Tíminn - 11.05.1962, Blaðsíða 1
Fólk er beðið að
athuga, að kvöldsími
blaðamanna er
1 8303
SÖLUBÖRN
Afgreiðslan í Banka*
sfræti 7 opnuð kl. 7
alla virka daga
106. tbl. — Föstudagur 11. maí 1962 — 46. tbl.
SOAR 20 MILU.
VERKFRÆDINGA
Fyrir 40 milljónir ís-
lenzkra króna, hefur
bandaríska verkfræði-
skrtfstofan, Harza Engin
eering Co, tekið að sér
að vinna að undirbúnings
rannsóknum og tilraun-
um í sambandi við virkj-
un Þjórsár við Búrfell, og
að skila í haust fullkomn
um uppdráttum að orku-
veri þar,
Bandaríska fyrirtækið var feng
ið til að vinna þetta verk, þar
sem íslenzka ríkisstjórnin hefur
með bráðabirgðalögum bannfært
verðtaxta íslenzka verkfræðinga-
félagsins og getur því hvorki
tekið íslenzika verkfræðintga í
vinnu né látið íslenzkar verk-
fræðiskrifstofur vinna verkin
samkvæmt taxta verkfræðingafé-
lagsins.
Helmingi hærra
Á ráðstefnu verkfræðmgafélags
ins fyrir fáum dögum, kom fram
í erindi Sigurðar Thoroddsen, að
fyrirtæki hans mundi taka þetta
sama verk að sér fyrir 20 millj-
ónir króna eða fyrir helmingi
lægri upphæð en bandaríska fyr-
irtækið.
Mismunurinn stafar af því, að
laun íslenzkra verkfræðinga eru
nokkrum sinnum lægri en laun
bandarískra verkfræðinga, jafn-
(Framhald 8 15 síðu
Menn lieyra I lóunni
hið sanna sumartákn
andlit sem önnur.
og krían kemur, en sumarið -er-ekJ«--komið fyrr en stúlkurnar halla sér á grænan Arnarhól I hádegisliléinu. I>að er
„austan við læk“ og í gær voru þær komnar á grasið eins og í fyrra og veðriS var gott og sól, sem skein jafnt á fræg
Ljósmynd Tíminn GE
Nauðsyn á stækkun rædd á aöalfundi Aburðarverksmidjunnar
Salan nam 62,5 míllj.
Aðalfundur Áburðarverk-J þeirra fyrir 95% hlutafjárins framleiðsluaukningin nemur
smiðjunnar var haldinn íjsátu fundinn. í skýrslu Vil- 2,6 smálestum á dag, frá því
Gufunesi þriðjudaginn 8. maí hjálms Þór, formanns stjórnar árið 1960, og var 66 lestir á
s.l. Hluthafar og umboðsmenn ■ verksmiðjunnar,-kom fram, að dag.
Síldin hafði nær
sökkt Elgo í gær
f gærmorgun klukkan 11.12
gaf norska sfldarflutningaskip-
ið Elgo út neySarskeyti, og var
það þá statt út af Ingólfshöfða.
Mikil slagsíða var þá komin á
skipið og óttuðust ménn að því
hvolfdi ef til vill þá og þegar.
Þór áætlaði að vera á staðnum
ki. 14.30 og tvö önnur skip um
sama leyti, en færeyska skipið
Vardin var nokkru nær.
Flugvél frá varnarliðinu fór
á vettvang og sveimaði yfir þvi
unz Þór kom auga á skipið um
kl. 14.05. Þór bjargaði áliöfn
Elgo, 10 mönnum, um klukkan
14.20, og litlu síðar var ákvcð-
ið að reyna að bjarga skipinu
til lands. Voru settar dráttar-
taugar frá Þór um borð í skip
ið og fjórir varðskipsmenn, og
síðan var lagt af stað til Vest-
mannaeyja með skipið í togi.
Klukkan 17.17 tilkynnti Þór,
að allt gengi vel. Þá var ANA 6
vindstig og fór batnandi, og á-
ætlaði Þór þá að verða urn það
bil 15 klst. til Eyja. Hraðinn var
7 mílur á klst. Síðar, eða kl.
18.43, gekk enn þá allt vel, og
hafði hraðinn verið aukinn um
hálfa mílu á klst. Vænlega
horfði um, að klakklaust gengi
að koma skipinu til lands.
Eigo er annað þeirra tveggja
norsku skipa, sem hingað komu
frá Akranesi á þriðjudaginn.
Hitt skipið, Vimi, lagði af stað
degi fyrr, og er ekki annað vit-
að en að því gengi að óskum.
Eigo var áður japanskur hval-
veiðibátur, og af fróðum mönn-
um talið fegursta skip.
Elgo er 650 tonna skip, en
var aðeins ineð 476 tonn af síld.
Talið er, að síldin hafi „slegið
sig“ sem kallað er, það er
morknað. Þá verður hún eins
og seigfljótandi olía, og ræðst
ekkert við hana, þegar skipið
veltur. Líkur eru taldar til þess
að hún hafi brotið skilrúm í lest
inni, en í gær var borið til baka
það sem fyrst var álitið, að sjór
hefði komizt í lestina. Síðast
þegar fréttist til, var skipið rétt
í sjónum, og ekki mikii alda,
svo að "vonir stóðu til, að ekkert
kæmi fyrir skipið þann spöl,
sem eftir var til Eyja.
Heildarsala fyrirtækisins nam
sextíu og tveimur og hálfri milljón
króna. Greiðslur voru tvær millj-
ónir króna til Áburðarsölu ríkisins
til verðlækkunar á innfluttum
áburði 1961.
Aukinn kostnaður
Framleiðslukostnaður hækkaði
verulega á árinu, eða nálægt 4
milljónum króna auk 1,1 milljóna
króna í afskriftir, sem stafaði af
því, að áhrif gengisbreytingarinn
ar frá 1960 féllu nú með full-
um þunga á allt árið, auk launa-
hækkana á árinu og áhrifa gengis-
breytingarinnar i ágúst 1961.
Launagreiðslur fyrirtækisins
námu 10,8 milljónum króna á ár-
inu.
Rekstursafkoma fyrirtækisins
varð sæmileg. Nettóhagnaður nam
kr. 2.797.328.00, en af þeirri upp-
hæð var lagt í varasjóð kr. 1.692 -
000.00, og eftir að reiknað hefur
verið með 6% arði af hlutafé eða
kr. 600.000,00, er afgangur fluttur
til næsta árs á höfuðstól, 505 þús
kr.
Útflutningur
Þá skýrði stjórnarformaður frá
því, að vegna skorts á geymslu-
rúmi, hefði þurft að flytja út á s.l.
ári 4873 smálestir Kjarna. Fyrir
fyrirtækið' var það 5,4 milljón
krónum hagstæðara að framleiða
og flytja út ofangreint magn en
stöðva rekstur verksmiðjunnar í
2Vz mánuð vegna geymsluskorts.
Varðandi framkvæmdir á árinu
tók formaður fram: Til að bæta úr
geymsluskortinum var reist vöru-
skemma. Hús þetta, sem er um
2.800 fermetrar að flatarmáli og
15 metrar á hæð, var tekið í notk-
un í marz s.l., þó að frágangi þess
muni eigi lokið fyrr en í sumar.
Blöndun áburSar
Keypt voru tæki á árinu í eftir-
(Framh. á 15. síðu).
VILHJÁLMUR ÞÓR