Tíminn - 08.06.1962, Qupperneq 14
Fyrri hlu ti: Undanhald, eftír
Arthur Bryant. Heimildir eru
STRIÐSDAGBÆKUR
ALANBROOKE
nauðsynlegt var aS yrðu algert
leyndarmál. Það var innrásará-
form Montgomerys, ásamt ákveðn
um innrásardegi og tilmæli hers
höfðingjans um það, að þau yrðu
ekki sýnd neinum. Brooke varð
ag taka ákvörðun um það, hvort
hann ætti að skýra forsætisráð-
herranum frá þessu. —
„Eg varð að taka skjóta ákvörð-
un um það“, skrifaði hann, —
„hvort ég ætti ag halda þessari
vitneskju algerlega leyndri, eða
hindra það, að Winston sendi þeim
Alex og Monty símskeyti og trufl-
aði þá og áform þeirra með ákafa
sínum og óþolinmæði“. Loks 16.
október, þegar Brooke hafði snætt
hádegisverð með Churchill, kunn-
gerði hann honum leyndarmálið.
Aðfaranótt hins 23. október bár-
ust loks fróttir frá Egyptalandi:
Það var örlagaríkur dagur því að
þá voru tvö flugvélamóðurskip lösk
uð, er þau reyndu að flytja liðs-
auka til Guadalcanal, og þangað
til hægt yrði að senda nýja send-
ingu frá skipasmíðastöðvunum,
urðu Bandaríkjamenn á Kyrrahafi
að komast af án eins einasta móð-
urskips. Allan daginn hélt brezki
flugherinn uppi látlausum
sprengjuárásum á þýzk og ítölsk
virki og flugvelli, þangað til fullt
tunglið kom upp og varpaði bleikri
birtu yfir eyðimörkina, að þúsund-
ir loftvarnarbyssa og fallbyssa hófu
skothríð á hinni 7000-stika víglínu,
og fótgönguliðið og grafararnir réð
ust fram.
„Eftir miðdegisverð þetta
kvöld“, skrifaði Brooke í dagbók
sína, — „var hringt til mín frá
hermálaráðuneytinu og mér til-
kynnt, að árásaraðgerðirnar i Mið-
Austurlöndum væru byrjaðar. Við
eigum mikla áhyggjutíma og óvissu
í vændum. Þessi nýja sókn getur
orðið árangursrík, en hún getur
líka runnið út í sandinn. Ef hún
mistekst, veit ég ekki, hvernig ég
fer að afbera það. Eg hef bundið
svo miklar vonir við hana . . . “.
„Eg man eftir þessu kvöldi",
skrifaði hann síðar, —• „eins og
það hefði verið í gær, og ég get
greinilega séð sjálfan mig í anda,
þar sem ég sat við skrifborðið í
Westminster Gardens-íbúðinni
minni, lauk vijð að skrifa þessar
línur og sat svo hreyfingarlaus og
starði út í bláinn . . .
Nokkrir næstu dagar voru erfið-
ir. „Að fylgjast með orrustu úr
fjarlægð“, skrifaði Brooke, — „er
miklu verra en að vera staddur í
henni miðri og berjast þar fyrir
lífi sínu .... Frá því að við kom-
um heim úr Cairoförinni, hef ég
þjáðst af óvissunni um árangur
þessarar árásar . . . “.
í þrjá daga gekk allt samkvæmt
áætlun Montgomerys: árásin í
norðri, þar sem óvinurinn var
sterkastur og bjóst sízt við henni;
skörðin, sem fótgönguliðið og graf
ararnir rufu í varnarlínur hans.
En þetta tók allt langan tíma og
lengri en vænzt hafði verið, svo
að eftir erfiða og áhættusama viku
virtist árásarherinn litlu nær tak-
marki sínu en í byrjun. Og orðróm
ur tók að berast til Whitehall og
Downing Street 10, — að Montgom
ery væri farinn að hörfa með her-
deildir sínar ....
„í morgun, áður en ég var kom-
inn á fætur“, skrifaði Brooke í
dagbók sína þann 29. október, —
„var mér sýnt símskeyti, sem for-
H3
sætisráðherrann hafði í hyggju að
senda Alexandir. Ekki sérlega
skemmtilegt skeyti!“ Seinna var
Brooke kallaður á fund forsætis-
ráðherrans, sem tók á móti hon-
um með eintómum ásökunum.
,,Hvað“, spurði hann, — „var
þessi Monty minn nú að gera?
