Tíminn - 16.08.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 16.08.1962, Blaðsíða 8
Getur leitt til sölu- stöðvunar búvara Mánudaginn 13. ágúst fór fram að Laugum í Suður-Þing- eyjarsýslu fundur, sem efa- laust er um margt nokkuð ein- stakur í sinni röð. Til fundar- ins liggja þær ástæður, að fyr- ir skömmu ákvað stjórn Bún- aðarsambands Suður-Þingey- inga, að gera tilraun til að ná saman fundi, þar sem mættir væru stjórnarnefndarmenn allra búnaðarsambandanna á svæðinu frá Strandasýslu til Austur-Skaftafellssýslu, að báðum þeim sýslum meðtöld- úrin, ásamt fulltrúum á Stéttar- sambandsþingi, af sama svæði. Þarna skyldi ræða: Afurða- sölulögin og verðlagningu landbúnaðarvara. Vel sóttur fundur Fundurinn var mjög vel sóttur, eða með öðrum orðum skorti ekki nema örfáa, af þeim, sem rétt höfðu til fundarsetu, en mættir verði ekki hlutur bænda réttur! - Niðurstaða vel sótts fundar stjórna búnaðarsambanda á Norður- og Austurlandi, að Laugum. - Rætt við Hermóð Guðmundsson, bónda í Nesi voru rúmlega 40 fulltrúar. Auk fulltrúa voru og þarna mættir Sverrir Gíslason í Hvammi, for- maður Stéttarsambands bænda, er i'ndreki þess Kristján Karlsson og þeir stjórnarmeðlimir Stéttarsam- bandsins, sem búsettir eru á fund- arsvæðinu. Sunnudaginn fyrir fundinn var haldinn undirbúningsfundur heima í Árnesi. Sátu hann eftirtaldir full-, ir fundinn. Fólu ályktanir þessar sem samþykktar voru að mestu óbreyttar í sér bætta aðstöðu land búnaðinum til handa. Verða þær birtar í blaðinu, sem heild, ein- hvern næstu daga. Taldi fundur- inn, að yrði hagur bændastéttar- innar ekkj bættur verulega, þá væri ekki annað fyi'ir dyrum en grípá til þess óyndisráðs að setja sölustöðvun á landbúnaðarafurðir. trúar: Hermóður í Árnesi, Baldur Almenn ánægja með fundinn Baldvinsson á Ófeigsstöðum, Fréttamaður Tímans kom í Laug- Þrándur Indriðason á Aðalbóli, ar um það bil er fundinum var að Þorsteinn Sigfússon á Sandbrekku, | jjúka> en það var a eliefta tíman- Sveinn Jónsson á Egilsstöðum, j um á mánudagskvöldið. Fundi Þórarinn Haraldsson bóndi í Lauf- bafði þá verið slitið og voru fund- ási og Kristján Karlsson, erindreki j Stéttarsambands bænda. Samdi fundur þessi drög að ályktun fyr- Vegur yfir Þegar frétfamaður frá Tím- anum var staddur ■ Reynihlíð við Mývatn, bar saman fund- um þeirra Péturs hreppstjóra í Reynihlíð, en hann er verk- stjóri hjá Vegagerð ríkisins. Var Pétur nýkominn frá vega- lagningu inn við Öskju. Pétur í Reynihlíð er löngu lands- j kunnur maður, sem óþarft er að kynna nánar. — Já, þú ert nýkominn ofan frá Öskju Pétur? — Já, ég er nýkominn þaðan. — Vegarlagning? — Já, þeir fóru í mikinn leið- angur inneftir Guðmundur Bene- diktsson, yfirvegaverkstjóri á Ak- ureyri og Snæbjörn Jónasson, verk fræðingur. Þegar Guðmundur kom aftur heim innan frá Öskju hringdi hann til mín og bað mig að fara inneftir með ýtu TD-9 og athuga hvort hún inni á hrauninu, með það fyrir augum að leggja þar veg yfir. Jæja, við lögðum af stað inn- eftir með ýtuna, fórum héðan þriðjudagskvöldið 31. júlí, og kom- umst að hraunkambinum, þangað sem bílar hafa lengst farið í sum- ar. Þar byrjaði ýtan að ýta klukk- an 3,30 á miðvikudag