Tíminn - 26.11.1961, Blaðsíða 2
2
vl.O / /'./'••*' *’
sunnudaginn 2S. n6vember 1961.
Tjón á húsum, bryggju
og bátum
upp í fjöruna, en er ekki talinn í
mikilli hættu, þótt trúlega verði
erfitt að ná honum út.
Varðberg á
Akureyri
annað kvöld
Varðberg, félag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
lieldur almennan fund á Akureyri
annað kvöld, mánudaginn 27. nóv.
Framsögumenn á fundinum verða
alþingisinennirnir Jón Skaftason,
Benedikt Gröndal og Matthías Á.
Matthiesen. Fundarefnið verður
Island og vestræn samvinna.
Fundur þessi verður í Borgar-
bíó og hefst kl. 8.30. Á fundinum
verður sýnd kvikmynd er nefnist
„Ferð um Berlín" og er hún með
íslenrku tali.
Kekkonen og Krustjoff
ÍFramhald af 3 síðu)
að þær hafi farið fram í anda vin-
semdar,
Honka, frambjóðandi til forseta-
embættisins í Finnlandi, hefur nú
tekið aftur framboð sitt, og er það
talið styrkja aðstöðu Kekkonens
og þar með Finna. Simamenn hófu
verkfall í Finnlandi í morgun, og
var sambandslaust nema milli
Helsinki og Moskvu.
Norí-Austurland
(Framhald aí 1 síðu).
nótt. Á Seyðisfirði var versnandi
útlit um hádegið.
Egilsstaðir
Fréttaritari blaðsins á Egilsstöð-
um sagði, að þ^rJtp^i^ijj'ipað mik
ið í fyrrinótt og gærmorgun. Veðr-
ig fór hægt að, svo bændum á
Héraði vannst nægur tími til að
hýsa fé sitt. Ekki er kunnugt um
skaða á Héraði. Þó kann að vera,
að stöku kind hafi ekki náðst
í hús. Vegir munu enn færir um
Héraðið, en fjallvegir hafa lok-
ast. Á Egilsstöðum hefur fólk beð
ið eftir flugvél í þrjá daga. Vind-
hraðinn var 4—5 stig klukkan eitt.
NeskaupstaSur
Á Neskaupstað ‘var snjóþragl-
andi og 2—4 vindstig á hádegi
í gær, en hvassara úti fyrir. Odd-
skarð var fært bilum með drifi
á öllum hjólum.
band var við, varg að fækka lín-
um vegna samsláttar.
Alvarlegar bilanir urðu í Stein-
grímsfirði, milli Guðlaugsvíkur og
Óspakseyrar, við Haganesvik,
milli Kópaskers og Húsavíkur og
milli Egilsstaða og Fosshóls.
Viðgerðaflokkar voru farnir til
viðgerða á alia þessa staði, en vafa
samt var víða talið um árangur,
vegna storms og snjókomu. Er það
sérstáklega bagalegt, þar sem þeir
staðir fara verst út úr því, sem
hafa orðið fyrir öðrum áföllum af
veðrinu eins og t.d. Þórshöfn
GRÍMSEY. — Aftakaveður hefur
verið hér undanfarna tvo sólar-
hringa og stórhríð. Þrátt fyrir
þennan óskaplega veðurofsa, hef-
ur ekki orðið mikið tjón, en þess
be rþó að gæta, að ekki hefur
verið gerlegt að rannsaka til hlit-
ar afleiðingar veðurofsans, þar
sem enn er stormur og éljagang-
ur. Vitað er þó, að einn txillubát-
ur hefur sokkið, og síldarkassar,
sem stóðu á hafnarbakaknum
fuku í sjóinn Sjórinn gengur lát
Jaust yfir hafnargarðinn, en garð-
urin nvirðist ekki hafa skemmzt.
G.J.
Pípuorgel í
Bústaðasókn
Nokkrir Bústaðasóknarmenn
hafa ákveðið að gangast fyrir
samskotum til kaupa á pípu-
orgeli fvrir Bústaðasókn, og
reikna með, að það verði á
sínum tíma sett upp 1 fyrir-
hugaðri kirkju safnaðarins.
Ákveðið hefur verið að panta
ellefu radda pípuorgel frá hinum
þekktu Walkerverksmiðjum í
Þýzkalandi. Kaupverð þess verður
nokkuð hátt, og þess vegna vilja
upphafsmenn söfnunarinnar skora
á alla safnaðarmenn að sýna máli
þessu gðan skilning og liggja því
lið, því margar hendur vinna létt
verk.
