Tíminn - 26.11.1961, Blaðsíða 14
14
T í IVIIN N, sunnudaginn 26. nóvember 1961.
mér. Þó mér félli það þungt,
svaraði ég henni því sama, að
það gæti ekki átt sér stað, en
þegar ég væri búinn að leggja
skipinu mínu að lanri, og
væri laus eiða minna, skyldi
ég gera allt sem í minu valdi
stækði til að frelsa hana.
— Heyrið þér prinsessa?
spurði Hassan i því hann
sneri sér áð Rósamundu.
— Hvað segið þér nú?
— Eg segi að þessi maður
lýgur til að frelsa sjálfan sig.
Eg segi enn fremur, að ég svar
aði honum, að heldur vildi ég
deyja en að hann snerti mig
með sínum minnsta fingri.
— Eg held líka að hann
ljúgi, sagði Hassan. — Nei,
sleppið rýtingnum ef þér vilj-
ið framar sjá dagsins Ijós.
Hérna vil ég ekki berjast við
yður, en Salah-he-dín skal fá
að vita þetta allt, er við kom-
um til hirðar hans, og svo
getur hann sjálfur dæmt í
mllli orða prinsessunnar af
Balbec og leiguþjóns hans,
falska Frankans og sjóræn-
ingjans, Sir Hugh Lozelle".
— Látum hann fá að vita
það er við komum til hirðar
hans, svaraði Lozelle lymsku
lega og bætti síðan við: —
Hafið þér svo meira að segja,
Hassan fursti? Ef svo er e^kki,
verð ég að hugsa um stjórn
skips mins, 'sem þér hafið
máske haldið að ég væri að
því kominn að gleyma fyrir
kvenmannsbrosi.
— Aðeins eitt enn þá, Sal-
adin á þetta skip, en ekki þér,
því að hann keypti það af
yður, og héðan af verður þess
arar konu gætt dag og nótt,
og vörðum fjölgaði er við kom
um til Kýpur, þar sem þér
virðist eiga vini. Skiljið það,
og munið'
— Eg skal áreiðanlega
muna, svaraði Lozelle. Síðan
skildu þeir.
— Eg hygg, sagði Rósa-
munda, er hann var farinn,
að við megum telja oss sæl ef
við komumst heilu og höldnu
á land í Sýrlandi.
— Það held eg líka. Eg held
líka að eg hafi ekki gætt nægr
ar varúðar, því að ég var
manni þessum svo reiður, og
þar að auki veiklaður eftir
veikindin, svo að ég missti
jafnvægið og sagði þeim allt,
sem mér bjó í brjósti, sem ég
hefði máske ekki átt að gera.
Það væri áreiðanlega réttast
að drepa hann nú þegar; en
hann er sá eini, sem kann að
stjórna skipinu, sem er list,
er hann hefur lært á æsku-
árum sínum. Nei, látum það
ske sem Allah vill vgrða láta,
hann er réttlátur og mun
skera úr málum þessum á
réttum tíma.
— Já, en á hvern hátt?
spurði Rósamunda — Eg
vona að úr þeim verð' skorið
með sverðinu, sagði Hassan,
hneigði sig síðan og yfirgaf
hana.
Eftir þetta héldu vopnaðir
menn vörð fyrir utan káetu
þá, er Rósamunda bjó í, og
þegar hún gekk sér til
skemmtunar um þilfarið,
fylgdu henni eftir vopnaðir
menn. Hún var nú líka óáreitt
af Lozelle, er hvorki reyndi
að ná tali hennar né Hassans,
en við Nikulás var hann oft
á tali.
Lozelle var duglegur sjó-
maður, í raun og veru einn af
þeim beztu, er héldu uppi
siglingum á þessari leið. Fagra
kvöldstund vörpuðu þeir loks
akkerum við strenrur Kýpur-
eyjar. Framundan þeim, með-
fram ströndinni, lá Limasol,
með sínum fögru pálmalund-
um, en bak við hina frjósömu
sléttu, er bærinn stóð á, reis
Trocidos-f j allgarðurinn.
Veik og þreytt af hinni
löngu sjóferð, starði Rósa-
munda undrandi á hina fögru,
grænu strönd, er svo margir
sögulegir atburðir voru tengd
ir við, og hún varp mæðilega
öndinni, er hún hugsaði til
þess að mega ekki fara þar í
land.
Lozelle heyrði hana and-
varpa, og um leið og hann
renndi sér mður í bátinn,
spottaði hann hana og sagði:
„Viljið þér nú samt sem áður
ekki skipta um skoðun og
fylgja mér til vinar míns, ís-
aks keisara? Ég get fullvissað
yður um, að það er fjörugt við
hirð hans. Þar eru hvorki
skuggalegir Serkir, né píla-
grímar er hugsa um sálarheUl
sína. Á Kýpur fara menn að-
eins pílagrímsferðir til Path-
os, þar sem Venus fæddist, og
hefur rikt frá upphafi heims,
og mun ríkja framvegis".
