Tíminn - 29.08.1962, Blaðsíða 5
landi, dróst útgerðin á mótorbát-
um og smáskipum frá Akureyri til
hafna, sem voru utar í firðinum.
Síldarútgerð hefir þó oft verið þar
allmikil.
Þegar „nýsköpunartogararnir"
komu til sögunnar, jókst útgerð
frá Akureyri til mikilla muna, og
hefir síðan verið rekin í stórum
stíl. Hlutafélag, þar sem bærinn
og þar næst Kaupfélag Eyfirðinga
eru stærstu hluthafar, á nú 5 tog-
ara. Hefir bærinn styrkt þessa út-
gerð' með miklum fjárframlögum '
á síðari árum. Kaupfélag Eyfirð-
inga og einstaklingar eiga og all-
mörg veiðiskip, svo og skip til
vöruflutninga.
í sambandi við útveginn er
margs konar iðnaður rekinn. Er
þar fyrst að nefna stórt hraðfrysti-
hús, tunnuverksmiðju, síldarverk-
smiðju í Krossanesi, sem er eign
bæjarins, svo og ýmis konar fisk-
og síldariðnaður. Þessi fyrirtæki
veita mörgum bæjaibúum atvinnu.
Hér má og nefna tvær skipasmíða-
stöðvar og Dráttarbraut Akureyr-
ar, sem hefir mikið umleikis.
Matjurtarækt er talsverð í bæn-
um.
Áður fyir áttu margir bæjarbú-
ar kýr og kindur, en nú eru þeir
fáir orðnir, aðrir en nokkrir bænd
ur, sem búa utan við það' svæði i
bæjarins, sem skipulagt hefir ver- j
ið til húsbygginga. En í nágrenni i
Akureyrar eru þéttbýlar og frjó-!
samar landbúnaðarsveitir. Tekur i
Akureyri við afurðum þeirra, sem i
seldar eru, og verða þær hráefni |
margs konar iðnaðar í bænum. Er j
þar fyrst að nefna kjöt- og mjólk- j
urið'nað, ullarþvottastöð, sem tek-
ur við ullarframleiðslu landsins
alls, ullarverksmiðju og fatagerð,
skinnaverksmiðju og skógerð. Sum
ar þessar verksmiðjur eru mjög
mikilvirkar og hafa framleitt góð-
ar vörur, sem hafa orðið markaðs-
vörur um allt ísland og jafnvel
erlendis.
Verzlun og iðnaður hafa um
langt skeið verið öflugustu at-
vinnuvegir Akureyringa. Þat er
rekin nokkur heildsala, og smásölu
verzlun við hinar fjölmennu byggð
ir Eyjafjarðar og jafnvel við' fjar-
lægari héruð. Smásöluverzlanir
munu vera nálægt hundrað.
Miðað við fólksfjölda er Akur-
eyri mesti iðnaðarbær landsins.
Til viðbótar þeim iðngreinum, sem
standa í beinu sambandi við sjáv-
arútveg og landbúnað, og áður eru
nefndar, er sérstök ástæða til að
nefna umfangsmikinn byggingar-
iðnað og húsgagnasmíði, vélsmíði
og bifvélavirkjun, silki- og baðm-
ullariðnað, bókagerð, matvæla- og
efnaiðnað ýmiskonar, svo sem
brauðgerð, smjörlíkisgerð) kex-
verksmiðju, kaffibrennslu og kaffi
bætisgerð, sælgætisgerð, sápugerð
og margt fleira, svo og margs kon-
ar handiðnað og almenna þjónustu.
Öflugasta verzlun bæjarins er
Kaupfélag Eyfirðinga, sem er jafn-
framt langstærsti atvinnurekand-
inn. Hefir það í sínum höndum
nær alla verzlun með framleiðslu-
vörur bænda í héraðinu og mjög
fjölþættan ið'nrekstur. Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga rekur og
•mikinn iðnað á Akureyri.
En þótt Kaupfélag Eyfirðinga sé
stærsta verzlunarfyrirtæki bæjar-
ins og umsvifamesti atvinnu-
rekandinn, eru þar samt margir
aðrir mjög atorkusamir iðnrekend-
ur, duglegir kaupsýslumenn og út-
gerð'armenn.
Hér er því miður ekki rúm til að
skrifa meira um hina miklu at-
hafnasemi Akureyringa. Gestir, er
bæinn heimsækja, geta af eigin
sjón sannfært sig um, að á Akur-
eyri er mikið starfað og myndarleg
átök gerð.
