Tíminn - 04.05.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 04.05.1962, Blaðsíða 8
Krefjast auk- inna afurðalána Vegna þess að niður féll í prent- «n hér í blaðinu hluti af ályktun þeirri, sem aðalfundur Mjólkurbús- Flóamanna samþykkti einróma frá Guðmundi Guðmundssyni á Efri- Brú, þykir rétt að' birta ályktunina í heild aftur: „Aðalfundur Mjólkurbús Flóa- manna haldinn í Aratungu 17. apríl 1962 leggur ríka áherzlu á, að rík- isstjórnin hlutist til um, að Seðla- bankinn veiti 67% lán út á afurðir landbúnaðarins, eins og áður var, og að viðskiptabankarnir véiti við- bótarlán eins og tíðkazt hefur með' sjávarafurðir. Bendir fundurinn á, að' þetta er bændum mjög nauðsynlegt, svo að ekki dragist eins lengi og nú er, að þeir fái greitt andvirði afurða sinna.“ Framboð Framsókn- armanna úti á larafi Listi Samvinnumanna á Sel- fossi er þannig skipaður: 1. Sigurður Ingi Sigurðsson, oddviti. 2. Skúli Guðnason, formaður verkalýðsfélagsins. 3. Guðmundur Jónsson, skósmiður. 4. Arndís Þorbjarnardóttir, frú. 5. Hjalti Þorvarðarson, rafveitustjóri. 6. Bergur Þórmundsson, mjólkurfræðingur. 7. Grímur E. Thorarensen, kaupfélagsstjóri. 8. Iðunn Gísladóttir, frú. 9. Jón E. Sigurmundsson, kennari. 10. Hjalti Þórðarson, járnsmiður. 11. Kristján Guðmundsson, rennismiður. 12. Einar E. Elíasson, trésmiður. 13. Margrét Gissurardóttir, frú. 14. Frímann Einarsson, verkamaður. Til sýslunefndar: 1. Hjalti Gestsson, ráðunautur. 2. Valdrmar Pálsson, gjaldkeri. Listi Framsóknarmanna í Borg arnesi við sveitarstjórnarkosning- amar er þannig skipaður: Þórður Pálmason, kaupfél.stjóri. Guðmundur SigurðsSon, kennari. Guðmundur Ingimundarson. bas- arameistari. Halldór E. Sigurðsson sveitarstj. Karl Hjálmarsson, símstjóri. Gestur ICristjánsson, deildarstj Aðalsteinn Björnsson, bifr.stj. Pétur Albertsson, bóndi. Guðmundur Jónsson, bifvéla- virki. Bjarni G. Sigurðsson, ýtustjóri. Konráð Andrésson, verkamður. Georg Hermannsson, skrifst.m. Andrés Þórarinsson, bifr.stj. Eggert Guðmundsson, bóndi. Þá hefur einnig verig ákveðið framboð Framsóknarmanna til sýslunefndarkjörs, og er Sigurð- ur Guðbrandsson, mjólkurbússtj, aðalmaður, en Páll Guðbjartsson, gjaldkeri, til vara. Framboðslisti frjálslyndra kjós enáa á Seltjarnarnesi: Hreppsnefndarkosningar: 1. Jón Grétar Sigurðsson, lögfræðingur, Melabraut 3. 2. Jóhannes Sölvason, viðskiptafr., Lindarbr. 2. 3. Eyjólfur Kolbeins, verkamaður, Kolbeinsstöðum. 4. Hafsteinn Guðmundsson, prentsmstjóri, Lindarbr. 2-A. 5. Baldvin Sigurðsson, afgr.maður, Melabraut 47. 6. Félix Þorsteinsson, húsasmíðam., Ytri Grund. 7. Vigdís Sverrisdóttir, húsfrú, Skólabraut 37. 8. Ingi S. Erlendsson, mælingamaður, Melabr. 44. 9. Kristján Pálsson, húsasmíðam., Miðbraut 26. 10. Þorsteinn Guðbrandsson, forstjóri, Nýju Grund. Sýslunefndarkosningar: Aðalmaður: Sigurður Jónsson, lögfræðingur, Melabraut 3. Varamaður: Jón Grétar Sigurðs- son, lögfræðingur, Melabr. 3. Framsóknarfélag Seltjarnarness býður ekki fram sérstakan lista í þessum hreppsnefndarkosningum, en styður lista frjálslyndra kjós enda, H-listann. Framboðslisti Framsóknar- manna á Hornafirði: 1. Ásgrímur Halldórsson kaupfélagsstjóri. 2. Hannes Erasmusson, sjómaður. 3. Óskar Helgason, símastjóri. 4. Þórhallur Kristjánsson, vélstjóri. 