Tíminn - 07.03.1962, Blaðsíða 16

Tíminn - 07.03.1962, Blaðsíða 16
Var gestur Kennedys ! Fyrir nokkru var -skýrt frá því hér í blaðiny, að Gísli Hlöðver Páls son, ungur fslendingur, sem nú er búscttur í Kansas í Bandaríkjun- uin, hefði verið I hópi 40 banda- rískra unglinga, sem valdir voru sem efnilegustu vísindamannsefni framtíðarinnar i Bandaríkjunum. Þessir 40 unglingar tóku þátt í samkeppni um skólastyrki og ýms verðlaun, sem Westinghouse mun veita þeim, og er þetta í 21 sinn, sem Westinghouse stendur fyrir slíkri samkeppni. Hittu Kcnnedy að rnáli Á mánudaginn fóru unglingarnir í heimsókn til Hvíta hússins í Washington, en þeir eru þar nú allir saman komnir til þess að taka þátt í lokasamkeppni um skóla- ' styrkina. Kennedy forseti ávarpaði þau og sagði, að þjóðin vænti mik- ils af þeim í framtíðinni. í þessum 40 manna hóp eru 30 drengir og 10 stúlkur frá 12 ríkj- um Bandaríkjanna, og voru þau valin úr hópi 23,768 gagnfræða- skólanemenda, eftir að hafa tekið ymis konar próf og skrifað ritgerð- ' ir um vísindaleg efni. Meðal þeirra efna, sem unglingarnir tóku til meðferðar í ritgerðum sínum, voru vandamál geimrannsókna, friðsam- leg notkun kjarnorku, náttúru- vernd og rannsóknir á sviði lækna j vísindanna. Gísli Hlöðver skrifaði um loft- strauma umhverfis Júpíter en sjálf ur hefur hann komið sér upp stjörnukíki. Söngskemmtun Næstkomandi sunnudag, 11. marz, mun Sigurveig Iljaltested, söngkona, halda söngskemmtun í Kristskirkju. Undirleikari verður orgelleikarinn Kjartan Sigurjóns- son. Tónleikarnir á sunnudaginn verða kirkjutónleikar, og er þetta í fyrsta sinn, sem Sigurveig heldur slíka tónleika, en hún hefur að undanförnu verið að æfa kirkju- lög. Á efnisskránni verða verk eít- ir Bach, Handel, Pál Isólfsson, Karl O. Runólfsson, Schubert og Frank. Nú sem stendur stundar Sigur- veig söngnám hjá Maríu Markan, sem er flutt hingað til Reykjavíkur og kennir nú söng hér. Sigurveig vill þó mjög gjarnan komast utan aftur til söngnáms og þá helzt til MOKKUR * Þessi mynd er frá miðbiki Alsírborgar, tekin 4. marz, og sýnir sprengjumökkinn, sem rís jafnhátt stórhýsunum. OAS-menn hafa haft sig mjög í frammi þama undanfama daga, og sumir borgarhlutár líta út eins og þeir hafi orðið fyrir loftárás. Jafnframt eyðilegging- unni hefur fjöldi manns látið lífið. Vínar, enda kvað hún nám sem þetta aldrei taka enda, og margt væri hægl að læra og sjá í Vín. Þetta eru fyrstu sjálfstæðu tón- leikar söngkonunnar, en árið 1961 hélt hún tónleika með Snæbjörgu j Snæbjarnar, í Gamla Bíói, en Sig-j urveig hefur einnig komið fram j í ýmsum óperum og óperettum í | Þjóðleikhúsinu. Undirleikarinn, Kjartan Sigur- jónsson, er ungur maður, sem stundar nú nám í Kennaraskólan- um. Hann hefur veiið orgelleikari í Kristskirkju síðustu 3 árin, eða síðan dr. Urbancic féll frá. Tónleikarnir á sunnudaginn hefj ast kl. 21. Aðgöngumiðar verða seldir í Bókabúð Lárusar Blöndal, á Skólavöiðustíg og í Vesturveri, í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar og við innganginn. nýju í fyrradag, þegar Sól- Kjartan Sigurjónsson orgelleikari og Sigurveig Hjaltested söngkona. faxi flugvél Flugfélags íslands flaug áleiðis iil Grænlands, var hún með nýti iæki innanborðs. Tækið lætur ekki mikið yfir sér, en vel getur það áit efiir að bjarga mörg- um mönnum úr sjávar- háska í framiíðinni. Tækið, sem er nokkurs konar móttökutæki, er á stærð við meðal útvarpstæki og er til þess gert að taka á móti merkjum frá sérstök- um senditækjum, sem komið hefur verið fyrir í gúmmíbátum og jafn- vel í björgunarbeltum. Tækið er kallað Sara, og hefur það nú þeg- ar verið tekið í notkun hjá ná- grannaþjóðum okkar, t. d. Dönum, Svíum og Bretum, og danski flot- inn hefur tekið upp það kerfi að koma fyrir tilskildum senditækj- um í björgunarbátum sínum og björgunarbeltum, en tækið er ekki til neins gagns séu senditækin ekki fyrir hendi. Fljúgi flugvél með þetta mót- tökutæki i 10.000 feta hæð getur hún leitað á svæði, sem er allt upp í 100 mílur í þvermál. Sé svo björg unarbátur eða maður í björgunar- belti einhvers staðar á þessu svæði og með senditækið, kemur fram merki á skermi móttökutækisins, og er því mjög auðvalt að finna bát eða mann. Sólfaxi mun vera eina íslenzka flugvélin, sem búin er þessu merki lega tæki enn sem komið er. NÝR BÍLL! í sumar mun slökkviliðið í Reykjavík fá nýjan dælubíl, en yngsti bíllinn af þeim, sem það á nú, verður 15 ára gamall á þessu ári. Árið 1947 fékk slökkviliðið síðast nýjan bíl, Ford, með dælu- útbúnaði frá W. S. Darley, og verður nýi bíllinr, sama gerð með sams konar útbúnaði. Næst yngstu bílar slökkviliðsins eru svo frá 1942, tveir bílar af gerðinni Mack og einn Ford, þá Mack ’41 og loks er elzti bíllinn af árgerð 1932, það er Fordson með stigaútbúnaði, keyptur hingað nýr frá Danmörku 1934. Sumir eldri bílanna hafa þó verið endurnýjaðir að einhverju leyti á þessum árum,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.