Tíminn - 13.09.1962, Blaðsíða 6
MINNING:
Magnús Eiríksson
frá Geirastöðum
Aðfaranótt sunnudagsins 2. sept.
þ.á. lézt að heimili sínu, Þverholti
5, Reykjavík, Magnús Eiríksson
fyrrum bóndi á Geirastöðum í
Hróarstungu.
Magnús var fæddur 4. september
1885 að Eyjaseli í Jökulsárhlíð,
sonur Eiríks bónda þar, Magnús-
sonar og konu hans Guðrúnar
Jónsdóttur frá Hlíðarhúsum, syst
ur hinna kunnu Hlíðarhúsa-
bræðra, Jóns alþingismanns, sem
kenndur var við Sleðbrjót og Guð
mundar frá Hrísey, fræðimanns.
Laust eftir tvítugsaldur fór
Magnús til náms í búnaðarskól-
ann á Eiðum og lauk þar námi
vorið 1910. Næstu árin var hann
lausamaður, vann að jarðyrkju
störfum vor og haust, en að hey-
skap að sumrum. Á vetrum var
hann við barnakennslu, t.d. far-
skólakennari á Jökuldal veturna
1910—1912 og 1913—1914.
Vorið 1915, 30. maí, kvæntist
Mágnús eftirlifandi konu sinni,
Margréti Eyjólfsdóttur bónda á
Brú á Jökuldal Marteinssonar, og
sama vor hófu þau búskap á hálfri
jörðinni Eyjaseli í Jökulsárhlíð,
móti Jóni bróður Magnúsar og
bjuggu þar sjö árin næstu. —
Vorið 1922 fluttu þau að Geira-
stöðum og bjuggu þar til vors
1946. Haustið eftir fluttu þau til
Reykjavíkur með börn sín.
Öll búsetuár Magnúsar á Geira-
stöðum var hann formaður skóla-
nefndar Hróarstungu. Og nokkur
síðustu búskaparárin hafði hann
á hendi bókasölu um Úthérað fyr-
ir Bóksalafélagið.
Eftir að Magnús flutti til Reykja
víkur gegndi hann afgreiðslu- og
eftirlitsstörfum í vöruskemmum
Sambands íslenzkra samvinnufé-
laga. — Síðustu starfsárin kenndi
hann þess sjúkdóms, sem varð
hans banamein.
Magnús var meðalmaður vexti
og vel á sig kominn, skýrlegur og
hýrlegur að yfirbragði, glaðvær í
viðmóti og viðkynningu. Hann var
SEXTUGUR:
Jóhann Olafur Haraldsson,
fónskáld
Til Jóhanns Ólafs Haralds-
sonar, tónskálds, á sextugs af-
mæli hans 19. ágúst 1962.
Þú hefur gleði —
gjafi verið,
góðlátlega
glettinn, kíminn.
Meira er þó hitt,
að menntgyðja
minnzt við þið lofar:
Þú er maður hlývinn.
í sönglist þinni
eru sólskinstöfrar,
æska og fegurð,
sem ei ég gleymi, —
einhver dýrð,
sem er yfirjarð'nesk,
eitthvert sólblik
frá æðra heimi.
Á heimili þínu
hef ég löngum
setið við lindis
söngva þinna,
átt þar dýrmætar
óskastundir, ,
dulheima notið
drauma minna.
Skemmtinn varstu
á vinafundum,
gerðir þar margt
að gamanmálum.
Gestum þyrst^m
þú gafst að drekka
gleðinnar vín
í gylltum skálum.
Heill þér, Jóhann!
Hljóðs mér kveð ég.
Ekki hæfir
að ég þegi.
Margar góðar
og glaðar stundir
þakka vil ég
á þessum degi.
Til að auka
yndismörgum
sálum á vængjum
söngs að lyfta,
rekja gleði
og verma hjörtu,
endist þér aldur,
afl og gifta.
Gretar Fells
áhugamaður um almenn mál og fé
lagsmál innanhéraðs og lét mikið
til sín taka á fundum og manna-
mótum, léttur til máls, vel máli
fapnn og orðfimur, ákveðinn og
einbeittur í skoðunum; lét hvergi
á sig ganga ef á milli bar, en
drengur í raun. Heim að sækja var
hann gestrisinn, glaðvær og búinn
til fyrirgreiðslu, ef með þurfti.
