Tíminn - 08.06.1962, Síða 15
Aðalftindiir S.I.S.
Framhald af 1. síðu.
semi Sambandsins. Rekstur Sam-
bandsins hefur verið hagstæður á
árinu og veruleg aukning orðið í
umsetningu þess. Samanlögð heild
arvelta allra deilda Sambandsins
árið 1961 var kr. 1.276,3 milljónir
eins og fyrr segir. Mest varð hækk
un á sölu Sjávarafurðadeildar, eða
nánar tiltekið 50%, miðað við árið
1960.
Umsetning helztu deilda Sam-
bandsins var sem hér segir:
Búvörudeildar 307.5 millj
S j ávar af urðadeildar 352:2 —
Innflutningsdeildar 235.6 —
Véladeildar 98.8 —
Skipadeildar 69.3 —
Iðnaðardeildar 141.8 —
Samanlögð velta þeirra deilda
Sambandsins, sem fara með sölu
innlendrar framleiðslu og iðnaðar-
vöru, Búvörudeildar, Sjávarafurða-
deildar og Iðnaðardeildar var 801.
5 milljónir króna. Hefur samvinnu
hreyfingin aldrei skilað jafnmiklu
í þjóðarbúið fyrr.
Tekjuafgangur á rekstrarreikn-
ingi 1961 varð 8.057 milljónir, og
hafði þá afsláttur verið færður í
viðskiptareikninga kaupfélaganna
að upphæð kr. 2.313 milljónir. —
Vextir af stofnsjóðum kaupfélag-
anna hjá SÍS voru samtals kr. 4.5
Hugmyndasamkeppni
Framhald af 9. síðu.
ar hinna uppdráttanna eru arkitekt
arnir Sigvaldi Þórðarson og Skúli
Norðdal.
'Hugmyndauppdrættirnir lágu
frammi aimenningi til sýnis í nýja
barnaskólahúsinu á Patreksfirði í
gær. Stjórnarnefnd félagsheimilis-
ins skipa Svavar Jóhannsson, Jak-
ob A. Helgason og Sæmundur J.
Kristjánsson. í félagsheimili Pat-
reksfjarðar eru 9 félög auk Pat-
rekshrepps. Væntanlegum bygg-
ingarkostnaði féíags og gistiheim-
ilis er jafnað þannig niður, að
eigendafélögin greiða 30%, Pat-
rekshreppur 30% og félagsheimila
sjóður 40%, en tekur þó ekki þátt
í byggingu gistiheimilisins. Fyrir-
hugað er, að hefja byggingarfram-
kvæmdir, þegar uppdrættir hafa
verið gerðir. — Fréttaritari.
Allir hausar eru
jafnir fyrlr mér
Framhald af 4. síðu.
mætti nú ekki klipa hann einu
sinni eins og mann. Þeir þurfa
alltaf að hugsa um hárið, leik-
ararnir.
— Svo er það nú til, að menn
koma drukknir til mín, og það
er ekki gott. Þeir vilja þá halda
áfram að drekka inni á stof-
unni. Einu sinni komu þeir
nokkrir saman og ætluðu að
láta flöskuna ganga á milli sín,
en ég vildi ekki hafa það og
rak þá út. Svo eru menn sér-
vitrir. Margir vilja ekki láta
aðra en mig eða annan koma
nálægt sér, og það getur orðið
til þess, að þeir verða að bíða
lengur, meðan hinir hafa kann-
ske ekkert að gera. Svo eru
dældir og hólar í höfuðskelj-
unum, sem maður verður að
gæta sín á, þar má ekki klippa
of snöggt.
Minn haus eSa þinn haus
— Annars eru allir hausar
jafnir fyrir mér. Mér er sama,
hvort ég klippi ráðherra eða
verkamann. Báðir þjóna þeir
landi Og þjóð, þó með ólíkum
hætti sé, og þess vegna eru þeir
líka jafn góðir.
— Eg þykist líka vera þjónn
þjóðarinnar og ekki verri en
aðrir þjónar, en ég vil heldur
ekki mikla mig af neinu. Eg vil
engan snuða, aðeins gera mitt
bezta.
— Sem sagt: minn haus eða
þinn haus — það er sama, hvor
þeirra er, þeir eru báðir jafn
góðir. — k.
milljónir. Afskriftir af eignum kr.
11.222 milljónir.
Kaupfélögin höfðu bætt hag sinn
hjá Sambandinu á árinu 1981 um
13.6 milljónir króna.
