Tíminn - 16.08.1962, Síða 3
LENGSTU GEIMFERÐ
SOGUNNAR ER LOKID
nákvæmlega heílu og höldnu í geim-
skipi sínu, Vostok 3., á
auðu landsvæði skammt
fyrir sunnan Karaganda í
Klukkan
Fimm mínútum fyrir sjö í
morgun eftir íslenzkum
tíma lenti sovézki geim-
farinn Andrian Nikolajev sovézka lýöveldinu Kazak
SOVÉZKU gehnfaramir tveir, Andrian Grigorévltsj Nikolajev og
Pavel Romanaovltsj Popovitsj, hafa með geimflugi sínu slegið öll
fyrrl met [ gelmferðum og rutt brautina fyrlr væntanlegum tungl-
förum. Þetta er í fyrsta sinn, sem tvö geimför fara á brsut um jörðu
samtfmls.
•
ÞEtR FÉLAGAR hafa farið samanlagt rúmlega 4 milljónir kílómetra
úti ( himingeimnum og er jjað tíföld vegalengdin til tunglsins. —
Nikolajev var skotið á loft I geimfari sínu á laugardagsmorgun og
hefur farið 64 hrlngferðlr um jörðu, en Popovi'fsj 48 ferðir. Niko-
lajev var rúmlega 94 klst. á lofti.
MEÐ GEIMFERÐUM þessum hafa Sovétríkin náð forystunni í geim-
vísindum og aukið möguleikana á að verða á undan Bandaríkja-
mönnum að senda gelmfar til tunglsins. Bandarískir vísindamenn
haifa sent sovézkum „kollegum" slnum helllaóskir og látið í Ijós
von um að fá að njóta upplýsinga frá geimförinni.
GEIMFERÐIR þessar fóru í alla staði fram samkvæmt áætlun og
ekkert kom fyrir í lendingu. Enn er ekki vitað um stærð geimskip-
anna, en geimfararnir lentu þeim sjálfum á jörðlnni, Hamingjuóskir
berast tll Sovétríkjanna hvaðanæva að úr heiminum. Mikil hátíða-
höid eru ráðgerð í Sovétríkjunum til að fagna sigrinum.
NIKOLAJEV geimfari er 32 ára að aldri, fæddur í Sjorspelí við
Volgu. Hann er major í Rauðahernum og reyndur orrustuflugmað-
ur. Hann er meðlimur kommúnistaflokks Sovétríkjanna. — Popo-
vitsj er einnig 32 ára, fæddur í Usin. Hann hefur verið í hernum
síðan árið 1951 og er meðlimur kommúnistaflokksins. — Hann er
kvæntur maður, en Nikolajev ekki.
stan, og sex mínútum síð-
ar sveif féiagi hans Pavel
Popovitsj til jarðar í sínu
geimfari, Vostok 4. á
sama stað, eftir frækn-
asta geimflug, sem um
getur til þessa.
Samkvæmt fréttum Tass-frétta-
stofunnar svifu geimfararnir til
jarð'ar í geimskipunum sjálfum og
er það í fyrsta sinn, sem slík lend-
ing er framkvæmd á fastlendi.
Fyrri geimfarar Sovétríkjanna,
Gagarín og Títov voru látnir svífa
til jarðar í fallhlífum, eftir að hafa
verið skotið út úr geimskipunum í
lítilli hæð.
Bandarískir geimfarar hafa all-
ir lent á haffleti.
Lengsta geimferð
sögunnar
Samkvæmt opinberum tilkynn-
ingum fór Nikolajev 64 hringferð-
ir umhverfis jörðu, var 94 klukku-
stundir og 15 mínútur á lofti og
fór milljón kílómetra vega-
lengd, en Popovitsj fór 48 hring-
ferðir og 2 milljónir kílómetra og
er samanlögð vegalengdin tíu sinn-
um ferð til tunglsins. Er þetta
lengsta geimferð sögunnar og í
fyrsta sinn,- sem tvö geimför eru
samtímis á braut umhverfis jörðu
með sambandi sín í milli. Báðir
geimfararnir voru við hestaheilsu
er þeir komu til jarðar.
Tunglflug næsta skrefið
Strax og geimfararnir voru
komnir til jarðar voru þeir flutt-
ir með þyrlum til geimvísinda-
stöðvarinnar, þaðan sem þeim var
s'kotið á loft og gengu þeir þegar
i stað undir nákvæma læknisrann-
sókn.
Samkvæmt rannsóknum, sem
þegar liggja fyrir er ljóst, að bæði
lífeðlisfræðilega og efnafræðilega
er ekkert því til fyrirstöðu, að
niaður geti lifað af ferð til tungls-
ins, en slík ferð er talin vera næsta
skrefið á þessu sviði vísinda.
Næstu dagana mun læknisfræði-
legar rannsóknir halda áfram og
verður ekkert gefið upp fyrr en
Frai.ihalrt a 15 siOu
Samiö um V-N-Guineu
NTB — New York, 15. ágúst.
