Tíminn - 18.05.1962, Side 7
Ulgetsndi: FRAMSOKNARFLOKKURINN
FramKvæmdastjóri Tómas Arnason Ritst.iórar Pórarinn
Þórarinsson 'ábi Andrés Krist.jánsson. .lón Helgason og lndriói
O Þorsteinsson FuMtrúi ritst.iórnar Tómas Karlsson Auglýs
tnaastióri Egill Btarnason Ritst.iórnarskrifstofur i Edduhúsinu.
afg-eiflsJa auglýsinaar og aftrar skrifstotur • Bankastrætr 7
Rima.r 1831)0- 1830S Aualvstngasimr 19523 Afgreiðslusimr
12323 Askriftairg.i kt 55 a man innanl I lausasölu kr 3 eint
- Prentsmiðjan Edda h.t -
álefnaleg uppgjöf
Oft hafa íhaldsblöðin gefizt upp við málefnalegar um-
ræður en þó aldrei iafn fullkomlega og nú.
„Viðreisnin11 heyrist ekki lengur nefnd á nafn í íhalds-
blöðunum. Álíka mikil þögn er um stjórn Sjálfstæðis-
flokksins á Reykjavíkurbæ. Jafnvel teikningum af fyrir-
huguðum framkvæmdum, sem mjög hefur verið hampað
fyrir kosningar, hefur nú að mestu verið stungið undir
stól. Þannig er alveg gefizt upp við að ræða lands- og
bæjarmálin.
Slíkt myndi vissulega ekki gert, ef íhaldið teldi mál-
stað sinn góðan í þeim efnum.
í stað umræðna um lands- og bæjarmálin, eru íhalds-
blöðin nú full af æsiskrifum um gamlar og nýjar lyga-
sögur, sem brugðið er á loft til þess .að draga athyglina
frá „viðreisninni“ og stjórninni á Reykjavíkurbæ. Mest
ber þar á þeirri lygasögu, sem íhaldið hefur hampað við
flestar kosningar síðan 1937, að Framsóknarmenn
sæktust eftir að mynda þjóðfylkingu með kommúnistum!
Af nákvæmlega sama toga er sprottinn áróðurinn um
Framsóknarmenn sem „óvini Reykjavíkur“ og um „yfir-
gang“ SÍS.
Kjósendur eiga vissulega að geta dæmt auðveldlega
um málefnalega stöðu þess flokks, sem þannig gefst aiveg
upp við að ræða stefnu sína og störf, og býr til hreinar
Gróusögur til að draga athyglina frá þeim.
Tvöfaldur ótii
Æsiskrif íhaldsblaðanna, sem snúast fyrst og fremst
um Framsóknarflokkinn, stafa af tvöföldum ótta.
í fyrsta lagi óttast Sjálfstæðisflokkurinn eflingu Fram-
sóknarflokksins. M. a. vegna þess verði íhaldsmeirihlutan-
um tryggt aukið aðhald í borgarstjórn Reykjavikur.
í öðru .lagi óttast íhaldið, að kommúnistar missi svo
fylgi, að þeir verði ekki lengur stærsti andstöðuflokkur-
inn i borgarstjórninni og eftir það verði örðugra að nota
.þá sem Grýlu, þegar það á við, eða að nota þá til sam-
starfs, þegar það þykir henta betur.
Af þessum ástæðum stafa hin taumlausu æsiskrif
íhaldsblaðanna um Framsóknarflokkinn,
En þau munu engu breyta. Fleiri og fleiri gera sér
ljóst, að bæði íhaldið og kommúnistar þurfa að minnka.
Einmitt æsiskrif íhaldsblaðanna munu hjálpa til.að gera
mörgum þetta ljósara en áður.
Kosið um „viðreisn“
Þótt íhaldsblöðin þegi um „viðreisnina" o.g kjaraskerð-
inguna nú, munu þau vissulega ekki gera það, ef svo ótrú-
lega tækist til, að stjórnarflokkarnir fengju sæmileg úrslit
í kosningunum.
Slík úrslit yrðu talin sigur fyrir „viðreisnina“ og
stuðningur við kjaraskerðinguna. Eftir það myndu stjórn-
arflokkarnir verða enn ósvífnari í þessum efnum en áður.
Þess vegna mega ekki þeir. sem eru andvígir kjara-
skerðingarstefnunni, ljá stjórnarflokkunum lið í þessum
kosningum.
Þeir, sem eru andvígir kjarabótastefnunní, eiga fyrst
og fremst að efla aðalstjórnarandstöðuflokkinn. Fram-
sóknarflokkinn. Það myndi veita stjórnarflokkunum að-
hald, sem þeir tækju eftir og virtu.
| John Dansiruo:
menn í Laos hafa gert
landaríkjunum mjög erfitt fyrir
Seinustu afburðir geta greitt fyrir myndun óháSrar stjórnar þar.
