Tíminn - 07.03.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 07.03.1962, Blaðsíða 8
sína, léttara þegar hrossunum fækkar, Páll Zóphóníasson. Nú eru hestar, sem :ur verið gefið, að úr hárum, vaxið. Nú er nauð- Pálf Zóphóníasson: Hrossanotkun hrossarækt og Bjarni Ólafsson bóndi í Króki í Hraunger'ðishreppi ritar grein í Frey, 4. tbl. þessa árs, sem hann kallar sama nafni og ég gef þess- ari grein. Sú grein sýnir mér, að Bjarna vantar heildarsýn yfir hrossaeign bændanna, og hvernig þeir nota hrossin nú í dag, og þar sem ég veit, að Bjarni er glöggur bóndi og fylgist allvel með málum, get ég búizl við, að það séu fleiri en hann, sem ekki gera sér ljóst, hvemig hrossaeign bændanna hef- ur breytzt. Og til þess að gera þeim það Ijósara, rita ég þetta greinarkorn. Nú hin síðari ár hefur notkun hestanna breytzt mjög mikið, og þó mjög misjafnt í einstökum byggðarlögum. Áður var hesturinn talinn þarfasti þjónninn, en nú eru um 1100 búandi bændur, sem eng- an hest eiga né nota. Og um 700 eiga aðeins einn hest. Og þessum bændum fjölgar með hverju ári. Vitanlega láta þeir hrossakynbæt- ur sig litlu skipta. Það ber ekki á öðru en að þeir búi svipuðu búi og hinir, sem hrossin eiga. Sumir þeirra eiga milli 400 og 500 fjár, og mai'gir milli 10 og 20 mjólk- andi kýr, og einstaka fleiri. Það er Einn kaíli búfjárræktarlaganna því ekkert skilyrði til þess að geta fjallar um hrossarækt, en honum hefur verið illa hlýtt af hrossaeig- endum og því komið að minna gagni en ætla mætti. Kemur það meðal annars af þvi, að sjónarmið bændanna um það, hvað beri að gera til að bæta okkar hross, hafa verið ákaflega misjöfn, eru það enn þá. Þetta mun aftur að nokkru koma af því, að aldrei hefur verið möi'kuð ákvæðin stefna í kynbót- um hrossa hér á landi, leiðandi mennirnir í hrossarækt hafa stund- um haldið því fram, að það þyrfti að aðskilja okkar hross í tvo kyn- stofna, annan, sem hefði einkenni, byggingarlag, vilja og ganglag reið hestsins, og hinn, sem hefði stærð, byggingarlag, og geðlag dráttar- hestsins. Þetta hefur þó ekki ver- ið gert, heldur haifa sumir, og stundum látið hugsaða reiðhest- inn vera fyrirmynd að undaneldis- hestunum, og aðrir hafa haft bygg- ingarlag dráttar'hestsins fyrir aug- um, þegar þeir hafa valið undan- eldishest. Vegna þessa hefur eig- inlega aldrei verið tekin hrein lína í hestakynbótunum, líkt og gert hefur verið bæði í sauðfjárrækt- inni og nautgriparæktinni, enda þótt líka megi segja, að stefnan í þeim búgreinum báðum hafi breytzt nokkuð, þá er það lítið, og raskar lítið þeirri stefnu, sem fylgt hefur verið undanfarin 30 til 40 ár. Þakkarávarp til Guðjóns á Marðarnúpi Ég þakka Guðjóni á Marðarnúpi kveðju og skilaboð, sem Jón Pálma son lætur Mbl. flytja áleiðis fyrir hann i dag. Guðjón minnist ekkert á kaup- mátt vaxta og má því ætla að hánn .hafi séð veilur í fyrri reikningi sín um eftir tilskrif mitt. Eðlilega þyk ir mér vænt um að hann vekur nú athygli á því. Það er alltaf leiðin- legt að prédika fyrir daufum eyr- um. í tilefni af fyrirspurn Guðjóns um það, hvað mér finnist um með- ferð á sparifjáreigendum, „sem í mörgum tilfellum eru gamaimenni og böirn", vísa ég til sendibréfs til Þingeyingsins nafnlausa í Tíman- um 3. þ.m. Þegar Guðjón hefur les- ið það, vona ég að honum verði ljóst, að innstæðan þarf að vera nokkuð stór til þess að vaxtahækk unin geri betur en vega upp þann þunga, sem hún veldur á framfærslu kostnaði eigandans. Kveðja til Guðjóns. Eg mun taka því Ijúflega þó að hann haldi áfram að spyrja. 