Tíminn - 08.06.1962, Page 16

Tíminn - 08.06.1962, Page 16
Föstudagur 8. júní 1962 129. tbl. 46. árg. f Þessi mynd var tekin á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gœr. Þar sjást, taiið frá vinstri: Adda Bára Sigfúsdóttir, Guðmundur Vigfússon, fulltrú- ar Aiþýðubandalagsins, Einar Ágústsson og Kristján Benediktsson, fulltrúar Framsóknarflokksins. Þá er Óskar Hallgrímsson, fulltrúi Alþýðuflokks- ins (standandi). 'Hann er að lesa upp bókun sína þess efnis, að hann hafi gert samkomulag við Sjálfstæðisflokkinn um gagnkvæman stuðning við nefndakosningar og þar með endurnýjað þá samstöðu við íhaldsmeirihiutann, sem Magnús Ás'tmarsson stóð að á síðasta kjörtímabili. ÓSKAR FÓR í ÍHALDS- FÓTSPOR MAGNÚSAR Fyrsti fundur hinnar ný-| kjörnu borgarstjórnar í Reykjavík var haldinn í gær,1 og hið sögulegasta, sem þar gerðist, var að Alþýðuflokk- urinn endurnýjaði samstarf og samstöðu við íhaldsmeirihlut- ann, eftir að hafa hafnað sam- starfi um nefnakosningar við Framsóknarflokkinn. Eftir kosningarnar buðu full- trúar Framsóknarflokksins í borg arstjórn fulltrúa Alþýðuflokksins samstarf á þeim grundvelli, að þeir skiptu með sér þeim fulltrúum í nefndir, er þeir gætu náð með samstöðu. Þessu hafnaði Alþýðu- ODREID A KAPPREIDUM Að venju mun hestamanna- félagið Fákur í Reykjavík halda kappreiðar annan hvíta- Isunnudag á skeiðvellinum við Elliðaár, og er það ferfugasta árið, sem Fákur heldur reiðar á annan í hvif Keppt verð'ur í skeiði og en þar að auki mun Rosmary Þor- leifsdóttir sýna leikfimi á hest- baki og ennfremur verður hindr- unarhlaup hesta, sem Rosmary hefur þjálfað. Þá má einnig geta þess, að austur og vesturbæingar í Reykjavík og hestamannafélagið Hörður í Kjalarnesþingi munu keppa í naglaboðreið. Á kappreiðunum eru margir góðir hestar, svo sem Blesi Guð- mundar Þorsteinssonar í Reykja- vík, Litla-Gletta Sigurð'ar Ölafs- sonar, Hrefna Svanlaugar, konu Aðalsteins á Korpúlfsstöðum og Goði Höskuldar á Hofsstöðum, Gnýfari Þorgeirs í Gufunesi, Gram ur Sigurðar Sigurðssonar í Reykja vík og Þytur Ester Guðmundsdótt- ur frá Laugarvatni. Búizt er við har'ðri keppni milli tveggja síð- asttöldu hestanna á 300 metra sprettinum, því þeir urðu jafnir í j fyrra á Hellu og urð'u að hlaupa nokkrum sinnum, til þess að fá úr því skorið, hvor væri frárri. Hindrunarhlaupið verður einn- ig mjög skemmtilegt, ef að líkum lætur, og þá ekki síður naglaboð- reiðin. Þrjár sveitir keppa, sem fyrr segir, og eru fimm í hverri. Hleypt er 150 metra spotta, þar farið af baki og sex tommu nagli kafrekinn í bjálka, og síðan riðið aftur til baka og hamarinn af- hentur næsta manni sveitarinnar, sem þá fyrst má leggja af stað, er hann hefur náð hamrinum. Má samstarf i borgarstjórninni færi búast við harð'ri keppni, því bæði eftir málefnum. vesturbæingar og Harðarmcnn Kosið' var í ýmsar aðrar nefnd- j hafa látið stór orð falla um það, ir. í hafnarstjórn voru kjörnir Þóri hvorir í sínu lagi, að þeir láti sér Framhald á 15. síðu. I ekki nægja annað eða þriðja sæti! RENNIRI I TUGTHUSIÐ í gær og fyrradag handtók lögreglan nokkra menn, riðna Forjnleifafundur við Selfoss 1 Fyrir nokkrum dögum voru nokkur börn að leik í kál- görðum rétt s'Jnnan við Sel- foss. Þau sáu glitta í haus- kúpu