Tíminn - 03.12.1961, Side 11
TÍMIN N , sunnudaginn 3. desember 1961
11
litli bærinn að fá á sig svip og
vekja mikla athygli. Börnin
voru þarna í essinu sínu.
Nú eru þarna 37 hús, og eru
3—4 börn um hvert hús. Dreng
ir og telpur byggja saman, og
þau fá að fara algjörlega eftir
eigin höfði og smekk, og verð-
ur ekki annað séð en að það
gangi bærilega.
Tilgangurinn með „Holubæ“
er meðal annars sá, að kenna
börnunum smám saman þýð-
ingu samfélags og samvinnu.
Ýmsum reglum og skyldum er
komið á, sem renna saman við
leik barnanna, án þess að
trufla hann á nokkurn hátt.
Það mundi ekki hafa sþmu
þýðingu, ef börn réðu sér al-
gjörlega sjálf á slíkum leik-
vangi. Þar verður að vera ein-
hver fullorðinn, sem leiðír þau.
Börnin, sem þarna koma, eru
frá sex og upp í tólf ára, og
þau hafa ekki nógu mótaðar,
hugmyndir um, hvernig leysa
skal hin margvíslegu vanda-
mál, sem koma fram í slíku
samfél'agi. Þau koma þangað til
þesS að leika sér, og þarna fá
þau útrás hugmynda sinna og
athafnaþrá, hvort sem það við
kemur húsbyggingum, garð-,
rækt eða matartilbúningi.
—O—
Það líkar börnunum vel, þau
geta þá bysgt hús sin eftir nýj
um hugmyndum á hverju ári.
Á veturna geta bömin svalað
athafnaþrá sinni á verkstæði
sem reist hrfur verið fyrir þau,
þar sem þau smíða, mála og
dunda allt mögulegt, og þar
una þau langtímum saman
Börnin greiða ekkert inn-
tökugjald tll bæjarins, og þau
greiða eng'n útsvör þar, en
þar sem þau þurfa sjálf að
greiða um 20 prósent af rekstr
arkostnaðinum, verður að afla
fjár eftir ýmsum leiðum. Það
gera þau með því að safna
gömlum llöðum, frímerkjum
og öðru sliku. Það hefur gef-
izt vel fram að þessu, en nú
Því miður hefur „Holubær"
enga möguleika til þess að
stækka og fjölga húsunum. Á
hverju hausti eru húsin rifin
og byggð upp aftur að vori.
Ekki hafa öll húsin í „Holubænum"
elgin eldavél til umráða, svo að
matartllbúnlngurinn á sér oft stað
yfir eldi úti undir berum himni.
Hér er verið að búa til súpu og
pönnukökur.
Byggingameistararnir, sem eiga
heiðurinn af þessu frumlega húsl,
hafa ekki verið afturhaldssamir í
list sinnl. Fegurðarskynið breytist.
verður að fara að leita ann-
arra fjáröflunarleiða.
—O—
En það eru til „Holubæir“
víðar en í Emdrup. Einn slíkur
er í Brede. Sá bær var stofn-
aður af jarðeigendafélagi og
rekinn með nokkuð öðrum
hætti en í Emdrup. Þar var
kosið í bæjarráð. Þetta ráð
fjallar um öll minni háttar
vandamál, sem fram komu, en
ef einhver meiri háttar mái
eru á ferðinni, komu allir íbú-
arnir saman og ræddu málið.
Nýlega voru tíu fínustu hús-
in í „Holubænum" rifin, því
að foreldrar barnanna höfðu
lagt þar hönd að verki. Það
þykir að vísu ágætt, að foreldr
arnir sýni tómstundaiðju
barna sinna ahuga, en þetta
Hænsnin leika lausum hala í lltia
bænum og börnin hugsa vel um
þau, enda sjá þau íbúunum fyrtr
þeim eggjum, sem þeir þarfnast.
hafði það í för með sér, að
börnin misstu áhuga á því að
byggja sjálf. Þau sáu, að þau
stóðu ag baki hinum fullorðnu
hvað hugmyndir og hæfileika
snerti, og þau voru ekki leng-
ur ánægð með vinnu sína.
En nú er allt í lagi á ný, og
þarna er barið, sagað og mál-
að, eins og lífið liggi við.
Mörgum virðist ekki vera
nein regla á neinu í „Holubæn-
um“, en ef betur er að gáð,
komast menn að raun um allt
annað. Þarna er raunverulega
lítið samfélag með stórar á-
ætlanir og reglu á hlutunum.