Um það var honum samstiga hin
fasprúða, mjúklynda kona hans.
Gestrisni þeirra, glaðværð og alúð
seiddi gesti að heimilinu, jafnt
meðan þau bjuggu í sveit og eftir
að þau fluttu til Reykjavíkur.
Magnús var greindur maður og
athugull, bókhneigður, víðlesinn
og minnugur. Sérstakan áhuga
hafði hann á mannfræði og ætt-
vísi. Eftir að hann flutti til Reykja
víkur varð'i hann frístundum sín-
um á Þjóðskjalasafninu til ætt-
fræðirannsókna og mun hafa lát-
ið eftir sig talsvert af handritum
í ættvísi.
Langt var á milli heimila okk-
ar Magnúsar meðan við bjuggum
samhéraðs og þá ekki síður eftir
að ég fluttist úr héraðmu. Kynn-
ing okkar var þá mest á mann-
fundum, og sýndist stundum sitt
hvorum. En eftir að hann var
fluttur til Reykjavíkur urðu sam-
fundir okkar tíðari og nánari, eink
um síðari árin. Leitaði ég oft til
hans upplýsinga um ýmis atriði og
fékk að jafnaði góð og greið svör,
ýmist úr traustum minnissjóði
hans eða úr fórum þess, sem hafði
hann ritað hjá sér.
Börn Magnúsar og Margrátar
eru þessi: Guðrún, yfirljósmóðir,
fæðingardeild Landsspítalans; Jón,
verzlunarmaður; Björgvin, pípu-
lagningarmeistari; Eyþór, lögreglu
þjónn, öll búsett í Reykjavík.
Með Magnúsi Eiríkssyni er merk
ur maður og eftirminnilegur til
moldar hniginn.
Halldór Stefánsson.
Úrval af einbýlishúsum og
einstökum íbúðum víðsveg-
ar um bæinn og nágrenni
hans. Útborganir frá 30 þús.
Höfum kaupendur af góðum
húseignum og bújörðum
með veið'ihlunnindum.
Rannveig Þorsteinsdóttir hrl.
málflutningur og fasteigna-
sala, Laufásveg 2, símar
19960 og 13243.
TiS söiu
4ra herb. íbúð í parhúsi á
Melunum
6 herb. raðhús við Álfhóls-
veg tilbúi? undir tréverk og
málningu Möguleiki á 2ja
herb. íbú? í kjallara
4ra herb raðhús við Alfhóls-
veg laust ri) íbúðar um mán-
aðamótin okt og nóv.
4ra horb mjög uönduð íbúð
í sambýlishúsi við Stóra
gerði.
2ja herb. kjallarníbúð við
Rauðarárstig. Útborgun 130
þús (
HUSA op SKIPASALAN
Laugavegi 18 fll hæð
Simar 18429 og 18783
#nöí0íöa ntynófsroskdlinn
Dagdeildir: Forskólinn (Alm undirbúningur að
námi í sérgreinum myndlista). — Frjáls mynd-
list. — Frjáls grafik. — Auglýsingateiknun. —
Teiknikennaradeild. — Vefnaðarkennaradeild.
— Listvefnaður. — Tizkuteiknun.
Síðdegis- og kvöldnámskeið: Teiknun, málun og
föndur barna. — Teiknun óg málun unglinga
og fullorðinna. — Bókband — Tauþrykk, batik,
sáldþrykk. — Alm. vefnaður. — Fjarvíddar-
teiknun. — Letrun.
Skrifstofa skólans, Skipholti 1. Sími 19821. —
Opin mánud., miðvikud og föstud. kl. 5—7 síðd.
Námsskrár og umsóknarey'ðublöð fást í skrif-
stofunni og í Bókaverzlun Lárusar Blöndal,
Skólavörðustíg og Vesturveri.
Snúrustaurar
Verð kr. 1100,00 — Póstsendum.
FJÖLVIRKINN, Bogahlíð 17.
Sími 20599.
V ffí
VEB Globus-Werk Leipzlg Deu,5ChReDPrb“ch#
B LAÐ B URÐIIR
TÍMANN vanfar ungling fil að bera blaðið til kaupenda í
SKJ0LUNUM
Afgreiðsla TÍMANS
6
T f M I N N, fimmtudagurinn 13. sept. 1962.