Tíminn - 03.12.1961, Blaðsíða 9
TÍMINN, sunnudaginn 3. desember 1961
9
Þórhallur Daníelsson, fyrrum
kaupmaður og útgerðarmaður á
Höfn í Hornafirði, lézt aðfara-
nótt síðastliðins þriðjudags, 28.
fyrra mánaðar, á Landsspítalan
um, fáum dögum eftir skurðað-
gerð, en hann hafði áður verið
vanheill alllengi.
Þórhallur náði háum aldri, var
orðinn 88 ára og fullum þrem
mánuðum betur, er hann lézt.
Hann var fram á siðustu ár
hraustur heilsu og hélt óskert-
um líkams- og sálarkröftum
lengur en flestum auðnast.
Með Þónhalli er tiil moldar geng
inn einn hinna þjóðkunnustu og
merkustu manna úr kaupsýslú
stétt á fyrri hluta þessarar ald-
ar, er jafnan stóð í fremstu röð
um athafnir og framkvæmdir á
þeim tíma, sem starf hans féll á,
og meðal þeirrar kynslóðar, sem
hann lifði með og starfaði fyrir.
Verk hans verðskulda, að
þeirra sé að nokkru minnzt og
verða því æviatriði hans rakin
hér að nokkru, þótt í stuttu
máli verði og af meiri vanefn-
um en vera ætti.
Þórhallur er fæddur 21 ágúst
1873 á Hafursá á Völlum á Fljóts
dalshéraði, en þar voru þá for-
eldrar hans, hjónin Sigríður Þor-
bergsdóttir og Daníel Sigurðsson
póstur frá Lýtingsstöðum í
Vopnafirði, en síðar bóndi á
Steinsstöðum í Skagafirði. For-
eldrar Sigríðar voru Steinunn
Þorsteinsdóttir og maður henn-
ar, Þorbergur hreppstjóri og
bóndi í Þingmúla, Mjóanesi, Sauð
haga og víðar á Héraði, Berg-
vinssonar prests 'á Skeggjastöðum
Þorbergssonar.
Árið eftir að Þórhallur fædd-
ist, fluttust foreldrar hans með
hann frá Hafursá að Mýnesi
í Eiðaþinghá og enn einu ári síð
ar til Seyðisfjarðar, en ekki var
fjölskyldan lerigi þar, því að
1877 eru foreldrar hans komnir
norður til Eyjafjarðar, en þang
að voru áður fluttar tvær móð-
ursystur hans, Guðrún og Þor-
gerður, og urðu þær báðar hús-
freyjur í Eyjafirði. En ekki fór
Þórhallur með foreldrum sín-
um þangað, heldur að Klypp-
stað í Loðmundarfirði, á heimili
prestsins þar, síra Finns Þor-
steinssenar, en hann var afi þeirra
síra Jakobs prests í Hallgríms-
prestakalii og Eysteins Jónssonar
fyrrv. ráðherra.
Á Klyppstað virðist Þórhall-
ur dvelja árin 1876 til 1879, en
fer þá, á 6. ári, til foreldra sinna
að Háhamri í Eyjafirði og er
þar og á Rifkelsstööum hjá Þor-
gerði móðursystur sinni og manni
hennar, Hallgrími Hallgríms-
syni, til vorsins 1881, er faðir
hans flytur ásamt börnum sín-
um að Holtastöðum í Langadal,
Móðir Þórhalls, Sigríður Þor-
bergsdóttir var þá dáin, hún lézt
á Akureyri 27. júlí 1880. Hefur
Þórhallur lítið dvalizt með móð
ur sinni, hann er aðeins tæpra
7 ára, er hennar missti við og
hafði lengst af verið hjá öðrum
en henni.
Á Hoitastöðum var hann að-
eins til vorsins 1883, er faðir
hans flytur að Ásum í Svína-
vatnshreppi, og þaöan er Þórhall
ur fermdur vorið 1887. En ekki
beið hann þar lengi boðanna, því
að árið eftir er hann kominn að
Hrólfsskála á Seltjamarnesi og
er skráður þar vinnumaður 15
ára.