Rekstrarkostnaður Sambands-
ins hækkaði nokkuð á árinu 1961,
meðal annars vegna launahækk-
ana. í laun fastra starfsmanna
greiddi Sambandið kr. 68.4 milljón
ir. Þar að auki voru greidd laun til
fjölda manna, sem unnu við fram
kvæmdir, t.d. byggingar. Námu all
ar launagreiðslur samanlagt ánð
1961 82.2 milljónum króna. Á móti
77.3 milljónum árið 1960. Þrátt fyr
ir þessa launahækkun lækkar
launakostnaður vegna fastra starfs
manna miðað við umsetningu úr
5.94% í 5.36%. Gengistap á árinu
vegna erlendra skulda annarra en
til skipakaupa, varð 4.4 milljónir
króna. f opinber gjöld útsvör Qg
skatta greiddi Sambandið 5.2
milljónir króna árið 1961. Hækk-
aði sá liður um 1.7 milljónir frá
árinu 1960.
Framkvæmdir voru með meira
móti á árinu. Byrjað var á stór-
byggingu við Ármúla 3 í Reykja-
vík, en það húsnæði er fyrst og
fremst ætlað Véladeild Sambands-
ins. Hafin var bygging nýs verk-
smiðjuhúss á Akureyri fyrir Fata-
verksmiðjuna Heklu, en starfsemi
hennar er ört vaxandi, einkum
framleiðsla á ullarpeysum, sem
seldar eru erlendis. Verksmiðjan
hefur verið í leiguhúsnæði. Hið
nýja verksmiðjuhús er 2000 fer-
metrar. í nóvember s.l. var hafin
bygging verksmiðjuhúss í Hafnar-
firði. Verður þar unnið að tilraun-
um O'g nýjungum í framleiðslu
fiskafurða. En uppistaðan í fram-
leiðslunni til að byrja með verð-
ur reyking áls fyrir útflutning. Á
Stórólfsvelli var reist verksmiðja
fyrir heymjölsframleiðslu og korn
þurrkun. Á árinu var samið um
smíði á nýju Sambandsskipi, er
hér um að ræða olíuskip, er flytja
skal olíu milli íslenzkra hafna. Er
það 1100 lestir að stærð og á að
afhendast næsta haust. Á árinu
tókst að útvega lán hjá sænska
samvinnusambandinu að upphæð 2
milljónir sænskra króna. Hluta
þess láns verður varið til Heklu-
hússins á Akureyri, en meirihlut-
inn er ætlaður til kjötiðnaðarstöðv
ar, sem fyrirhugað er að reisa á
Kirkjusandi í Reykjavík.
Allmikið fjármagn þurfti í þess
ar framkh'æmdir. Var fengið 2
millj. króna lán hjá sænska sam-
vinnusambandinu og einnig lán
hjá Samvinnutryggingum. Á ár-
inu var hafinn lokaundirbúningur
að stofnun vörumiðstöðvar á veg
um Sambandsins og miðag við, að
hún yrði reist á lóð Sambandsins
á Granda í Reykjavík. Lánsloforð
fékkst hjá Bandaríkjastjórn fyrir
12 milljón króna láni og ætlaði
Landsbanki íslands^ að ábyrgjast
lánið. Ríkisstjórn íslands kom í
veg fyrir þá lánveitingu og er
það í fyrsta sin í sögu þessara
bandarísku lána, ag slíkt er gert.
Skortur á rekstrarfé háði
starfseminni mjög á árinu, og jók
gengislækkunin f ágúst enn rekstr
arfjárþörfina. Þrátt fyrir fjárskort
er hreyfingin þó fjárhagslega
ábyrg. Lánastofnanir og ríkissjóð-
ur hafa ekki orðið fyrir töpum
vegna lána eða ábyrgða fyrir sam-
vinnufélögin. Töp ríkissjóðs vegna
annarra aðila nema samt mjög há-
um fjárhæðum. Hreyfingin er
íiárhagslega traust, en þarf að
verða fjárhagslega sjálfstæð.
Á árinu gengust samvinnufélög
in fyrir því, að almennasta og
víðtækasta verkfall. sem sögur
fara af hér á landi. varð leyst og
þjóðarbúinu forðað frá miklum
skaða. M. a. var síldveiðunum
biargað. en þar reyndist gjaldeyr
isöflunin um sumarið um 600
milljónir króna. Stjórnarvöld og
j viss blög gerðu harða hríg að sam
j vinnuhreyfingunni fyrir þessa
samnincn. en þær hnútur hittu
j ekki mark.
i f ræðulok mælti formaður Sam
bandsins, Jakob Frímannsson, á
þessa leið: „Ósk mín til sextíu
ára afmælisbarnsins nú í dag er
fyrst og fremst sú, að samvinnu-
hugsjónin fái að þroskast og bless
ast um land allt og ekki sízt í höf
uðborginni, þar sem allt of fáir
hafa enn gert sér ljóst, hversu
■samvinnan og samtakamáttufinn
er mikilsverður, jafnt í verzlun
og viðskiptum sem á öðrum svið-
um“.
