Tíminn - 02.08.1962, Side 3
LAUSN ALS R-DEILU
KUNNGJORÐ I DAG?
NTB-Algeirsborg, 1. ágúst.
aöalstuöningsmaöur
Ben Beila, varaforsætis-
ráöherra og formanns 7-
manna stjórnarnefndar-
innar í Alsír, Mohammed
Khider lýsti því yffir í dag,
a'ð deiluaðilar í Alsír
myndu á morgun, fimmtu bjartsýni, sagði Khider.
dag, leggja fram sættar-
gerð, og væri þar með
lokið mánaðarlangri deilu
miili foringjanna um völd
in í landinu. Þessi lausn
mála mun gefa þjoðinni
nýja von og fylla hana
Khider lét þessi ummæli frá sér
fara, eftir að hafa setið í þrjár
klukkustundir á fundi með aðal-
andstæðingum Ben Bella, þeim
Balkacem Krim og Mohammed
Boudiaf, ásamt Mohand Ouel Hadj,
ofursta og yfirmanns 3. héraðs-
hersins. Reiknað er með að sættar
gerðin verði birt opinberlega að
loknum nýjum viðræðufundi á
morgun.
Strax að loknum fundi í dag
fór Khider til Oran, til að gefa
Ben Bella skýrslu um viðræður
sínar, en Krim sagðist fara til
Tizi Ouzou í Kabýla-héraði, en
koma að vörmu spori aftur til Al-
geirsborgar.
Khider sagði eftir fundinn í dag,
að allir íbúar í Alsír væru orðnir
þreyttir á stjómmálaþrefinu í
landinu og vildu skjóta lausn.
Síðdegis ákvað Ben Bella að
fresta för sinni og stjórnarnefnd-
arinnar til Algeirsborgar, sem ráð
gerð hafði verið í dag, þar sem nú
væru svo góðar horfur á endan-
legri lausn deilunnar.
Strangara frétta- #
eftirlit í Katanga
NTB-Elizabethville,
30._ júlí.
FRA ÞVÍ var skýrt í Eliza
betville í dag, að Tshombe,
valdamaður í Katanga hefði
gefið út skipun um strang-
ara eftirlit með útvarpssend-
ingum vegna þess, að í síð-
ustu viku var í frétt einni
ráðizt liarkalega að Samein-
uðu þjóðunum og ummæli
hö’fð um U Thant, sem voru
freklega móðgandi. Þá var
og deiit á stjórnina í Leo-
poldville. Sagt er, að Tshom
be vilji koma i veg fyrir að
slíkt endurtaki sig, því að
svona fréttaþjónusta geti
veikt menn í trúnni á yfir-
lýstan vilja hans til að ráða
málum í Kongó, friðsamlega
til lykta.
7
IL. ' ,
Síðast liðin tvö ár hafa Svíar
beitt með mjög góðum árangri
nýrri og stórmerkilegri aðferð til
| að lífga við andvana-fædd börn og
börn, sem fæðast fyrir tímann. Að-
fcrðin er í stuttu máli fólgin í þvi,
að börnin eru kæld í ísköldu vatni
þegar eftir fæðinguna. Hefur að-
ferð þessi mikið verið notuð við
Sabbatsbergs-sjúkrahúsið síðan ár-
ið 1960.
með höfuðið eitt upp úr vatninu.
Að þessari kæliugu Iokinni er
barnið svo flutt í hitakassa, þarí
sem það er látið vera hæfilega!
langan tíma.
I
i
Telja Svíar, að með þessari að-
ferð hafi tekizt að vekja mörg börn
til lífsins.
~ ]
Á myndinni sést hjúkrunarkona,
Brita Bröms, sem vinnur við
NTB—Lundúnum og Briissel,
1. ágúst.
I dag hófust að nýju
viðræður um Efnahags-
bandalag Evrópu i Briiss-
el, og á sama fíma var
væntanleg aðild Breta að
bandalaginu tekin til um-
ræðu i efri deild brezka
þingsins og hafði Home,
utanríkisráðherra, fram-
sögu.
