Tíminn - 29.08.1962, Síða 22

Tíminn - 29.08.1962, Síða 22
Ingvar Gíslason, alþingismaður: ÞRJÁR ATVINNUCREINAR í „MESTA SAMVIHNUBÆ í HEIMI“ BLÓMGAST KAUPMANNAVERZLUNIN EINNIG! f AkureynarlýSingu frá 1853, þegar íbúar staðarins voru á þriðja hundrað talsins, er verzl- un taiin fyrst meðal atvinnuvega bæjarbúa. Enn í dag ber verzlun- inia hátt í athafnglífi Akureyrar- bæjar og á swm ríka þátt í að móta svip hans, Verzlunar er getið all-snemma 'á Akureyri, en það er ekki fyrr en á síSarl helm- ingi 18. aldar, sem föst byggð fcr að mynd'ast þar, svo að nokkru nemi, og þá er verzlunin að sjálf- söigiðu miðdeipillinn, sem byggð'in grundrallast á. Akureyri er afbragðsvel í sveit sett sem aðalverzlunarstaður Norðurlands. Hafnarskilyrði eru þar ein hin beztu á öllu landinu og vegakerfi tiltölulega fullkom- ið. Flugferðir til Akureyrar eru nú tíðar, að jiafnaði daglega árið um kring og oft á dag marga mánuði ársins. Hinar öru sam- igöngur orka að sjálfsögðu örv- andi á verzlunina og eiig.a sinn þátt í aukinni verzlun undanfar- in ár, enda bærrnn stækkiand'i og iðnaður vaxandi. Aðalverzlunarhverfi bæjarins er í norðanverðu Hafnarstræti, og þar eru staðsettar stærstu og helztu verzlanirnar, bæði Kaup- félags Eyfirðinga og kaupmanna. Auk þess er verzlað í öllum út- hverfum, en aðallega era það mat- vöruverzlanir. Verzlunar- og iðn- aðarhverfi er að rísa sem óðast á norðanverðri Oddeyri eða Gler- áreyrum, og eru þar staðsettar ýmsar verzlanir í nýjum og full- komnum húsakynnum, auk verzl- ana, sem staðsettar era annars staðar á Oddeyri, nær miðbænum. Má líklega gera ráð fyrir, að verzl- unin eigi eftir að færast að mun út á Oddeyrina, þó að Hafnar- stræti verði væntanlega áfram að- almiðstöðin enn um hríð. Kaupfélaigsverzlun Svo sem kunnugt er, er Kaup- félag Eyfirðinga langumsvifamesta verzlunarfyrirtæki í Akureyrarbæ. Það hóf starfsemi sína sem pönt- unarfélag bænda í Eyjafirði fyrir 76 árum, og hafði tiltölulega litla starfsemi fram yfir aldamót. Þá hófst uppgangurkaupfélagsinsmeð tilkomu Hallgríms Kristinssonar sem framkvæmdastjóra. Síðan hef- ur starfsemi KEA farið sívaxandi þar frá ári til árs og beinzt inn á æ fleiri svið, en einn stærsti þáttur- inn í starfsemi félagsins og sá, sem mest ber á í daglegu lífi Akureyr- ar, er verzlunin. Því hefur verið haldið fram, að Akureyri sé mesti samvinnubær í heimi. Aðalstöðvar KEA eru í stórhýs- inu Hafnarstræti 91, sem um langt skeið var eitt stærsta og fullkomn- asta verzlunar- og skrifstpfuhús landsins, en útibú kaupfélagsins er ag finna í öllum úthverfum. Flest- ar matvöruverzlanir KEA eru kjör- búðir, og var félagið brautryðjandi á því sviði f bænum. Heildarvið- skiptavelta Kaupfélags Eyfirðinga sl. ár var rúmlega 400 millj. kr„ þar af var um 30% búðarverzlun á Akureyri. Við afgreiðslu- og búð- arstörf vinna um 115 manns á veg- um KEA og 53 skrifstofumenn af 416 fastráðnum mönnum í þjón- ustu fyrirtækisins. Auk Kaupfé- lags Eyfirðinga er starfandi annað kaupfélag í bænum, Kaupfélag, verkamanna, sem rekur tvær verzl- j j anir við Strandgötu og þrjú útibú i í úthverfum. Verzflun kaupmanna Kaupmannaverzlun er einnig mikil f Akureyrarbæ, og telur formaður kaupmannasamtaka'nna („Verzlunarmannafélagsins á Ak- ureyri“), Tómas Steingrímsson, að verzlunum einstaklinga og hlutafé- laga hafi fjölgag undanfarin ár. Samtals eru rekin 50 verzlunar- fyrirtæki einstaklinga og hluta- félaga í bænum, þar af um 20 mat- vöruverzlanir og 15 vefnaðarvöru- búðir , auk annarra sérverzlana. Þrjár heildverzlanir eru í bænum, Heildverzlun Valgarðs