Tíminn - 23.03.1962, Qupperneq 13
SJÖTUGUR:
Guðjón Guðjónsson
fyrrverandi skólastjóri
An-nálar herma að góður vinur
minn og heiðarlegur Húnvetning-
ur, Guðjón Guðjónsson, fyrrv.
skólastjóri í Hafnarfirði nái sjö-
tugsaldrinum í dag. Eg vil því
biðja blað þetta fyrir afmælis-
kveðju til hans og bjóða hann vel-
kominn í hóp okkar félaga sinna
og starfsbræðra, sem náð hafa því
aldursmarki að verða 70 ára. Við
munum allir sammála um þá ósk,
að Guðjón megi enn um langan
aldur prýða hóp okkar og gieðja
meg gáfum sínum, góðvild og
léttri fyndni. Þessa kosti á afmæl
isbarnið.alla í ríkum mæli og því
tel ég hann jafnan með beztu og
skemmtilegustu félögum mínum
í kennarastétt.
Hér er ekki ætlun mín að
segja ævisögu Guðjóns. Til þess
er hvorki tími né rúm í venju-
legri blaðagrein. Eg verð ag láta
nægja að vísa til okkar ágæta
Kennaratals, enda Guðjón fyrir
löngu þjóðkunnur maður. En
vegna yngri lesenda biaðsins, vil
ég geta þesS, að Guðjón er einn
af þessum dugmiklu aldamóta-
drengjum, sem ólust upp við
kröpp kjör, en brutust til mennta
af eigin ramimleik. Guðjón tók
kennarapróf 1916 og hefur síðan
verið opinber starfsmaður, kenn-
ari nær fjóra áratugi og umsjón
armaður fræðslumyndasafns rík-
isins siðustu 8 árin og átt þátt í
• að undirbúa nýja löggjöf um þau
mál. Um aldarfjórðung var hann
skólastjóri Barnaskóla Hafnar-
fjarðar, mörg ár í stjórn Samb.
ísl. barnakennara og formaður
um skeið. Hann hefur átt sæti
árum saman í stjórn ríkisútgáfu
námsbóka, útvarpsráði og hefur
nú eftirlit með sýningum kvik-
myndahúsanna í Reykjavík (vara
maður). Hann var og alllengi í
stjórn Sumargjafar, í milliþinga
nefndum um launamál og fl., sem
of langt yrði hér upp að telja.
— Eg nefni þetta til að sýna, að
Guðjóni hefur verið sýndur cnik-
ill trúnaður um dagana, þótt ekki
hafi hann verig að sækjast eftir
neinum vegtyllum, því að hann
er mjög hlédrægur maður, helzt
um of, finnst mér stundum. — En
öll sín verk hefur Guðjón leyst af
hendi með mestu prýði, því að
hann er mjög fjölhæfur gáfumað-
ur, ágætlega að sér til rnunns og
handa, eins og sagt var áður fyrr.
Guðjón mun hafa verið einn
fyrsti kennari, sem kenndi drengj
um handavinnu, enda afbragðs
smiður. Hefur það komið sér vel
fyrir hann nú seinni árin, þar
sem hann, ásamt Gesti tengda-
syni sínum hefur nú lokið við
að byggja stórt og fallegt íbúðar-
hús.
Ónefnt er enn, að Guðjón er
góður rithöfundur, sem skrifar
ágætt mál og hefur næma tilfinn
ingu fyrir meðferð þess. Hann
var ritstjóri Æskunnar og Mennta
mála í allmörg ár, hefur samið
kennslubækur og þýtt á þriðja
tug bóka bæði fyrir börn og full-
orðna. Þeir, sem hafa hlýtt á út-
varpssöguna, er hann las nýlega,
heyrðu, að þar fór saman go,tt
mál og góður flutningur. — Márg
ar barna- og unglingabækur, sem
Guðjón hefur þýtt, eru með beztu
barnabókunum. Hann skilur börn
in og þau hann, enda þótti hann
afburðagóður kennari.
Ef til viH ljóstra ég upp leynd
armáli, þegar ég fullyrði, að Guð-
jón sé ágætur hagyrðingur. En
ég á svo mörg skemmtileg ljóð
frá honum, að ég má til ag nefna
þann hæfileika — en ekki þori
ég að birta Ijóðin, eins og nú er
í pottinn búið!
Góðar vísur og glettin tilsvör
samferðamannanna eru sannar-
lega „salt í lífsins' graut“, á dag
legri vegferg manna. Þess hef ég:
oft notið í samvistum mínum við
nefnt afmælisbarn, frá fyrstu
kynnum okkar og þó einkum í
fræðslumálaskrifstofunni. Þess
vegna eru þessar fátæklegu lín-
ur skrifaðar og þeim fylgja einn
ig þakkir, kveðjur og heillaóskir
frá öðru starfsfólki þeirrar stofn-
unar til afmælisbarnsins, og hinn
ar ágætu frúar hans, barna og
annars skylduliðs á Laugarás-
vegi 7.
Ingimar Jóhannesson.
ÞAÐ MÁ ÆTÍÐ
TREYSTA GÆÐUNUM.
Pökkunarstúlkur
og karlmenn
Óskast. Fæði og húsnæði.
Mikil vinna.
HRAÐFRYSTISTÖÐ VESTMANNAEYJA
sími 11 og 60 (í Reykjavík 19-4-20).
Westinghouse heimilistæki
Vandlátir velja Westinghouse
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA, Véladeild.
þilplöfur nýkoennar
PÁLL ÞORGEIRSSON
Laugavegi 22 — Sími 16412
ÍSSKÁPAR
ÞVOTTAVÉLAR
ÞURRKARAR
WESTINGHOUSE
er heimsþekkt
gæðavara.
úr nylon og ryon í öllum
stærðum ávallt fyrirliggj-
andi.
TEGUNDIR:
Contineutal — Firestone
Barum — Rússnesk.
Gúmmívinnustofan
Skipholti 35, Reyk
Sími 18955
Stúlkur óskast
Nokkrar stúlkur óskast til framleiðslustarfa og
hreingerninga hjá Lyfjaverzlun ríkisins. Umsækj-
endur komi til viðtals á Hverfisgötu 4, laugardag
kl. 2—4 e. h.
N auðungaruppboð
það, sem auglýst var í 6. 7. og 8. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1962 á eignarhluta Fríðu Ágústsdóttur,
Ásbraut 3 (5) (2 herbergja íbúð) fer fram á eign-
inni sjálfri mánudaginn 26. marz 1962 kl. 14.15
samkvæmt kröfu Benedikts Sigurjónssonar hrl.
6. fl. ,
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Járnsmiður
Góður járnsmiður óslcast nú þegar í vélaverkstæði
Vegagerðar ríkisins í Reykjavík.
Uppl. veitir Erik Eylands, Borgartúni 5, sími 22492.
T f M I N N, föstudagur 23. marz 1962.
/
I
13