Tíminn - 07.03.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.03.1962, Blaðsíða 1
Munið að tiikpna vanskil á Iblaððnu i síma 12323 fyrir kl. 6. Fólk er beSið að athuga, að kvöidsími blaðamanna er 1 8303 55. frbl. — Miðvikudagur 7. marz 1962 — 46. árg. Það hljómar ef til vill und- arlega mitt í látunum um af- vopnunarráðstefnuna í Gen- eve, Berlínarþráskákina og ó- samkomulagið við Kína, að þá heldur miðstjórn Kommúnista flokks Sovétríkjanna lokaðan fund, þar sem aðeins eitt mál er á dagskrá, — landbúnaður- inn. En það gefur bendingu um, hve mikið gildi hann hef- ur í augum leiðtoga Sovétríkj- anna, á sama tíma og Vestur- landablöðin skrifa undir stór- um fyrirsögnum um toppfund, afvopnun og Kína. Nikita Krústjoff hélt í fyrradag sjö klukkustunda ræðu um land- búnaðarmálin á hinum lokaða mið- stjórnarfundi og í gær hélt hann útvarpsræðu um málið. Eins og við var búizt réðzt hann harðlega á mistölcin i landbúnaðarmálunum og fjölyrti þá um leið um óheppi- legar afleiðingar Stalinismans. Krústjoff sagði í útvarpsræðunni að í fyrra hefði verið framleitt 16 milljónum lesta minna af korni heldur en gert er ráð fyrir í sjö ára áætluninni, þremur milljónum tonna minna af kjöti og 16 milljón um tonna minna af mjólk. Fordæmi Pólverja Margir gena því skóna þessa dagana, að Krústjoff muni nota tækifærið á þessum miðstjórnar- fundi að fá framgengt róttækum breytingum á skipulagi landbúnað- arins. Geti þá svo farið, að hann fari að dæmi Pólverja og gefizt upp á samyrkjubúskapnum, en bjóði frjálsari landbúnaðarháttum heim. Þegar óveðrið mikla gekk yfir Evrópu um daginn, var Askja, eign Eimskipafélags Reykjavíkur, að losa íslenzkt scment í Scrapster á Skotlandi, en það er ein þeirra hafna, þar sem Sementsverksmiðj- an lætur losa sementsfarma, sem fluttir eru á skozkan markað. í ó- veðrinu slitnaði skipið frá bryggju og lamdist allmikið við hafnargarð með þeim afleiðingum, að plötur og bönd svignuðu og beygluðust, og laskaðist Askja nokkuð af þess- um sökum. Til stóð, að Askja færi í klössun eða svokallaða 4 ára flokkunarviðgerð í vor, og þegar hún koin heim aftur eftir 3 sólar- (Frarnn a i5 siðu Af slysstað Um kl. 16,20 í gær varð það slys við húsið Kaplaskjólsveg 64, að 6 ára drengur hljóp út á götuna framan við strætisvagn, sem stóð þar kyrr við biðstöð, og varð bíl, sem að bar. Drengurinn út á götuna framan við vagninn vinstra megin og lenti framan á hinum bílnum. Féll hann í götuna og kom niður á hnakkann. Fékk hann lítilsháttar höfuðhögg og smá sár á hnakka, en þegar blaðið átti tal við lögregluna í gærkvöldi, var drengurinn enn í rannsókn. Bíl- stjórinn á bílnum, sem drengurinn varð fyrir, er læknir, og tók hann drenginn þegar og ók honum í sjúkrahús án tafar, svo að þegar hi'ingt var i lögregluna kl. 16,39 og hún kom á s-taðinn, var allt horfið, bíllinn, bílstjórinn og drengurinn. í septembermánuði s.l. buðust 165 menn tll að ganga í „Hunters' Corps", en það er hópur sérstaklega harðþiálfaðra hermanna. Nú eftir sex mánuði eru 11 þeirra eftir og hafa nú gengið I gegnum hörðustu lokaraunina. Þeir hafa verið þjálfaðir bæði