Tíminn - 16.08.1962, Blaðsíða 9
Gísli Kristjánsson:
Heimsókn í íþróttaskólann í Sönderborg, þar
sem ýmsir Íslendingar hafa stundað nám, og
Jón Þorsteinsson er kennari
Norðursins, mannlegar verur
með holdi og blóði, og blóð
sumra þeirra hefur vökvað fold
og mold fyrir löngu.
Nú stendur myllan hér, hún
gnæfir hátt en virkin í ásnum
eru öll grasi gróin eða öðrum
gróðri vaxin — vottandi, að
friðsæld ríkir nú um gjörvallt
Norðrið og einnig hér á þess-
ari fyrrverandi Heljarslóð.
Það fer vel á því að þetta
merki stendur og það er vel
viðeigandi, að hér hefur risið
menntasetur —skóli, sem að
hornsteinum hefur þjóðlega
kennd, og þjóðernistilfinningar
minningu hins horfna konungs.
★
Ég hef heimsótt bændaskóla,
húsmæðraskóla og alþýðuskóla
utíi gjörvalla Danmörku og hlið
stæður slíkra stofnana í öðrum
löndum, en ég efast um, að
annars staðar sé vandaðri
rammi skapaður um skólaskil-
yrði öll en einmitt hér í Sönder
borg. Að byggingarnar eru nýj-
ar gerir náttúrlega sitt til að
allt verður aðlaðandi. En þar
e„ líka leitazt við að allt sé
auðvelt í umgengni og hagrænt
í starfi. Þetta virðist hafa tek-
izt og svo bætist þetta við, sem
Longu byggingarnar eru til afnota viS kennslu og sem nemendaherbergi. Milli þeirra eru skrautgarS-
arnir. Lengst til hægri er sundhöllin en stærsta byggingin, neðst á myndinni, er íþróttahöllin, byggð í
fornum stfl, áttstrend eins og Trelleborg miðaldanna.
NEMENDUR REÐUST GJARN-
AN TIL STARFA Á ISLANDI
að byggingarefnum. Hér fer
fram mennt líkamans og anda,
og hingað sækja nemendur frá
gjörvöllu Norðri, en náttúrlega
þó fyrst og fremst frá heima-
landinu.
Skólinn heitir íþróttaskóli en
hann er raunar fyrst og fremst
venjulegur danskur alþýðuskóli
eins og þeir gerast í Danmörku,
en þar að auki er sérstök stund
arskrá fyrir hóp þeirra manna
og kvenna, sem hyggja að
menntast til þess að verða leið-
togar æskufólks í heimasveit-
um á sviði almennra íþrótta.
★
Það var árið 1947 að hafizt
var handa um framkvæmdir á
þessum stað. Á bak við fram-
takið stóðu traustir stofnar þjóð
legra viðhorfa og við upphaf
framkvæmda bauðst meginás
þar sem sjóður einn digur, sem
þjóðin hafði fært Kristjáni kon
ungi X. treysti framtakið.
Úr sjóði þeim hefur verið
varið þrem milljónum danskra
króna til þess að byggja og
fegra skólann og umhverfi
hans. en sjóðnum var ætlað það
hlutverk að „skapa varanlegt
minnismerki um Kristján X. og
svo til minningar um þá mörgu
Dani, sem létu lífið af völdum
styrjaldarinnar á. árunum 1940
—1945“.
Og það er vissulega veglegt
minnismerki, sem þarna hefur
verið skapað, Byggingarnar eru
reistar umhverfis tvo skraut-
garða: Konungsgarðinn og
Drottningargarðinn, og í þriðja
lagi er svo Friðarhöllin, en með
þessu skyldi heiðrað varanlega
minningin, sem tengd yrði við
musterin, sem þarna þjóna
sTíólahaldi. þjóna vaxandi æsku
landsins og annarra. er þangað
sækia til að efla andans mátt
og líkamans styrk.
Hornsteinninn var lagður
þann 15. júní 1950 og hinn 1.
maí 1952 opnaði skólinn dyr
sínar fyrir fyrstu nemendurna
og þann 15. maí sama ár. á 40
ára konungsafmæli Kristjáns X
var skólinn vígður að viðstaddri
konungsfjölskyldunni, sem á-
samt aðstandendum skólans og
með þjóðinni allri heiðruðu þar
er við aðra skóla yfirleitt, lista
verk eru sköpuð fyrir fjármuni
minningarsjóðsins. Og svo er
þarna sundhöll — ekkert ein-
stakt fyrirbæri lengur við
skóla, en hún var hin fullkomn
asta um þær mundir, sem hún
var reist og er meðal þeirra
hagrænustu á Norðurlöndum.
Loks er svo að nefna síðast;.
stóra mannvirkið, og að ýmsu
hið eftirtektarverðasta, en það
er hið mikla íþróttahús, Friðar
höllin. Hún er í fyrsta lagi sér
stætt hús vegna stærðar og lög
unar, og er reist með hið forna
mannvirki í Trelleborg sem fyr
irmynd, en rústfr borgar þeirr-
ar voru grafnar upp fyrir nokkr
um árum. Höll þessi er raune
áttstrendingur — hún mjókkar
til beggja enda — og svo eru
engir gluggar á henni nema á
þaki. Að í þessum mikla geim,
innan veggja, er ekkert berg-
máJ, stafar af því, að tæknifræð
ingarnir hafa hlutazt til um, að
þar eru fæstir fletir sléttir, en
flestir ójafnir á yfirborði.
Þær ráðstafanir hafa gefið
húsinu hið innra svo sérkenni-
legt útlit, sem naumast verður
lýst, en helzt þarf að sjá svo að
skilið verði, hvernig allt hljóð
kafnar í svo miklum salarkynn
um úr steini og gleri.
★
Skólastjórinn' heitir Sögárd
Jensen. Það er almannarómur.
að undir hans stjórn farnist
öllu vel á þessum stað, bæði í
venjulegu skólahaldi og svo
þeim kynningarnámskeiðum
sem þar eru haldin.
Að sjálfsögðu hvílir ekki
vandinn allur á einum herðum
Við hlið skólastjórans er vel
valið lið. einvalalið, rétt eins
og þagar Danir skipuðu til orr
ustu forðum á hæðunum við
Sönderborgsund og á Dybböl-ás
í hópi kennaranna er Jón Þor
steinsson, svo sem fyrr er að
vikið. Það hvílir á hans herðum
að skipa til öndvegis þeim
greinum íþrótta. sem af frjáÞ
um vilja eru valdar og at
frjálsu fólki eru iðkaðar, til
þess síðar að geta orðið frjálsir
leiðtogar vaxandi ungmenna !
Framhald af 9 síðu
■ i wm
Ljósið kemur allt í gegn um þaklð, Vegglr og ris er þannlg, að hljóð endurvarpast ekki svo að berg.
mál myndist. Þannig gerður iþróttasalur er ákjósanlegur til iþróttalðkana.
í dagstofu skólans eru blöð og tímarit í hillum til afnota og svo flygili fyrir þá sem iðka vilja hljómlist.
T í M I N N, fimmfcnda«»i»»* m A-nfirf 1963.