í einum garðinum og sögðu frá því. Þarna rétt hjá höfðu fyrir nokkrum ár- um fundizt bein í kumli frá tímum heiðni á íslandi og var því Þjóðminjasafninu gert viðvart um fundinn. Gísli Gestsson fornminja- vörður fór á þriðjudaginn á Framhald á 15. síðu. við innbrot fyrstu sólarhring- ana í þessari viku, en þá komst tala innbrota upp í fjórtán eða fimmtán á hálfum þriðja sól- arhring. Tveir piltar, sem að líkindum eru valdir að innbroti hjá bif- leið'aeftirlitinu s.l. sunnudagsnótt, vóru handteknir um klukkan þrjú í gær. Þeir höfðu með höndum ávísanir, sem voru í peningaskáp, sem sprengdur var upp á staðn- um, en úr skápnum var stolið hátt á sjötta þúsund krónum í pening- um. Piltarnir munu riðnir við fleiri innbrot á sama tíma, en þeir gáfu lögreglunni upplýsingar, sem leiddu til að fleiri voru hand- teknir. í gær var mikið annríki hjá rannsóknarlögreglunni og verið að flytja og sækja menn upp í tugt- hús og yfirheyra þá við Fríkirkju- veg. flokkurinn en tók hins vegar upp samstarf við íhaldið eins og fyrr segir. Þegar Alþýðuflokkurinn hafði hafnað þessu átti Framsóknar- flokkurinn þann kost einan að hafa kosningasamstarf við fulltrúa Alþýðubandalagsins, ef hann átti að geta haft von um að ná sæti í bæjarráði, en það er afar mikil- vægt til áhrifa í borgarmálefnum. Það tókst hins vegar ekki, þar sem Alþýðuflokkurinn vann hlutkestið í þetta sinn og náði kosningu til eins árs. Geir Hallgrímsson, borgarstjóri setti fundinn og bauð borgarfull- trúa velkomna. Síðan tók aldurs- forseti, Gróa Pétursdóttir við fund arstjórn og stjórnaði kosningu forseta. Auður Auðuns var kjörin forseti með 9 atkv. en sex seðlar voru auðir. Með sama hætti voru varaforsetar kjörnir Þórir Kr. Þórðarson og Gísli Halldórsson. Skrifarar voru kjörnir Birgir ísl. Gunnarsson og Alfreð Gíslason. Síðan fór fram kosning borgar- stjóra, og hlaut Geir Hallgrimsson 9 atkv., en 6 seðlar voru auðir. Næst var kjörið borgarráð til eins árs. Kosningu hlutu Auður Auðuns, Geir Hallgrímsson, Birg- ir ísleifur Gunnarsson og Guð- mundur Vigfússon, en hlutkesti skar úr jöfnum atkvæðum Einars Ágústssonar og Óskars Hallgríms- sonar, og kom upp hlutur Óskars. Áður en gengið var til kosninga í borgarráð kvaddi Óskar Hall- grímsson sér hljóðs og las upp bókun þess efnis, að samkomulag hefði orðið milli Sjálfstæðisflokks ins og Alþýðuflokksins um gagn- kvæman stuðning við nefndakosn- ingar, en um annan sluðning og Nýr auglýsingastjér Egill Bjarnason Egill Bjarnason, sem verið hef- ur auglýsingastjóri Tímans undan- farin 6 ár, hefur nú látið af því starfi samkvæmt eigin ósk. Egill mun taka að sér önnur störf í þágu blaðsins, og bjóðum við hann velkominn til þeirra starfa um leið og við þökkum honum vel unnin störf sem auglýsingastjóri. Við starfi Egils tekur nú Sig- urjón Davíðsson. Á undanförnum Sigurjón Davíðsson árum hefur Sigurjón ritstýrt blöð- um framsóknarmanna í Kópavogi og Kjördæmisblaðinu Ingólfi, frá því að útgáfa þess hófst fyrir þrem árum. Til frekari undirbúnings starfi sínu sótti Sigurjón sölu og auglýsingaráðstefnuna, sem haldin var í Osló 27. til 31. mai s.l. Tím- inn væntir sér mikils af Sigurjóni og býður hann velkominn til starfa.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.