Hollendngar og Indónesar hafa
náð fullu samkomulagi um valda-
yfirfærsluna í Vestur-Nýju-Guineu
og munu Indónesar taka alla stjórn
að sér á eþssu landsvæðj sam-
kvæmt samningnum.
Formlegur samningur mun
verða undirritaður klukkan 9 í
kvöld að íslenzkum tíma.
Frá Haag bárust hins vegar þær
fréttir síð'degis, að viðræður hol-
lenzkra og indóneskra fultlrúa á
ráðstefnunni í New York myndi
verða haldið áfram í dag og benda
fréttamenn á, að þessar viðræður
geti haft í för með sér frestun á
undirritun samningsins. Ekki var
greind nein ástæð'a fyrir þessari
breytingu mála í tilkynningunni
frá Haa.
MYND ÞESSI er tekin, er jarðgöngin gegnum Mont Blanc ná'ðu saman og ítalskii og franskir verkaniénn boruðu lítið gat (um 20 sm i
þvcrmál) í gegnum síðasta haftiö, t>l þess að geta skipzt á kveðjum og kampavíni. Þa8 er verkstjóri frönsku vcrkamannanna, sem sézt
é myndinni taka á móti rauðvínsflösku frá ítölskum vcrkamönnum hinum niegin við gati'ð. í dag átti formleg vígsla ganganna að fara
fram, en I notkun verða þau ekki tekin fyrir umferð fyrr en haustið 1963 eða í byrjun árs 1964.
Verkfall i geim-
rannsóknarstöö
NTB-Huntsville, Alabama,
15. ágúst. — í dag gerðu
starfsfólk við Marshallgeim
rannsóknarstöðina í Hunts-
ville í Alabama í Banda-
ríkjunum verkfall, sern tal-
ið er að muni hafa alvar-
legar afleiðingar fyrir áætl
anir vísindamanna um send
ingu geimfars til tunglsins.
Talsmaður vísindastöðvar-
innar sagði í dag, að verk-
fallið myndi koma illa niður
á sex liðum hinnar svo-
nefndu Saturn-áætlunar.
Ausfur-þýzkur
vöröur skotinn
NTB-Berlín, 15. ágúst. —
Austur-þýzka fréttastofan
ADN staðfesti í dag þá
frétt, að einn austur-þýzkur
varðmaður, Rud Arnstadt,
höfuð'smaður, hefði fallið fyr
ir byssukúlum véstur-þýzkra
hermanna í átökum, sem
urðu við Berlínarmúrinn í
gær.
Austur-þýzk yfirvöld hafa
borið fram harðorð mótmæli
vegna þessa atburðar, sem
þau segja algerlega sök
vestur-þýzku varðanna.
Fréttastofan segjr, að aust-
ur-þýzkir verðir hafi skotið
aðvörunarskotum að vestur
þýzkum varðmönnum, sem
komnir voru inrP á austur-
þýzkt yfirráðasvæði. 1 stað
þess að hverfa brott hafi
vestur-þýzku verðirnir haf-
ið skothríð, sem hafði fyrr-
greindar afleiðingar.
í dag mátti af og til heyra
skothríð við Berlínarmúr-
inn.
Bandarísk flugvél
skotin niöur
NTB-Vientiane, 15. ágúst.
Bandarísk flugvél af gerð-
inni F-1019, var í dag skot-
in niður, er hún var á flugi
yfir Krukkusléttu í Laos.
Það voru loftvarnasveitjr
hlutlausa hersins i Laos,
sem skutu á flugvélina, sem
hafði komið, að því er talið
er, í óleyfi frá. Thailandi
inn fyrir landamæri Laos.
MIG-flugvélar
geröu
aras
NTB-Istanbul, 15. ágúst.
Síðdegis var frá því skýrt
opinberlega í Istanbul, að
tvær MlG-orrustuþotur
hefðu gert vélbyssuárás á
landamæraverði við Zubar-
uk-varðstöðina í suðaustur-
hluta Tyrklands, með þeim
afleiðingum, að einn varð-
anna féll og tveir særðust. |J
Flugvélar þessar voru frá
írak og hafa verið borin
fram mótmæli við stjórnina
í Bagdad. Svipaðar árásir
hafa áður átt sér stað.
Afvopnunarsamn-
ingar i tvennu lagí
NTB-Genf, 15. ágúst. —
ítaiski fulltrúinn á afvopn-
unarráðstefnunni í Genf
lagði til á fundi ráðstefn-
unnar í dag, að gerður yrði
afvopnunarsamningur í
tvennu lagi. Annars vegar
yrði samið um bann við til-
raunum með kjarnorku-
vopn í háloftunum, en hjns
vegar um bann við neðan-
sjávartilraunum.
Þetta er í fyrsta sinn, að
vestrænn fulltrúi leggur til,
að gerðir verði aðákildir
samningar um bann við
kjarnorkutilraunum.
T í M I N N, fimmtudaginn 16. ágúst 1962.
3