Tíminn - 03.12.1961, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.12.1961, Blaðsíða 6
FRÁSKUGGSJÁ Lúðvík Kristjánsson: Á SLÓÐUM JÓNS SIGURÐSSONAR Vegleg og fögur bók um ævi og störf Jóns Sig- urðssonar forseta. Allt efni bókarinnar er byggt á rannsókn frumheimilda og í bókinni eru fleiri myndir af skilrikjum, varðandi Jón Sigurðsson, en áður hafa komið fyrir almenn- ingssjónir. Þetta er tvímælalaust merkasta rit, sem skráð hefur verið um Jón, og ættu allir, sem kynnast vilja frelsisbaráttu íslendinga á 19. öldinni, sögu þjóðarinnar og ævi og störf- um Jóns Sigurðssonar, að eignast þessa bók. Guðmundur Gíslason Hagalín: TÖFRAR DRAUMSINS Saga um ástir og lífsdraum karls og konu, töfra lífsblekkingarinnar og óskhyggjunnar, þá töfra, sem löngum hafa verið skjólið í hretum og hríðum hversdagsleikans, einmanaleika og vonbrigða. Rammíslenzk skáldsaga, sem gerist að mestu í íslenzku sjávarplássi. Ef til vill bezta skáldsaga Hagalíns. Alfred Lansing: HARÐFENGI OG HETJULUND Hin ótrúlega hrakningaför Ernest Shackletons til Suðurskautsins. „... einhver mesta ævin- týraferð vörra tfma .-. •. hrottalegur lestur, en eigi síður hrífandi", segir f ritdómi í New York Times. Stórfengleg lýsing á hetjubaráttu og þi^eki manna, sem virtust vera í vonlausri aðstöðu og ofurseldir hungri og kulda. Guðmundur Gíslason Hagalín: ÞAÐ ER ENGIN ÞÖRF AÐ KVARTA Endurminningar Kristínar Kristjánsson, sem fædd er í Borgarfirði, en fluttist ung að aldri til Vesturheims og bjó í íslendingabyggðum Kanada f 17 ár. Kristín er merk kona og stór- brotin og mörgum kunn fyrir skyggni sína og dulargáfur, og auk þess svo mikillar gerðar, að allt, sem fram við hana hefur komið, engu síður illt en gott, hefur aukið á reisn hennar og styrkt hana. Þetta er mikil saga, frásagnir úr tveimur heimum og tveimur heimsálfum. Gretar Fells: ÞAÐ ER SVO MARGT Safn erinda um margvísleg efni, sálfræðileg, heimspekileg, dulfræðileg og fagurfræðileg. Bókin er mótuð guðspekilegu lífsviðhorfi, en ekki sáluhjálparboðskapur eða áróður, heldur frjálsar hugleiðingar um háleit og mikilvæg efni, sem allir verða fyrr eða siðar að taka afstöðu til. Jörgen Bitsch: SANDUR OG SÓL Fróðleg og skemmtileg ferðasaga frá Arabíu, landi hinna miklu auðna, fornlegu lífshátta, fátæktar og auðæfa. Þar ríkir unaður og áþján miðaldanna enn við hliðina á nútíma lúxus og framförum. Þar eru enn við líðj refsingar eins og húðstrýkingar og limlestingar, og þar má enn ekki taka Ijósmyndir, þar sem spámaður- inn hefur bannað það. Eigi að síður eru í þessari bók 55 stórfagrar litmyndir. HBcæsEsa Peter Freuchen: SLÉTTBAKURINN Frásagnir af hinu miskunnarlausa og harða lífi hvalveiðimanna við Grænland á tímum segl- skipanna. Æsileg saga harðgerðra og ófyrir- leitinna manna í stórbrotnu og miskunnarlausu umhverfi. Hörkuspennandi og harðsoðin sjó- mannabók, — ósvikinn Peter Freuchen. Margit Söderholm: SAMAN LIGGJA LEIÐIR Ný skáldsaga eftir höfund hinna vinsælu Hellubæjar-bóka. Heillandi frásögn um örlög og ástríður sundurleits hóps samferðamanna. Lesandinn kynnist nýrri hlið á höfundarferli þessarar snjöllu skáldkonu. Eva Ramm: ALLT FYRIR HREINLÆTIÐ Ein fyndnasta og skemmtilegasta bókin á markaðnum. Sagan af frú Svendsen, sem þvær og skúrar svo gólfin hennar verða gerilsneydd. En hún þvær burt allan notaleikann af litla, notalega heimilinu, nuddar gyllinguna af ást- inni og hellir hamingjunni út með uppþvotta- vatninu. En af hverju gerir frú Svendsen þetta? K.I HBHEBSaH Taylor Caldwell: LÆKNIRINN LÚKAS Töfrandi skáldsaga og heillandi og stórbrotið verk um lækninn og guðspjallamanninn Lúkas. Lesandinn kynnist taumlausum veizluhöldum í keisarahöllu, takmarkalausri fátækt hafnar- borganna við Miðjarðarhaf, hann ferðast um glæstar marmarahallir Rómaveldis og kynnist eymd og fátækt galeiðuþræla. En yfir allt gnæfir mannkærleikur Lúkasar og leit*hans og þrá eftir þvi, sem gott er og fagurt. Formála fyrir þessari fögru bók hefur séra Bjarni Jóns- son, vígslubiskup ritað. Theresa Charles: SEIÐUR HAFS OG ÁSTAR Fögur ástarsaga, um unga stúlku, sem giftist ríkum manni, til þess að sjá sjálfri sér og syst- kinum sínum farborða. En ástin lætur ekki að sér hæða. Daginn sem hún sá Byrne, íturvax- inn, útitekinn og brosandi, þar sem hann stóð um borð í hinum fagra báti sínum, varð breyt- ing hið innra með henni ... Ingimar Óskarsson: FISKAR í LITUM Falleg handbók, með nær 200 litmyndum af fiskum. Myndirnar eru prentaðar erlendis, en texti Ingimars sniðinn við íslenzka staðháttu og gefur greinagóða lýsingu á fiskunum, lifn- aðarháttum þeirra, útliti og venjum. Þessi bók er ætluð öllum, ungum sem gömlum, atvinnu- fiskimönnum og sportveiðimönnum og yfir- leitt öllum þeim sem skyggnast vilja undir yfirborð vatna og sjávar og kynnast nýjum, fögrum heimi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.