Tíminn - 17.06.1962, Qupperneq 1
I dag koma út tvö
16 síðu blöð af
TÍMANUM og sunnu-
dagsblað að auki
135. tbl. — Sunnudagur 17. júní 1962 — 46. árg.
1EFJAST
PRÓFS
Níunda þing Landssam-
bands framhaldsskólakennara
var sett í GagnfræSaskólanum
við Lindargötu á fimmtudag-
inn. Þinginu lauk í gærkvöldi,
en það sátu 68 fulltrúar.
\ '
'V
! IMD
'Slil
1
Hér þarf
Svalirnar
1., 3. 00
íbú3.
Þingforseti var kjörinn Kristján
Benediktsson, Reykjavik.
Aðalmál þingsins voru kennara
menntunin og kjaramálin. Undir-
búningsnefndir höfðu starfað að
báðum þessum málum, en síðan
var fjallað um þau af þingnefnd-
um. Kjarni tillagna um menntun
kennara, eins og þær komu frá
þingnefnd, er að krafizt verði BA 1
prófs sem lágmarksmenntunar til
kennslustarfa á gagnfræðastiginu. j
í afgreiðslu þingnefndar um j
launamál er ályktað, að kennarar.
hljóti laun samkvæmt menntun
og skiptist í þrjá launaflokka:
setta kennara með almennt kenn
arapróf eða stúdentspróf, kennara
með BA-próf og verknámskennara
sérmenntun, og kennara með cand. I
mag.-próf eða BA-próf með tveim
viðbótarstigum.
Þá eru sérstakar tillögur um
framhaldsréttindi kennara, sem nú
Framhald á 3. síðu.
Húsið virðíst fullbúiS aS utan. ÞaS er búlS aS mála
grindurn ar vantar.
það, en svala-
SKRIÐUFALL
OG HAMFARIR
k OLAFSFIRÐI
Ólafsfirði, 16. júní.
Hér hefur verið norðausfan
stórrigning með krepjuhríð
upp til fjalla öðru hvoru und-
anfarna daga og er enn. Þó
tók út yfir í gærkvöldi, er
hann gerði haglél, og á eftir
gerði slíka stórdembu, að lík-
ast var sem skrúfað hefði ver-
ið frá óteljandi krönum. Stóð
demban fram eftir nóttu og
núna fram á dag.
Þegar menn vöknuðu í morgun
runnu stórelfur eftir sumum göt-
um bæjarins, svo varla var stíg-
vélafært, og mun vatn hafa runn
ið inn í kjallara í sumum hús-
anna.
Um klukkan 11 hljóp fram aur-
skriða úr fjallinu hérna fyrir of-
an bæinn, og rann á tvö hús í
brekkunni og stórskemmdi tvær
lóðir. Einnig rann inn í annan
Framhald á 3. síðij.
GRINDALAUSAR SVAL-
IR Á IBÚÐARHÚSUM
raunar ekki skýringa við.
eru opnar til hllðanna á
6. hæS og búiS í hverri
(Ljósm.: TÍMINN, GE)
Mörgum lofthræddum og
raunar einnig þeim, sem þjást
ekki tiltakanlega af loft-
hræðslu, verður starsýnt , á
grindalausar svalir margra ný-
bygginga í Reykjavík.
Sum þeirra húsa, þar sem grind
ur vantar á svalir, geta þó með
hæpnum rétti talizt til nýbygginga,
en þegar hefur verið búið í þeim
í nokkur ár; ytra frágangi virðist
lokið, það er búið að mála húsin,
én svalagrindurnkr vantar. Þessi
háttur virðist jafnvel gefa til
kynná, að grindur á svölum hafi
alls ekki verið með í áætlun um
gerð hússins.
Auk þessara hús^ er fjöldi ann-
arra ófrágenginna, sem þegar hafa
verið tekin til íbúðar, án þess að
svalir væru með grindum.
Ef barnavagn stendur út á slík-
um svölium og snörp vindhviða
leikur um húsið, má gera ráð fyr-
ir, að slys geti átt sér stað. En
það er of seint ,,að byrgja brunn-
inn, þegar barnið er dottið ofan í“.
Ljósmyndari og fréttamaður
blaðsins óku i)m borgina nýlega og
tóku myndir af nokkrum húsum,
þar sem grindur vantar á svalir.
Það var af nógu að taka. A eftir
fórum við með myndirnar á skrif
stofu Slysavarnafélagsins og sýnd
ur Garðari Viborg, fulltrúa.
— Þetta er engan vegin forsvar
anlegt og hefur bráða lífshættu i
för með sér, sagði fulltrúinn. —
Fyrst og fremst eru börnin í hætt
unni, en það getur komið fyrir
hvern sem er að svima við slíkar
aðstæður, þannig að menn viti ekki
hvort þeir stíga skrefið fram eða
aftur. Auðvitað reynir fólk að
koma í veg fyrir, að börn hlaupi
eftirlitslaust út á grindalausar sval
ir, en ég skil ekki, að mæður geti
unað rólegar, þar sem svo hagar
til. Hættan hlýtur alltaf að búa
í undirvitundinni.
Þá sagði fulltrúinn, að oft væri
kvartað við Slysavarnafélagið um
skort á öryggisbúnaði húsnæðis,
og reyndi félagið að vekja athygli
viðkomandi aðila á hættunni. —
Meira getum við ekki gert, sagði
Garðar Viborg.
10-20 AR TIL
HHMSiNDlS!
Karlinn er meira en níræö-
ur, en hefur enn margt aS
segja. Um síðustu helgi mátti
heyra heimspekinginn, stærS-
fræðinginn, mannvininn, guð-
leysingjann og nóbelsverS-
launamanninn Bertrand Russ-
el svara nokkrum spurningum
jí sjónvarpinu um lífið og til-
j veruna.
Um náttúruval: „ifg hef hugsað
um að bera fram frumvarp í lá-
varðadeildinni um, að ung og
mannbær kona verði sett á skip
á leið til Suðurheimskautsins. —
að sjálfsögðu ásamt presti úr
ensku kirkjunni."
Um stjórnmálaforingjana: „Ad-
enauer er neðstur á listanum hjá
mér og de Gaulle næstur. Ég ber
I nokkra virðingu fyrir Krustjoff, og
I hið sama gildir um Kennedy. —
Nehru er góður, þegar ekki er um
índland að ræða.“
| Um stríð: „Stríð þjónar ekki
lengur neinu hlutverki."
Um konur: „Áður en konur voru
iðurkenndar jafningjar karla, var
elcki farið með þær eins og jafn
ingja í neinu, sem krafðist greind-
ar, en álitnar mun fremri í öllu
■iðferði — hlægilegt.
Um lýðræði: „Það eru mistök að
kenna hinum gáfuðu og heimsku
saman.“
Um heimsendi: „Eftir tíu ár . . .
ef til vill tuttugu."
BERTRAND RUSSEL lávarður þyk-
ist vlss um, að heimurinn verðl
sprengdur upp innan tfðar. Hér svar
ar hann spurningum David Susskind
sjónvarpsmanns, _______— _