i Þýzkalandi og Danmörku. Síðastliðin mánuð voru þeir á Jótlandi við æflngar dag og nótt, sváfu undir berum hlmni, földu sig, hvar sem þeir fundu skjól, renn- andi blautir, þreyttir og hungraðir. Þeir hafa að mestu leyti nærzt á hráum fiski, sem vissulega er slæmt fyrir danskan mathák. — Á myndinni sjást tveir úr hópnum snæða hráan fisk síðasta daginn. Pólland er eina landið í aust- urblökkinni, sem hefur gefizt upp á samyrkjubúunum. Það er líka eina landið, sem hefur uppfyllt á- ætlanir um framleiðsluaukningu landbúnaðarins. Falsaðar skýrslur henda af salti? Horfur eru nú á, að fleygja verði tveim skipsförmum af spænsku salti, sem Kol og Salt fékk seint í febniar með skipum, sem flutt höfðu kopar, áður en þau tóku saltfarminn, sem mengaðist af miklum kopar. Saltið, sem nú hefur verið einangrað hér í Reykja vík, er á fjórða þúsund tonn, og sýnist ekki liggja annað beinna við en henda því. Dómkvödd nefnd sér fræðinga vinnur nú að rannsókn málsins. Þegar saltinu er skipað um borð, er það efnagreint ag koparmælt. Þegar ljóst varð, að óvenju mikið af kopar var saman við saltið, var farið að rannsaka málið, og kom þá í ljós, að skipin, sem fluttu það til landsins, höfðu flutt kopar skömmu áður, annað í næsta túr á undan, en hitt fór millitúr. Blaðið spurðist fyrir um þetta mál hjá Geir Borg, framkvæmda- stjóra Kol og Salt í gær. Hann stað festi þessa frétt, en kvaðst ekki vilja segja nákvæmlega frá þessu, fyrr en úrskurður dómkvaddrar nefndrar sérfræðinga, sem falið var rannsaka málið, þegar farmur- inn kom til Iandsins og sýnt þótti, að ekki væri allt með felldu lægi fyrir. Hans er að vænta næstu daga. Geir sagði, að þetta væri salt frá sama stað á Spáni oig Kol og Salt hefur flutt inn salt frá síðast- liðin 9 ár. Hefur aldrei verið kvartað yfir því salti. Þegar fyrir- tækið fór að grennslast fyrir um það, hvað skipin hefðu flutt, áður en þau tóku saltið, reyndist það hafa verið kopar. Ekki vildi Geir segja á þessu stigi málsins, hvaða skip þetta éru né hvaðan, en þau eru tvö. Annað kom til landsins með saltfarminn 24. febrúar, en hitt nokkru fyrr. Hann sagði, að saltið hefði verið einangrað hér í Reykjavík, en magnið er á fjórða þúsund tonn, eins og áður segir. Þá er von, að Rússar líti í eigin garð. Á sama tíma sem þeir ná glæstum árangri í vísindum, tækni og iðnaði, stendur landbúnaðurinn í stað eftir 40 ára Sovétstjórn og samyrkju. Krústjoff sagði í ræðu sinni í fyrradag, að það, sem menn þyrftu væri hveiti en ekki falsaðar hveiti- skýrslur. Var hann þá að gagnrýna það, sem Malenkoff sagði á flokks þinginu 1952, er hann hélt því fram, að hveitivandamálið væri leyst. Krústjoff gaf aðra lýsingu á hveitimálunum í útvarpsræðunni í gær. Hann sagði, að á þessu tíma- bili hefði ekkert raunverulegt brauð verið á boðstólum í Sovét- ríkjunum, heldur aðeins gervi- brauð úr öðru efni en mjöli. Malenkoff varð síðar að játa, að sovézki bóndinn væri lítið betur settur nú en fyrir 40 árum. Og í fyrradag skrifaði Pravda, að árang (Framhald á 15 síðu). F SKÝRSLA POWÉRS SJÁ 3. 5ÍÐIJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.