör til- viljún, að Tamara lagði fyrir sig nautaatið. Það byrjaði allt í hálfgerðu gamni. Hún var stödd í Lissabon og vai' í beyglum eftir síðasta ástar- ævintýrið, sem fékk hálf leiðin- legan endi. Þar rakst hún á vin sinn, sem var stjórnandi nauta- atsins í Lissabon. Hann sat þar að drykkju á bar nokkrum og bauð henni til drykkjunnar með sér. Tamara sagði honum frá vand- ræðum sinum. Unnusti hennar hafði stolið loðfeldum hennar og skartgiipum til að borga skuld- ir, sem hann hafði komizt í við fjárhættuspiíl, meðan hún var í verzlunarerindum í London. Vinur hennar vildi bara upp- örva hana með góðlátlegu gamni og sagði, að hann skyldi glaður endurnýja allar eignir hennar og meira til, ef hún vildi berjast við nput í hringnum í Lissabon. — Ég tek þig á orðinu, sagði Tamara. Síðar iðraðist hún þessa sár- léga, en stolt hennar "neyddi hana til að standa við orð sín. Æfði sig á kálfum Hún vissi nákvæmlega ekki neitt um nautaat. Hún hafði að- eins séð það nokkrum sinnum og var ekki sérlega hrifin af því. Og nú hafði hún aðeins mánuð til að læra þá list, sem góðir nautabanar voru mörg ár að læra. En Tamara tók þetta nýja viðfangsefni með mikilli alvöru. Tvær síðari vikurnar æfði hún sig af kappi undir leiðsögn vin- ar síns, Diamontino Vizeu, sem var vanur nautabani. Hann var strangur kennari og æfði hana eins og atvinnuboxara. Auk æf- inganna varð hún að lifa reglu- legu líferni. Snemma á fætui', snemma að hátta, engan gleð- skap fram eftir nóttu. Hún hefði líka verið of þreytt til þess. Tilraunadýrin voru ungir kálf ar, og henni gekk ekki of vel með þá. í hvert sinn sem þeir stönguðu hana niður í forina, varð hún að rísa tafarlaust upp aftur og byrja á ný. Að lokum var Tamara orðin mjög óþolin- móð og vildi aðeins fá að ljúka þessu sem fyrst. Henni fannst að hún hlyti nú að vita allt um nautaat. — Hlægilegt, sagði hún siðar, ég vissi ekki þá, að naut, alveg eins og menn, eru ákaflega mis- jöfn. Ekki drepin í Portúgal Nautaatið í Portúgal er tals- vert öðruvísi en á Spáni. Á Spáni eru nautin drepin, og þar er konum bannað að stunda þessa hættulegu iþrótt. í Portúgal er það leyft. Þar eru nautin ekki drepin, og þar er nautaatið ekki _ álitið grimmdarleg íþrótt. En nautin þar eru alveg eins hættu- leg, og T..mara segir, að nauta- atið sé grimmdarlegt fyrir þá, sem við þau berjast. Þegar fréttin barst út um það, að Tamara ætlaði að berj- ast við naut, reyndu margir að fá hana til þess að hætta við það. En Tamara var ákveðin, héðan af yrði ekki snúið við. Og lok-ins rann hinn mikli dagur upp. í þetta sinn ha fði nautið betur. Valið naut Dagblöðin geiðu sér mikinn mat úr þessu. — Fegurðin býst til að sigra skepnuna — sagði eitt þeirra. — Tamara kýs held- ur nautshringinn en giftingar- hringinn — sagði annað. Spánskt dagblað kaliaði hana — E1 Sex- appeal de Los Toreros. —. Áhorfendasvæðið var þéttskip- að. Tamara var ekki vitund smeyk. Hún var ekki einu sinni taugaóstyrk. Þama var hún, fjörug og friðelskandi ung kona, sem af augnabliksdrykkjuórum hafði látið leiðast út í það að berjast við naut. Henni fannst það bara hlægilegt. Til allrar hamingju hafði naut- ið verig valið sérstaklega fyrir hana. Það var stórt