Tíminn - 26.11.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.11.1961, Blaðsíða 1
301. tbl. — 45. árgangur. Sunnudagur 36. nóvember 196L Veðrið er harðast á Norð-Áusturlandi f Skagafirði var mikið norð- anveður með hríð í gær, en hafði þó heldur lægt frá því sem var á föstudaginn. Skemmdir á mannvirkjum höfðu helzt orðið á Siglufirði. Auk skarðsins í flóðvarnar- garðinn, sem sagt var frá í blaðinu í gær, hefur komið í Ijós, að miðjan úr lýsisbryggju Síldarverksmiðju ríkisins er farin úr og margar aðrar bryggjur eru að einhverju leyti skemmdar. í gær var veður enn hvass- ast á Norð-Austurlandi, 8—10 vindstig fyrir hádegið. Veður- stofan taldi sennilegt, að veðrið mundi heldur ganga þar niður síðari hluta dags, en um hádegið var versnandi út- lit á Seyðisfirði. í gær var enn símasamfoands- laust við Kópasker og Raufar- höfn, Bakkafjörg' og Vopnafjörð. þar kann að hafa gerzt. Auk þess hafði samfoandið rofnað við Þórs- höfn, Bakakfjörð og Vopnafjörð. Sambandið við Seyðisfjörð, Egils- staði, Neskaupstað, Reyðarfjörð og Eskifjörð rofnaði um stund fyrir hádegið. Langanes Blaðið náði loftskeytasambandi vig radarstöð hersins á Langanesi og spurðist fyrir nm ástandið á Þórshöfn. Þangað höfðu þá engar fréttir borizt úr þorpinu í gær. Enga vitmeskju var að fá um á- standið í sveitinni, en stöðvarmað- ur sagði, að það hefði verið slæmt á föstudaginn. Á Langanesi var hVassviðri, en ekki snjókoma. bnrchnfn MYndin er tekin suðaustan við þorpið. PUlaliUllI Sygst £ tanganum stendur læknisbústað- urinn, þar sem brimrótið gekk upp á aðra hæð. Hægra megin við hann eru gömlu kaupfélagshúsjn. Þar gekk sjór inn og eyðilagði miklar vörur. Handan við byggðina sést Þistilfjörðurinn opinn til norðurs. — Skemmdir á veginum inn í fjörðinn voru kannaðar í fyrradag. Hann er nú horfinn á 3 kílómetra kafla, eða hann liggur undir hrönnum af fjörugrjóti. Seyðisf jörður Fréttaritari blaðsins ' á Seyðis- i firði sagði, að þar hefði veð'rið færst ,í aukana í fyrrinótt með hvassri norðaustanátt og mikilli snjókomu. Klukkam fjögur um nóttina lagði maður frá Seyðis-! firði upp á Rússajeppa og ætlaði: til Fáskrúðsfjarðar. Hann kom til Egilsstaða klukkan níu um morg- uninn eftir fimm klukkustunda barning yfir Fjarðarheiði, en hún er ekin á þrem stundarfjórðung- um í/góðu færi. Nú fer ekkert farartæki yfir heiðina nema snjó- bíll. Fagridalur lokaðist í fyrri- (Framhald á 2 síðu.> Fyrsti loftsteinn féll hér á landi - í viðurvist sjónarvotta Páll Bergþórsson veður- fræðingur skýrir frá því í nýju hefti af Veðrinu, fímariti um veðurfræði, að árdegis 6. september í haust hafi loft- steinn fallið á Siglufirði, og er þetta í fvrsta skipti, að loft- steinn eða brot úr loftsteini finnst hérlendis. Steinninn er tveir sentimetrar, eða rúm- Alvarlegt tjón á hús- um bryggju og skipum Uoffsteinninn, sem féll á Siglufirði f haust í nokkuS stækkaSri mynd. lega það, á þann veginn, sem hann er stærstur. Það er í frásögur færandi, að bifreiðarstjóri á Siglufirði, Jón Þorsteinsson, varð sjónarvottur að því, er steinninn kom til jarðar. í Jón fór þegar með steininn í | lögreglustöðina á Siglufirði. Sagð- ; ist honum svo frá, að hann hefði! komið auga á blys á lofti í suð-: vestri. Nálgaðist það óðfluga, og1 fylgdi hann því eftir meg augun-1 um. Virtist honum það ætla að fljúga beint á bílinn. En þó fór ■ betur en á horfðist, því að það i skall á járngjörð á síldartunnu, rétt hjá honum, Jón sá þegar, að