og vann tafa- lítið til klukkan 11 á föstudags- kvöldið. Það skal ég taka fram, að ýtumennirnir voru tveir og unnu til skiptis. — Nú, á föstudagskvöld- ið var hún búin að ryðja fjóra og hálfan kílómetra, mest á nýja hrauninu, eitthvað tæpur kíló- metri neðan við það. Og þá eru ekki eftir nema eitthvað 500 metr- ar að gígunum, og sú leið er yfir helluhraun, og helluhraun er ekki hægt að vinna. En ég hefi trú á því, að’ finna megi aðra leið að gígnum. Innan við gSgana má keyra á vikursléttum inn að vatn- inu. — Eg hefi heyrt að það hafi orð- íð til ný örnefni í þessari ferð. — Já, það urðu til nokkur ný örnefni þarna meðan við vorum við vegarlagninguna. Það er svo anzi óþægilegt þegar landslag heit ir ekki neitt. Eg gaf ýmsum stöð- um nöfn, til að hafa eitthvað að miða viö. Ef til vill færu þessi nöfn ekki svo illa á korti. — Varðstu var við marga þarna innfrá? — Já, það var þarna fjöldinn allur af ferðamönnum, bæði á sunnudaginn og endranær. Bæði íslenzkir og útlendingar. armenn, sem óðast að búa sig heim. Var það auðsjáanlegt á svip þeirra allra, að þarna hafði verið eindrægni og samhugur. Frétta- maður rakst þá einmitt á Svein bónda Jónsson á Egilsstöðum og innti hann álits á fundinum: „Feiknagóður fundur og árangurs- ríkur — óvenjulega samhuga fund- ur“ varð Sveini bónda að orði. Og í sömu átt hnigu álit þeitra ann- arra, er fréttamaður hafði tal af. Fundarhættir Það var upphaf fundarins að for maður Búnaðarsambands Suður- Þingeyjnga, Hermóður Guðmunds- son ávarpaði komumenn og setti fundinn. Nefndi hann síðan til fundarstjóra Þorstein bónda Sig- fússon á Sandbrekku, en hann skip- aði fundarritara þá Baldur Bald- vinsson á Ófeigsstöðum og Ár- mann Dalmannsson á Akureyri. Náð tali af Hermóði í Árnesi Hermóður í Árnesi varð fúslega við þeirri bón fréttamanns að segja lesendum Tímans nokkuð frá gangi mála á fundinum. —Hvað var það einkum Her- móður, sem knúði ykkur til þessa fundar? — Það sem einkum varð þess valdandi, að til þessa fundar var boðað, og svo einstæður einhugur varð um þátttöku í honum af öllu þessu stóra svæði, sem meiri hluti allra bænda landsins hafa búsetu á, var fyrst og fremst hin rangláta og óhagstæða niður- staða yfirdómsins um afurðaverð bænda, síðastliðið haust, og sí- vaxandi hallarekstur á búrekstr- inum, sem stafar af skökkum verð lagsgrundvelli um fjölda ára, er framleiðendur hafa ekki getað kom ið fram nauðsynlegum leiðrétting- um á, vegna andstöðu fulltrúa neyt enda. Við þetta bætist svo hin óhag stæða veiðlagsþróun í efnahagslífi þjóðarinnar um langt árabil, og endurteknar gengisbreytingar, sem hafa bitnað harðar á bændastétt- inni en öðrum framleiðslustéttum þjóðarinnar, vegna þess hve land- búnaðurinn framleiðir lítið til út- flutnings, en krefst aftur á móti meira stofnfjár hlutfallslega, en annar atvinnurekstur. Er því svo komið að taka veiður stóraukið tillit til vaxta og fyrningaafskrifta við verðákvarðanir landbúnaðar- Framhald á bls. 13. Vindmyllan á Dybböl ás — DYBBOL MOLLE — hefur verið, er og mun framvegis verða varðturn og minnismerki við landamærl Norðursins. Hér gnæfir hún á ásnum í útjaðri Sönderborgar. Ilsland hefur sendiherra bú- setta