Tíminn - 20.01.1962, Blaðsíða 1
Fjölmennasta íþrótta-
mót hér á landi hefst
í kvöld aö Hálogalandi.
Sjá íþróttir hls. 12.
16. tbl. — Laugardagur, 20. janúar 1962 — 46. tbl.
Flugfarþeg-
ar i tjoldum
á Grænlandi
20 milljónir danskra króna mun
kosta að gera flughöfnina í Syðra-
Straumfirði á Grænlandi mann-
sæmandi fyrir farþega. Eins og nú
er ástatt, verða farþegar á flugleið-
inni Evrópa-Ameríka, að gista þar,
ef eitthvað er að veð'ri. Er þeim
þá vísað til amerískra, illa upphit-
aðra hertjalda, þar sem þeir verða
að vefja sig inn í flókatcppi, með-
an þeir bíða eftir flugveðri, stund
um dögum saman.
Þarna korna við farþegar á flug-
leið SAS-flugfélagsins til Ameríku
og raunar hafa flugvélai' fleiri flug
félaga oft viðkomu þar. Mjög lítið
er til af vistarverum á staðnum, og
þar sem SAS-áhafnirnar verða að
fá 1. flokks herbergi til að hvíla
sig í, verður að vísa farþegum í
tjöldin.
Mótmælum hefur rignt yfir ráða
menn SAS vegna aðstæðna þessara
og þess vegna er í bígerð í Dan-
mörku að verja fjórum milljónum
danskra króna til endurbygginga
í flughöfninni á þessu ári, en reikn
að er með, að öll uppbyggingin
muni kosta um 20 milljónir
danskra króna.
V
Unnið að uppskipun á síldarafia
GOD SILDVEIDI
IJOKULTUNGU
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaSiS aflaði sér í gær, var
síldveiðin í fyrrinótt mjög mis-
jöfn. Mörg skip fengu dágóðan
afla í svokáHáðri Jökultungu
suðvestur af Jökli, og voru
torfurnar svo þéttar þar, að
sum sprengdu nótina. Við
Vestmannaeyjar var aflinn
fremur rýr, enda veður óhag-
stætt. Heildaraflinn var um
20000 tunnur, en Auðunn úr
Hafnarfirði aflahæstur með
1500 tunnur.
í Jökultungu var geysimikn síld
á stóru svæði, en torfurnar voru
mjög þéttar, og gekk síldin upp og
suður. Þar vestra var blíðskaparveð-
ur í fyrrinótt. Jökultunga er um 55
mílur frá Akranesi. Við Eyjar gerði
austan stinningskalda, og var aflinn
eftir því. Nokkrir báta.r voru að veið
um í Miðnessjó, en þar stóð síldin
djúpt. Bátarnir, sem þar voru að,
urðu of seini.r vestur til að ná
nokkru. í Jökultungu voru 20—25
mannaeyjabáta hafa verið 2—3000
tunnur. Kristbjörg var hæst með 700
tunnur, sem hún fékk í einu kasti,
en aði-ir Eyjabátar voru með 4—700
tunnur, og niður í ekki neitt. Láta
mun nærri, að heildarafl'inn í fyrri-
nótt hafi verið röskar 20.000 tunnur.
Sprengdu nótina
Sumir bátarnir, sem voru að
veiðum í Jökultungu, köstuðu á
svo þéttar torfur og fengu svo mik
ið í kasti, að þeir sprengdu næt-
urnar. Akranesbátarnir Haraldur
og Skírnir sprengdu báðir og
•misstu allt, en Haraldur fékk milli
2 og 3000 tunnur og Skírnir 1500
—2000 tn. í næturnar. Aðrir bát-
ar, sem væntanlegir voru til Akra-
ness í gær, voru Sigurður með 400
tn., Höfrungur 3-—400 tn., Heima-
skagi 300. Keflavíkurbátarnir Árni
Geir og Eldey sprengdu báðir og
fengu ekki neitt, en Pálína frá
Keflavík hafði fengið 700 tn., þeg-
ar hún sprengdi. Aðrii Keflavíkur-
bátar, sem fengu síld í fynrinótt,
voru Bergvík með 600, Reykjaröst
650, Gunnólfur 250 og Ingiber Ól-
skip að veiðum. Eyjabátar voru 10— afsson 700, en hann fór með aflann
12 mílur austur af Vestmannaeyjum,
síldin stóð djúpt, og mun afli Vest-
til Reykjavíkur. Sandgerðisbátarn-
ir voru að veiðum í Jökultungu og
voru ýmist að landa eða væntanleg
ir til Sandgei'ðis í gær. Þeir voru
Jón Gunnlaugs með 800 tn., Jón
Garðar 200 og Guðbjörg með 5—
600. Til Hafnarfjarðar kom Fagri-
(Framhald á 15 siðli)
Verkfall á
miðnætti
Bifreiðastjórafélagið Fylkir,
Keflavík, og Bifreiðastjórafélagið
Frami, Reykjavík, sögðu 1. okt. s.l.
upp kaup- o.g kjarasamningum
þeirra bifreiðarstjóra, er aka á sér-
leyfisleiðinni: Reykjavík — Kefla-
vík — Sandgerði.
Samningaumleitanir hafa farið
fram að undanförnu milli deiluað-
ila, en ekki borið árangur.
Sáttasemjari boðaði til fundar
með deiluaðilum klukkan 2 í gær
og stóð sáttafundur yfir klukkan
6.
Næðist ekki samkomulag fyrir kl.
12 í gærkveldi kemur áður boðuð
vinnustöðvun til framkvæmda.
Hríngja úr þjó SkiNiúskjall-
ara í starfsbræiur erlendis
Sæsímasambandið við meginland
Evrópu verður opnað á mánudag-
inn með hófi í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Þar verðúr margt stór-
menna, svo sem ráðherrar, ráðu-
neytisstjórar, flugmálastjóri, veð-
urstofustjóri, útvarpsstjóri og
fleiri.
Athöfnin sjálf hefst með því að
Ingólfur Jónsson ráðherra pósts og
síma, talar við aðstoðar póst- og
símamálaráðlierra Bretlands, Miss
Pike, og er það áætlað klukkan
14.34- Þá talar þingfulltrúi flug-
málaráðuneytisins í Bretlandi við
flugumferðarstjóra á fjórum stöð-
um á línunni.
Klukkan 14.42 talar Gunnlaugur
P. Briem, Póst- og símamálastjóri,
við póst- og símamálastjóra Dan-
merkur, Gunnar Pedersen. 14.45
talar póst- og símamálastjóri Bret-
lands við Gunnlaug Briem, og að
því loknu talar hánn við forstjóra
Stóra norræna símafélagsins, Suer
son. Og klukkan 14.15 talar Ingólf-
ur Jónsson ráðherra við lögmann
Færeyja, Peter Mohr Dam.
Þá er gert ráð fyrir að gestir
fái að reyna sambandið og tala
við einhverja erlendis, en síðan
verður sambandið' opnað almenn-
ingi klukkan 15.40.
I