Tíminn - 21.07.1962, Side 6
fam' iiíii ...................
s Við teljum að sjálfsögðu
■ vini meðal beztu gjafa lífsins.
Og vinir eru bæði sýnilegir
og ósýnilegir. Við gleðjumst
innilega yfir tryggð þeirra og
ástúð.
En svo eru ósýnilegir v;nir
líka til og fylgd þeirra er á
annan hátt og getur verið enn
þá yndislegri.
Sagt er, að hámenntuð kona
hafi alltaf litið á bækurnar í
skáp sínum sem vini. Hún
sagði:
„Þegar ég lít j einhverja
þeirra, þá gefur hún mér
alltaf eitthvað dýrmætt“. Og
þegar hún lánaði bók, var hún
Þáttur kirkjunnar
Vinir á vegi
vön að setja miða fremst í bók
ina með eftirfarandi áletrun:
„Bækur eru mínir beztu vin
ir. Eg bið, að láta þær njóta
þess. Gættu þeirra vel“.
Meðal hinna mörgu bóka
hefur ein þeirra alveg sérstöðu
en það er sálmabókin. Hún er
lítil og yfirlætislaus, en óend-
anlega auðug a^ innihaldi. Og
sálmarnir eru sannarlega „vin-
ir á vegi“ hvers þess, sem les
þá eða syngur eða nýtur
þeirra.
Sumir þeirra eru að efni til
þúsund ára að aldri, en jafn-
ungir og ferskir að áhrifum
eins og þeir væru ortir í dag.
Þeir eru meðal hins eilífa og
þó síunga eins og tilfinningar
og þrár mannshjartans sjálfs.
Fátt hefur varanlegri áhrif
en sálmar, sem lærðir eru utan
að og sungnir í bernsku og
æsku. Það er sem slík orð og
tónar fylgi ævilangt, og séu
sífellt viðbúin að svala, lækna
og styrkja, eða þá til þess að
göfga og gleðja, gefa kraft í
raunum, ljós í myrkrum og
þrautseigju, sem enga uppgjöf
kann.
Öldruð kona, sem fór ung
til Vesturheims og nú býr vest
ur á Kyrrahafsströnd, hefur
skrifað mér, að ekkert hafi
orðið sór dýrmætara til unun-
ar og svölunar en sálmarnir,
sem hún lærði sem barn hér
heima á íslandi. „Versin, sem
afi minn kenndi mér“, segir
hún, hljóma enn fegri öllu
öðru í vitund minni, og hafa
gefið mér vizku og kraft til að
veita mínum börnum og barna-
börnum auðlegð míns fagra og
göfuga móðurmáls, sem er öll-
um tungum æðra“. Af þessum
vitnisburði heTinar sést vel,
hve góðir vinir þessi ljóð hafa
verið henni. Langt úti í heimi
fjarlægðar hafa þeir fylgt
henni og hvíslað inn [ vitund
hennar rödd íslands og orði
Guðs.
Það hefur orðið hér mikil
breyting á síðarj tímum. Nú
vilja kennarar ekki ofbjóða
minni og andlegum kröftum
bamanna með sálmanámi. Og
talað er með lítilsvirðingu og
háði um allan slíkan úreltan
þululærdóm. Foreldrar og
heimilisfólk hafa hvorki tíma
né tækifæri til a^ sjá um, að
börnin læri vers og bætialjóð
líkt og í gamla daga.
En hvernig verður sú kyn
slóð síðar, sem ekki fær slíka
andlega fylgd? Gæti hún ekki
orðið furðu vinafá þessara
ósýnilegu vina, sem hafa stund
um orðið ljós í lágu hreysi og
langra kvelda jólaeldur? Og
hve auðug verður íslenzk þjóð
að hugsun, trúareflingu og
bænrækni, sem hefur týnt
sálmabókinni sinni? Getur hún
goldið slíkt afhroð með ein-
hverju öðru? En það má kall-
ast týnt, þegar fullorðið fólk
gerir ekki sökum ókunnleika
greinarmun á sálmanúmerum
og blaðsíðutali í þessari al-
mennustu ljóðabók þjóðar sinn
ar.
Þetta þurfa prestar og kenn
arar vel að athuga. Ömmurn-
ar eru horfnar flf flestum
heimilum. Kirkjan þarf að
koma í staðjnn, taka börnin í
faðm sér meðan þau enn eru
lítil og kenna þeim vers og
sálma, lög og ljóð.
Til þess eru sunnudagaskól--'
ar ágætir og enn betra væri
þó, að smábarnaskólar fyrir
forskólabörn væru reknir sem
nokkurs konar leikskólar við
hverja kirkju í fjölmenni. Lít-
il stund á dag til uppeldis o?
æfinga í háttvísi, bænrækni og
söng gæti verið ómetanlég til
árangurs í trúarlegu og sið-
rænu uppeldi næstu kynslóðar.