Framlögum veita meðal annarra
viðtöku:
Axel L. Sveins form safnaðar-
nefndar, Hæðargarði 12, Gunnar
Árnason sknarpórestur, Digranes-
vegi 6, Hákon Guðmundsson safn-
aðarfulltrúi, Bjarkahlíð, Jón G.
garði 35, Auður Matthíasdóttir
form. Kvenfélags Bústaðasóknar,
Hæðargarði 12.
Hátíðahöldin
1. des.
Undirbúnimgi stúdenta að há-
tíðahöldunum á fullveldisdaginn 1.
desember, er nú að ljúka. Hafa
stúdentar ákveðið, að daguxinn
verði að þessu sinni helgaður
„vestrænni samvinnu", og mun
aðalræða dagsins, sem Bjami
Benediktsson forsætisráðherra
flytur, fjalla um það efni. Einnig
mun Stúdentablað, sem kemur út
þann dag, að verulegu leyti fjalla
um þetta efni.
Samkoman í hátíðasal háskól-
ans hefst kl. 14,00, og verður út-
varpað frá henni. Hörður Einars-
son stud. jur., formaður hátíða-
nefndar stúdenta, setur samkom-
una með stuttu ávarpi ,en að því
loknu flytur forsætisráðh. ræðu
sína. Þá flytur Hákon Guðmunds-
son hæstaréttarritari erindi um
kjör og stöðu hins háskólamennt
aða manns, og formaður SHÍ, Hörg
Barnshafandi konur
Framhald af 3. síðu.
stundir eftir skoðun.
Þetta 'hefu rvaldið nokkrum leið
indum. Bæði er þag að margar
konur hafa nauman tíma aflögu
frá heimilum sínum, svo og þola
barnshafandi konur oft illa lang-
ar setur. Því hefur nú verið ákveð
ið að reyna að ráða bót á þessu
ástandi og að forða konum frá
óþarfa bið.
Frá 1. des. n.k. mun sá háttur
verða upptekinn ,ag konur geti
pantað ákveð'inn tíma fyrir hverja
skoðun og með því reynt að dreifa
konum jafnara niður á skoðunar-
daga. Þeir verða sem áður á mánu
dögum, miðvikudögum og föstu-
dögúm kl. 13—15. Ætlast verður
til að konur mæti til skoðunar
þessa daga a.m.k. 4 sinnum á
meðgöngutímanum, í fyrsta sinn
á 2.—3. mánuði meðgöngutímans,
í annað sinn á hálfnuðum tíma,
í þriðja og fjórða sinn um 6 vik
um og um 3 vikum fyrir væntan-
lega fæðingu.
Auk þessa verður sú nýbreytni
tekinn upp, að aukaskoðun Ijðs-
mæðra hefst nú og fer hún fram
tvisvar í viku, á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 13—15, og mun
þar verða fyrst og fremst fylgst
með þyngd konunnar, blóðþrýst-
ingi og þvag athugacS að eggja-
hvítu. Sú skoðun hefst á miðjum
meðgöngutíma ,og er ætlazt til að
konur mæti þar hálfsmánaðarlega
fram að síðasta mánuði meðgöngu
tímans, en eftir það vikulega fram
að fæðingu, nema annað sé á-
kveðið í samráði við læfcni. Mun
einn af þrem læknum deildarinn
ar ætíð verða við í seinni skoð-
unartímanum, bæði til eftirlits og
til viðtals við þær konur, sem
þess ósfca.
Loks hefur verið ákveðið, að
konur, sem fætt- hafa, eigi kost
á læknisskoðun í deildinni, 6—8
vikum eftir fæðingu, og mun sú
skoðun fara fram á þriðjudögum
og fimmtudögum eftir fyrirfram
ákveðnum tíma. Að lokum skal
þess getið, að öll þessi þjónusta,
sem veitt er á deildinni, er að
kostnaðarlausu fyrir konur úr
Reykjavík.
Yfirlæknir mæðradeildar er
Guðjón Guðnason, en auk hans
starfa þar læknamir Andrés Ás-
mundsson og Jón Hannesson.
ur Sigurgestsson stud. oecon., flyt
ur ávarp. Á milli atriða leikur
svo strengjatrió, sem í eru Jón
Sen, Einar Vigfússon og Jórunn
Viðar.
(Framhald af l síðu).
eins og ævinlega, þegar rafmagnið
fer. — Flug hingað hefur legið
niðri s.I. 4 daga.
Bílar eru á leið til bæjarins með
mjólk, en margar leiða til til bæj-
arins eru mjög þungfærar og svo
gott sem ófærar. Margt fólk er hér
á Akureyri, sem þarf austur yfir
heiðar, og er nú að ræða um að
fá með sig snjóbíl, því að Vaðla-
heiði og Fljótsdalsheiði eru ö~r-
um bílum ófærar.