5. Pétur Sigurbjörnsson, vélvirki. Framboðslistinn á Hofsósi —, sá eini, sem —fram kom: Þorsteinn Hjálmarsson, Afl. Níels Hermannsson, Fr. Valdemár Björnsson, Ab. Friðbjörn Þorkelsson, Fr. Jóhann Eiríksson, Sj. og varamenn. Sýslunefnd: Geirmundur Jóns- son, Fr. Vinstri manna listi á Hnífs- dal: 1 Guðmundur H. Ingólfsson, verkamaður, Hnífsdal. 2. Hjörtur Sturlaugsson, bóndi, Fagrahvammi. 3. Helgi Björnsson, framkvæmdastjóri, Hnífsdal. 4. Guðmundur Matthíasson, bóndi, Fremri-Húsum í Arríard. 5. Lárus Sigurðsson, skipstjóri. Hnifsdal. 6. Hinrik Ásgeirsson, sjómaður, Hnífsdal. 7. Marviu Kjarval, bóndi, Heimabæ í Amardal. framandi heimi. — Það sem hún gat ekki með tungumáli sínu gert, það megnaði hún með blýantinum og litunum: Hún gat opnað hug sinn og hjarta. Það var nokkru eftir þennan eftirminnilega morgun, þegar blý- anturinn og litirnir breyttu harmi og hryggð dóttur minnar í fögnuð og hamingju, að ég rakst á ein- kennilega bók í óhrjálegri forn- verzlun. Bókar'heitið vakti strax forvitni mína, en bókin hét „Hin nýju vísindi litanna og formanna“. Ég keypti þessa bók og hún hafð'i sannast sagna furðulegan boðskap að flytja. Hún kynnti rannsóknir, sem fram höfðu farið á hinum mikla þætti lita- og formskynjun- arinnar í þroska mannsins og hugsunarhætti. Ef til vill voru ályktanirnar, sem dregnar voru af þessum rannsókn- um hæpnar sumar hverjar og hið sama tillögur, sem komið var á framfæri. Sem dæmi: Lagt var til, að komið væri á fót sérstökum menntastofnunum, sem hefðu það eitt hlutverk að fræða um eigindir og áhrif litanna og formanna á mannlega sál. — Það var líka til- laga um heilsuhæli, sem ætti að veita mönnum lækning og heilsu- bót með því að beita töfrum og undrum litanna. Fram hjá hinu varð aftur á móti ekki gengið, að gripið var á merki- legu rannsóknarefni og athygli vakin á töfraheimi, sem alltof lítill gaumur er gefinn, ekki sízt af okk- ur, sem fáumst við uppfræðslu barna og ungmenna og viljum á okkar hátt leggja grundvöll að hamingju þeirra og velferð. Allt þetta, sem nú hefur lítillega verið frá greint, fékk sérstaka undirstrikun, er mér á síðastliðn- um vetri barst upp í hendur sýn- ingarskrá yfir myndlistarsýningu skólabarna í Bretlandi, sem efnt var til að tilhlutan enska tímarits- ins The Sunday Pictorial. Sú sýn- ingarskrá og sá tilgangur, sem þeirri sýningu var ætlaður, var hin raunverulega ástæða til, að við sem stöndum að ritstjórn tímaritsins Samvinnunnar, leituðum eftir sam- starfi við forráð'amenn þessa barna- skóla um keppni þá í myndskreyt- ingum, sem hér gefur að líta árang- urinn af. Víst er rétt, að myndskreytingar- keppni okkar er með öðru sniði og þar við miðað, sem hægt reynist mögulegt án lengra og ýtarlegra undirbúnings en um gat verið að ræða að svo komnu máli. Keppni okkar var af miklum dugnaði og glæsibrag skipulögð af Örlygi Hálf- dánarsyni, deildarstjóra og blaða- manni við Samvinnuna og Jens Kristleifssyni, teiknikennara við Laugalækjarbarnaskólann með miklum stuðningi og velvilja skóla- stjórans, Gu'ðmundar Magnússonar. Eiga þeir allir heiður og þakkir skildar fyrir keppnina og sýning- una. En mig langar þrátt fyrir það að GuSmundur Sveinsson, ritstjóri Samvinnunnar, afhcndir verðlaun. v* Tímaritið Samvinnan hefur efnt til verðlaunasamkeppni í barnaskólum í Reykjavík um teikningar við námsefni. Var þátttaka mikil og árangur basði góður og athyglisverður. Síðustu dagana í apríl var efnt