Tíminn - 16.08.1962, Blaðsíða 12
s VS f. & / , t , , f 4
iáiémámmmimmimlmiiimimi^mmiiimmUiiiáiiááááMiiláámimmtmtmtiáámiámmii
ýf-ýy'yyyýý-ý :'x^:::-: :
•>w >:•:* :::<::v::x< >:>
liilililc
ÍÞRÚTTIR
Valur
RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON
vann
óverð-
skuldað stig gegn KR
Jafntefli hjá iiðunum í gærkveldi 2-2
Eftir langt hlé hélt íslands-
mótið í knattspyrnu áfram í
gærkvöldi á Laugardalsvellin-
um og mættust þá hinir gömlu
keppinautar KR og Valur.
Jafntefli varð í leiknum 2—2
og mega Valsmenn teljast
mjög heppnir að ná stigi af
KR. Leikurinn var heldur slak
ur framan af en síðan náði KR
yfirtökunum og hafði um tíma
tvö mörk yfir, en Valur hafði
varla átt hættulegt upphlaup.
Þegar langt var liðið á síðari
hálfleik skoraði Matthías
Hjartarson beint úr horn-
spyrnu fyrir Val, og tveimur
mínútum fyrir leikslok jafnaði
Bergur Guðnason.
Eftir þessi úrslit eru mögu-
leikar þessara liða mjög litlir
til sigurs í mótinu, þar sem
þau geta nú mest komizt í 13
stig og ólíklegt að sú stigatala
Staðan
í mótinu
STAÐAN í mótinu er nú
þannig:
Akranes
Fram
Valur
KR
Akureyri
isafjörður
LUJ T
7 4 2 1 17:8
7 3 3 1 13:5
8 3 3 2 11:6
8 3 3 2 16:10
8 4 0 4 18:16
8 0 17
nægi til sigurs. Baráttan um
íslandsmeistaratitilinn stend-
ur nú fyrst og fremst milli
Akraness og Fram og senni-
legt, að leikurinn milli þessara
liða n.k. mánudag komi til
með að ráða úrslitum. Þau
leika þá á Laugardalsvellinum.
Hvasst var að austan, þegar
leikur Vals og KR hófst í gær-
kveldi. Valsliðið var skipað eins
og venjulega, en hjá KR vantaði
landsliðsmennina Bjarna, Hörð og
Garðar, og léku Helgi Jónsson,
Kristinn Jónsson og Örn Steinsen
í þeirra stað. Og á þetta bœttist
hjá KR, að landsliðsmaðurinn
Sveinn Jó'nsson, sem leikið hafði
mjög vel, varð að yfirgefa völlinn
rétt fyrir leikhléig — og kom Hall
dór Kjartansson í hans stað. Lands
leikurinn við íra var því afdrifa-
rikur fyrir KR-liðið.
Framan af var leikurinn mjög
daufur og lítið sást af fallegri
knattspyrnu. En smám saman
fóru KRingar að ná yfirhöndinni
og á 10. mín. skoraði KR fyrsta
markið. Jón Sigurðsson gaf þá
knöttinn fram til Gunnars Felix-
sonar, sem náði honum í vítateigg
horninu. Björgvin hljóp út úí\
marki sínu og Gunnar sendi knött'
inn yfir hann í markhornið.
Knötturinn var nær allan hálf-
leikinn miklu meira á vallarhelm-
ingi Vals, en Valsmönnum tókst
hins vegar aldrej að skapa hættu
við KR-markið og áttu eitt skot í
öllum hálfleiknum á markið — og
þá fór knölturinn hátt yfir.
Hins vegar var oft hætta við
Valsmarkið. Gunnar Felixson átti
skallknött rétt framhjá um miðj
an hálfleikinn, Sigurþór fast skot,
sem Björgvin varði vel, og á 41.
mín. komst Gunnar Fel. einn inn
fyrir. Björgvin hljóp gegn honum
og Gunnar renndi knettinum f átt
að markinu — en hann rétt
straukst framhjá mannlausu mark
inu.
KR-ingar voru mjög ákveðnir f
byrjun síðari hálfleiks og strax
á 2. mín. átti Gunnar Fel. fast
skot, sem Björgvin varði glæsi-
lega. Tveimur mínútum síðar
fékk Sigurþór knöttinn úti á kanti,
gaf yfir til Halldórs á hinn kant-
inn. Halldór skaut á markið, en
Árni Njálsson skallaði frá á mark
línu. Knötturinn barst til Jóns Sig
urðssonar, sem skoraði annað
mark KR með hörkuskoti. Næstu
mínúturnar léku KR-ingar mjög
vel og áttu hvert upphlaupið á fæt
ur öðru á Valsmarkið — en fleiri
mörk tókst þeim ekki að skora.
Gunnar Fel átti þá skot í stöng og
Halldór fast skot, sem Björgvin
varði mjög vel. Um miðjan hálf-
leikinn fóru Valsmenn heldur að
sækja í sig veðrið, en upphlaup
þeirra voru tilviljunarkennd. Þó
komst Bergur inn fyrir á 30. mín.
en Heimir varði með góðu út-
hlaupi.