Forstjóra Sambandsins, Erlendi
Einarssyni, fórust orð ag lokum
á þessa leið: „Þegar við sanrvinnu
menn hefjum sjöunda áratuginn í
starfi Sambandsins, getum við
verið bjartsýnir. Að mínu áliti
bíða okkar stórkostleg tækifæri.
Samvinnumenn hafa byggt upp
stór fyrirtæki og sterka hreyf-
ingu og vig höfum skipulagið,
sem búið^ er að herða í áratuga
reynslu. Á þessum sextugasta að,-
alfundi Sambandsins ef ég bjart-
sýnn á framtíðina".
Skýrslur
framkvæmdastjóra
Að loknum skýrslum formanns
og forstjóra fluttu framkvæmda-
stjórar deilda skýrslur sínar, þeir
Helgi Pétursson, framkvæmda-
stjóri Búvörudeildar, Valgarð J.
Ólafsson, framkvæmdastjóri Sjáv
arafurðadeildar, Helgi Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Innflutn-
ingsdeildar, Hjörtur Hjartar, fram
kvæmdastjóri Skipadeildar, Hjalti
Pálsson, framkvæmdastjóri Véla-
deildar og Harry Frederjksen,
framkvæmdastj óri Iðnaðardeildar.
Síðan hófust umræður um skýrsl-
urnar.
í dag verður fundi haldið áfram.
Þá flytur Páll H. Jónsson, for-
■stöðumaður fræðsludeildar erlndi
um fræðslu- og félagsmál og um-
ræður verða í tilefni þess. Þá
verða og önnur mál og í fundarlok
kosningar, þar á meðal' í stjórn
Sambandsins.
Rýkur úr nýjum sprungum
Framhald af 1. síðu.
runnið þar og sameinazt aðal-
hrauninu.
Allt var snjóhvítt þarna inn-
frá, en á hrauninu var ekki snjó-
korn. Þag var kolsvart yfir að
líta og víða rauk úr því, en eng-
inn eldur sást í því. Inni í Öskju
sá ekki dökkan díl. Hraunið var
allt frauðkennt og verður senni-
jlega auðvelt að ryðja veg yfir
j það.
Við Víti að sunnan og austan
: var komin sprunga síðan í haust
!' og rauk mikið úr henni. Önnur
sprunga var komfn milli Vítis og
Bátshrauns, sem líka rauk mikið
úr. E.D.
.
Æsku lýðstón leikar
i T«<ilistarfélagsins
Tónlistarfélagið hefur feng-
ið hingað til lands bandaríska
baritónsöngvarann John Lang-
staff, og mun hann halda
tvenna tónleik fyrir styrktar-
félaga Tónlistarfélagsins. Auk
þess heldur hann eina æsku-
lýðstónleika, en þeir eru nýj-
ung í starfsemi félagsins.
Að sjálfsögðu er öllum heimill
aðgangur að tónleikunum, en for-
eldrar eru hvattir til þess að senda
ekki börn sín yngri en 10 ára ein-
síns liðs á tónleikana, þar eð nokk-
uð hefur borið við að truflun verði
að því. Fyrstu æskulýðstónleikarn-
ir og þeir einu i vor vérða á
hvítasunnudag kl. 15.
Tónleikar fyrir styrktarfélaga
Tónlis-tarfélagsins. þeir fjórðu á
árinu verða í Austurbæjarbíói
föstudaginn 8. júní kl. 19, og laug-
ardaginn 9. júní kl. 16. Charles
Crovder sér um undirleik.
de Gaulle í
sjónvarpi
NTB—París, 7. júní.
Mikil eftirvænting ríkir nú
í París, vegna sjónvarpsræðu
þeirrar, sem de Gaulle mun
halda annað kvöld.
Nú hefur aftur brugðizt til
hins verra í Alsir, þar sem OAS-
menn hafa byrjað glæpaverk að
nýju, og eru menn þvi sérstak-
lega spenntir að heyra, hvað de
Gaulle hefur um ástandið í Alsír
að segja.