KQMMUNISTUM og hlutlaus-
um hefur tekizt aff ná fótfestu
í nálega öllum norð-vestur
hluta Laos undanfarnar vik-
ur. Markalínurnar milli umráða
svæða þeirra og Vientianestjórn
arinnar hafa ekki einungis tek-
ið breytingum, heldur hafa
stjórnarandstæðingar víða sótt
fram um 150 kílómetra.
Þeir sækja fram með Me
kong-ánni, þ.e.a.s. meðfram
landamærum Thailands. Heita
má, að meginhluti landsins sé
á valdi stjórnarandstæðinga, að
undantekinni borg konungs, Lu
ang Prabang, og stjórnarborg-
inni Vientiane, auk nokkurra
svæða um mitt landið og í suð-
urhluta þess.
ÞVÍ VAR HALDIÐ fram í flest
um fréttaskeytum frá vestræn-
um heimildum, að stjórnarand-
stæðingar hefðu rofið vopna-
hléð. Sannleikurinn er þó sá,
að á þessu ári hafa báðir aðilar
hvað eftir ar.nað hegðað sér
öndvert ákvæðum vopnahlés-
samninganna. Um baráttuna í
norðurhluta landsins hinar síð-
ustu vikur er það að segja, að
það var tvímælalaust ríkisstjórn
in (hægri menn), sem þar braut
ákvæði vopnahléssamningsins
Hún safnaðj liði til árása við
Nam Tha, sem hún svo missti
í vikunni sem leið, en þar gerðu
stjórnarandstæðingar árás og
sóttu svo fram þaðan.
Við síðustu atburði hefur að-
=taða ríkisstjórnar Boun Oum
fursta — og valdamesta manns
hennar. Phumi Novasan hers-
höfðingja, — veikzt til muna.
Stjórnin hefur ekki aðeins glat-
að miklu a herstvrk sínum.
heldur einnig beðið mikinn
álitshnekki, bæði út á við og
inn á við,
ÞAÐ MÁ TELJAST táknrænt
um ástandið, að stjórninni þótti
óhjákvæmilegt að halda því
fram í vikunni sem leið, að
veruleaur kínverskur herstyrk-
ur hefði lekið þátt í hernaðar-
átökunum í norðurhluta lands-
ins. Þetta er nýr hlekkur í
langri ósannindakeðju borgara-
legu stjórnanna í Laos. Allt til
þessa heíur það verið sjálfsagt
viðbragð, að hrópa hátt um
mikla þátttöku herja frá Viet-
nam, þegar rikisstjárnin hefur
farið halloka. Jafnoft hafa
Bandaríkjamenn og aðrir orðið
að mótmæla þessum staðhæfing
um. Nú er aðstoðin sögð koma
frá Kína og enn verða Banda-
ríkjamenn að mótmæla því.
-Tilkynningar Laos-stjórnar-
innar eru orðnar frægar fyrir
öf.gar og það er vegna þess, að
aðstaða stjórnarinnar er veik.
Vegna þessa hefur hún lagt út
á hálli ís en ella i flestum efn-
um.
ÁRIÐ SEM LEIÐ var stjórnin
í mikilli hættu stödd. Stefna
Bandaríkjanna hafði breytzt og
þau höfðu tekið upp beina þáít
töku í aðgerðum gegn stjórnar-
andstæðingum. í kjölfar þessa
fylgdi mikil keppni # í aðstoð
milli Bandaríkjanna og Sovét-
ríkianna. Ýmsir erfiðleikar
urðu á vegi og hver „kreppan“
NOSAVAN
af annarri skall á áður en ný-
kjörna forsetanum, Kennedy,
tókst að losa stefnu Bandaríkj-
anna að nokkru leyti við bein
brot á hlutleysissamningnum
um Laos, sem hófust í Genf
1954. þó að stjórn Bandaríkj-
anna skrifaði ekki undir þá
samninga.
Kennedy lýsti yfir því, að
Bandaríkin mundu viðurkenna
hlutlaust Laos og koma yrði á
fót samsteypustjórn, með þátt-
töku Bou Oum, hlutlausa furst-
anum Suvanna Phuma — sem
átti að vera forsætisráðherra —
og Suvanna-Vong, leiðtoga
kommúnista.
En þetta reyndist auðveldara
í framsögn en framkvæmd. —
Bandaríkjamenn reyndu að
breyta stefnu sinni, en með þvi
veiktu þeir aðstöðu sína, og S
það lagið var undir eins gengið
hvaðanæva að.
Loks tókst að koma á vopna-
hléi með samkomulagi milli
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna. En þá komu í Ijós ósigr-
andi erfiðleikar á stjórnarmynd
un. Deilan stóð einkum um ráð-
herraembættin, þ.e.a.s. völdin í
landinu Bou Oum — eða rétt-
ara sagt Novasan — neitaði af-
dráttarlaust að láta af hendi
nokkra ráðherrastöðu, sem
þýddi valdaafsal hans.