Ferðamannabær
Eins og áður er getið, liggur
fjölfarin þjóðleið á landi um Ak-
ureyri, og eni fólks- og vöruflutn-
ingar á bifreiðum talsverður at-
vinnuvegur í bænum. Skipasam-
göngur eru og miklar, sem að lík-
um lætur. Stór flugvöllur er rétt
félag íslands stofnað á Akureyri,
og þaðan barst ungmennafélags-
hreyfingin ört út um landið, og
í sambandi við hana þjóðernisvakn-
ing og íþróttaáhugi.
Verkamannafélag Akureyrar
mun hafa verið meðal allra fyrstu
verkamannafélaga, er stofnuð
voru hér á landi.
Kvenfélög hafa verið fjölmenn
og mjög athafnasöm á Akureyri.
Hafa þau unnið þarft verk einkum
í sjúkrahúsmálum, bæði í sam-
bandi við stofnun Kristneshælis og
Fjórðungssjúkrahússins, svo og
stofnun elliheimilis og dagheimilis
fyrir börn og margt fleira.
Fjölmenn íþróttafélög eru starf-
andi í bænum og mörg önnur fé-
lagssamtök, sem hér yrði of langt
að telja.
f engum bæ landsins hafa sam-
vinnufélög orðið öflugri en á Ak-
ureyri. Ekkert kaupfélag landsins
mun vera eins fjársterkt og Kaup-
félag Eyfirðinga eða reka svo fjöl-
þætta starfsemi sem það, og er
nánar að því vikið hér að framan.
Félag það, sem nú heitir Flug-
félag íslands, var s-tofnað af nokkr-
um Akureyringum árið 1937 og
hét hin fyrstu árin Flugfélag Ak-
ureyrar.
Stjórn bæjarins
í bæjarstjórn sitja nú, og hafa
setið um langt skeið, 11 fulltrú-
ar. Af þeim nefndum, sem bæjar-
stjórnin skipar, hefir bæjarráð
fjölþættast verksvið. í því eru 5
menn.
Aðalframkvæmdastjórj bæjarins
er bæjarstjóri. Bæjarstjóri var
fyrst kosinn 1919. í samráði við
hann starfa forstjórar ýmissa
greina bæjarrekstursins, svo sem
raf magnsstj óri, vatnsveitustj óri,
hafnarstjóri, bæjarverkfræðingur
og byggingarfulltrúi.
Meðan ég þekkti bezt til bæj-
arstjórnar Akureyrar, var gott
samkomulag innan hennar, og
gætti þar lítið flokkarígs.
Höfnin !
Akureyrarhöfn er stór og örugg.;
Oddeyrin, sem skagar út í miðjan i
fjörðinn að vestan, ver hana fyr- ‘
norð'an hafróti, sem sjaldan er \
innan við bæinn, vel búinn tækj-! ar um allt ísland. Góðtemplarar j þó mikið, eftir að kemur inn íyrir 1
um, og eru þangað flugferðir frá hafa oft verið fjölmennir á Akur-1 Hrísey.
Reykjavík daglega og stundum oft eyri og gert þar mörg merkileg j Hafnarnefnd hefir verið í bær-
á dag, og auk þess flugsamgöngur menningarátök. Þeir reistu sam-! um allt frá því að han.n var skilinn
komuhúsið, sem nú er leikhús bæj- i frá Hrafnagilshreppi. Hafnarmann-:
til Akur- j arins, og mun það þá hafa verið j virki eru allmikil, bæði inni á
Matthiasarkirkju.
Forhlið
við aðra landshluta.
Ferðamannastraumur
eyrar er því mikill, einkum á sumr stærsta og veglegasta samkomu-
in. Ferðamönnum gezt vel að bæn-, hús landsins. Þeir reistu og sam-
um, þykir hann fallegur og með j komuhúsið Skjaldborg, þar sem
myndar- og menningarbrag. Fyr- j Prentsmiðja Björns Jónssonar er
irgreiðsla fyrir ferðamenn er góð i nú. Þeir keyptu fyrir allmörgum
og gistirými nokkurt, en þó ónóg, árum Hótel Norðurland, eiga það
í hótelum og auk þess í heimavist j enn og reiia þar ýmsa félagsmála-
Menntaskólans þann tíma, sem j starfsemi, svo sem tómstunda-
skólinn starfar ekki. Á allstóru j vinnu fyrir unglinga, auk þess sém
auðu svæði, milli lóðar Gagnfræða-
skólans og Þórunnarstrætis, sunn- j
an við sundlaugina, er ferðamönn j
um ætlaður tjaldstaður. Hefir ver \
ið komið þar upp snyrtiklefum I
og njóta ferðamenn þessarar að-:
stöðu ókeypis. Hefir þetta þótt til i
fyrirmyndar.
Fyrr í þessari grein er getið j
margs þess, sem laðar ferðafólk til j
Akureyrar. En til viðbótar má
nefna, að ekki er langt þaðan til
ýmissa staða norðanlands, sem
ferðamenn sækja til, svo sem í
Vaglaskóg og Mývatnssveit. Nafn- j
kunnir sögustað'ir eru og margir í j
nágrenni bæjarins.