Braut einu bryggjuna
Á Litla-Árskógssandi var ofsa-
veður eins og annars staðar hér í
grennd, og tók sjórinn einu
bryggjuna á staðnum og slengdi
henni upp í fjöru, svo að hún
knasbrotnaði. Á Hauganesi gróf
undan sjóhúsi og er það mjög far-
ið að síga. ED
Enn mikið veður
Hrísey, 25. nóv.
Það er litlu við fréttirnar frá í
gær að bæta, þó hefur hann held-
ur gengið niður með minni sjó.
Þó er milt veður enn þá, og ekki
hefur verið hægt að athuga
skemmdirnar til hlftar. Sjór er
enn í drykkjarvatninu og verður
þar til hægt reynist að dæla upp
úr brunnunum og endurnýja
vatnið. ÞV
Braut úr hafnargarðinum
Dalvík, 25. nóv.
Stórhríðin hófst hér á miðviku-
daginn, en ekki varð sérlega vont
fyrr en í gær, því að veðr'ið náði
sér ekki almennil. upp fyrr en þá.
Hér var haugasjór og stórstreymt
að auki, og braut sjórinn ofan af
hafnargarðinum, sem gerður var í
fyrra á 100 metra kafla rétt ofan
við fremsta hluta hans, svo að
hann er þar jafn sjávarborði. Erf-
itt ,var að hemja báta og skip hér
í höfninmi og leituðu flest til Akur
eyrar, en einn stór bátur, fjórir
dekkbátar og nokkrar trillur urðu
eftir. Tvær trillurnar rak á land
og brotnuðu þær eitthvað, og ein
sökk á legunni, en hina bátana
tókst að verja með harðfylgi.
Vanhöld á fé
Á Þorsteinsstöðum vantaði 25
kindur, þegar veðrið brast á.
Þeirra var leitað, og fundust 18 á
Skaflárdal, og komust leitarmenn
með þær heim á dal að svokölluð-
um Hólum,, en urðu að skilja þær
þar eftir. Á öðrum bæ, Koti, vant-
ar enn 5 kindur.
Braut glugga og hurðir
Sjórinn gekk óvenju hátt upp,
tók m. a. upp fyrir gamlan malar-
kamb í fjörunni og heim undir
íbúðarhús. Nýreist verhús stendur
niður undir fjörunni, og er stein-
steypt stétt framan við það. Sjór-
inn braut glugga í húsinu og reif
upp dyrnar, en aðrar skemmdir
urðu ekki á því, og því sem í hús-
inu var, tókst að bjarga kvöldið
áður. - PJ
Hleypti upp í fjöru
Ólafsfirði, 25. nóv.
Hér hafa gengið ósköp á, iðu-
laust stórhríðarrok í tvo sólar-
hringa, en er nú ekki eins hart
lengur. Þetta byrjaði með stórsjó
á miðvikudagskvöldið, en allir' bát
ar voru heima um nóttina. Klukk-
an fjögur daginn eftir, lagði Ólaf-
ur bekkur af stað til Akureyrar
og komst klakklaust, en Sæþór,
155 lestir, lagði af stað klukkan
sjö, Þá var komið svo mikið sog
og straumur í hafnarmynnið, að
Sæþór snarsnepist við og rakst all
harkalega á hornið á norðurhafnar
garðinum, að hann dældaðist nokk
uð. Sá skipstjórinn ekki annað ráð
vænna en að hleypa honum upp í
fjöru, og þar stendur hann að
mestu leyti fyrir strekkingnum inn
höfnina, og hefur nú kastast hátt
Gegnum lifrarbræðsluna
Á fimmtudaginn sökk trilla á
höfninni, en kvikan færi hana upp
í sand um kvöldið. Hún er að vísu
brotin, en talið er að fært verði
að gera við hana. Þá gekk sjórinn
inn í beitingaskúr, sem stendur
svo sem 30—40 metra frá sjó norð
an við nyrðri hafnargarðinn, þar
inni var bill, sem kastaðist til og
stórskemmdist. Þá brauzt sjórinn
í gegnum lifrarbræðsluna, sem
stendur vestan við vestari hafnar-
garðinn, og flæddi alveg í gegnum
hana. Þar var fátt til að skemma
annað en bræðslupottarnir, en hús
ið er stórskemmt. Þá tók sjórinn
fremstu bryggjuna innan við
nyrðri hafnargar'ðinn, og hefur
ekki sézt til hennar síðan.
Allir bátar keyrðir
Miklir erfiðleikar hafa verið á
þvi, að hemja báta og skip í höfn-
inni. Fyrir Sæþóri fór sem fór, og
Guðbjörg, annar stór bátur, hætti
við að reyna að komast út, þegar'
sást hvernig fór fyrir Sæþóri. Hún
hefur nú lónað um leguna í tvo
sólarhringa. Yfir öðrum bátum hef
ur einnig verið vakað allan tím-
ann og þeir keyrðir á fullu, því að
það er ekki nóg að þeir séu bundn
ir. — Þetta er versta veður, sem
hér hefur komið síðan 1934, og
hjálpaði allt til, versta veður og
stórstreymt. B.St.