NOVASAN hélt fast við þessa
stefnu sína og hún hefur hindr-
aJ myndun samsteypustjórnar
allt til þessa, eða í heilt ár, og
haldið borgarastyrjöldinni gang
andi. Það, sem gerði honum
þetta kleift, var m.a. sú hernað-
arlega hvíld, sem Sovétríkin og
Bandaríkin veittu honum með
samkomulagi sínu um vopnahlé.
Stefna Bandaríkjanna hefur
hefur verið áberandi hvarflandi
þetta tímabil og borið vott um
mikinn taugaóstvrk út af hugs-
anlegri framvindu mála annars
staðar í Suð-austur-Asíu Að því
er varðar forseta Bandaríkj-
anna og nánustu ráðgjafa hans,
þá virðast þeir hafa viljað sjá,
hverju fram yncfi og vonast í
lengstu lög eftir. að dvínandi á
hugi drægi úr andstæðingum
stjórnarinnar og héldi þeim í
skefjum. Valdamenn í Wash-
ington bundu miklar vonir við
víðtæka samninga við stjórn
Sovétríkjanna.
Kennedy forseti varð fyrir
sömu reynslu og fyrirrennari
hans í viðskiptunum við menn
eins og Svngman Rhee í Suður-
Kóreu, Chang Kai-Shek á For-
mósu og fleiri. Novasan hafði
verið veittur svo mikill styrk-
ur og uppörvanir, að Banda-
ríkjamönnum reyndíst mjög erf
itt að knýja hann til breyttrar
stefnu. Hann sat við sinn keip,
' vildi ekki afsala sér völdunum
og hélt áfram að bióða Banda-
víkjamönnum byrginn.
HERNAÐARYFIRVÖLD í
Bandaríkjunum höfðu mikla
meðaumkun með Novasan og
ríkisstjórnin var lengi vel slík
í aðgerðum sínum, svo hógvær-
lega sé að orði komizt. Novasan
neytti aðstöðu sinnar, og það
var ekki fvrr en í febrúar i vet
ur, að stjórn Bandaríkjanna
herti alvarlega á með því að
stöðva efnahagsaðstoðina við •
Laos.
Þetta hefur ekki enn komið
að notum. Stjórnin hafði fullar
hendur fjár til að bvria með.
og hún hefur ekki hikað við að
f”'inda af stað nýrri verðbóleu-
skriðu. Auk þessa hefur Bou
Oum heimsótt Thailand. Suður-
Kóreu. Suður-Vietnam og
Burma. til þess að afla stefnu
sinni aukins stuðnings. Banda-
ríkjamenn hafa því — allt
fram að þessu — orðið að eiga
viðræður á laun við Ieiðtoga
uppreisnarr.-.anna til og frá um
Laos. til bess að l“?sia áherzlu
á, að valdhöfunum í Washing-
ton væri alvara með hlutleysi
Laos og kröfuna um myndun
sam ct evpust jórnar.
Meðan á þessu stóð hóf Nova-
san liðssamdráttinn í Nam Tha
— og því er komið. sem komið
e;-.
ÞETTA ER uggvænlegt ástand,
bæði fyrir stjórnina í Vientiane
og stjórn Bandaríkjanna, sem
hafði þó fengið dýrmætt tóm
til athugana árið sem leið. Nú
verður hún að áfrýja til stjórn-
ar Sovétríkjanna. og krefjast
þess. að ún hafi hemil á stjórn
arandstæðingunum í Laos. Sam-
tímis verður að þvinga Novasan
í snatri til samninga, áður en
Ieikurinn er alveg tapaður. ef
það er þá ekki þegar orðið.
Stefna Bandaríkjanna snýst
um það. að þagga niður hrópin
um hættuna í Laos. um leið og
undirbúnar eru hersvningar um
hverfis næsta nágrenni. sem er
háð áhrifum frá framvindu
mála í Laos. þ.e. Thaiiandi
Sarit Thanarit, marskálkur
Thailands og forsætisráðþerra.
hefur lengi stutt Vientiane-
stjórnina bæði leynt og Ijóst.
Hann er frændi Novasan og veit
vel, hvað afleiðingar það gæti
haft fyrir hans eigin stjórri ef
Vientiane-stjórnin félli og óvin
urinn héldi óhindraðiir ;ifrom
meðfram Mekong-ámii. Sami
ótti veldur því, að Bavrdaríkja-
men. ;rípa til her?vn>rga til
styrklar stjórninrii í Tn.iilr.ndi.
Framhald á uls 15
T f MI N N, föstudaginn 18. maí 1962
7