Tíminn - 29.08.1962, Blaðsíða 23

Tíminn - 29.08.1962, Blaðsíða 23
Sfldarverksmlðjan f Krossanesl. gengið skry’' _'' ‘ L— .mdanfarin ár, eins og víðar, en stórt skarð mundi opið og ófyllt standa í at- vinnulífi bæjarins, ef hana þryti. Vinnsluafköst hraðfrystihússins, sem tók til starfa árið 1957, eru um 100 lestir á dag, en auk þess hefur félagið skreiðarvinnslu og saltfiskframleiðslu og rekur neta- verkstæði. Sfldarvinnsla «g nrðursuða í Krossanesi, utarlega á bæjar- landinu, er síldar- og fiskimjöls- verksmiðja bæjarins, sem brætt getur um 3000 mál síldar á sólar- hring. Má segja, að í Krossanesi sé óslitin vinnsla allt árið um kring, og hagur fyrirtækisins góð- ur. Síldarsöltun hefur ekki verið á Akureyri um margra ára skeið, þar til nú i sumar, að hafin var söltun í Krossanesi. Niðursuðu- verksmiðja Kristjáns Jónssonar & Co er sérstakt fyrirtæki í bæn- um, þar sem aðallega eru unnar síldarafurðir, bæði til útflutnings og innanlandssölu. Mest af fram- leiðslunni fer til Rússlands og Tékkóslóvakíu. Aðalhráefni verk- smiðjunnar er smásíld, sem veidd er á innanverðum Eyjafirði og Ak- ureyrarpolli og soðin niður i tveim ur stærðum, sem „sardínur“ og „breakfast herring“. Auk þess er talsvert magn af kryddsíld „lagt niður“ yfir vetrarmánuðina. Vann verksmiðjan úr um 1500 tunnum kryddsíldar f fyrra og 3000 tunn- um af smásíld. Við fyrirtækið vinna oft um 60 manns og komst um tíma upp I 100. Skipasmíðj — viðgerðir Fyrir utan fiskiðjuna er skipa- og bátasmíði sá iðnaður, sem stend ur í nánustum tengslum við út- gerðina, svo og allar skipaviðgerð- ir og vélsmíði. Er slíkur iðnaður verulegur þáttur i athafnalífinu og á sér langari aldur. Nú eru á Akur- eyri 2 dráttarbrautir fyrir allt að 500 lesta skip, og fyrirhugað er ag gera togaradráttarbraut. Áhugi er hjá mörgum að auka skipasmíði í bænum, og má telja, að næsta stigið verði að koma upp stál- skipasmíði, og hefur þegar tals- vert verið unnið að þvf máli. Á AKUREYRI ERU 150 BÚFJÁREIGENDUR 0G 21 BÆNDABÝLI, ÞAR SEM LIFAÐ ER EINVÚRÐUNGU AF BÚSKAP Fegurð sína og hrCinleik á Ak- ureyrarbær einna mest að þakka ræktun túna, garðiagróðri við heimahús og yndisreitum opln- berra skrúðgarða. Sé horft yfir bæinn af VaðHaheiði, sem mörg- um ferðamanni gefst kostur á, mun fátt vekja athygll áhorfand- ans meira en allur hinn mikli gróður, sem umvefur nærri hvert hús I bærnum og bælnn sjálfan með túnum, matjurtagörðum og trj'á'iundum. Kálræktar er getið á Akureyri þegar f upphafi byggðar þar, og var Lynge kaup- maður bnautryðjandi á þvi sviði. Hann var einnig sagður hafa ræktafð byigig hér með góðum árangri. Kartöflurækt hófst á Akureyri uipp úr aldamótum 1800 í norðanverðu Búðargilinu, þari sem enn eru kartöflugarðar, sem nú hafa verið notaðir samfellt í nær 160 ár. Áður fyrr var það miklu algengara en nú er, að bæjarbúar hefðu einhvem bú- skap, matjurtarækt og skepnu- hald, en þó er það svo, að enn í dag er landbúnaður talsvert mik- ill þáttur í atvinnulífi Akureyr- inga. Þórhallur Guðmundsson frá Dæli getur frætt okkur um margt varðandi búskapinn í bænum, og hjá honum fáum við ag vita, að það munu vera um 150 manns á Akureyri, sem