Stefánsson- ar, Heildverzlun Tómasar Stein- grímssonar & Co. og I. Brynjólfs- son & Kvaran (Ágúst Kvaran).Við kaupmannaverzlanir í bænum er talið að vinni um 100 manns, og al- gengt, að menn reki verzlanir einir eða með aðstoð fjöiskyldu sinnar. Samgöngur — lífæð verzluaar Samgöngur eru lífæð verzlunar. A3 sjálfsögðu fer mikig af flutn- ingi fram með skipum, en flutn- ingar með flugvélum og stórum bifreiðum færast í vöxt, ekki sízt hið síðarnefnda. Nú munu í förum 15-—20 stórar vörubifreiðir allan ársins hring, ef veður og vegir leyfa, milli Akureyrar og Reykja- víkur. Stærst þeirra fyrirtækja, sem gera út flutningabíla, er Bif- reiðastöðin Stefnir með 8 bíla, en brautryðjendur að vöruflutningum milli Norður- og Suðurlands má ó- efað telja Pétur & Valdimar, sem rekið hafa þessa þjónustustarfsemi um 19—20 ára skeið. Kaupfélag Eyfirðinga („Bifröst") hefur á- vallt bíla í förum með vörur fram og aftur, svo og Valgarður Stefáns- son heildsali. Þess má að lokum geta, að á Akureyri eru starfrækt þrjú bankaútibú, útibú Landsbanka ís- lands, Útvegsbanka íslands og Búnaðarbanka íslands, auk Spari- sjóðs Akureyrar og Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps, sem hefur skrif stofu f bænum. Landsbankaútibúið er til húsa í eigin stórbyg’gingu á horni Strandgötu og Brekkugötu, þar sem einnig eru skrifstofur bæjarins og nokkurra stofnana hans. Útvegsbankinn er ag reisa mikið hús við Hafnarstræti, og Búnaðarbankinn hefur nýlega keypt hús Kristjáns Kristjánssonar við Geislagötu 5 og er fluttur þang- að með starfsemi sína. ÚTGERÐ 0G FISK- VINNSLA SNAR ÞÁTTUR í ATHAFNALÍFI IÐN- AÐARBÆJARINS Sjávarútvegur og fiskiðnaður er einn af hornsteinum atvinnu- lífs Akureyringa, og hefur svo verið að kalla frá fyrstu tíð, a.m. k. alitaf síðan bærinn fékk kauP- staðarrétttndi fyrir 100 árum. Á timum h’áfcarlavejðanna á Norð'- urlandi 1870—1900 var Akureyri á margan hátt miðstöð þeirna, og þaðan voru gerð út mörg skip til hákarlaveiða, og bræðsla há- karlalifrar fór þar fram. Síld- veiði var hafin á Akureyri og Eyjafirði um svipað leyti, fyrst og fremst svoköiluð „nótabrúk", sem var innfjarðarveiði og held- ur frumstæð og seinvirk vejði- aðferð, en upp úr a'ldamótum tóku Norðmenn að veiða sfld með herpinót að amerískri fyrir- mynd, og urðu akureyrskir út- gerðarmenn fljótlega þátttak- endur um þá aðferð. Sfldarsölt- un vtar lengi mikil á Akureyri og ' síldarútgerð um áratugi stór- felldur þáttur í atVinnu'lífinu. Sfldarskip og línubátar Nú gera Akureyringar út um 10 síldveiðiskip, flest eða öll stór og vel búin, og sum eru í fremstu rög aflaskipa. Auk þess eru gerð- ir út fimm stórir togarar, eign Útgerðarfélags Akaireyringa hf. Útgerð minni vélbáta er einn- ig talsverð og allmargir, sem byggja afkomu sína á útgerð slíkra .þáta, sem gerðir eru út með línu eða handfæri. Fjöldamargir Akur- eyringar eiga opnar, litlar trillur, sem þeir stunda á sjó í frístundum og er það algeng sjón, ag sjá skrifsrtofu- og iðnverkamenn halda niður að smábátakvínni að loknum störfum til þess að dytta að bát eða veiðarfærum og skreppa í róður. Fimm togarar Útgerðarfélag Akureyringa hf. er eitt stærsta fyrirtæki í bænum og rekur, eins og áður er sagt, fimm togara. Auk þess á Útgerð- arfélagið hraðfrystihús og fisk- verkunarstöðvar, sem veita geysi- mikla atvinnu, þegar þessi stór- virku atvinnutæki eru fullnýtt. ! Togaraútgerðin hefur að vísu Frá Akureyrarhöfn. Tveir togarar útgeröarfélagsins vIS bryggju, 18 T í M IN N , miðvikudaginn 29. ágúst 1962

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.