Bæjarráðið hefur að vísu ver-
ið afnumið, það gafst ekki vel,
skapaði öfund og stéttármis-
mun, en þarna þarf að sækja
um borgarabréf árlega. Ef ein
hver meðlimur bæjarfélagsins
vill stækka húsið sitt eða
byggja nýtt, verður hann að
sækja um leyfi fyrir bygging-
arefni.
Þegar rignir, vinna börnin
innan dyra. í húsunum eru
litrík áklæði á veggjum, slitn-
ar mottur á gólfum og hrein-
þvegnir pottar og pönnur í
hillunum.
Blágrár reykur stígur upp
frá reykháfunum, sögunarhljóð
og hamarshögg hljóma allan
liðlangan daginn. Og llmur af
snúðum og brenndum pönnu-
kökum leggur langár leiðir.
Þar er lif.
Væri ekki ráð að koma upp
slíkum bæ hér í höfuðstaðnum,
eða jafnvel víðar á landinu?
„Holubær" er töfrandi sambland af samræmi og ósamræmi.
Bærinn er bæði fallegur og
heillandi. Hann er furðulegt,
en töfrandi sambland af sam-
ræmi og ósamræmi. Byggingar
meistararnir hafa reist hús sín
þar, án þess að 'láta aldagaml-
ar reglur og siðvenjur villa um
fyrir sér, og skilningur þeirra
á nútíma byggingarlist er al-
gjörlega einstaklingsbundinn.
Byggingarefnið, sem var hend
inni næst, og óþrjótandi hug-
myndaauðgi meistaranna hef-
ur ráðið byggingarstílnum. Og
hvað sem um árangurinn
mætti segja, er þó eitt víst,
að skemmtilegur er hann.
Um hvaða bæ er verið að
tala? Hann heitir reyndar
„Holubær", og það er það
eina, sem að honum er, því að
nafnið er alls ekki nógu fal-
legt.
Pyrir fimmtán árum fann
byggingafyrirtæki í bænum
Emdrup í Danmörku upp á þvi
að stofna leikvang fyrir börn,
þar sem þau gætu byggt úr
úrgangsefnum. sem fyrirtækið
lagði til og haft þar alla sína
hentisemi til athafna. í upp-
hafi var þetta aðeins hugsað
sem leikur til að skapa börn-
unum eitthvað við að vera, en
nú er mönnum orðið ljóst,
hversu mikið gildi slíkur leik-
völlur hefur fyrir uppeldi
barnanna. Því að auk ánægj-
unnar og athafnafrelsisins,
sem börnin fá þarna, læra þau
einnig, hvert gildi samvinna
og samfélag hefur í lífinu.
Þetta fyrirkomulag hefur
vakið mikla athygli og orðið
fyrirmynd að svipuðum leik-
vöngum í fjölda annarra
landa.
—O—
Bæjarstjórinn í „Holubæ".
sem jafnframt er yfirbygging-
armeistari, er frk. Agnete Vest
ereg, og hefur hún haft stjórn
ina á hendi frá byrjun.
Fyrir fimmtán árum var
svæðið, þar sem „Holubær"
stendur nú, aðems stór gras-
völlur, sundurgrafinn af hol-
um. Börnin í Emdrup dunduðu
mikið í holunum, en Agnete
tókst brátt að fá þau upp á
yfirborð jarðar til að reisa
sér myndarlegri íverustaði.
Byggingarefnið var kassar
og annað úrgangsefni frá bygg
ingafyrirtækinu, sem átti frum
kvæðið að því að stofna þenn
an leikvang. Smám saman fór
Þetta er líf
FIMMTUGUR:
Kjartan Guðjónsson
framkvæmdastjóri
Gamall skólabróðir og vinur,
Kjartan Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri, er fimmtugur í dag. Það er
í sjálfu sér ekki frásagnarvert, þó
að maður verði fimmtugur. En ein-
hvern veginn er það svo, að við slík
timamót í lífi vina og vandamanna,
langar mann til að senda þeim
kveðju og þakka þeim samfylgdina.
En orðin ná skammt og kveðjan vill
oft verða fátækleg, nema hjá út-
völdum meisturum máls og stíls. En
fáein orð langar mig þó til að festa
á blað í tilefni fimmtugsafmæiis
þessa vinar.