6. marz 1962. Halldór á Klrkjubóli. búið sæmilegu búi, að eiga hross. Svo er annar lítið eitt stærri hóp- ur, sem vinnur að hrossakynbótum, vilja fá hr'oss sín viljug og góð til reiðar, á fleiri hesta en hryssur, og vilja fá eðlisgóð folöld til að halda við stofninum, og öðru hverju geta selt frá sér reiðhesta eða reiðhestsefni, fyrst og fremst innanlands, en líka hafa þeir von um, að geta selt þá úr landi til reið ar fyrir þá, sem þar vilja skemmta sér (eða. börnum sínum) með því að eiga þæga reiðhesta. Efnamenn í bæjunum vilja margir eiga góða reiðhesta, og líklega eru í bæjum landsins um 800 reiðhestar. Sé gengið út frá því, að þá þurfi að endurnýja, má ætla, að til þess þurfi árlega 80 hesta, og er það ríflega áætlað, svo að ekki er um stóran innlendan markað að ræða. En þessir sömu bændur, sem vinna nú að hrossakynbótum, vilja líka sjálfir eiga góða hesta, og þeir nota þá fyrst og fremst til reiðar heima fyrir og við fjársmala- mennsku, bæði á víðlendum afrétt um og heimahögum. Einstaka nota þá lika við heyvinnu, en þeim fækkar með hverju árinu, sem það gera. Enn kemur maður þó t. d. í Árnessýslu á samkomur, sem menn koma ríðandi á, og enn standa hesthús og hestaréttir við sum samkomuhúsin og í þeim sjást stundum hestar. En annars staðar, þar sem menn áður komu ríðandi til kirkju og á samkomur, sjást nú nær aldrei ríðandi menn. Bíllinn er orðinn þeirra „þarfi þjónn“. Og íslenzkir bændur komust aldrei upp á það almennt að nota hest- inn við jarðræktarstörfin, og nú má héita, að sú notkun sé með öllu lögð niður. Það er sjónarmið þess- ara bænda, sem Bjarni túlkar vel í grein sinni, og ég skil þá og virði mjög hugsanagang þeirra. En svo eru bændur annars slað- ar á landinu, sem eiga fleiri hryss- ur en hesta og hafa hryssurnar til þess að fá undan þeim folöld, sem þeir slátra flestum á haustin.! Margir af þeim eiga mjög fáa! tamda hesta, og það er til, að þeir eru ekki beizlaðir árlangt. Þessir bændur hafa allt aðrar skoðanir og allt önnur sjónarmið í hrossarækt- inni en hinir, sem áður eru nefnd- ir. Þeir hýsa ekki ótilneyddir hesta sína að vetrinum. Þeir láta þá ganga, nema eitthvað sérstakt komi fyrir einhvern þeirTa, eða það komi jarðbönn, svo að hrossin nái ekki í jörð. Þeir telja þvi fund- ið fé það, sem þeir fá fyrir folöld- in, þegar þei- leggja þau inn að haustinu. Og eðlilega vilja þeir bafa þau sem vænst, rétt eins og fjárbændurnir dilkana sína. Og það er munur á vænleik folald- anna að haustinu rétt eins og lamb- anna. Meðalfolald mun vera með um 70 til 80 kg. fall að haustinu, þegar því er slátrað, en þó eru líka til folöld, sem ekki hafa nema um 60 kg. skrokka og önnur, sem hafa 120—130 kg. skrokka. Þessir bænd- ur vilja þvi fyi'st og fremst fá fyl í sínar hryssur að vorinu, og ekki þurfa að vera að leiða þær til fola sem einhvers staðar eru í girð- að þá fyljist þær síður. Því vilja þeir hafa graðhesta í hrossunum, þá telja þeir, að flest folöldin næsta vor fæðist í maí og júní, og og það hlýtur að verða, eftir þvl sem vélanotkun vex og búii stækka. Trúlega minnkar líka markaður- fátt verði um síðgotunga. Og þeiriinn