Tíminn - 08.06.1962, Qupperneq 1

Tíminn - 08.06.1962, Qupperneq 1
ftlunfö aS ti.lkynna vanskil á blaSinu í síma 12323 fyrir ki. 6. Afgreiðsla, auglýs- ingar og gjaldkeri Tímans er í Bankastræti T Rýkur úr nýjum sprungum Akureyri, 7. júní. Um síðustu helgi var farið inn að Öskju í fyrsta sinn í vor og kom þá í Ijós að talsverð- ar hreyfingar hafa orðið þar, síðan síðast var vitað í haust. Tvær nýjar sprungur hafa myndast við Víti og rýkur úr þeim. Svo virðist einnig, sem nýtt hraun hafi runnið við jað- ar hraunsins, sem rann í fyrra. Þag voru þeir félagar Angan- týr Hjálmarsson og Valgarður Snæbjörnsson, sem fóru um sfð- ustu helgi austur í Öskju. Veg- urinn var sæmilega góður. Þeir töldu, að hraunið hefði ekki runnið neitt að ráði síðan í haust, en það vakti athygli þeirra, að gufumökkur mikill var austan í Dyngjufjöllunum við hraunjaðar- inn og virtist sem hraun hafi Framhald á 15. síðu. riEILDARVELTA SIS VARÐ 276 MILLJ. ÁRID 1961 Sextugasti aðalfundur Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga var settur í gærmorgun að Bifröst í Borgarfirði og voru mætt ir þar rúmiega hundraö fulltrúar og gestir. Ár- feröi var gott til lands og sjávar á siáastliðnu ári, enda sýna reikningar SÍS mjög hagstæöa afkomu. Samanlögð heildarvelta allra I tilefni af sextíu ára afmæli Sambands ísl. samvinnufélaga hafði verið gefin út mjög myndar- leg ársskýrsla fyrir árið 196.. Er hún prýdd fjölda mynda og lit- prentaðra línurita. Er þar að finna yfirlit yfir rekstur sambandsius og einstakra deilda þess, ársreikninga oð ýmsar aðrar upplýsingar. Þá hefur verið gefið út sérstakt afmæl ishefti af Samvinnunni, sem helg- að er sextíu ára afmæli Sambands ins. Bæði ársskýrslunni og afinælis hefti Samvinnunnar, var útbýtt til fundarmanna, áður en íundur hófst. Formaður Sambandsins, Jakob Frímannsson, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Ávarp aði hann sérstaklega heiðursgesti fundarins, Sigurð Kristinsson, fy.rr verandi forstjóra og frú, Jón Árna son, fyrrv. bankastjóra og frú, og Björn Kristjánsson, fyrrv. kaupíé- lagsstjóra, en þeim hafði verið boð ið að sitja fundinn. Fleiri forystu- mönnum samvinnuhreyfingarinnar hafði einnig verið boðið, en þeir gátu ekki mætt. Þá minntist for- maður Bjarna Guðmundssonar, fym'. kaupfélagsstjóra í Höfn í Hornafirði, sem nú er nýlátinn. Fundarstjórar voru kosnir: Jör- undur Brynjólfsson og Baldur Baldvinsson. Fundarritarar: Ilall- Narfi læddist úr grímur Th. Björnsson og Angantýr Jóhannsson. Hagsfæöur reksiur Formaður Sambandsstjórnar flutti skýrslu stjómarinnar, og forstjórinn, Erlendur Einarsson, gerði ýtarlega grein fyrir rekstri Sambandsins árig 1961. Var í ræð um þeirra að finna margs konar upplýsingar um rekstur og starf- Framhald á 15. síðu. deilda Sambandsins varð á ár- inu 1961 rúmar 1276 milljónir króna eða rúmlega 236 millj- ónum meiri en árið áður, sem er 2,7% aukning. Tekjuafgang ur SÍS varð rúmar átta millj- ónir, mun meiri en nokkru sinni áður. Rétt til fundarsetu á aðalfundin- um áttu 102 fulltrúar frá 57 kaup- félögum í urnboði 31.548 félags- manna. Á fundinum mættu einnig stjórn, forstjóri, framkvæmdastjór ar og endurskoðendur Sambands- ins, auk nokkurra starfsmanna og gesta. Klukkan 11 á þriðjudags- kvöldið læddist togarinn Narfi úr Reykjavíkurhöfn og tók stefnu til Akureyrar til þess að lesta þar 5000 sekkjum af gullauga, sem allt átti að fara í hermenn hennar hátignar á Bretlandseyjum. Við lá, að þessi lestun yrði hindruð af verkalýðsfélögunum, en kom- ið var í veg fyrir það á síðustu stundu, svo að lestunin gekk öll slysalaust í gær. Jón Sigurðsson hjá sjómanna- félaginu sagði blaðinu í gær- kveldi, að Guðmundur Jörunds- son, eigandi Narfa, hefði farið þess á leit, að Sjómannafélag Reykjavikur veitti heimild til þess, að togarinn flytti kartöflur til Bretlands og kæmi aftur með síldartunnur frá Noregi. Þessari beiðni var hafnað, en Narfi sigldi samt úr höfn á farmannasamn- ingum. enda mun Vinnuveitenda sam^and fslands hafa t.alið það heimilt. Samkvæmt beiðni sjómannafé- lagsins sendi Alþýðusamband ís- lands í fyrradag skeyti til Skrif- stofu verkalýðsfélaganna á Akur- eyri og bað um. að lestuniri yrði hindruð. Við nánari athugun taldi lögfræðingur sjómannafé- lagsins, að ekki væri unnt að stöðva skipið, án þess ag félagið ætti skaðabótakröfu yfir höfði sér frá hendi útgerðarmannsins. Var því stöðvunarbeiðnin dregin til baka meg öðru skeyti í dag. í gær sendu sjómannasamtökin síðan Félagi íslenzkra botnvörpu- skipaeigenda tilkynningu til við- bótar áður sendri verkfallsboðun dagsettri 26. febrúar 1962. Er lýst yfir vinnustöðvun á togurunum frá og með 15. júni næst komandi vig hvers konar vöru- og mann- flutninga, hvort heldur er milli hafna innanlands eða til annarra landa; síldar- eða vöiuflutninga, síld-veiða, fiskveiða í net, nót, á línu eða handfæri, eða fiskveiða á hvaða annan hátt sem er, síldar- eða fiskleitar, eða hvaða annarrar starfrækslu. sem er. í bréfinu segir, að verkfallsboð- unin sé byggð á því, að farið sé að nota skipin til annarrar starf- semi en áður hefur tíðkazt og síð- ustu samningar taka til, en engir samningar eru i gildi milli sjó- mannafélaganna og FÍB um þessa starfsemi skipanna eða við aðra atvinnurekendur, hvað við kemur þessari gerð skipa. ALgert siglingabann er því á togurunum frá og meg 15. þ. m.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.