Tíminn - 17.06.1962, Qupperneq 8
SEXTUGUR:
UNDERHAUG KARTÖFLUVÉLAR
Eins og að undanförnu útvegum vér kartöfluupptökuvélar frá F. A. Underhaugs
Fabrikk i Noregi.
•
Samkvæmt prófun Verkfæradeildar ríkisins fer þessi vél mjög vel með kartöfl-
urnar, og reyndust aðeins 4,7% af uppskerunni hafa skaðazt. Auk þessa skilar
vélin kartöflunum mjög hreinum, og reyndust óhreinindi á kartöflunum aðeins
um 2% af uppskerunni.
Bændur eru vinsamlegast beðnir að senda pantanir sínar sem allra fyrst og helzt
ekki síðar en um næstu mánaðamót.
Áætlað verð um kr. 15,300,—.
V
^ARNi GE6TSSON
Vatnsstíg 3 — Sími 17930
Auglýsingasími TÍMANS er 19-5-23
Magnús Böövarsson,
hreppstjóri, Laugarvatni
Á morgun, 18. júní á sextugs
afmæli Magnús Böðvarsson, fyrr
um bóndi í Miðdal í Laugardal,
því þann dag, árið 1902 fæddist
hann að Útey í Laugardals
hreppi, þar sem foreldrar hans,
Ingunn Eyjólfsdóttir og Böðvar
Magnússon bjuggu þá. Er þarf
laust að gera frekari grein fyrir
ætt Magnúsar og uppruna, svo
kunnir, sem foreldrar hans eru
þjóð sinni af verkum sínum og
atgervi öllu.
Árið 1907 hóf Böðvar búskap
að Laugarvatni, og ólst Magnús
þar upp, eini bróðirinn í hópi
margra systra, en ekki verður
merkt, að þau forréttindi hans
hafi á nokkurn hátt spillt lund
erni hans, en til þess tekið, hve
ástúðlegt jafnan hefur verið
með þeim systkinum.
Rúmlega tvítugui að aldri hóf
Magnús nám við Hvanneyrar
skóla og útskrifaðist þaðan eft
ir tveggja vetra nám. Ekki veit
sá, er þetta ritar, hvort hann
hefur verið þá strax ráðinn í að
gerast bóndi, en að búfræðinámi
loknu var hann a. m. k. tvær
vertíðir á togara og þótti vel
hlutgengur á þeim vettvangi.
Árið 1929 kvæntist Magnús
Aðalbjörgu Haraldsdóttur frá
Einarsstöðum í Reykjadal, gagn
menntaðri yngismey, sem komin
var að kenna sunnlenzkum
húsmæðraefnum matgerðarlist.
Festu þau kaup á Miðdal í Laug
ardalshreppi og hófu þar bú
skap árið 1930. Var sú jörð eins
og svo margar jarðir þá, svo til
húsalaus og snauð að allri rækt
un og mannlegum þægindum.
Er skemmst af að segja, að á
búskaparárum þeirra Magnúsar
og Aðalbjargar, breyttist Miðdal
ur úr níddu smábýli í eitt feg-
ursta bændasetur, sem augun
gleður. Munu mannvirki þau, er
þar standa nú, svo og túnflák
arnir, sem breitt hafa úr sér út
um fúamýrar og kjarrholt, lengi
bera höldinum í Miðdal fagurt
vitni. En öll þessi átök kostuðu
mikið — kostuðu mann, sem
hvergi sást fyrir þegar verk
þurfti að vinna, mann, sem átti
sér engan húsbónda annan en
ræktunarástina, heilsuna hálfa.
Og því var það, að Magnús
bóndi brá búi í Miðdal og reisti
sér fyrir fáum árum íbúðarhús
að Laugarvatni.
Þrátt fyrir annasama daga,
komst Magnús ekki hjá forystu
störfum í sveitarfélagi sínu, var
t. d. formaður Ungmennafélags
ins, formaður í búnaðarfélagi
sveitarinnar og í stjórn Ræktun
arsambands Suðurlands. Með
hjálpari og kirkjuhaldari í Mið
dal var hann í rösklega tuttugu
ár, en er nú gjaldkeri sjúkra
samlagsins og hreppstjóri Laug
ardalshrepps.
Böm þeirra Magnúsar og Aðal
bjargar eru tvö: Ásrún, gift
Skúla Guðjónssyni, stöðvarstj.
á Selfossi, og Böðvar, gjaldkeri
í Búnaðarbanka fslands. Það
eru nú liðlega tuttugu ár síðan
ég kynntist af eigin raun heim-
ili þeirra Magnúsar og Aðal
bjargar, og þegar litið er um öxl,
hlýtur sú ósk að vakna í hugum
þeirra, er gerst þekkja, að sem
flest heimili mættu búa við þá
menningu hjartans, þá græð
andi alúð og háttprýði, sem hús
bændunum á því heimili er svo
eiginleg, svo og börnum þeirra.
Vil ég að lokum óska Magnúsi
til hamingju með afmælið og
okkur vinum hans til hamingju
með að hafa eignazt svo dýran
vin.
Tr. P.
Svefnhekkir ný gerð
\
Stcekkanlegir með sængurgeymslu
I E K K /
AXEL EYJÓLFSSON
Skipholti 7 — Sími 10117—18742.
a
ÝM'Wff/Kwmr'S'rrrrfrfsrrrrrv-r • > > >• t > / > ■<
• > í !
TIMIN N, sunnudaginn 17. júní 1963