Hann mun þá hafa ætlað að
nema smíðar, en ekki komizt að
hjá þeim, sem hann hafði hugs
að sér, og hvarf þá frá þeirri
ráðagerð að fullu. Má segja, að
Þórhallur hafi á æskualdri stöð
ugt verið á ferð og flugi. Hrólfs
skáli mun hafa verið níunda heim
ilið á 15 árum. Hann hefur því
snemma kynnzt ýmsum og vafa
laust búið við kröpp kjör og mis
munandi stundum á æskuárun-
um, en á misjöfnu dafna börn-
in bezt, segir gamalt máltæki.
Aðbúnaðurinn á níunda tug 19.
aldarinar, var víst ekki blómum
stráður meðal flestra af þeirri
kynslóð, er þá byggði landið. t
Eftir að smíðanámið fórst fyr
ir, hvarf Þórhallur aftur norður
í Húnavatnssýslu og gerðist
fyrst vinnumaður hjá Pétri Sæm
undssen, faktor á Blönduósi, og
ári síðar, eða 1890, er hann orð-
inn verzlunarmaður hjá honum.
En brátt snýr hann sér að meira
námi og gengur inn í Möðruvalla
skólann haustið 1891 og dvelur
þar þann vetur og hinn næsta
og tekur burtfararpróf þaðan
vorið 1893, tæpra 20 ára gamall.
Að loknu gagnfræðaprófinu
hefur hann gerzt kennari í
Skagafirði að vetrinum, en
stundaði ýmsa vinnu að sumr-
inu. Hann var heimilismaður
1895 og 1896 á Mælifelli, hjá sr.
Jóni 0. Magnússyni og mun þá
hafa kennt þeim sonum hans,
Magnúsi prófessor og Þorsteini
rithöfundi, er þá voru á unga
aldri.
Árið 1897 flytur Þórhallur al-
farinn úr Norðurlandi til Djúpa-
vogs og gerist kennari þar það
ár og hið næsta, meðal annars
hjá Stefáni Guðmundssyni, fakt
or Örum og Wulfsverzlúnarinnar
og var heimilismaður hans.
Væntanlega hefur hann jafn-
framt kennslunni unnið að verzl
unarstörfum hjá Stefáni og
kynnzt þar og hneigzt meir til
þess, er svo varð ævistarf hans,
en það var verzlun og kaupsýsla
ýmis.
Hann fer síðan til Kaupmanna
hafnar haustið 1899, og er við
verzlunarnám þar fram á næsta *
Þórhallur Daníelsson og Ingibjörg Friðgelrsdóttir.
Þórhallur Daníelsson
vor, en kemur heim að því búnu
og gerist verzlunarstjóri Tuliní-
usarverzlunar á Hornafirði,
snemma á árinu 1901, er eigandi
hennar, Otto Tulinius, flutti til
Akureyrar og gerðist þar kaup-
maður.
Þessari verzlunarstjórastöðu
gegndi Þórhallur til ársloka 1908
en keypti þá verzlunina sjálfur
og rak hana til 1. júní 1920, en
þá hafði Kaupfélag Austur-
Skaftfellinga keypt verzlunar-
hús hans og önnur mannvirki,
er verzluninni tilheyrðu, ásamt
vörubirgðum o. fl. Ætlaði hann
þá helzt að flytja burtu og snúa
sér að öðru. Hafði meðal ann-
ars hugleitt það, að kaupa hér
sunnanlands eða vestan ein-
hverja meiri háttar bújörð og
gerast bóndi, annað hvort ein-
vörðungu eða með einhverju
kaupsýslustarfi. Af þessu varð
þó ekki, enda reið þá yfir stór-
kostleg verðlækkunaralda á öll-
um búsafurðum og fjárhags-
kreppa meiri en margir gátu
borið og olli hinum þyngstu bú-
sifjum i öllum atvinnurekstri.