Forsetinn mun fyrst og fremst
fjalla um væntanlega þjóðarat-
kvæðagreiðslu í Alsír, en sumir
fréttamenn telja, að hann muni
einnig víkja að máli Jouhaud,
hins dauðadæmda, en aðrir full-
yrða, að ekkert verði gert í máli
hans fyrr en atkvæðagreiðslan 1.
júlí hefur farið fram.
Óskar í íhaldsfótspor
Framhald ?f 16. síðu.
Sandholt, Guðmundur Sigurðsson
og Einar Ágústsson og. til vara
Gísli Halldórsson og Kristján Bene
diktsson. Fá Framsóknarmenn
þannig fulltrúa í hafnarstjórn. Ut-
an borgarstjórnar voru kjörnir í
hafnarstjórn Hafsteinn Bergþórs-
son og Jón Sigurðsson, sem vann
á hlutkesti.
Frá kosningum í aðrar nefndir
verður sagt síðar.
STOKKHÓLMUR
- REYKJAVlK
Svart: F. Ekström
Svartur lék síðast. 38. . . . Rd8-f7.
Hvítur — Friðrik Ólafsson — svar
ar með 39. a4-a5.
Fornleifafundur
Framhald af 16. síffu.
vettvang og hóf gröft þarna.
Það kom í ljós, að þarna
var um mjög gamla og illa
faina beinagrind að ræða,
sem er örugglega um 1000
ára gömul. Vegna rigningar
varð Gísli frá að hverfa, til
þess að spilla ekki fundin-
um, og ætlar nú að sæta
lagi, þegár veður batnar, að
grafa beinin upp. Hann fór
á Þjóðminjasafnið með haus-
kúpuna og eina glerperlu,
sem hann fann. Hauskúpan
er næstum óþekkjanleg
enda hefur hún ekki verið
hreinsuð enn. Glerperlan er
á stærð við títuprjónshaus
og vonast Gísli til að finna
alla perlufestina, þegar
hann tekur aftur til við
gröftinn.
2. síðan
líka, ef komið væri á samhreins-
un og sammatseld. Það ákjósan-
legasta fyrir konur væri, að hafa
eins lítið að gera við heimilis-
störf og unnt er.
Blaðamaðurinn: .Hvað teljið
þér ákjósanlegustu forsendurnar
fyrir hjónabandi?
Russel: Það nauðsynlegasta
liggur í augum uppi. Þau verða
að unnast heitt. Þau verða að
geta komið sér saman um hlut-
ina Komi upp ósamkomulag,
verða þau að vera fær um að
greiða úr því með viðræðum. Þau
verða að forðast að ráðast á það,
sem hinu er er mikilvægt.
Ég hef vitað um hjón, sem
höfðu verið gift í fjörutíu ár án
þess að þekkjast raunverulega.
Þau höfðu enga andlega snerti-
punkta. Eigi hjónaband að verða
farsælt, verða slíkir snertipunkt-
ar að vera til milli aðilanna.
Þessi innri snerting leiðir af sér
gagnkvæma virðingu. Og gagn-
kvæmt virðing er afar þýðingar-
mikil og afar sjaldgæf.
Reisa kjötfrystihús
Framhald af 7. síðu.
ísl. samvinnufélaga voru kjörnir
Magnús Kristjánsson kaupfélags-
stjóri og Björn Fr. Björnsson
sýslumaður.
Fundurinn samþykkti einróma
eftirfarandi tillögur:
Aðalfundur Kf. Rangæinga,
haldinn að Hvoli, 26. maí 1962,
skorar á ríkisstjórnina að sjá um
að Seðlabankinn veiti 67% lán út
á kartöflur og aðrar afurð'ir land
búnaðarins, eins og tíðkazt hefur
með sjávarafurðir.
Áðalfundur Kf. Rangæinga,
haldinn að Hvoli, 26. maí 1962,
•mótmælir harðlega 1% gjaldi tii
stofnlánasjóðs landbúnaðarins og
skorar á hæstvirt Alþingi, að
nema ákvæði þetta úr lögum þeg
ar á næsta þingi.
ÞAKKARÁVÖRP
Þakka hjartanlega öllum, sem glöddu mig á sjö-
tugsafmæli mínu þann 5. júní s.l.
Sigríður Jónsd. Magnússon.
ínnilegar þakkir færi ég þeim, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum, á 70
ára afmæli mínu.
Árni Jónsson,
frá Tungufelli.
innilegar þakklr færum vi3 öllum, nær og fjær, fyrlr auS. |
sýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, :
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Theódóru Kristjánsdóttur
Háteigsvegi 28.
Þorkeli Guðbrandsson, börn,
tengdabörn og barnabörn.
TIMINN, föstudaginn 8. júní 1962
15