Og síðan skeðu ósköpin fyrir
KR. Á 35. mín. tók Matthías Hjart-
arson homspyrnu vinstra megin
og spyrnti fyrir r.,arkið. Knöttur
inn sveigði inn í hornið fjær, án
þess KR-ingar gerðu nokkra til-
raun til að verja — og tveimur
mín. fyrir leikslok tókst svo Val
að jafna. Knettinum var þá spyrnt
fram og fór yfir Helga Jónsson.
Bergur skauzt innfyrir og komst
einn frír að markinu og renndi
Framh á 15 síðu
F.R.Í.
15 ára
-fc ÍSLENZKU sundmennlrnir, sem keppa á Evrópumeistaramótinu í
Leipiig um næstu helgi, héldu utan í gærmorgun, ásamt þjálfara slnum,
Jónasi Halldórssyni, sem verður fararStjóri og mun auk þess sitja þing
Sundsambands Evrópu. Kvöldið áður en þeir fóru, kepptu þelr Guðmund-
ur Gislason og 'Hörður Finnsson í sundlaug Vesturbæjar og settu sitt
hvort metið, eins og skýrt var frá á siðunnl [ gær. — Ljósmyndari Tím-
ans, RE, tók þá þessa mynd, Frá vinstri eru Hörður, Jónas og Guðmundur.
Hörður mun keppa í 200 m. bringusundi á EM, en Guðmundur í 400 m.
fjórsundi (en þá eru syntir 100 m. á flugsundi, baksundi, bringusundi og
skriðsundi), en mun einnig keppa í 200 m. baksundh sem aukagrein.
I dag er merkisafmæli hjá einu
sérsambandinu, Frjálsíþróttasam-
bandi íslands, en 15 ár eru nú liðin
frá stofnun sambandsins. Það hef-
ur unnið mjög gott starf á þessu
15 ára tímabili, þótt sami ljómi sé
nú ekki yfir frjálsum íþróttum hér
á landi og var við stofnun sam-
bandsins. Þá má geta 'þess, að á
þess ári eru 30 ár frá stofnun
Frjálfíþróttaráðs Reykjavíkur —
(FÍRR), — þrjátíu og fimm
frá því fyrsta meistaramótið
frjálsum íþróttum var háð,
fimmtíu ár frá fyrstu þátttöku ís
lenzks frjálsíþróttamanns í Olym
píuleikum, en Jón Halldórssor
keppti á Stokkhólmsleikjunum
1912 í 100 m. hlaupi.
12
Nýr úrslitaleikur
í meistaraflokki
Á sunnudagskvöldið léku
FH og Breiðablik síðasta leik-
inn í meistaraflokki á meist-
aramótinu í handknattleik í
Kópavogi. Úrslit urðu talsvert
á annan veg en búizt var við,
því að Breiðablik sigraði í
mjög skemmtilegum leik með
fimm mörkum gegn fjórum.
Breiðablik náði í upphafi forust
mni í leiknum og léku stúlkurnar
prýðilegan handknattleik. í hléi
var staðan 3:1 fyrir Breiðablik og
komust síðan yfir í 4:1. FH tókst
að minnka bilið í 4:3 — en Breiða
KR skoraði fyrsta mark sitt í leikn-
um í gærkveldi eftir 10 mín. Gunnar
Felixson fékk knöttinn i vítateigs-
horninu — og spyrnti yfir Björgvin
Hermannsson í markið. Björgvin var
!lla staðsettur eins og myndin sýnir
">l — og var úti á markteignum í
tað þess að vera i markinu. Hér
•■ífur knetturlnn vfir hann efst i
-narkhornið Síðar i leiknum bættí
',:örgvin upo þessi mistök sín með
mjög góðri markvörzlu.
Ljósm.: Tíminn RE.
blik komst í 5:3 og voru úrslit þá
ráðin, þótt FH-stúlkurnar skoruðu
siðasta markið í leiknum.
Þessi úrslit hafa það í för með
sér, að tvö félög eru efst og jöfn
í mótinu með 10 stig, Ármann og
FH, og verða því að leika að nýju
til að fá skorið úr um sigurvegar-
ann í mótinu. Sá leikur verður
21. ágúst í Kópavogi. Lokastaðan
í meitsaraflokkskeppninni varð
þannig:
LUJ T M: St.
FIl 6 5 0 1 56:20 10
Ármann 6 5 0 1 52:24 10
Víkingur 6 4 0 2 47:25 8
Breiðablik 6 4 0 2 38:17 8
Vestri 6 2 0 4 14:42 4
KR 6 1 0 5 15:27 2
Vestm.eyjar 6 0 0 6 10:85 0
KR mætti ekki til leiks gegn
Vestra á ísafirði og hlutu ísafjarð
arstúlkurnar því bæði stigin fyrir
þann leik — en hins vegar er
markatala KR og Vestra því aðeins
úr fimm leikjum.
Til úrslita í 2. flokki á mótinu
léku Breiðablik og Ármann og
var það einnig mjög skemmtileg-
ur Ieikur. Eftir þríframlengdan
leik sigraði Breiðablik með fjórum
mörkum gegn þremur.
T I M I N N. fimmtudaginn 16. ágúst 1962.