Húsavik
Á Húsavik hafði sjó lægt og
veður skánað. í fyrradag urðu
þar rafmagnstruflanir vegna krapa
í Laxá. Engir mjólkurbílar komu
til Húsavíkur í gær og fyrradag.
Allir vegir í nánd við kaupstað-
inn voru ófærir og ekkert hafði
frétzt úr næstu sveitum. Brimið
sem gekk á í Húsavifc á föstu-
dagsnóttina, er líklega það mesta
sem þar hefur komig í manna-
minnum.
Síðdegis í gær bárust þær frétt
ir, að bílarnir, sem lögðu frá
Fornahvammi um hádegi á Holta
vörðuheiðina, væru komnir heilu
og höldnu niður í Hrútafjörð. Var
þetta tíu bila lest, þar á meðal
áætlunarbílar Norðurleiða og
flutningabílar frá Akureyri, Húsa-
vifc og Sauðáifcróki. Bill með snjó-
plóg fór fyrir lestinni, og voru
þeir ekki nema tvo tíma ag kom-
ast yfir heiðina. Er heið'in nú fær
flestum stærri bílum.
Þæfingsfæri er í Hrútafirði, en
veður orðið skaplegt, og mun bíll
in-n með snjóplóginn fara fyrir
bílalestinni allt til Miðfjarðar, en
þangag kemur annar snjóplógs-
bíll frá Blönduósi, sem mun fara
með henni til Blönduóss. Litlar
fregnir hafa borizt um færlð á
þeirri leið ,en sfcaflar munu vcra
viða á veginum.
f Hrútafirði var veðrið heldur
að skána í byggð, og áttu bílar
þeir, sem í Fornahvammi höfðu
beðið í tvo sólarhringa; að leggja
á heiðina um hádegið. Ýta fór upp
að norðanverðu á móti þeim, og
bíll frá Blönduósi með ýtutönn
framan á, lagði einnig af stað
fram Hrútafjörðinn til þess að
hjálpa bílunum.
Vegir í héraðinu eru víða ill-
færir eða ófærir
Hálfu verra á fösfudaqinn
Geysilegir erfiðleikar voru í gær
með allt talsamhand. Var ástand-
ið hálfu verra en deginum áður.
Margar stöðvar voru alveg sam-
bandslausar um daginn og víða
var lélegt samband.
Sveiflanir og samsláttur
Sums staðar hafa orðig skemmd,
ir á línum af völdum sjógangs.
annars staðar af ofviðri, en víðast
hvar ollu sveiflanir á línum trufl
unum. Við marga staði, sem sam-
Félagsmálaskóli Árnessýslu
| Á miðvikudagskvöldlö kl. 8.30 flytur HfeLGI
BERGS, verkfr., erindi í fundarsal K. Á. um ÍS-
LAND OG EFNAHAGSBANDALAGIÐ.
Framsóknarfólk, eldra sem yngra, velkomið.
Mætum stundvislega.
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins
4 Næsti fundur er kl. 8.30 í EDDUHÚSINU.
GUNNAR DAL rlthöfundur, flytur framsöguer-
indi er hann nefnlr „TRÚ OG STJÓRNMÁL".
Allt Framsknarfólk, eldra sem yngra, vel-
komlð.
Stjórnmálafundir í Suðurlandskjördæmi
m helgína
Kjördæmlssamband Framsóknarmanna I Suðurlandskjördæmi
efnir til þriggja almennra stjórnmálafunda í dag.
VESTMANNAEYJAR:
Fundurinn verður í Alþýðuhúsinu og hefst kl. 3,30 í dag.
Frummælendur: Eisteinn Jónsson alþm., ræðir um stjórnmála-
viðhorfið, Helgi Bergs, alþm., ræðir um Efnahagsbandalagið, og Sig-
urgeir Kristjánsson, lögr.þj., ræðir um bæjarmál.
SELFOSS
Fundurinn hefst klukkan 3 eftir hádegi i dag.
Frummælendur: Hermann Jónasson, form. Framsóknarflokks-
ins, Sigurður í. Slgurðsson, oddviti og Óskar Jónsson, fulltrúl.
ARATUNGU BISKUPSTUNGUM
Fundurinn hefst klukkan 2 eftir hádegi í dag.
Frummælendur: Ágúst Þorvaldsson, alþm., Sigurfinnur Sigurðs
son, bóndi og Þorsteinn Sigurðsson, form. Búnaðarfélags íslands.