Hann hvarf því frá þeim ráða-
gerðum og sneri sér að áfram-
haldandi störfum á Hornafirði,
við að auka og umbæta þar þá
aðstöðu, sem bátar, er gerðir
voru þaðan út, þurftu að hafa.
Hann reisti i því skyni mikil
hús á Hafnarkauptúni, stækkaði
bryggjur og bætti þau skilyrði
er fyrir voru til útgerðar og
viðlegu fiskibátanna.*
Jafnframt hóf hann verzlun
að nýju vegna útgerðarinnar og
rak hana i nokkur ár eða þar
til Landsbankmn á Eskifirði
keypti af honum eignirnar og
verzlunina. Allt fram undir 1940
átti Þórhallur útgerðaraðstöðu
á Hornafirði og leigði hana bát-
um af Austfjörðum á vetrar-
vertíð, en seldi hana þá Kaupfé-
lagi Austur-Skaftfelllnga.
Þórhallur hafði þannig á
hendi nærri fjóra áratugi hin
mikilvægustu störf í þágu Aust-
ur-Skaftfellinga og fjölmargra
Höfn I Hornaflrði
Austfirðinga, er atvinnu ráku
þar. í tvo áratugi, 1901—1920,
mátti heita, að verzlun sú, sem
hann veitti forstöðu, annaðist
alla þjónustu i viðskiptalegum
efnum fyrir alla íbúa sýslunnar.
En seinna tímabilið 1920—1940
vann hann fyrst og fremst fyrir
bátaútgerðina, einkum fyrri
hluta þess tímabils og lagði sig
þá oft mjög fram um að leysa
úr þörfum þeirra og nauðsynj-
um, bæði fjárhagsefnum og við-
skiptum. Dugnaður hans var
mikill og verkefni hans voru
fljótar af hendi leyst heldur
en oft var unnt að áætla, og
hann leysti gjarnan úr meiri erf
iðleikum fyrir útgerðarmennina
h,eldur en á flestra færi var og
lagði þá hag sinn stundum í
meiri og minni hættu fyrir aðra.
Eftir að Þórhallur hvarf frá
útgerðarmálum, tókst hann á
hendur tollvarðarstörf á Horna-
firði og hélt áfram að telja þar
heimili sitt um allmörg ár, og
vann þá jafnframt að ýmsum
störfum á skrifstofu, meðal ann
ars við skattnefndarstörf, en í
skattanefnd Nesjahrepps var
hann frá 1921 fram yfir 1940 og
síðar í Hafnarhreppi, alls meira
en 30 ár. Einnig var hann í
hreppsnefnd Nesjahrepps um
skeið og í stjórn sparisjóðs, er
starfaði í hreppnum í meira en
tvo tugi ára.
Hann var sæmdur riddarakrossi
fálkaorðunnar.
Þórhalli var mjög sýnt um
störf á skrifstofu og við færslu
reikninga. Var allur frágangur
hans hinn prýðilegasti og rit-
hönd hans skýr og myndarleg.
Einnig eftir að hann var orðinn
háaldraður, bar hún af rithönd
flestra annarra.
Kona Þórhalls var Ingibjörg
Friðgeirsdóttir, bónda i Garði í
Fnjóskadal Skúlasonar. Móðir
hennar var Anna Ásmundsdóttir
; bónda á Þverá í Dalsmynni
j Gíslasonar. Hún var systir Ein-
! ars alþingismanns og umboðs-
j manns í Nesi.
Systkini frú Ingibjargar voru:
Einar, prestur á Borg á Mýrum;
Olgeir, stórkaupmaður í Kaup-
mannahöfn; Friðrika kona Gunn
laugs Einarssonar bónda í Suð-
urr'íki; Nanna, kona Þórarins
Erlendssonar bónda á Kárastöð
um. Bræður hennar tveir, Ás-
geir og Björn fóru til Vestur-
heims og ílentust þar. Þau Ingi
björg og Þórhallur giftust á
Búðum á Fáskrúðsfirði 23 ágúst
j 1901, en bjuggu allan sinn bú-
! skap á Höfn í Hornafirði. Hún
j lézt á heimili þeirra þann 30.
maí 1934.