innanlands á folaldakjöti, og vilja hafa folana þannig byggða, I hryssurnar og folaldaeldið þar með. að þeir fái undan þeim sem stærst Þetta virðist rás tímans, sem við og vænst folöld. Þessir bændur, sem munu vera ;ráðum ekki við. Það er því mikill vafi á því, hve nær 2200, slátra árlega um 6000 mikla þýðingu það hefur nú að folöldum og það munar þá miklu,1 deila um stefnur í hrossaræktinni, hvort þau eru væn eða léleg til hætt við því, að hvaða niðurstöðu niðurlags. sem við komumst, mundi hún Það hefur ekki til þessa reynzt standa skamma stund og fljótt mögulegt að sameina bændur j verða breytt aftur. landsins um ákveðið sjónairmið,! sem vinna beri að í hrossaræktinni 1. marz 1962. og vafasamt tel ég, að það verði synlegt aS klfppa hestaftí!y*íoti/flét/a, elns og unga stúlkan hér á myndlnni er að gera Halldór Kristlánsson: Frjálsar umræSur Gagnrýni og menning heit ir grein, sem birtist í Tím- anum 28. febrúar. Hún er eftir Ólaf Jónsson. Höfund- ur deilir þar allfast á dag- blöðin fyrir stefnuleysi í bók menntum og handahófsbrag á skrifum um þau efni. Sízt mun ég mæla á móti því, að margt megi finna að því, hvernig bókmenntir eru ræddar í blöðum. En það er mín skoðun, að þessi handa hófsbragur og stefnuleysi hafi sína kosti. Um þá vildi ég segja fáein orð. Ólafur Jónsson virðist telja það æskilegt, að dag- blöðin hafi fasta menn til að skrifa bókmenntagagn- rýni. Um það út af fyrir sig er gott eitt að segja, með því móti þó, að blöðin st.andi öðrum opin til að ræða um bókmenntir. Frjálsar, víð- tækar umræður í blöðum eru meira virði en föst og ákveðin stefna. í bókmenntum rísa og falla ýmsar tízkur eins og á öðrum sviðum. Svo hefur þetta alla tíð verið. Ágætir rithöfundar og skáld eru meira og minna kreddubund in a-f tízkufyrirbærum. Það eru lesendur líka. Fyrir grósku og þróun bókmennt- anna er það mikils virði, að sundurleit viðhorf fái rúm í blöðum. Allir viðurkenna, að feg- urð, snilld og andagift rúm- ast í óbundnu máli sem bundnu. Óbundið mál tapar ekki gildi sínu, þó að það sé kallað Ijóð eða kvæði. Rím eða rímleysi segir ekki til um skáldlegt gildi verks. En sú tízka, sem höfundar fylgja, hvort heldur er i rími eða rímleysi. hefur gjarnan önnur einkenni. sem setja svip sinn á verk þeirra, Þó að t.d. sumir höf- undar stundi talsvert það, sem við sumir myndum kalla „óskiljanlegar líking- ar“ í rímleysinu, af því að það fer saman í þeirra.tízku, er ekki þar með sagt, að þær fylgi öllu rímleysi, Órímað mál getur verið einfalt. gagn ort og snjallt. Oft er svo til orða tekið. þegar rætt er um bókmennt ir, að eitthvað sé galli eða vöntun „frá listrænu sjón- armiði“. En listrænu sjón- armiðin eru mörg, svo að í raun réttri þýðir þetta venjulega „fyrir minn srnekk" eða „a?f mínu áliti“. List er víðtækt orð. Hér er verið að skrifa hversdags- lega blaðagrein og þær eru vfirleitt ekki taldar til lista verka. Þó eru þær háðar mörgum lögum listarinnar. Snillingur getur farið þann ig með tunguna, að grein um hversdagsleg efni verði listaverk. Framsetning máls og meðferð röksemda er list, þó ag snilld manna sé mjög misjöfn í‘ þeim efn- um sem öðrum. Skáldskapur er oft um mjög hversdagslega hiuti. Dalvísa Jónasar er ekki um neitt annað en það, sem 8 TÍMINN, miðvikudaginn 7. marz 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.