erlendis til þess að leysa ýmis þau verkefni og vandamál, sem að höndum bera og varða viðskipti okkar við aðrar þjóð ir. En þess ber að minnast, að þeir eru fleiri sendiherrarnir íslenzku í öðrum löndum en þeir, sem þann titil bera opin- berlega. Hver einasti íslend- ingur, sem dvelur með öðrum þjóðum, er fulltrúi þjóðar sinn- ar þar, á einn eða fleiri vegu, og ýmsir þeirra manna og kvenna, er uppruna sinn og ætt eiga hér úti á íslandi, og með . öðrum þjóðum dvelja og starfa a langvistum, eru ágætir sendi- Í herrar þjóðar sinnar og hafa ■ sumir sérstök skilyrði til þess » að kynna land sitt og þjóð. — H Einn þessara aðila er Jón Þor- steinsson frá Dalvík, en hann hefur um meira en tvo áratugi verið kennari í dönskum alþýðu skólum og því komizt í snert- ingu og tengsl við fjölda fólks, - ungra manna og kvenna, sem sótt hefur þá þrjá skóla, sem hann hefur verið kennari við, og svo þar að auki í oddvita- starfi, sem honum hefur verið falið innan landssamtaka í- þróttahreyfingarinnar þar í landi. Sem sérstakur liður í hlut- verkum hans hefur verið sá, að hlutast til um, að nemendur hans og nemendur annarra skóla færu til íslands til starfs og kynningar um skeið og fyrir hans tilstilli hafa hundruð ungra manna og kvenna komið hingað til starfa, aðallega í sveitum, undanfarin 14 ár ÍEinnig það hlutverk hefur sína þýðingu. þegar stuðla skal að auknum kynnum þjóða í milli, og það mun óhætt að fullyrða. að einmitt þetta atriði má telja l- mikilsverðan þátt í norrænni ^amvinnu. Fer einkar vel á því, k'“~' ii .... W að frá landamærum Norðurs- ins þar lengst í suðri, sé dyggi- lega að því unnið að efla sam- stillingu og samskipti fólksins um gjörvöll svæði þess, allt frá Dybböl í suðri til Grímseyj- ar og Spítsbergen í Dumbshafi. Ég hef víða farið um Dana- veldi, en í fyrsta sinn í sumar heimsótti ég Sönderborg og þá auðvitað fyrst og fremst „sendi herrann" okkar þar, er ste'nd- ur á kennaraskóli íþróttaskól- ans, sem hóf starf fyrir 10 ár- um og skipar þar ungu fólki til verka, til atgjörfis og dáða. Og skal nú litast um frá DYBBÖL MÖLLE og IDRÆTS- HÖJSKOLEN. ★ A ýmsum stöðum í ríki Dana konungs eru lönd frjósöm og víðast eru þau vel yrkt,- En mundi nokkurs staðar fara sam an þetta tvennt í fyllra mæli en einmitt hér við Sönderborgsund og á eynni Als? Það er hæpið. Og svo bætist við veðursældin, sem hér ríkir. Allt er þetta samverkandi til þess að skapa hér ofurlitla „paradís". Hér stöndum við á Dybböl- ásnum. í baráttunni milli Norð urs og Suðurs hafa þessar hæð- ir og þessar sléttur umhverfis- ins eitt sinn — nei mörgum sinnum — verið blóði drifnar. ' Hér hafa styrjaldir staðið Hér hafa lönd skipt um eigendur og til skiptis verið þýzk og dönsk. Hvergi er þjóðerniskenndin sterkari en hér og hvergi er landið gjöfulla en hér. Hér haldast í hendur mannlegar kenndir og gjöfular lendur, tvær meginstoðir er treysta til- veru fólksins og tengsl þess við ættarreiti. Og hér á næstu slóð eru vaxandi meiðar athafna af ýmsu tagi, en um þau atriði skal ekki rætt nú. Já, hér hafa staðið útverðir 8 T T ÍVÍ I N TVT fímnifiiiilacrÍTin Ifi ácfijqt IflfiSL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.