Hugsjónir og félagsmál
Innarlega á Akureyri er gamalt |
timburhús, sem kallast Friðbjarn- \
arhús. Góðtemplarastúkurnar í j
bænum hafa nú keypt þetta hús og i
ætla sér að varf'veita það. Hinn
10. janúar 18£' r ’uðu 12 mcnn, ;
er komu sam; u húsi, hina :
fyrstu góðtemi iku á íslandi,
stúkuna ísafold ua bjó í húsinu
Friðbjörn Steinsson, bóksali og
oft bæjarfulltrúi. og var hann, á-
samt Jóni Stephánssyni, sem fyrr
var nefndur, meðal stofnenda stúk-
unnar. Út frá Akureyri breiddust I
svo hugsjónir Góðtemplarareglunn-1
þar er veitt viðtaka ferðamönnum.
Árið 1906 var fyrsta ungmenna-
Akureyri, við Torfunef, a Oddeyr-
artanga og utan á Oddeyrinni. A
síðastnefnda staðnum hefir verið:
grafið inn í cyrina utánverða, þar
sem dráttaibrautin cr. Við hafn-;
armannvirkin á Oddeyri fcr frarn ,
upp- og útskipun á fiski og marg-
víslegum þungavörum. Um mann-:
virkin utan á Oddeyri urðu nokk-:
ur átök, áður cn þau voru fram-
kvæmd, en nú telja allir þau sjálf;
Oddeyrinni og á Gleráreyrum er
að verða mesta athafnasvæði bæj-
arins.
Rafveitan
Árið 1922 virkjuðu Akureyring-
ar Glerá til ljósa (330 hö.). En
brátt varð það rafmagn, sem bær-
inn fékk frá Glerárstöðinni, of lít-
ið. Var þá farið að athuga um,
hvar heppilegustu skilyrði væru
til frekari orkuvirkjunar. Varð
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu fyrir
valinu. Árið 1939 var Laxárvirkj-
unin tekin til nota (2400 hö.), en
þessi fyrsta virkjun Laxár reynd-
ist ónóg, og var aukið við hana
1944 og enn 1953. Framleiddi þá
stöðin alls 11500 hö. Var nún þá
orðin sameign ríkis og bæjar, enda
sér hún fyrir rafmagnsþörf Húsa-
víkurkaupstaðar og nærliggjandi
sveita, auk Akureýrar.
Laxárgilið, þar sem stöðvarhús
virkjunarinnar eru, þykir mjög
fagurt og sérkennilegt.
Akureyringar
. Eg hefi heyrt ýmsa halda því
fram, að Akureyringar væru þumb-
aralegir. Þetta munu þó þeir ein-
ir segja, sem aldrei hafa átt heima
á Akureyri og ef til vill ekki
kynnzt Akureyringum náið.
Fjölmargir íbúar bæjarins eru
aðfluttir, þar á meðal mjög margir
úr sveitum Eyjafjarðar og öðrum
héruðuð norðanlands, margt fólk
austan af Fljótsdalshéraði og Aust-
fjörðum og úr öðrum landshlutum.
Þetta hefir haft sín áhrif á heild-
arsvip bæjarbúa. Auðvitað er á
Akureyri misjafnt fólk sem ann-
ars staðar, og ef til vill eru marg-
ir Akureyringar nokkuð seinteknir.
Á hálfum fjórða áratug, sem ég
hefi verið búsettur á Akureyri,
hefi ég kynnzt bæjarbúum allnáið,
Virðist mér það aðaleinkenni
þeirra, að vera traustir menn og
kurteisir.
Eg var sáttasemjari í vinnudeil-
um fyrir Norðurland í 18 ár. Á
þeim árum sat ég á fjölda sátta-
funda. Þar sem Akureyringar ein-
ir ræddust við, var það undantekn-
mg, ef nokkur ókurteisleg orð
voru við höfð, og æfinlega tókust
.sættir, áður en til verkfalla kom,
þar sera Akureyringar voru einráð-
ir.
LokaorS
íbúar Akureyrar munu nú vera
full 9 þúsund að tölu. Hin síðari
ár heíir mannfjölgun verið hæg-
fara, c-n aftur á móti hefir húskost-
ur bæjarbúa aukizt mjög, og sýnir
það m. a., að fjárhagsleg afkoma
bæjarbúa hefir verið góð.
í landi voru eru margir fagrir
staðlr, en flestum þeirra er svo far-
ið, að fegurð þeirra nýtur sín svo
Framhald á 15. síðu.
Nonnahús.
TIMINN, miðvikudaginn 29. ágúst 1962
5