til sýninqar á myndum úr sam- keppni bessari í Laugalækjar- skólanum og sóttu hana mörg hundruð manns. Vakti sýning- in verðskuldaða athygli. Hér birtast ræður þær, sem Guð- mundur Magnússon, skóla- stjóri og Guðmundur Sveins- son, ritstjóri Samvinnunnar, fluttu við opnun sýningar- innar. Ræða GuSmundar Sveinssonar Herra skólastjóri, kennarar nemendur og aðrir áheyrendur. Ég hef líka sjálfur orðið fyrir þeirri persónulegu reynslu að fá áþreifanlega sönnun fyrir, hvers virð'i myndlistin er litlu barni, þeg- ar hún verður því nær einasti veg- urinn til að tjá hug sinn og túlka tilfinningar. ' Fyrir tveim árum dvaldi ég vetrarlangt í framandi landi með dóttur rnína, sem þá var nýkomin á skólaskyldualdur. Ég setti þessa dóttur því í skóla. Hún skildi ekki orð í því tungumáli, sem kennari hennar og skólafélagar töluðu. Ég man vel fyrsta morguninn, þegar ég fór með hana í skólann og kynnti henni þessa nýju og fram- andi stofnun. Ég las hryggðina og kvíðann úr svip hennar, þegar hún var sett við eitt borðið og hún upp- götvaði, að hún nam ekkert orð af því, sem kennarinn eða sessunaut- ur hennar var að reyna að segja við hana. — Það komu tár fram í augu hennar, og hún leit hjálpar- vana til mín. Þá greip kennarinn til þess ráðs, sem á stuttri stundu breytti harminum og kvíðanum í gleði og eftirvæntingu. Hann fékk henni teikniáhöld, örk og liti. Það færðist bros yfir andlit litlu stúlk- unnar. Hér var henni fengið á dul- arfullan hátt verkefni, sem hún réð við og gat tengt hana þessum Það er mér mikil ánægja að vera hér viðstaddur opnun þessarar sér- kennilegu myndlistarsýningar, sem haldin er til að kynna árangur, sem náðst hefur í keppni í myndskreyt- ingu lestrarefnis skólabarna og tímaritið Samvinnan efndi til. Barnateikningar hafa mér lengi verið hugstætt rannsóknarefni, ekki sízt fyrir þá sök, að ég hafði um eitt skeið sérstakan áhuga fyrir lífi og list svissneska málarans og teiknarans Pauls Klee. Klee mun líklega hafa verið sá listamaðurinn í Evrópu á síðustu áratugum, sem af hve mestum sannfæringarkrafti leitaðist við að vekja athygli á listsköpun barnanna. Hann taldi, að hinir fullorðríu gætu til hennar sótt mikinn lærdóm og eggjun. Var það skoðun Klee’s að list barn- anna varpaði nýju ljósi yfir sjálft eðli listarinnar og hlutverk og mætti því með nokkrum rétti kall- ast eins konar lykill að því merki- lega menningarfyrirbæri, sem list- jin — og þá í þessu tilfelli mynd- llistin — er. VERÐLAUNAHAFAR 1. Árni Gunnarsson, 11 ára C, Kisa fer til s.iós. 2. Benóný Viggósson, 10 ára A, Bílar. 3. Guðmundur Bárðarson, 10 ára C, Kirkjuhvoll. 4. Haraldur Arnliótsson, 10 ára B, Sagan af Hlina kóngssyni. 5. Kristbjörg Guðjór.sdóttir, 11 ára A, Sveinn Dúfa 6. Magnús Guðmundsson, 10 ára B, Sagan af Hlina kóngssyni. 7. Magnús Halldórsson, 10 ára A, Bílar. 8. Margrét S. Gunnarsdóttir, 11 ára A, Sveinn Dúfa. 9. Óli H. Jónsson, 11 ára B, Baðstofa og eldiviður. 10. Rannveig Baldursdóttir, 10 ára C Kirkjuhvoll. 11. Sigurður S. Pálsson, 10 ára A, Bílar. 12 Snorri Skaftason, 11 ára D, Grímseyingurinn og bjamdýrið. 13. Torfi Matthíasson, 10 ára B, Sagan af Hlina kóngssyni. 14 Valgerður Gunnarsdóttir, 11 ára B, Baðstofa og eldiviður. 15. Valur Valdemarsson, 11 ára C, Kisa fer til sjós. TIMIN-N, föstudaginn ,4. maí 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.