Tíminn - 08.06.1962, Page 12
RITSTJORi HALLUR SIMONARSON
LeikurValsogFram
á Melavelli í kvöld
íslandsmótið í 1. deild held-
ur áfram í kvöld og keppa þá
Valur og Fram. Laugardalsvöll
urinn er enn ekki í nothæfu
ástandi, og stöðugar rigningar
a8 undanförnu hafa ekki bætt
úr skák. Leikurinn í kvöld
verður því að fara fram á Mela
vellinum, og er það þriðji leik-
ur íslandsmótsins, sem þar
fer fram.
Leikur þessara félaga á Reykja-
víkurmótinu varð s'ögulegur eins
og menn muna, en annar línuvörð'
urinn hætti þá í hálfleik, og leikn-
um var hætt, þegar 15 mínútur
voru af síðax'i hálfleik. Fram að
þeim tíma hafði leikurinn verið
hinn bezti, sem leikinn hefur ver-
ið hér í vor.
Við skulum vona, að nú takist
betur til en síðast og unnt verði
að ljúka leiknum á réttum tíma,
og að liðin sýni þann sama góða
leik og gerði leik þeirra í Reykja-
víkurmótinu svo skemmtilegan.
Bæði liðin hafa til mikils að vinna.
Fram er í efsta sæti á mótinu og
hefur aðeins tapað einu stigi, en
ef Valsmenn ætla að gera sér ein-
hverjar vonir um íslandsbikarinn
í ár, mega þeir varla tapa leiknum.
Valur hefur þegar tapað þremur
stigum.
Ekkert er enn að frétta af leik
félaganna úr Reykjavíkurmótinu,
og ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um hvort liðin leika að nýju —
eða lokatalan í leiknum — 4—2
fyrir Fram — verði látin standa
sem úrslit. Engin kæra kom fram
eftir leikinn — en dómarinn gaf
hins vegar skýrslu um leikinn.
ekki með
Á mánudaginn — annan í hvíta
sunnu — fer fram landsleikur í
knattspyrnu milli Danmerkur og
Noregs. Leikið verður í Kaup-
mannahöfn. Það vekur talsverða at
hygli í sambandi við norska liðið,
að Thorbjörn Svenssen, sem leik-
'ið hefur um 100 landsleiki, er nú
ekki valinn í liðig en Finn Thor-
sen — hinn kunni skautahlaupari
— er valinn í hans stað.
Norska liðið er þannig skipað:
Sverre Anders'en, Viking, Arne
Bakker, Asker, Ragnar Larsen,
Sandaker, Roar Johansen, Fredrik
stad, Finn Thorsen, Hamar,
Tryggve Andersen, Brann, Björn
Borgeu, Fredrikstad, Arne Peder
sen, Fredrikstad, Per Ktistofersen,
Fredrikstad, Rolf Birger Peder-
sen, Brann og Roald Jensen, Brann
— eða nær allt góðkunningjar ís-
lenkra knattspyrnumanna.
Þrfr nýliðar eru í danska liðinu,
sem er þannig skipað. Finn Ster-
ebo, OB, Kaj Johansen, OB, Poul
Jensen, Vejle, Bent Hansen, B1903,
John Madsen, Esbjerg, Jörgen 01-
sen, AGF, Karl Bertelsen, Es-
bjerg, Helge Jörgensen, Odense
KFUM, Ole Madsen, HIK, Henn-
ing Enoksen, AGF, og Eivind Clau-
sen, KB. — Þeir Kaj Johansen,
Helge Jörgensen og Eivind Clau-
sen hafa ekki leikið í danska lands-
liðinu áður. Hinn gráhærði Jörgen
Olesen, sem er 36 ára gamall, er
nú valinn aftur í liðið — eftir fjar-
veru í 31 leik.
Bomba sóttur
HINN ÞELDOKKi braziliski knatt-
spyrnumaSur Pele, sem vaktl heims-
athygli á HM í SvíþjóS 1958, þá að-
eins 18 ára, meiddist í leiknum við
Tékka í keppninni í Chile — og er
relknað með, að hann geti ekki frek
ar tekið þátt í keppnlnni. Þetta er
gífurlegt áfall fyrir brazilísku heims
meistarana, því að Pele hafði sýnt
beztan leik þeirra í Chile. Myndin
hér að ofan er tekin af Pele rétt
áður en keppnin hófst og var hann
þá heldu • betur með bros á vör.
