Tíminn - 26.08.1962, Blaðsíða 13
Frakkar hafa enn tögl
og hagldir á Fílabeins-
strönd
Framhald af 7. síðu.
séu fyrir hendi, en þeir séu
ekki reiðubúnir. Stúdentar frá
Fílabeinsströndinni gerðust
orðhvatir í Paris í fyrra, en
þá var flogið með þá til Abid
jan, samkyæmt kröfu forset-
ans. Þar voru þeir í fangelsi
um tíma en síðan sendir aftur
til Parísar til þess að halda
áfram námi. Meðlimir hins
fámenna hóps ungra,
óánægðra menntamanna eru
auðfundnir í Abidjan, en þeir
tannhvössustu eru ekki í
stj órnarf lokknum.
Þeir menn, sem láta uppi
verulega óánægju, eru fáir og
stjómarvöldin þekkja þá alla.
Þeir eru ekki skipulagðir og
ekki taldir svo hættulegir, að
vert sé að hafa þá í haldi að
staðaldri eða svipta þá störf-
um, þó að sumum þeirra hafi
verið stungið inn um stundar
sakir. Forsetinn er fimur við
að kippa fótunum úndan
þeim róttæku. Hann hefur út
vegað þeim sjálfstætt land,
sem honum var þó einu sinni
á móti skapí, og gert er ráð
fyrir að hann geti brátt lofað
þeim að hlusta á dálítið rót-
tækari stjórnmálaræður en
áður. En framkvæmd er ann-
að mál-
Kerfið leysir sitt hlutverk
vel af hendi að því er Frökk
um og forsetanum virðist.
Hugmyndin sýnist einlæg:
Halda samvinnu við mömmu
meðan bömin þokast hægt og
hægt til ofurlítið aukins
þroska. Þegar margar raddir
hrópa upp um samvinnu mis
munandi kynþátta er erfitt
að komast hjá að trúa á
slíkt. Sumar spurningar grafa
þó um sig og leita á: Hve
langt ér þangað til að íbúar
Fílabeinsstrandarinnar fara
aS líta á nærveru Frakka
sem tímatalsskekkju? Það
getur orðið drjúgur tími. Fá
ir eru sendir út í heim nútim
ans og þeir, sem fara, eru sam
lagaðir sem bezt má verða.
(Uppáhalds lækning ungra
ákafamanna er að gera þá að
aðstoðarráðherrum).
Uggvænlegust er sú hugs-
un, að þarna séu Afríkubúar
alls ekki farnir að vakna. Þeir
stjórna ekki og eru ekki þjálf
aðir til þess. Færu Frakkar
allt í einu, þá væri ekkert eft
ir. Filabeinsströndin yrði þá
að mestu eins og hún var, þeg
ar landkönnuðirnir fundu
hana, að undanteknum nokkr
um auðum byggingum í Abid-
jan og glæsilégri skel forseta-
hallarinnar. En frönsk yfir-
völd eru alls ekki að búa sig
undir brottför frá Abidjan.
Allra sízt allt í einu.
Skrifað og skrafað
Framhald af 6. síðu.
þá hættu, er slíkt, að það kall
ar á ýtarlegar umræður, sem
verða mættu til haldbetri úr-
ræða en þegar hafa fram
komið.
Bæjar- og sveitarfélögin
neyðast nú til að leggja fram
meiri fjárskerf til kennara-
launa en lög ætla þeim og við
það raskast það hlutfall, sem
löggjafinn ætlaðist til að væri
á milli ríkis og bæjarféaga i
þessum efnum. í þessu__ er
enga lausn að finna. Málið
allt verður að leysa með miklu
stærri og víðtækari átökum
þings og ríkisvalds.
myam
Klemens Jónsson
Framhald af 9. síðu.
samkvæmum, en hann var þó
fyrst og fremst sívinnandi starfs-
maður. Síðasta árið er hann lifði,
kom hann oft upp í landsbókasafn
og sat þar við handritalestur tím-
um saman, en þá var hann svo
farinn að heilsu, að hann varð að
láta aka sér í vagnj fram og aft-
ur, og honum gekk erfitt að kom-
ast upp stigann í safnhúsinu, og
varð oft ag styðja hann. En sami
var áhuginn; hann vann að rann
sóknum sínum í ættfræði og sögu
íslands, svo að segja, fram í and-
látið.
Klemens var lengst af æfirinar
mjög heilsuhraustur, en síðustu ár
in kenndi hann hjartabilunar, er
dró hann til dauða. Hann andaðist
á heimili sínu í Reykjavík 20. júlí
1930.“
Hið frábæra danska
SÖNDERBORG
Prjónagarn
fæst í verzlunum um allt land
Allir
litir
Líz/''?'j' < t
Margar
tegundir
ö IIIIm v" •*
Biðjið ekki um venjulegt prjónagarn, biðjið um
SÖNDERBORG-garn — og þér sjáið hvers vegna
þetta prjónagarn hefur náð almennri hylli um
land allt á skömmum tírna.
— Mjög hagkvæmt verð —
Trúlofunar-
hringar
afgreiddir
samdægurs
Sendum um allt land.
HALLDÖR
Skólavörðustig 2.
Fjölhæfasta farartækið á landi
DÍESEL
EÐA
BENZÍN
LAND-
-ROVER
BENZÍN
EÐA
DÍESEL
„Fjölhæfasta farartækið á landi" — þetta er fullyrðing, sem þér getið fengið staðfesta hvar sem
er á landinu, því Land-Rover eru nú komnir um land allt, og reynslan er öruggasti mælikvarð-
inn. — Þér ættuð að spyrja næsta Land-Rover eiganda og kynnast reynslu hans.
Land-Rover benzín eða diesel
— til afgreiðslu fljótlega
HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F.
Hverfisgötu 103 — Sími: 11275.
T f MIN N , sunnudaginn 26. ágúst 1962
13