Rósamunda svaraði ekki, og
hinir hörundsdökku bátsmenn
frá Kýpur reru syngjandi
með hann til lands.
Þarna lágu þeir svo fyrir
utan Limasol í tíu daga, þó að
veður væri gott og bezta leiði
til Sýrlands. Þegar Rósa-
munda spurði að, hvers vegna
væri legið svona lengi, stapp-
aði Hassan niður fætinum í
þilfarið og sagði, að það væri
vegna þess að keisarinn neit-
aði að láta þá fá meira vatn
né vistir en þeir þörfnuðust
daglega, nema þvi aðeins að
hann, Hassan, kæmi í land og
ferðaðist til borgarinnar Ni-
cosia, er lægi inni í landi, til
þess að heimsækja keisarann,
er væri þar með hirð sinni. En
vegna þess að hann óttaðist
að með því ætti að ná honum
1 gildruna, væri hann tregur
til að fara; en aftur á hinn
bóginn væri ekki hægt að
sigla án vatns og vista.
— En getur þá Sir Hugh Lo
zelle ekki fengið þessu fram-
gengt? spurði Rósamunda.
— Efalaust, ef hann, vildi,
svaraði Hassan, — en hann
sver og sárt við leggur að
hann fái engu áorkað.
Þarna lágu þeir svo dag
eftir dag í steikjandi ^ólar-
hita, vaggand.i á bylgjum Mið
jarðarhafsins, þangað til þeir
veiktust úr hitasótt, er geisaði
meðfram ströndum Kýprus-
eyjar, og dóu tveir menn úr
henni.
Öðru hvoru kom einn eða
annar úr landi með Lozelle,
og færði þeim lítið eitt af vatni
og vistum, ásamt þeirri orð- j'
sendingu, að þeir gætu ekkij
fengið sínar óskir uppfylltar, |
fyrr en Hassan heimsæktij
keisarann, ásamt hinni fögru
konu, er með honum væri og
keisarann langaði til að sjá.
Hassan svaraði néltandi og
jók vörðinn umhvertis Rósa-
mundu, þvi að á nóttunni
voru bátar sifellt á sveimi
kringum skipið. Og á daginn
riðu hópar af skringilega bún
um körlum og konum með-
fram ströndinni og virtust
helzt ætla sér að ráðast á
skip ð.
Þegar svo bar við, raðaði
Hassan Serkjum sinum al-
vopnuðum meðfram öldu-
stokknum; höfðu þeir allir
brugðin bogsverð í hendi, og
virtust Kýpurbúar óttast þá,
eða að minnsta kost: riðu þeir
sem hvatast brott, og stefndu
að ferstrenda turninum í Col-
ossi.
Loks þraut Hassan þolin-
mæðina. Einn morgun kom
Lozelle frá Limasol, því að
hann svaf þar um nóttina, á-
samt þremur aðalsmönnum
frá Kýpur, er þóttust koma
út á skipið í verzlunarerind-
um, en komu aðeins i þeim
tilgangi að sjá hina fögru
prinsessu Rósamundu. Síðan
byrjaði hið venjulega mas um
lotningu þá, er auðsýna bæri
keisaranum, áður en skipið
fengi vatn og vistir, og yrði
mundi hann láta taka skipið.
Sunnudagur 26. nóvember:
8.30 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir.
9.10 Veðurfregnir.
9.20 Morgunhugleiðing um músík:
„Áhrif tónlistar á sögu og
siði” eftir Cyril Scott; VI.
(Árni Kristjánsson).
9.30 Morguntónleikar.
a) Scarlatti-hljómsvbitin leik-
ur sinfóníu eftir Alessandro
Scarlatti og ballettsvítu eftir
Lully; Franco Caracciolo stj.
Þar í milli leikur Géorge
Malcolm á sembal sónötu eft-
ir Domenico Scarlatti.
b) Fiðlukonsert í D-dúr
(K218) eftir Mozart (Christ-
ian Ferras og hljómsveit Tón
listarháskólans í París leika;
André Vandernoot stjórnar).
10,45 Messa 1 Útskálakirkju, hljóð
rituð á aldarafmælikirkjunn-
ar fyrra sunnudag. Ræður
flytja: Herra Sigurbjörn Ein
arsson biskup og séra Guð-
mundur Guðmundsson sókn-
arprestur. Organleikari: Auð-
ur Tryggvadóttir.
12,15 Hádegisútvarp.
13,05 Erindi eftir Pierre Rousseau:
Saga framtíðarinnar: VI:
Elskið það, sem kemur aldr-
ei aftur (Dr. Broddi Jóhann-
esson).
14,00 Miðdegistónleikar: Minnzt
tónskáldsins Franz Liszts á
150. ári frá fæðingu hans.