þetta myndi, vera loftsteinn, og duldist honum ekki, að hann hafði orðið hér vitni að harla sjaldgæfum atburði. Steinninn ílattist út, er hann lenti járngjörðinni, og ber hann greini- leg merki eftir höggið. Dálítið af ryðkornum úr gjörðinni hefur einnig runnið saman við bráðinn steininn. Steinninn hefur ekki verið efna- greindur enn. Vegir eru skemmdir af sjógangi rétt vestan Haganesvíkur og aust- an Sauðárkróks, en þar er nú mik- ið landbrot, svo mikið, að það er farið að nálgast flugvöllinn, ískyggilega. Vanhöld á fé Enginn bíll hafði komizt til Sauð árkróks á hádegi í gær úr nær- sveitunum, en vitað var, að einn mjólkurbíll ætlaði með hjálp að brjótast þangað. Á stöku bæjum vantar eitthvað af fé, mismunandi mikið, og er erfitt að henda reiður á því, hvaða bæir hafa orðið verst úti. Á Siglunesi var á föstudaginn mesta brim, sem menn muna eftir að orðið hafi þar’. Áttu sauðleitar- menn þar í talsverðum erfiðleik- um, en allt gekk þó að óskum. Hofsós Hér hefur verið aftakaveður með stormi og stórhríð, en er nú tals- vert að ganga niður. Bændur munu þó flestir hafa náð inn fé sínu að mestu, en ekki er það þó fullvitað, þar sem símasambandslaust er við suma bæina. Á Lónkotsmöl í Fellshreppi hreif brimið með sér þi jár sjóbúðir, sem stóðu á malar- kambi við sjávarlón, og hafa ,þær staðið þar óáreittar í meira en öld. Sjór hefur ekki gengið í lón þetta síðan 1934. Skemmdir urðu miklar á vegin- um milli Hofsós og Haganesvíkur hjá Sandós. Þar grófst vegurinn í sundur og brimið gekk upp í vatn. Tjón í þorpinu sjálfu hefur ekki orðið neitt sem heitir nema að nokkrir bátar munu hafa skaddazt lítillega N.H. RafmagniS enn skammtað Akureyri, 25. nóv. Nú er mun skárra veður, en þó norðanhríð enn þá og töluverður snjór kominn, og ekki fært nema um fáeinar götur hér í bænum, en til stóð að far’ið yrði að skafa þær í dag. Rafmagn er skammtað enn, en búizt við að það fari að lagast. Barnaskólanum og gagn- fræðaskólanum var lokað. Brotizt með mjólk í gær voru biðraðir við allar báðir, sem verzla með steinolíu, (Framhald a 2 síðu j Samgöngu- og tal- sambandserfiðleikar Ofsaveðrið, sem gengur yfir ; landið norðanvert, hefur leik- ið samgöngur heldur grátt. Ekkert er flogið, aðeins er vit- að um, að farið hafi verið á bílum yfir eina heiði, Holta- vörðuheiði, vegir í héruðum eru víða þungfærir og jafnvel ófærir, talsímasamband hefur verið léíegt og margir staðir sambandslausir. Sneri við á flugbrautinni Allt innanlandsflug hefur legið ■niðri þessa óveðursdaga. í fyrra- dag var gerð filraun til að fljúga til Hornafjarðar, en flugvélin sneri við úti á flugbraut. í gær var hætt við * flugtilraun til Akureyrar og Egilsstaða. Reykjavíkurflugvölluir hefur þó alltaf verið opinn og millilandafiugið því gengið snurðu laust. Enginn leggur á f jallvegi Gera má ráð fyrir, að velflestir fjallvegir á norðurhluta landsins séu þegar lokaðir eða í þann veg- inn að lokast vegna snjókomu. Sem stendur eru heiðarnar ófærar beinlínis vegna fárviðrisins. Eng- inn leggur i að reyna þær. Á Vestfjörðum hefur fennt geysi lega mikið og eru sennilega allar heiðar þar ófærar. Norðan lands og austan hefur snjókoman verið minni, en víðast hvar er talið, að hún hafi verið nóg til að loka heið- unum, þótt það sé yfirleitt ekki fullreynt. Snjóplógur á HoltavörðuheiSi Aðeins hefur borizt vitneskja um, að farið hafi verið yfir eina heiði, Holtavörðuhéiði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.