Tíminn - 11.02.1962, Page 5
hafa haft fyrir því aö skrá
nöfn sín í bókina.
Kvöldvökur 1—2 í viku
iwviuvviwiici IIW4MI iociui iam »ci uiii aiy i atiuoiviviiiu.
Minnst f jörutíu
gestir á kvöldi
Um síðustu helgi minnt-
ust Skátafélögin í Reykja-
vík eins árs afmælis setu-
stofu Skátaheimilisins. Með-
al viðstaddra voru ýmsir
gamlir skátar, stjórnir fé-
laganna og Jónas B. Jóns-
son, skátahöfðingi.
Minntist liðinna daga
Það var 1. janúar 1961,
að Magnús Stephensen,
skemmtanafylkir, kallaði
saman nokkra skáta, og
skyldu þeir ræða, hvort
ekki mætti koma upp setu
stofu í Skátaheimilinu við
Snorrabraut. Magnús hafði
lengi dreymt um, að skát-
ar eignuðust slíka setu-
stofu.
Hann sagði í því sam-
bandi á sunnudaginn, að
hann hefði nii náð þeim
aldri, að hann ''æri farinn
að líta til baka (er þó vart
meira en rúmlega tvítug-
ur!), og myndi hann greini
lega þá daga, er hann og
félagar hans hefðu orðið
að láta sér nægja að koma
saman til þess að ræða
helztu dægurmál líðandi
stundar í fordyri Skáta-
heimilisins. Hefði þá oft
svo farið, að húsvörðurinn
kom á vettvang og sagði
bá vera þarna til trafala
fyrir starfsemi heimilisins
Þá þegar sagðist Magnús
hafa gert sér grein fyrir
nauðsyn setustofu, þar sem
skátarnir gætu komið sam
an og rætt sín áhugamál
óáreittir, hlustað á plötur
og sopið á gosdrykkjum eða
öðru slíku.
Verkum skipf milli manna
Á þessurn fyrsta fundi
þeirra félaganna 1. janúar
1961, var kosin setustofu-
nefnd. Þar var skipt verk-
um milli manna, og áttu
sumir að sjá um útvegun
efnis, aðrir um ljósaútbún
að og enn aðrir um skreyt
ingu og viðgerð á húsgögn
um. Gömul húsgögn voru
til í Skátaheimilinu, en þau
börfnuðust viðgerðar
Menn tóku strax til
starfa, og fyrst var til
kvaddur bólstrari, sem því
miður hafði þau hrvggilegu
tíðindi að færa, að kostn-
aður við viðgerð húsgagn-
anna yrði ekki innan við
11 þúsund krónur. Setu-
stofunefndin tók þá 18
búsund króna lán' hjá
skátafélögunum og hjá hús
nefnd, og reyndist sú upp
hæð næeileg til þess að
standast kost.ua ð við breyt
ingar á herberei því. sem
nota átti fyrir setustofu
en bað hafði áður veri?
fundarherbergi einnar
deildarinnar.
Unnið næturlangt
Ákveðið var að opna setu
stofuna 5. febrúar, sem i
fyrra bar upp á sunnudag
Á laugardagsmorgun fórv
nefndarmenn af stað t
mikla innkaupaferð og
hófu síðan að koma fyrir
húsbúnaði og öðru því, er
í setustofunni átti að' vera,
Eftir ag hafa unnið nætur
langt, var setustofan eins
og vera bar, og var hún
svo opnuð kl. 3 á sunnu-
daginn.
| {
Mikil aðsókn
í gestabók setustofunnar
hafa skrifað sig hvorki
meira né minna en 8048
manns á þessu eina ári,
sem hún hefur verið starf
rækt. Sýnir það, að hér
var um mikið nauðsynja-
fyrirtæki að ræða. Ef far-
iö er eftir bókinni, hafa
að meðaltali komið 40 gest
h’ í stofuna dag hvern.
Auk þess hafa margir aðr
ir komið í hana, sem ekki
Skátarnir sjá að sjálf-
sögðu sjálfir um gæzlu og
einnig sölu gosdrykkja, og
rennur allur hagnaður af
þessari sölu til stofnunar-
innar sjálfrar. Fyrir hluta
þess fjár, sem þannig hef-
ur safnazt á þessu eina ári
keyptu skátarnir svo gólf-
teppi í tilefni af afmælinu.
Auk setustofunnar er
einnig starfrækt kvöldvöku
nefnd. Formaður hennar er
Páll Zóphóníásson. Hann
kvað markmiðið vera, að
í framtíðinni yrðu haldn-
ar ein til tvær kvöldvökur
þarna í viku hverri og yrðu
þá fengnir ýmsir utanað-
komandi aðilar til þess að
flytja erindi um ýmis efni,
Til dæmis hefði nefndin
fengið Ævar Kvaran leik-
ara, til þess ag tala um
framsögn og ræðulist fyrir
skömmu.
Sextíu gráSu halli
Meðal þeirra, sem tóku
til máls á sunnudaginn var,
var Óskar Pétursson, einn
af stjórnendúm Skátafé-
lags Reykjavíkur. Minntist
hann á það, að skátar
hefðu oft orðið að láta sér
nægja misjafnt húsnæði
til samkomuhalds. T. d.
hefði Væringjafélagið, sem
hann er í, fengig húsnæði
hjá KFUM árið 1928, en
sá galli hafði' verið á gjöf
Njarðar, að 60 gráðu halli
hefði verið á gólfinu. Skát
arnir létu sér ekki bregða,
heldur settu bara upp pall
til þess að rétta af hall-
ann.
Jónas B. Jónsson, ská’ta
höfðingi, hvatti skátana til
þess ag láta bera meira á
sér í bæjarlífinu, og að
fylgja ekki um of boðorð-
inu um það, að allir skátar
skyldu vera hógværir. Það
dygði ekki, þeir yrðu að
berjast fyrir sínum málum,
til þess áð þau mættu ná
fram að ganga.
í lok afmælishátíðarinn
ar færði Magnús Stephen-
Jónas B. Jónsson og sonur gæ5a
sér á kræsingum, fram bornum
á eins árs afmælinu á sunnudag
sen fyrir hönd Skátafélags
Reykjavíkur, setustofunni
að gjöf eftirprentun af mál
verki eftir Kjarval og veitti
Össur Kristinsson formað-
ur setustofunnar, því við-
töku og þakkaði þessa góðu
gjöf.
Blaðamaður
Tímans í boði
hjá skátum
Páll Zophoniasson, formaður kvöldvökunefndar, Össur Kristinsson, formaður setustofunefndar og Her
mann Árnason fyrsti formaður nefndarinnar.
TÍMINN, sunnudaginn 11. febrúar 1962
3