Dr. Hallgrímur Helgason flyt
ur erindi og leikin tónlist
eftir Liszt. ,
a) Alexander Brailovsky leik
ur píanótónsmíðar.
b) Eberhard Wachter syngur
þrjú lög.
c) Fílharmoníusveitin í Los
Angeles og kvennakór flytja
j,Dai»ta‘,-sinfóníuna; Alfred
Wallenstein stjórnar.
15.30 Kaffitíminn:
a) Carl Billich og félagar hans
leika.
b) Hubert Deuringer leikur á
harmoniku og Klaus Wunder-
lich á bíóorgel.
16.15 Á bókamarkaðinum (Vilhj. Þ.
Gíslason útvarpsstjóri).
17.30 Barnatími (Helga og Hulda
Valtýsdætur):
a) Framhaldssagan „í Marar-
þararborg" eftir Ingebrikt Da-
vik; IV. (Helgi Skúlason les og
syngur).
b) Leikritið „Gosi“ eftir Coll-
odi og Disney; 4. þáttur. Krist-
ján Jónsson býr til flutnings
og stjórnar.
18.30 „Fuglinn í fjörunni": Gömlu
lögin sungin og leikin.
19,00 Tilkynningar.
19.30 Fréttir og íþróttaspjall.
20,00 Tónleikar: Hljómsveit Borgar-
óperunnar í Berlín leíkur tvo
forleiki eftir Suppé: „Flotte
Bursche" og ,Banditenstreiche‘
Hansgeorg Otto stjórnar.
20.10 Erindi: íslenzkur dýrgripur í
hollenzku safni (Elsa Guðjóns-
son).
20.30 Einsöngur: Mahalia Jackson
syngur andleg lög með kór og
hljómsveit, sem Johnny Will-
iams stjórnar.
20,55 Spurt og spjallað í útvarpssal.
Þátttakendur: Gisli Halldórs-
son verkfr., Sigurður A. Magn-
ússon rith., Sigurður Þorkels-
son yfirverkfr. og Þórhallur
Vilmundarson próf.; Sigurður
Magnússon fulltrúi stjórnar.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
23.30 Dagskrárlok.
Mánudagur 27. nóvember:
8,00 Morgunútvarp.
12,00 Hádegisútvárp.
13.15 Búnaðarþáttur: Öryggisráðstaf
anir við búvélanotkun; annað
erindi (Þórður Runólfsson ör-
yggismálastjóri).
13.30 „Við vinnuna": Tónleikar.
17,05 Stund fyrir stofutónlist (Guð-
mundur W. Vilhjálmsson).
18,00 Rökkursögur: Hugrún skáld-
kona talar við börnin.
18,20 Veðurfregnir.
18.30 Þingfréttir. •— Tónleikar.
18,50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir. 1
20,00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson
cand. mag.). '
20,05 Um daginn og veginn (Jón
Árnason fyrrum bankastjóri).
20,25 Einsöngur: Kristinn Hallsson
syngur m. a. þrjú lög eftir
Hugo Wolf við sonnettur eftir
Michaelangelo; Fritz Weiss-
happel leikur undir á píanó.
20,45 Leikhúspistill: Þorvarður
Helgason talar um tilraunaleik
hús.
21,05 Tónleikar: Fagottkonsert eftir
Jiri Pauer (Karel Bidlo og
Tékkneska fílharmoníusveitin
leika; Karel Ancerl stjórnar).
21.30 Útvarpssagan: „Gyðjan og ux
inn“ eftir Kristmann Guð-
mundsson (Höf. les).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Hljómplötusafnið (Gunnar
Guðmundsson).
23,00 Dagskrárlok.
H. RIDER HAGGARD
BRÆÐURNIR
SAGA FRA KROSSFERÐATIMUNUM
38
EIRÍKUR
VÍÐFÖRLI
Ulfurinn og
Fálkinn
107
Áður en allir hermennirnir voru
komnir fram hjá, slóst Eiríkur í
hópinn. Er þeir nálguðust kastal-
ann, heyrðist hin hræðilega rödd
á ný: — Varúlfurinn heimtar son
Eiriks víðförla. — Hvernig getum
við náð til hans? Hafðu meðaumkv
un með okkur, veinuðu hermenn-
irnir. Þá kallaði Eiríkur úr hópn-
um: — Ef hann er hjá Tyrfingi,
verða þeir að afhenda okkur hann.
— Áfram! kallaði Eirikur, og
þeir héldu af stað á ný. Hliðin að
kastala Tyrfings voru þegar opn-
uð, þar sem von hafði verið á Bú-
staðalénsmönnunum. Meðan þeir
ruddust inn, hræddir um að kom-
ast ekki á óhultan stað, sá Eiríkur
sér leik á borði að hverfa, áður en
hliðunum var lokað aftur.