(Monty var alltaf Monty minn,
þegar eitthvað var út á hann að
setja). f síðastliðna þrjá daga hefði
hann ekkert aðhafzt og nú væri
hann að hörfa með herdeildir frá
vígstöðvunum. Hvers vegna hafði
hann sagt okkur, að hann myndi
Ijúka árásinni á sjö dögum, ef
hann ætlaði nú þegar að flýja af
hólmi? Höfðum við ekki einn ein-
asta hershöfðingja, sem gat sigr-
að í einni orrustu? o.s.frv. o.s.frv.
Þegar hann þagnaði til að ná and-
anum, spurði ég, hvað hefði valdið
því, að hann hefði allt í einu kom
izt að þessari niðurstöðu. Hann
stökk upp á nef sér og spurði,
hvort hann hefði ekki leyfi til að
ráðgast við hvern þann, sem hann
kærði sig um. Eg sagði, að vissu-
lega hefði hann það, svo fram'ar-
lega sem hann léti ekki þá, er lítið
kynnu skil á hernaðarlegum mál-
um, koma sér úr jafnvægi. Hann
lýsti því loks yfir, að hann væri
óánægður yfir gangi styrjaldar-
innar og kvaðst ætla að kalla sam-
an herforingjaráðsfund klukkan
12,30 e.m. . . . “.
A þessum fundi barðist Brooke
gegn þeirri skoðun yfirboðara
sinna, að þá Montgomery og Alex-
ander skorti raunverulega hinn
sanna baráttuhug og að þeir hefðu
látið sigurmöguleikana ganga sér
úr greipum. Hann benti forsætis-
ráðherranum og öðrúm ráðherrum,
sem héldu því fram, að yfirmaður
áttunda hersins hefði ekkert gert
síðustu þrjá dagana, á það, að
hann hefði hrundið hverri gagn-
árásinni eftir aðra, þar sem Romm
el hefði beðið mikið tjón. —
„Þannig hélt ég áfram og lýsti því
loks yfir, að ég væri ánægður með
frammistöðu áttunda hersins og
stjórnara hans, Montgomery, og,
að mér virtist allt benda til þess,
að hann væri að undirbúa nýja
sókn“.
Þegar Brooke hafði lokið máli
sínu, spurði forsætisráðherrann
Smuts álits. „Þér vitið, forsætisráð
herra“, svaraði sá síðarnefndi, —
„að ég hef ekki haft neitt tækifæri
til að ræða þetta mál við Brooke,
en ég er samþykkur öllu því, sem
hann hefur sagt hér á þessum
fundi“. Þessi orð af munni hins
mikla stjórnvitrings, höfðu sömu
áhrif og olía á hafrót. . . . Sím-
skeyti Winstons var ekki sent, og
þeir Alexander og Montgomery
urðu ekki fyrir neinu ónæði frá
hans hálfu á þeirri tvísýnu stundu,
þegar afskipti hans hefðu getað
valdið algerri ringulreið ....
Samt var Brooke engan veginn
rótt. „Persónulega . . . hafði ég
við mínar efasemdir að stríða og
hræðslu við rás viðburðanna, öllu
slíku varð ég að halda algerlega
leyndu. Þegar ég kom aftur til
skrifstofu minnar, æddi ég fram og
aftur um gólfið, þjáður af örvænt-
ingarfullri einmanakennd. Á fund
inum hafði ég reynt að virðast ör-
uggur og áhyggjulaus. Það hafði
haft sín áhrif. Eg hafði sagt þeim
það, sem ég hélt, að Monty hlyti
að vera að gera, og ég þekkti hann
vel, en sá möguleiki var fyrir
hendi, að ég hefði rangt fyrir mér
og Monty væri sigraður . . . . Til
allrar hamingju var ég þá ekki bú-
inn að fá bréf frá Monty, sem barst
mér fáum dögum síðar, þar sem
hann sagði mér, hvernig tilfinn-
ingar sínar hefðu verið á þessum
tímamótum stríðsins".
Þá um kvöldið, klukkan 11,30 e.
m., var Brooke aftur kallaður á
fund forsætisráðherrans.
„Hann var sérstaklega þægileg-
ur í viðmóti, þegar tal okkar barst
að Mið-Austurlöndum, sagði hann.