Höfum þetta f huga og hefj
umst sem fyrst handa til að
veita börnum og barnabörnum
ósýnilega vini á ölium vegum
framtíðarinnar.
Árelíus Nfelsson.
Ferðafólk athugið
Seljum kalda gosdrykki og öl, ís, tóbak. sælgæti,
ávexti, kex í úrvali, blöð, tímarit og margt fleira.
Benzín og olíuafgreiðsla.
Stillum verði í hóf
Verzlunin BRÚ,
Hrútafirði.
- Trúlotunarhringar ■
Fljót afgreiðsla
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
Símj 14007 ,
Sendum gegn póstkröfu.
Bíla • og
búvélasalan
selur
Heyhleðsluvél
Ámoksturtæki á
Dautz 15 D alveg ný
Garðtætara með
sláttuvél
Múgavélar
Sláttuvélar á
Massey-Ferguson
8 tonna dráttarvagn
góðan fyrir búnaðarsam
band
Loftpressur
Krana á hfólumí. HiSe ■ ,
Blásara S
Dráttavélar
Ámoksturstæki á Oliver
Farmal Cub '58
Dautz 15 A '60
Zetor árgerð '60
Verð aðeins kr. 50.000,—
Fordson major '58 og '59
með allskonar fylgitækjum,
hentugt fyrir búnaðarsam-
bönd
Massey Ferguson með
ámoksturstækjum árg. '59.
Bíla- & búvélasalan
Eskihlíð B v/Miklatorg,
sími 23136.
Laugaveg 146 — Sími 1-1025
Höfum fil sölu í dag
Volkswagen ’62
Taunus Station ’62
Mercedes Benz ’55, sérlega
glæsilegur
Mercedes Benz vörubifreið ’55
í skiptum fyrir yngri vörubíl
Fjölda bifreiða af öllum árgerð-
um og tegundum
Komið og skoðið bílana hjá
okkur
Leitið upplýsinga um bílana
hjá okkur
Kynnið yður hvort ROST hefir
ekki rétta oílinn handa yður.
Leggjum áherzlu á góða þjón-
ustu og tullkomna fyrirgreiðslu
Tilkynning um aöstöðugjald
í Hafnarfirði 1962
Ákveðið hefur verið að innheimta í Hafnarfirði að-
stöðugjald samkv. III. kafla laga nr. 69/1962, um
tekjustofna sveitarfélaga, sbr. og reglugerð nr.
88/1962, um aðstöðugjald, samkvæmt eftirfarandi
gjaldskrá:
0,5%: Rekstur fiskiskipa.
0,9%: Kjöt- og fiskverzlun og nýlenduvöruverzl-
un.
1,0%: Rekstur fiskvinnslustöðva, landbúnaður og
brauðgerðarhús.
1,3%: Verzlun ó. t. a.
1,5%: Iðnaður ó. t. a., matsala, útgáfustarfsemi
2.0%: Hvers konar persónuleg þjónusta, mynd-
skurður, listmunagerð, blómaverzlun, um-
boðsverzlun, fornverzlun, Ijósmyndun,
klæðskerar, hattasaumastofur, rakara- og
hárgré’iðslustofur, söluturnar og verzlanir
opnar til kl. 23,30, verzlun með sportvör-
ur, skartgripi, hljóðfæri, tóbak og sælgæti,
kvikmyndahús, sælgætis- og efnagerðir,
gull- og silfursmíði, fjölritun, lyfja- og
hreinlætisvöruverzlanir svo og hvers kbn-
ar önnur gjaldskyld starfsemi ó. t. a.
Þeim, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og
eignarskatts í Hafnarfirði, en eru aðstöðugjalds-
skyldir þar, ber að senda Skattstofu Ha£parfjarðar
sérstakt framtal til aðstöðugjalds innan 15 daga
frá birtingu þessarar auglýsingar.
Þá er og þeim, sem reka margþætta atvinnu, þann-
ig að útgjöld þeirra teljast til fleiri en eins gjald-
flokks, skv. ofanskráðri gjaldskrá, bent á að senda
skattstofunni, sundurliðun á gjöldum þeirra árið
1961 í aðstöðugjaldaflokka, til skýringar áður send-
um framtölum, hið allra fyrsta og eigi síðar en 4.
ágúst n.k.
Hafnarfirði, 21. júlí 1962
Skattstjórinn f HafnarfirSi.
Garðyrkjumaður
Garðyrkjumaður getur fengið atvinnu við garð-
yrkjustöðina Neðri Ás, Hveragerði 1. sept. n.k.
Húsnæði fylgir. — Upplýsingar gefur Guðjón
Björnsson, garðyrkjustjóri, Hveragerði, sími 104.
VARMA
PLAST
EINANGRUN.
Þ. Þorgrfmsson & Co.
Borgartúni 7 Sími 22235
TÍ MINN, JaiicárdaBuriiVí' — -