Tíminn - 08.06.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 08.06.1962, Blaðsíða 9
 Ólafur Túbals opnar synmgu Ólafur Túbals, listmálari, opn ar málverkasýningu í Lista- mannaskálanum klukkan 8,30 í kvöld. Þetta er stór sýning, full- ur skáli mynda, flestar nýlegar. Margar þeirra eru auðvitað aust an úr Fijótshlíð eða frá öðrum stöðum á Suðurlandi, en þó eru nokkrar vestan af Snæfellsnesi og frá ýmsum öðrum stöðum. Ólafur Túbals virðist hafa verið á ferðalagi. Ólafur er löngu landskunnur málari og hefur málað ágætar landslagsmyndir. Mun mörgum þykja fengur í því, að liann skuli nú opna nýja og stóra sýn ingu, sem að ýmsu Ieyti hlýtur að vera nýstárleg, þar sem hann sækir nú lengra til fanga en oft áður. Hringskonur hafa afhent 5 milljónir til barnaspítalans Kvenfélagið Hringurinn hélt aðalfund sinn þann 3. maí s. I. og fóru þar fram venjuleg a3- Hugmyndakeppni Patreksfirði, 1. júní: Þann 14. f.m. lauk í Reykjavík hugmyndasamkeppni um gerð upp dráttar að félagsheimili á Patreks- firði, sem efnt var til í samráði við Arkitektafélag fslands og sam- kvæmt keppnisreglum þess félags. Samkeppnin var lokuð, og í henni skyldu taka þátt fjórir tilgreindir arkitektar. Markmið samkeppninnar var að fá fram hagkvæma lausn á bygg- ingu félags- og gistiheimilis á Pat- reksfirði. Þrjár úrlausnir bárust, er dæmdar voru af sérstakri fimm manna dómnefnd, er til þess var skipuð. í henni áttu sæti tveir sér- fræðingar frá Arkitektafélagi ís- lands og þrír menn, skipaðir af félagsheimilisnefnd Patreksfjarð- ar, þar á meðal Þorsteinn Einars- son, íþróttafulltrúi ríkisins. Dómnefndin varð sammála um aö íæma tillögu merkta 17117 bezta til grundvallar frekari úr- vinnslu efnisins vegna mjög vel leystrar grunnmyndar. Höfundur þeirrar tillögu reyndist vera Sigur jón Sveinsson arkitekt en höfund Framhald á 15. síðu. alfundarstörf. Stjórnarkosning ar fóru ekki fram að þessu sinni, þar sem þær eru annað hvort ár samkvæmt lögum fé- lagsins. Félagið varð fyrir því mikla áfalli, að formaður þess frú Soffía Haraldsdóttir, sem verið hafði formaður síðan 1957, andaðist þann 19. maí síðastl., og verður sæti hennar vandfyllt. Stjórnina skipa nú frú Sigþrúð- ur Guðjónsdóttir, sem var varafor maður en hefur nú tekið við störf um formanns, frú Guðrún Hvann- berg, frú María Bernhöft, frú Laura Biering, sem er gjaldkeri, og frú Dagmar Þorláksdóttir, sem tekur nú sæti í stjórninni sem fyrsti varamaður. í varastjórn eru þessar konur: frú Hólmfríður Andrésdóttir, frú Herdís Ásgeirs- dóttir og frú Ragnheiður Einars- dóttir. í fjáröflunarnefnd eru: frú Helga Björnsdóttir, formaður, frú Ólöf Möller, frú Björg Thor- oddsen, frú Anna Hjartardóttir, frú Sigurlaug Þorsteinsdóttir, frú Ingibjörg Kaldal og frú Sigríður Zoega. Alls námu tekjur Barnaspítala- sjóðs á árinu kr. 781.297,20. I jan- úar s.l. voru afhentar kr. 250.000, 00 til byggingar Barnaspítalans, og nemur þá framlag sjóðsins til Saklausi svallarinn Gamanleikur eftir Arnold og Bach Leikstjóri Lárus Pálsson Hið dugmikla leikfélag Kópa vogs heldur áfram að sýna betri gamanleiki en sýndir eru annars staðar nú um skeið. Að þessu sinni fer leikfélagið af stað með „Saklausa svallar- ann“ eftir Amold og Bach, sem eru hugkvæmir og snjallir gam anleikjah öfun d ar. „Saklausi svallarinn" er hvorki frumlegur né efnismikill en bráðskemmtilegur og kem- ur öllum í gott skap. Þungamiðja verksins er per- sónan Max, dyggðablóð og al- gjörlega verðlaus á