Tíminn - 23.06.1962, Side 16

Tíminn - 23.06.1962, Side 16
Laugardagur 23. júní 1962 140. tbl. 46. árg. BÚID AD GERA SKEMMTIGARÐ? Lýiháskóli í Skálholti ? Prestastefnu íslands var slitið í gær, en hún hefur eins og kunnugt er staðið yfir sið- an á þriðjudag. Störf síðasta dagsins hófust kl. 9 árdegis með bæn í kapellu háskólans, STOKKHÓLMUR - REYKJAVÍK Svart: F. Ekström m m m Ssí am mmm !*■■ ■ m. Hvítt: F. Ólafsson Hvítur lék í 44. leik Bc3xa7. Svartur svarar með 44. Rc3xb5 sem séra Sveinn Ögmundsson í Kálfholti flutti. Síðan flutti söngmálastjóri þjóð- kirkjunnar, dr. Róbert Abraham Ottósson, erindi og flutti skýrslu sína. Fóru á eftir fram talsverðar umræður og voru allir, sem til máls tóku, sammála um, að efling kirkjukóra væri mikið hagsmuna- mál fyrir kirkjuna, þar eð kirkju- kórarnir hefðu mikil áhrif á kirkju sókn, einkum í dreifbýlinu. Eftir hádegið fór svo fram próf- astafundur, en engar fregnir hafa borizt frá honum, meður því aðj venja mun vera, að beir fundir séu ávallt lokaðir. Að honum loknum hófust svo umræður um nefndaá- lit og önnur mál. Aðalmál fundar- ins var að þessu sinni lýðmenntun, og var samþykkt um það ályktun. Var í henni kveðið svo á, að kosin skyldi 7 manna nefnd til að vinna ásamt biskupi að undirbúnlngi stofnunar kristilegs lýðháskóla, er helzt yrði staðsettur í Skálholti. Framsögumenn í málinu voru séra Eiríkur J. Eiríksson, þjóðgarðs- vörður á Þingvöllum og Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri á Eiðum, og voru báðir kjörnir í nefndina. Prestastefnunni var síðan slitið með sálmasöng og bæn í kapellu háskólans kl. 6. í gærkvöldi sátu prestar síðan kvöldboð hjá bisk- upi. EINN Á BÁTI OG FÉLL í SJÓINN ÍSAFIRÐI, 22. júní. í gær henti þaS vestur á Ós- hlíð, að Magnús Jónsson frá Hnífsdal féll í sjóinn, er hann var að tína sprek. Friðþjófur Kristjánsson, sem er 17 ára gamall kom þarna að og kast- aði sér til sunds og náði Magnúsi. Magnús hafði farið á lítilli skektu til þess að safna sprek- um, er hann var staddur rétt ut- an við Seljadal var hann að baksa vi2 að koma staur upp í skektuna og hvolfdi henni. Magnús komst á kjöl. Rétt á eftir þar þar að bif- reið með fólki, sem var á leið til Bolungarvíkur. Magnús var þá um 20 metra frá landi. Friðþjófur Kristjánsson, sem er aðeins 17 ára garnall lagðist til sunds og náði haan í Magnús og var þegar flutt ur á sjúkrahúsið á ísafirði. Hon- um var orðið kalt eftir volkið, en leið vel, er blaðið hafði síðast spurnir af honum í gær. Guðm. Björn Guðmundsson flutti á borgarstjórnarfundi í fyrra- kvöld að nýjú tillögu um skemmti- og hvíldargarð í sunnanverðri Öskjuhlíð niður að sjó, sem hann flutti fyrir tæpum átta árum í bæjar- stjórn, en hlaut þá ekki nægi- legt fylgi. Meirihluti, SjálfstæðisflokksLns f borgarstjórn vísaði tillögu Björns frá með tillögu, sem hófst á þess- um orðum: „Með því að búið er að gera skemmtigarð í Öskjuhlíð- . “ (leturbr. Tímans). Gísli Halldórsson hafði orð fyrir frávls- unartillögunni og lýsti framkvæmd um, sem hafa verið gerðar í Öskju- hlíð og lýsti enn nánar því, sem stendur í síðustu Bláu bók um, hvað þar skuli koma í framtíðinni. Tillaga Björns um Öskjuhlíðina og greinargerð, sem fylgdi henni, birtast á 7. síðu blaðsins I dag. Um ræður >um tillöguna urðu mjög skemmtilegar og greindi borgar- fulltrúa mjög á um, hvort þaps.a væri búið að gera skemmtigarð eða ekki. Lýstu nokkrir borgarfulltrúar gönguferðum sínum um „skemmti- garðinn“ og voru ekki á eitt sátt- ir um, hvað þar væri að finna. Al- freð Gíslason hafði gengið þarna um og rekizt á alls konar hindran- ir, svo sem járnarusl, mannheldar girðingar og skilti, sem á stóð: „Að gangur bannaður“. Einn borgarf jll trúi Sjálfstæðisflokksins var svo gersamlega villtur á höfuðáttum og landslagi í sunnanverðri Öskju- hlíð, að aðrir borgarfulltrúar urðu að grípa til landakorta til að sýna, Framhald á 15. síðu. í gærmorgun hélt hinn danski gestur prestastefnunnar, Westergaard-Madsen, Kaup- mannahafnarblskup, guðsþjón ustu fyrlr vlstfólk á elllhelm- ilinu Grund. Sr. Sigurbjörn Á Gíslason þýddi predikunina jafnharðan á íslenzku, og naut fólkið vel þessarar helmsókn. ar. Myndina hér til hliðar tók Guðjón Binarsson að guðsþjón ustunni lokinni og sýnlr hún öiskupinn og elna vistkonuna Norðmenn hafa fengi 100 þúsuncf hektóiítra í fyrradag fékkst síld vi« Vestmannaeyjar, en aðeins einn bátur er nú viS veiðar þar um slóðir. Raufarhafnarbúar búa sig undir að taka á móti og verka síldina, sem kann að berast í sumar. Norð- menn hafa nú fært slg austar, en eru ánægðir með aflann til þessa. Norski síldveiðiflotinn færði sig pustur á bóginn í fyrradag og var í fyrrinótt djúpt út af Þistilfirði. Veiðin var nokkuð misjöfn og síldin stendur nú alls staðar djúpt. Norðmenn hafa nú fengið um 100.000 hektólítra af síld við fsland og eru mjög ánægðir með þann árangur. Blaðið talaði við Jakob Jakobs- son á Ægi í^gær og fékk þessar upplýsingar. íslenzku skipin komu á veiðisvæði norsku skipanna í fyrrinótt og köstuðu. Skipin hpldu áfram að kasta í gærdag, en enginn hafði tilkynnt afla nema Helgi Helgason, 600 tunn- ur. Ægir var staddur 55—60 sjó- mílur norður af Rauðunúpum og fann þar stórar toríur. Hafa stór- ar torfur ekki fundizt jafn vestar- lega í þessari viku. Ekkert veiði- skip var þá statt á þeim slóðum. í gær var hæg norðaustan gola á miðunum en kalt í veðri og slydda í gærmorgun. Framhald á 15. síðu. FUNDUR UM KJARAMÁLIN Farmanna- og fiskimannasam- band íslands boðaði til fundar kl. 9 í gærkvöldi um kjaramálin. Verk efni fundarins var að ræða um kaup og kjör yfirmanna á síld- veiðiflotanum. Vegna þess, hve seint fundurinn hófst, höfðu þó engar fregnir af niðurstöðum hans borizt, þegar blaðið fór í prentun.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.