„Vilduð þér nú ekki óska þess, að
þér hefðuð þegið herstjórnarstarf-
ið, sem ég bauð yður og væruð nú
þar austur frá?“ Eg sagði jú og
67
Það er ekki hægt ag gleyma. Með
an lífið varir, fylgir því það, sem
ristir dýpstu sporin. En tíminn
græðir, örin ein standa eftir, þau
er ekki hægt að má út. Kannski
má hylja þau fyrir öðrum, en
ekki sjálfum sér. En góða. Við
lærum af reynslunni. Það nám
er að vísu beiskju blandið, en við
lærum samt. Segðu mér eitthvað
um ótrúa sveininn þinn. Það er
raunaléttir að tjá sig.“
— Hann er ekki ótrúr. Hann
er neyddur, sagði Sólveig. Svo
fór hún að tala um Jónas og grét
við barm gömlu frúarinnar.
Þannig stóðu sakir, er Þóroddur
kom til þeirra, í leit að dóttur
sinni Hann þurfti að tala vig hana
um bréfið. Kristveig hafði sagt
honum undirtektir Sólveigar.
— Vertu ekki að gráta, barnið
mitt, 'sagði Þóroddur. — Þú ferð
ekkert gegn vilja sjálfrar þín.
— Þakka þér fyrir, pabbi minn
Og nú fékk Þóroddur líka að
heyra hina einu réjéu ástæðu.
Þetta sem Sólveig ætlaði að
geyma ein, var nú komið út.
— Þetta er þá ástæðan fyrir
komu þinni í gær sagði faðir henn
ar.
— Já, þetta eru sannindin,
pabbi minn. Fyrirgefðu mér, sagði
Sólveig og táraðist á ný.
Þóroddur klappaði á herðar
henni.
— Þú ert ekki lengur barn,
stúlka mín. Og fullorðnir fá að
reyna margt.
— Betur að þú hefðir aldrei
sent hana í Hvamm, eins og ég
vildi, sagði frúin.
— Lífið fer sínar leiðir, hvað
sem við ætlum, sagði Þóroddur.
— Kannski, sagði frúin.
— En eitt eigum vig að muna;
Ef illt kemur einhvers staðar frá
þá eigum við ekki að leita uppi
þann stað. Hvað safnar sér líku.
Hvammur hefur ekki verið heilla
þúfa fyrir okkur hér.
— Ekki kannski þig, Sólveig;
mín, sagði Þóroddur. En lánið
mitt er bundið við það, sem þú|
kallar illt. Hvammur, svo að ég
viðhafi þín orð, hefur hingað til
reynzt mér vel. Eg er ekki von-
laus um, að svo geti farið enn.
Frúin skildi, hvað hann fór, en
ekki Sólveig.
XXX
í Hvammi gerðist fátt markvert
fannst fiestum. Daprir dagar og
langar andvökunætur var hlut-
'Skipti fyrirfólksins. Á yfirborðinu
var allt rólegt. Störfin héldu á-
fram eins og ekkert hefði í skor-
izt.
Sýslumaður var fyrstur til að
taka upp venjulegt viðmót og ná
fullu jafnvægi.
Frú Ragnheiður átti þar miklu
erfiðara hlutverki að gegna. Hún
reyndi ag tala um fyrir Jónasi
og láta honum skiljast, að sú væri
þrekraunin mesta, að standa við
gefin loforð. Hann taldi sig engin
loforð hafa gefið.
En frúin taldi það eitt og hið
sama, þar sem hann hefði nálægt
þrem árum vitað, hvert stefndi og
aldrei hreyft mótmælum.
Með sjálfum sér fannst Jónasi
þetta líka. Og einmitt þetta, sem
frú Ragnheiður nefndi nú, hafði
hann tekið fram í bréfi sínu til
Sólveigar. Bréfinu sem hryggði i
hana svo mjög á heimleiðinni. j
Þar taldi hann það haft, sem hann,
fengi ekki slitið, að hafa um
þriggja ára skeið vitað_ ráðabrugg
hinna stóru feðra og ekki risið
gegn því. Þag væri í eðli sínu
samþykki. Það kom því ekki að
Jónasi óvörum, er frú Ragnheiður
hélt hinu sama fram. En hann
andmælti henni samt. Jónas átti
nú eftir aðeins einn ástvin, sem
hann gat leitað til. Það var móðir
hans. Ef hún snerist á sveif með
hinum, hvað þá? Hvað þá? Það j
var stóra spurningin, - sem hann j
glímdi nú við.
Sýslumaður talaði við Valgerði.