Börn þeirra eru þessi:
j Geir, flutti ungur til Vestur-
heims; Olga, ekkja Kristjáns Þ.
Jakobssonar, lögfræðings; Anna
söngkoua í Reykjavík; Ásta,
gift Guðm. Gíslasyni umboðs-
sala Reykjavík; Bertha, gift
Vigfúsi Sigurgelrssyni, ljósmynd
ara frá Akureyri, hún lézt 16.4.
32; Hulda, gift Knúti Kristins-
syni f. héraðslækni, nú í Reykja-
1 vík; Þorgerður, gift Thulin Jo-
hansen afgreiðslumanni á Reyð
, arfirði; Daníel, kvæntur Dag-
I mar Fanndal, útgerðarmaður á
Siglufirði. Kjörsonur þeirra
j hjóna er Haukur Dan, nú skip-
stjóri á Tungufossi, kvæntur
Önnu Heiðdal.
Fósturdætur þeirra tvær, báð
ar látnar, voru Ingibjörg Gunn-
laugsdóttir, systurdóttir frú
Ingibj argar, kona Bjarna Guð-
mundssonar fyrrv. kaupfélagsstj.
og listmálara á Höfn og Þóra
Tryggvadóttir, bróðurdóttir Þór
halls, er gift var Jóhanni Jó-
hannessyni, bankaritara í Rvík.
Heimili þeirra hjóna var með
miklum glæsi- og myndarbrag
og mjög rómað fyrir gestrisni
og hvers konar höfðingsskap.
Þar gistu og dvöldu allir lang-
ferðamenn, bæði innlendir og er
lendir og mjög margir innanhér
aðsmenn. Allir nutu hins bezta
beina, enda var á fyrstu árun-
um ekki til margra að leita í
kauptúninu um greiða, þar eð
þá voru aðeins tvö eða þrjú
heimili til þar. Glaðværð og hlý
leg framkoma húsbændanna
beggja laðaði gesti að heimil-
inu, hvenær árs sem var. Þar var
jafnan margt heimilisfólk og
mikið umleikis, bæði vegna heim
ilisins sjálfs, en einnig vegna bú
skapar, er rekinn var. Margs
þurfti búið með og fanga var Teit-
að víðar en heima við.
Ekki verður skilið svo við
þessi minningarorð um Þórhall
látinn, að ekki sé minnzt þeirrar
miklu breytingar á verzlunar-
háttum A-Skaftfellinga, þá er
hann lét verzlun sína og hús-
eignir í hendur nýstofnaðs kaup
félags snemma á árinu 1920.
Þeir atburðir gerðust þá, að
forgöngu Sigurðar Sigurðssonar
kennara frá Kálfafelli, að flest
ir bændur á verzlunarsvæði Þór
halls stofnuðu kaupfélag með
samþykktum á almennum
bændafundum, er haldnir voru
í hverri sveit.
Þetta gerðist svo að kalla í
einu vettfangi eða á tveim til
þrem vikum. Ekki var orsökin
sú, að Þórhallur nyti ekki
trausts og vinsælda viðskipta-
manna sinna, heldur þrátt fyrir
tiltrú og vinsældir hans. Hann
sótti fundi þessa í einum tveim
sveitum og tók einhvern þátt í
umræðum þar. Honum sagðist
svo frá síðar, að er hann hafði
heyrt á mál nokkurra vina
sinna, roskinna, velmegandi
bænda. hefði sér fallið allur ket
ill í eld og ákveðið að beita sér
ekki gegn áhugamálum þeirra
í verzluninni, heldur leggja i
hendur kaupfélagsins verzlunar
aðstöðu sína þá þegar, og bregða
(Framhald a 12 siðu;.