naut með líf- leg augu, en var talið tiltölulega hættulítið og laust við alla hrekki. Þáð var sú tegund nauta, sem áhugamanneskja eins og Tamara gat haft von um að sleppa lifandi frá. Taugarnar bila En skyndilega komust taugar hennar í ólag. Hún gat ekki skil- ið, hvað komið hafði yfir hana, en hún fann, að ef hún fengi ekki að ljúka þessu af strax, mundu taugar hennar algjörlega bila. Svo að hún bað um, að hún fengi að berjast fyrst í staðinn fyrir síðast, eins og ákveðið hafði verið. Henni var sagt, að það væri ómögulegt, en hún grátbað um, að sér yrði leyft þetta, og eins og venjulega þegar hún grátbað um eitthvað, fékk hún vilja sín- um framgengt. Ein með stóru, svörtu nauti Og það varð til þess, að hún varð að berjast við annað naut en ákveðið hafði verið, naut, sem aðeins þaulvanur nautabani gat vonað að geta ráðið við. Hún gekk inn á sviðið, um- kringt eftirvæntingarfullum á- horfendum. Hún tók ekki eftir þeim. Hún var alein, ein með þessu stóra, svarta nauti og dálít ið 'óþægilegri tilfinningu hið innra með sér. Og gegnum lofíið hún flaug Nautið tók stefnuna i áttina til hennar ,og hún varð gagntekin ótta. Fyrir einhverja hept)ni tókst henni að forðast nokkrar fyrstu tilraunir þess ágætlega. Áhorfendur hrópuðu af Ihrifn- ingu og hvöttu hana óspart. Ef til vill hefur hvatningin stigjg henni tjl höfuðs, því að hún hætti sér of náiægt og mis- reiknaði fjarlægð hornanna. — Þetta geysistóra höfuð boraði sig inn í hana, hún fann til ónota- tilfinningar og flaug í gegnum loftið. Þegar hún vissi næst af sér, lá hún á skurðarborði og sá ótal a-f.'it umhverfis sig. Hún sá ekki með öðru auganu, hún hafði sáran sting fyrir bringunni, og henni leið ákaflega illa. Engu að síður krafðist hún þess, að hún fengi að Mæða sig og fara inn í hringinn aftur. Aliir reyndu að stöðva hana, en hún varð að- eins ákveðnari. MeS annaS augaS opiS Þegar hún kom inn í hring- inn á ný, var hinn frægi nauta- b"~i, Juan Moreno að fást við r 'T Hann varð skelfingu lost- inn, þegar hann sá hana birtast þarna, marða og meidda. með aðeins annað augað onið. en þeg- ar hann sá, hversu ákveáín hún var, ákvag hann að hjálpa henni. Hann beið viðbúinn að þjóta henni til hjálpar, ef eitthvað kæmi fyrir. Nautið kom þjótandi að hsnni með ofsahraðá. Af ótta e" mátt- leysi gat Tamara ekki hreyft sig. Juan hrópaði til henra-. og hún sneri sér við, rétt mátulega til að forðast horn nautsins. Þá var eins og hún áttaði sig, 6g upp í huga hennar skaut e:nhverju af því, sem henni hafð'i verið kennt. Átta brotin rif Enn þann dag í da? getur hún ekki almennilega gert sé-* írem fyrir þvf, hvað eig'nlega skeði, en hún gerði vissulega ‘el Hún barðist enn við nautið nokkra stund, og áður en hún fél’ í ann- að sinn, heyrði hún. að áhnrf- endur fögnuðu henm ems og ó"'ir væru. Næsta dag var hún orðin fræg. Hún var stórfrétt a!!-a blaða, ekki aðeins í Portúgai og á Spáni, heldur víða um heim. Tamara var lítið hrifin af frægðinni þá. Hún lá á sjúkra- húsi með skaddað auga og átta brotin rif. Og hún hafði miklar áhyggjur af b'í. hvar allt þetta mundi lenda IIú'i hirf varla að hafa áhyggj- ur úl aí því 1 dag.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.