Fundum okkar Kjartans bar fyrst
saman í Menntaskólanum á Akur-
eyri fyrir rúmlega 30 árum
Urðum við síðan samferða þar sem
bekkjarbræður öli skólaárin, og vor-
um jafnframt lengst af herbergisfé-
lagar. Reyndist Kjartan jafnan hinn
ágætasti félagi á hverju sem gekk.
Er margs að minnast frá þeim árum
Þá tengdumst við vináttubondum,
sem siðar hafa ekki slitnað. Höfuir
við á liðnum árum átt saman marg
ar ánægjulegar stundir, sem gott ei
að minnast og rifja upp.
Kjartan Guðjónsson er Stranda
maður að ætt og uppruna. Voru foi
eldrar hans Guðjón Ólafsson, bónd
i Heydal og síðar í Miðhúsum í Bæj
arhreppi, og kona hans, Ingibjört
Sæmundsdóttir Mun Kjartan af
mestu hafa dvalizt á heimili foreldrr
sinna þar til hann fór í Menntaskó!
ann á Akureyri Þaðan lauk hanr
svo stúdentsprófi vorið 1935 Þröng
ur fjárhagur mun hafa valdið mesti
um. að Kjartan réðst ekki í háskóla
nám að stúdentsprófi loknu. Fékkst
hann fyrst við kennslustörf og skrif
stofuvinnu. Gerðist síðan um nokkur
ár fastur skrifstofumaður hjá Græn
metisverzlún ríkisins Var síðan um
skeið kaupfélagsstjóri. fyrst á Eski
firði. siðar á Borðeyri, en flutti aft-
ur til Reykjavíkur árið 1945. Nokkru
síðar gerðist hann starfsmaður hjá
Ofnasmiðjunni í Reykjavík og hefur
síðan gegnt þar skrifstofustjóra
; starfi. Jafnframt stofnsetti hann
! ásamt nokkrum mönnum öðrum fyr-
irtækið Einangrun h.f og hefur ver
i ið framkvaémdastjóri þess fyrirtækis.
Kjartan Guðjónsson er kvæntur
j hinni ágætustu konu, Matthildi Páls
I dóttur frá Staðarhóli við Akureyri,
systur Gunnars Pálssonar söngvara
og þeirra systkina. Eiga þau hjón
tvo sonu: Halldór, stúdent, er nú
stundar nám í Þýzkalandi, og Gunn-
ar, mjólkurfræðinema.
Kunnugt er mér um það, að störf
sín öll hefur Kjartan Guðjónsson
leyst af hendi með prýði. Hafa þar
komið fram þeir eiginleikar hans,
árvekni, samvizkusemi og lipurð,
sem glöggt komu í. ljós á Mennta-
skólaárum hgns, er hann um þriggja
vetra skeið gegndi umsjónarmanns
starfi í heimavist, en það var mikið |
trúnaðarstarf,' vandasamt og oft
vanþakklátt. Kjartan er einn þeirra
manna, sem gott er að eiga að sam-
ferðamönnum á lífsleiðinni, prúð-
menni f allri framgöngu, samvinnu
þýður hjálpsamur og tillögugóður.
Mætti rita iangt mál um allt það. er
honum má tii gildis telja. Það ætla
ég þó ekki að gera. enda myndi
hann kunna mér litla þökk fyrir. því
að hann er hófsamur maður. Hér
nægir ein setning; segir það. sem
segja þarf: Hann er drengur góður.
Kjartan dvelur nú erlendis. Þang-
að munu honum sendar hlýjar kveðj
ur og hugsanir. Eg sendi honum og
fjölskyldu hans innilegar árnaðar-
óskir og þakka öll liðnu árin Undir
þá kveðju tekur öll fjölskyldan.
Ólafur Jóhannesson.
Nýir svamp
SVEFNSÓFAR
seldir með 1000 00 *<r. af-
afslætti til jó!a Frá lOðQOO
kr. sófinn.
Sendum gegn pósfkt^öfu.
Öll tízkuáklæði.
SÓFAVERKSTÆ^n
GRETTISGÖTU 60
x*v-x*-vy--\.'-v N -v v n x x v
TjarnarcEíe
Tökum að okknr aiu- r.n)r
veizlur OP ^'ndorhölrt _
Pantið n- A ',-riniqrp ,
isw 125-9 n«imasimi
!n0ö.h
Kristián '*
v%->..x-v.v-vx.x\.,vx-x,v