stunda dálítinn bú- skap í hjáverkum og eiga ein- hverjar skepnur, aðallega sauðfé og hesta, en alls eru á bæjarlandi Akureyrar 21 býli, þar sem ábú- endur lifa einvörðungu af búskap. „Alvörubændurnir" stunda mest- metgnis nautgriparækt, eins og aðr ir bændur í Eyjafirði, enda liggur það vel við markaði f bænum. Samkvæmt upplýsingum Þór- halls Guðmundssonar var búfjár- eign Akureyringa um mánaða- mótin marz—apríl sl. sem hér segir: Ær 2547 Lömb 486 Hrútar 88 Sauðir 3 Kýr 376 Geldneyti 232 Hestar 302 Heyja 20—30 þús.. hesta Heyskapur á bæjarlandinu er milli 20 og 30 þús. hestburðir á ári og túnastærð nú 542 hektarar. Við það má bæta, að bærinn hefur leigt á erfðafestu til ræktunar 38 hektara, og sjálfur er bærinn a'3 láta ræsa fram um 30 hektara, sem búig er að girða. Auk þess sem nefnt er hér um búskap einstakra bænda og tómstundaiðju bæjar- búa, er þess að geta, að á Akur- eyri eru rekin tvö stór kúabú, þ. e. á Galtalæk hjá Gróðrarstöðinni og á Búfjárræktarstöðinni að Lundi. Svínarækt er m. a. stund- uð á Gríshóli á vegum Mjólkur- samlags KEA, og einnig stunda margir hænsnarækt og hafa nokkra eggjasölu, að ógleymdri matjurtaræktinni. Mikiai búskaparáhugi Stór hluti Akureyringa er upp- runnin úr sveit, og þó að þeir séu löngu horfnir frá eiginlegum sveitastörfum og sitji í skrifstof- um, afgreiði í búðum eða vinni í verksmiðjum langan vinnudag, þá eimir þó enn eftir af bændaeðlinu, sem segir til sín, ekki sízt hjá þeim mörgu, sem leita hvíldar og upplyftingar í því að sýsla við fé og hesta og að heyja handa gripum sínum, þegar tóm- stund gefst. Efst í Búðargilinu er röð fjárhúskofa, og má þar oft sjá margan áhugasaman „bónda“ á stjákli, og ofan við bæinn, nálægt Lundi, getur að líta kofaþyrpingu, sem ýmsir kalla „Sameinuðu þjóð- imar' akureyrskra tómstundabænda, og er ekki trútt um nema þar megi sjá f safni gripahúsa dálítið sögu- leg mannvirki, ef út í það væri far ið. A.m.k. sá ég ekki betur en að þar væri niður kominn „Söluturn- inn við Hamarsstíg", sem var upp á sitt bezta fyrir 20 árum, þegar undirritaður kom fyrst til Akur- eyrar, og hefur mér verið sagt, að áður hafi hann verið staðsettur niðri á „torgi“ og sett talsverðan svip á miðbæinn. Það má með sanni segja, að flest sé breyting- um undirorpið. Hús, sem einu sinni voru reisulegar byggingar, stolt eigenda sinna og bæjarprýði, ýmist sem mannabústáðir eða verzlunarhús o.s.frv., enda jafn- vol ævi sína sem fjárhúskofar! Byggðin heldur sífellt áfram að teygja sig yfir holt og hæðir í sí- vaxandi bæ, og enginn veit, hve „söluturninn" fær lengi frið þarna í skjóli „Sameinuðu þjóðanna", því að vel má svo fara, að landsins verði þörf undir ný hús eða önnur Hvort turninn verður en það er önnur bækistöð j mannvirki. þá aftur fluttur um set, veit held- ur enginn, en trúlegt er, að bú- skaparáhugi Akureyrjnga minnki ekki og að það verði áfram þörf fyrir þessa öldruðu viði, þó að „bændurnir" verði hraktir úr nú- verandi vígjum sínum undan sókn- arþunga nýrra byggðahverfa. Ingvar Gíslason. Búfjárræktarstöðin að Lundi. TÍMINN, miðvikudaginn 29. ágúst 1962 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.