Hætt er vlð, að annað sé uppi á fen-
ingnum nú. — Ljósmynd: Politiken.
Prag 6/6 NTB.
Tékkóslóvakía, sem mjög hefur
komið á óvart í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu í Chile,
sendi í dag eftir þremur nýjum
leikmönnum að heiman til þess að
styrkja lið sitt með. Tékkar, sem
sjálfir töldu, að þeir ættu ekki
nokkra möguleika til að komast í
úrslitakeppnina, sendu aðeins 18
leikmenn til Chile af þeim 22, sem
tilkynntir voru. Hinir þrír leik-
menn, sem bætast við, flugu frá
Prag í dag, og eru markvörðurinn
Schmouckern, bakvörðurinn
Bxíhiba og framvörðurinn Kos. Ei
til vill kemur Bomba með ein-
hverja „bombu“ í tékkneska liðið.
Þær eru oft einkennilegar íþróttamyndirnar. Þessi er frá Munchen og sýnir Klaus Lehnerts í stangarstökki —
og með þessum einkennilega stíi sínum hefur hann stokkið yfir 4 50 metra. Ljósmynd: Politiken.
Reykvíkingar sigra
Akureyringa í skák
20 manna sveit frá Taflfélagi Ak
ureyrar tefldi á sunnudaginn, 3.
júní, við sveit úr Taflfélagi Reykja
víkur. Leíkar fóru þannig eftlr
VÍÐAVANGSHLAUP
í MOSFELLSSVEIT
S.l. sunnudag fór fram víðavangs
hlaup drengja hjá U.M.F. Aftur-
eldingu í Mosfellssveit. Hlaupið
fór fram á Varmárvelli og ná-
grenni. Þrír aldursflokkar tóku
þátt í hlaupinu, sem var 800, 1200
og 1500 metrar. Sigurvegarar urðu
þessir í yngsta aldursfl.: Bjarki
Bjarnason á 3:52,9 mín. í öðrum
aldursflokki Pétur H. Pétursson á
5:0,8 mín, annar varð Magnús Guð
mundsson og þriðji Hilmir Bjarna
son. í þriðja aldursflokki vann
Kristján Hermannsson á 6:38,6
mín. og annar varð Óli K. Ólafss.
á 6:42,0 mín.
tvísýna og fjöruga keppni, að sveit
Taflfélags Reykjavíkur vann með
IOV2 vinning gegn 9V2. Um kvöld-
ið sátu sveitirnar matan’eizlu hjá
Reykjavík:
17. — Egill Egilsson 0
18 — Pálmi Eyþórsson 0
19. — Þorsteir.n Magnússon V2
20. — Snorri Rögnvaldsson 0
Reykjavík IOV2 stig.
bæjarstjórn Akureyrar á Hótcl
Varðborg.
Þetta var mjög ánægjuleg ferð
og urðu úrslit þessi:
Akureyri:
1. borð Björn Þorsteinsson V2 1. borð Júlíus Bogason V2
2. — Jónas Þorvaldsson 1 2. — Jóhann Snorrason 0
3. — Jón Kristinsson 1 3. — Halldór Jónsson 0
4. — Jón Hálfdánarson 1 4. — Ju.. Ingimarsson 0
5. — Bragi Kristjánsson 1 5. — Haraldur Ólafsson 0
6. — Jóhann Sigurjónsson 1 6. — Anton Sölvason 0
7. — Hilmar Viggósson 0 7. — Margeir Steingrímsson 1
8. — Þorsteinn Skúlason 0 8. — Ólafur Ki'istjánsson 1
9. — Sturla Pétursson 1 9. Albert Sigurðsson 0
10. — Bragi Björnsson l/2 10. H.jörleifur Halldórsson V2
11. — Björn V. Þórðarson 1 11. —.. Ingimar Fi-iðfinnsson 0
12. — Harrý Georgsson V2 12. — Jón Björgvinsson 1/2
13. — Jón Þóroddsson >/2 13. — Jón Þór V2
14. — Ólafur Björnsson 0 14. — Randver Karlsson 1
15. — Jón P. Emils Vi 15. — Ármann Búason V2
16. — Geirlaugur Magnússon V2 16. — Friðgeir Sigurjónsson V2
17. — Sigurður Halldórsson 1
18. — Óli Gunnarsson 1
19. — — ríus Tryggvason V2
20. — Jón E. Jónsson 1
Akureyri 9V2 stig.
12
TIMIN N, föstudaginn 8. júní 1963