hjúskapar- markaðinum. Og ráðið, sem höf undar nota til að koma Max í verð, er hið sama og allir skáid- sagna- og leikritahöfundar virð- ast grípa til; — Ijúga á hann kvennafari. — Um leið og dauð- yflið Max er álitið í tygjum við kvenmann, stígur hann í verði og verður eftirsóttur. Margþvældari hugmynd er ekki til í bókmenntum en reynslan sýnir, að menn njóta þessarar endurtekningar eins og börn ævintýra. Leikstjórn Lárusar Pálsson- ar var með ágætum, enda Lár- us með mestu kunnáttumönnum okkar á sínu sviði. Hér koma fram nokkrir nýliðar og sýnir það hina miklu grósku félags- ins. Af þessum nýliðum vakti Rósa Karlsdóttir mesta athygli og verður ekki annað séð en hér sé gott leikkonuefni á ferð. Magnús B. Kristinsson leikur aðalhlutverkið, Seibold verk- smiðjueiganda, af mikilli kunn- áttu og öryggi. Magnús er einn af beztu leikurum félagsins og vaxandi í list sinni. Hann er eld fjörugur og lætur kímnina njóta sín til fulls. Sigurbjörg Magnúsdóttir leik ur Gertz, nútímakonuna, dóttur þeirar Seiboldshjónanna með miklym glæsibrag og var mjög örugg og eðlileg á sviðinu. Bæði hún og Rósa Karlsdóttir eru bráðefn.iegir byrjendur, enda bendir margt til þess, að hæfi- leikar yngstu kynslóðarinnar í leiklist séu mun meiri en hér hefur áður þekkzt. Arnhildur Jónsdóttir lék frúna, allerfitt hlutverk og fell ur nokkuð í skugga hinna, en Arnhildur leikur það á látlaus- an og eðlilegau hátt. Stjarna kvöldsins var ungur maður, sem ég hef ekki séð leika áður, Björn Magnússon. Björn skapar hér ógleymanlega persónu og er meinfyndinn í öllu látbragði, einkum meðan hann fékk að vera „durgurinn Max Stieglits". Hins vegar ræður Bjöm ekki fullkomlega við að þróa persónuna, enda er það ekki á færi annarra en færustu leikara. En þrátt fyrir það var leikur hans í heild stórskemmti legur og á leikstjórinn vafa- laúst sinn þátt í því með hinu kostulega gervi, sem hann velur skrifstofumanninum. Pétur Sveinsson er orðinn reyndur leikari, en leikur hans heppnaðist ekki sem bezt að þessu sinni. — Kurteisin allt of íslenzk til að verka sem kurt eisi!. — Aðrir leikarar, sem fóru með minni hlutverk, voru: Ámi Kárason (Riemann), Helga Harðardóttir, Jóhanna Axels- dóttir, SigríSur Einarsdóttir og Þorsteinn Sigurðsson. — í heild var leikritið hið ánægjulegasta og á örugglega eftir að koma mörgum í gott skap. Gunnar Dal. hans tæpum 5 milljónum króna. Eignir Bamaspítalasjóðsins eru ávaxtaðar í verðbréfum og í spari- sjóðsbókum. Reikningar sjóðsins og félagsins eru endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda, og verða þeir birtir í B-deild Stjórnartíð-j indanna. Nú nýlega bárust sjóðn-l síðan, og vill félagið færa gefend- unum, svo og öllum þeim, sem styrkt hafa Barnaspítalasjóðinn á einn eða annan hátt, sínar inni- iegustu þakkir. Félagið vonar að fá að njóta áframhaldandi velvild-1 ar og skilnings almennings á þessu j nauðsynjamáli er félagið berst fyr! um kr. 10,000,00 til minningar um >r> Því brátt fer að koma að því | litla stúlku sem lézt fyrir skömmu að takmarkinu verði náð. Minningarspjöld og heillaóska- kort Barnaspítalasjóðs Hringsins fást á eftirtöldum stöðum: Hann- yrðaverzl. Refill, Aðalstræti 12, Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61, Verzl. Spegillinn, Laugavegi 48, Holtsapóteki, Langholtsvegi 84, Vesturbæjarapóteki og hjá yfir- hjúkrunarkonu Landspítalans frk. Sigríði Bachmann. TÍMINN, föstudaginn 8. júní 1962 Q

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.