Hún hafði sterkan hug á Jónasi.
Barn að aldri hafði hún kynnzí
honum. Oft hafði Sigurður danne
brogsmaður komið í Hvamm með
konu sinni og s'onum og dvalizt
dag um kyrrt eða stundum lengri
tíma. Þá þótti sjálfsagt, ag börn-
in lékju sér saman. Jóhann og Sig
ný voru fljót að kynnast og velja
sér leiki. Jónas fór meira einn
sér. Hann vildi sjá allt og kynnast
sem flestu. Oftast fylgdi Valgerð
ur honum með augunum, vildi
sjá, hvað hann tæki sér fyrír hend
ur. Og einhvern veginn réðst það
þannig, ag hann kom til hennar,
og þau tóku tal saman. En lítið
léku þau sér. Þó kom það fyrir.
Einu sinni fóru sýslumannshjón
in í heimboð að Aurum og höfðu
dætur sínar með. Það var síðasta
vor Sigþrúðar í Hvammi. Þá fór
það eins og fyrri, að Jóhann og|
Signý voru fljót að velja sér leik
vang saman. En Valgerður var
inni hjá mömmu sinni og virtist
döpur í bragði. Líklega hefur
henni leiðst. Þetta sá móðir Jón-
asar. Hún lét sækja hann og bað
hann að hafa ofan af fyrir Val-
gerði. Jónas var tregur til þess,
en lét þó að vilja hennar. Kom til
Valgerðar og taldi upp eitt og
annað. sem gaman væri ag sjá,
og svo fór að lokum, að börnin
leiddust burtu, og er heim var
BJARNI UR FIRÐh
Stúdentinn
lí Hvammi
komið, hafði Valgerður tekið gleði
sína. Jónas hafði sýnt henni svo
margt furðulegt, að hún minnt-
ist þess lengi og sumu gleymdi
hún aldrei. Eftir þag var Jónas
óskasveinn hennar. Þegar þau
voru bæði læs og skrifandi, tóku
þau að skrifast á. Valgerður tók
því með hógværri gleði, er hún
vissi síðar, að Jónas væri manns
efni hennar. Þag var þeim báðum
tilkynnt í skrifstofu sýslumanns,
meðan fermingarveizla Valgerðar
stóð yfir. Hún gleymdi aldrei
þóttasvipnum, sem Jónas setti
upp, er hann sagði:
—- Eg er ekki farinn að hugsa
um kvenfólk.
— Þú átt að hugsa um konu-
efni þitt. sagði stjúpi hans og
hló.
— Komdu, Valgerður, sagði Jón
as.
Þau hurfu út úr stofunni, en
Sigurður hélt áfram að hlæja.
— Þetta er afbragð, sagði hann j
En sýslumann setti hljóðan. Þeir
ræddust við um stund.
— Eg skal sjá um strákinn.
Þetta voru hans lokaorð. Sýslu
maður hafði slegið því föstu, að
dætur sínar gifti hann ekki fyrr
en þær væru tvítugar.
Næsta vor rann upp tvítugs-
afmæli Signýjar. Þann heiðursdag
skyldi hún giftast. Valgerður var
aftur á móti átján ára næsta sum
ar. Nú var þag ætlun feðranna,
að þau Jónas opinberuðu um vor-
ið. Svo átti Valgerður að sitja í
festum til tvítugsalduT's.
En það er svo margt, sem fer
öðru vísi en ætlað er. Þeir stóru
reyna það ekki síður en smæl-
ingjarnir. Það hafði lengi verið
tilhlökkunarefni systranna að
verða nábýliskonur og eiga að
eiginmönnum hina komungu,
ágætu frændur. Það var því ekki
að ástæðulausu, að Valgerður
tæki fráhvarfi Jónasar seinlega.
Og það gerði hún:
— Jónas er að stríða mér, sagði
hún. — Það er allt og sumt. Eg
þekki hann nú orðið.
En sýslumaður vissi, að Jónasi
var engin stríðni í huga, heldur
bláköld alvara. Hann fór hægt í
fyrstu lotu. Reyndi þó að gera
dóttur sinni það Ijóst, að gott
hjónaband byggðist fyrst og
fremst á sannri ást. í það minnsta
væri ungu fólki, eins og þeim
Jónasi, ótækt með öllu ag ganga
út í ástlaust hjónaband. Sýslu-
maður sagðist ekki efa, að Val-
T í M IN N, föstudaglnn 8. já?.i 1962
14