Tíminn - 03.12.1961, Blaðsíða 6
FRÁSKUGGSJÁ
Lúðvík Kristjánsson:
Á SLÓÐUM JÓNS SIGURÐSSONAR
Vegleg og fögur bók um ævi og störf Jóns Sig-
urðssonar forseta. Allt efni bókarinnar er
byggt á rannsókn frumheimilda og í bókinni
eru fleiri myndir af skilrikjum, varðandi Jón
Sigurðsson, en áður hafa komið fyrir almenn-
ingssjónir. Þetta er tvímælalaust merkasta rit,
sem skráð hefur verið um Jón, og ættu allir,
sem kynnast vilja frelsisbaráttu íslendinga á
19. öldinni, sögu þjóðarinnar og ævi og störf-
um Jóns Sigurðssonar, að eignast þessa bók.
Guðmundur Gíslason Hagalín:
TÖFRAR DRAUMSINS
Saga um ástir og lífsdraum karls og konu,
töfra lífsblekkingarinnar og óskhyggjunnar, þá
töfra, sem löngum hafa verið skjólið í hretum
og hríðum hversdagsleikans, einmanaleika og
vonbrigða. Rammíslenzk skáldsaga, sem gerist
að mestu í íslenzku sjávarplássi. Ef til vill
bezta skáldsaga Hagalíns.
Alfred Lansing:
HARÐFENGI OG HETJULUND
Hin ótrúlega hrakningaför Ernest Shackletons
til Suðurskautsins. „... einhver mesta ævin-
týraferð vörra tfma .-. •. hrottalegur lestur, en
eigi síður hrífandi", segir f ritdómi í New
York Times. Stórfengleg lýsing á hetjubaráttu
og þi^eki manna, sem virtust vera í vonlausri
aðstöðu og ofurseldir hungri og kulda.
Guðmundur Gíslason Hagalín:
ÞAÐ ER ENGIN ÞÖRF AÐ KVARTA
Endurminningar Kristínar Kristjánsson, sem
fædd er í Borgarfirði, en fluttist ung að aldri
til Vesturheims og bjó í íslendingabyggðum
Kanada f 17 ár. Kristín er merk kona og stór-
brotin og mörgum kunn fyrir skyggni sína og
dulargáfur, og auk þess svo mikillar gerðar, að
allt, sem fram við hana hefur komið, engu
síður illt en gott, hefur aukið á reisn hennar
og styrkt hana. Þetta er mikil saga, frásagnir
úr tveimur heimum og tveimur heimsálfum.
Gretar Fells:
ÞAÐ ER SVO MARGT
Safn erinda um margvísleg efni, sálfræðileg,
heimspekileg, dulfræðileg og fagurfræðileg.
Bókin er mótuð guðspekilegu lífsviðhorfi, en
ekki sáluhjálparboðskapur eða áróður, heldur
frjálsar hugleiðingar um háleit og mikilvæg
efni, sem allir verða fyrr eða siðar að taka
afstöðu til.
Jörgen Bitsch:
SANDUR OG SÓL
Fróðleg og skemmtileg ferðasaga frá Arabíu,
landi hinna miklu auðna, fornlegu lífshátta,
fátæktar og auðæfa. Þar ríkir unaður og áþján
miðaldanna enn við hliðina á nútíma lúxus og
framförum. Þar eru enn við líðj refsingar eins
og húðstrýkingar og limlestingar, og þar má
enn ekki taka Ijósmyndir, þar sem spámaður-
inn hefur bannað það. Eigi að síður eru í
þessari bók 55 stórfagrar litmyndir.
HBcæsEsa
Peter Freuchen:
SLÉTTBAKURINN
Frásagnir af hinu miskunnarlausa og harða lífi
hvalveiðimanna við Grænland á tímum segl-
skipanna. Æsileg saga harðgerðra og ófyrir-
leitinna manna í stórbrotnu og miskunnarlausu
umhverfi. Hörkuspennandi og harðsoðin sjó-
mannabók, — ósvikinn Peter Freuchen.
Margit Söderholm:
SAMAN LIGGJA LEIÐIR
Ný skáldsaga eftir höfund hinna vinsælu
Hellubæjar-bóka. Heillandi frásögn um örlög
og ástríður sundurleits hóps samferðamanna.
Lesandinn kynnist nýrri hlið á höfundarferli
þessarar snjöllu skáldkonu.
Eva Ramm:
ALLT FYRIR HREINLÆTIÐ
Ein fyndnasta og skemmtilegasta bókin á
markaðnum. Sagan af frú Svendsen, sem þvær
og skúrar svo gólfin hennar verða gerilsneydd.
En hún þvær burt allan notaleikann af litla,
notalega heimilinu, nuddar gyllinguna af ást-
inni og hellir hamingjunni út með uppþvotta-
vatninu. En af hverju gerir frú Svendsen
þetta?
K.I
HBHEBSaH
Taylor Caldwell:
LÆKNIRINN LÚKAS
Töfrandi skáldsaga og heillandi og stórbrotið
verk um lækninn og guðspjallamanninn Lúkas.
Lesandinn kynnist taumlausum veizluhöldum
í keisarahöllu, takmarkalausri fátækt hafnar-
borganna við Miðjarðarhaf, hann ferðast um
glæstar marmarahallir Rómaveldis og kynnist
eymd og fátækt galeiðuþræla. En yfir allt
gnæfir mannkærleikur Lúkasar og leit*hans og
þrá eftir þvi, sem gott er og fagurt. Formála
fyrir þessari fögru bók hefur séra Bjarni Jóns-
son, vígslubiskup ritað.
Theresa Charles:
SEIÐUR HAFS OG ÁSTAR
Fögur ástarsaga, um unga stúlku, sem giftist
ríkum manni, til þess að sjá sjálfri sér og syst-
kinum sínum farborða. En ástin lætur ekki að
sér hæða. Daginn sem hún sá Byrne, íturvax-
inn, útitekinn og brosandi, þar sem hann stóð
um borð í hinum fagra báti sínum, varð breyt-
ing hið innra með henni ...
Ingimar Óskarsson:
FISKAR í LITUM
Falleg handbók, með nær 200 litmyndum af
fiskum. Myndirnar eru prentaðar erlendis, en
texti Ingimars sniðinn við íslenzka staðháttu
og gefur greinagóða lýsingu á fiskunum, lifn-
aðarháttum þeirra, útliti og venjum. Þessi bók
er ætluð öllum, ungum sem gömlum, atvinnu-
fiskimönnum og sportveiðimönnum og yfir-
leitt öllum þeim sem skyggnast vilja undir
yfirborð vatna og sjávar og kynnast nýjum,
fögrum heimi.