Home sagði m. a., að hann ætti
bágt með að trúa því, að gagn-
kvæm viðskipti Bretlands og sam-
veldislandanna . næstu 50 árin
myndu svara til þarfa hvors um
sig, ef Bretland stæði utan EBE.
Vandamálið er ekki það eitt, hvort
Bretland eigi að gerast aðili að
EBE, heldur hitt, hvort það muni
gera góð viðskipti með inngöngu
cagði Home.
Home sagði ennfremur, að
áhrifa EBE gætti æ meir, er rætt
væri um framtíðarskipan mála í
Evrópu, bæði stjórnmálalegra og
pólitískra, en þessir tveir þættir
væru samslungnir.
Brezka stjórnin verður fyrst og
fremst að hafa markaðsmöguleik-
ana í Evrópu í huga, og þvi má
hún ekki gleyma, að hún ber
ábyrgð á lífi og vclferð nær 50
milljónum manna, sagðj Home. í
lok framsöguræðu sinnar vék
Home að samveldislöndunum og
s-agði, að þau yrðu að líta raun-
hæft á málið, enda væru hagsmun-
ir þeirra og hagsmunir Bretlands
eitt og hið sama.
MÚTMÆLI
Eftir fæðinguna er barnig eða
fóstrið lagt þegar í stað í flát með „ ., . . ... , . ,,,
ísköldu vatni og látið liggja þar Sabbatsberg-sjukrahus.ð. hta eft.r
um kyrrt í um það bil sólarhring, I barni, sem er í kælivatninu.
NTB-Helsingfors, 1. ágúst.
í BRÉFI til Karjalainen í dag,
mótmælir yfirstjórn heimsmóts
æskunnar árið 1962 og stjórn
finnsku þátttakendanna í mótinu,
skrílslátum ungmenna í sambandi
við mótið, sem átt hafa sér stað.
Vélin fórst af
nannavöldum
NTB-Washington, 1 ágúst.
FRÁ ÞVÍ var skýrt í dag,
að óyggjandi sannanir hefðu
nú fengizt fyrir því, að Bo-
eing-707 flugvélin, sem
fórst á lciðinni frá Chicago
til Kansas City, þann 22.
maí s. 1., hafi verið grandað
af mannavöldum.
Thomas Doty frá Kansas
City sem var einn farþega,
er nú talinn sannur að sök
um að hafa komið dýnamíti
fyrir á salerni í flugvélinni
í þeiin tilgangi að granda
henni.
Thomas hafði keypt mik-
i'ð af sprengiefni skömmu
fyrir ferðina og líftryggt sig
fyrir 300.000 dollara.
Skilyrði Tshombe
fyrir sameiningu
NTB-Elizabethville, 1. ágúst.
MOISE TSHOMBE, valda-
ma'ður í Katanga gaf í dag
út opinbera yfirlýsingu þar
sem segir m. a., að hann
hafi skýrt talsmönnum SÞ
frá því, að hann fallist á
samciningu Katanga og Kon
gó, með því skilyrði að ein-
stökum héruðum landsins
verði veittur sjálfstjórnar-
réttur innri málefna, skv.
stjórnarskrárákvæði.
Ulbricht i Moskvu
NTB-Moskvu, 1. ágúst. —
Vestrænir fréttamenn
skýrðu frá því í dag, að
Walter Ulbricht, forsætisráð
herra A-Þýzkalands væri
kominn til Moskvu, og telja
þeir hugsanlegt, að heim-
sóknin standi í sambandi við
væntanlegan sérsamning
milli A-Þjóðverja og Sovét-
ríkjanna, en líkur eru taldar
á slíkum samningi þegar á
hausti komanda, segja frétta
tnenn.
TIMINN, fimmtudaginn 2. ágúst 1962
3