Tíminn - 20.10.1962, Side 15

Tíminn - 20.10.1962, Side 15
Frá AEþiit&l Framhald af 6. síðu. E.J. um að lána út allt spariféð, vs?ri ábyrgðarlaus — þekkti hann E.J. ekki fyrir sama mann að þessu leyti, og þegar hann hefði verið í ríkisstjórn. Lagði áherzlu á að binda hefði þurft hluta af saprifénu til að koma upp gjaldeyrisvarasjóði. — Öðruvfsi væri það ekki hægt. Spurði hvernig Seðlabankinn ætti að fara að því, að lána nú út bundna spariféð. Það hlyti að fara með gjaldeyrisforðann. Eysteinn Jónsson svaraði, að enginn hefði átt að geta misskilið það, að hann gerði ráð fyrir í sín- um málflutningi, að útlánsvextir og innlánsvextir yrðu að lækka. Kvaðst Eysteinn hissa á þeirri blekkingu Gylfa Þ. Gfslasonar, að svaraði hækkun innlánsvaxta. Á móti kæmu dýrtíðaráhrif hækk- aðra útlánsvaxta, sem væru mjög mikil og sparifjáreigendur hefðu orðið fyrir stórfelldu tjóni af efnahagsmálastefnu ríkisstj órnar- innar. Hann kvaðst nú gera tillögu um sömu útlánapólitik og sömu vaxta- pólitík og fylgt hefði verið .öll þau ár, sem hann hefði verið í ríkisstjórn. í þessu væri því fullt samræmi af sinni hendi. Aftur á móti hefði G.Þ.G. breytt til í þessu. Gjaldeyrisstaða bankanna í árs- lok 1958 hefði verið góð og af- koman í heild út á við betri en nú og þó hefði engin sparifjárbind- ing komið þá til greina. Hér væri um tvær stefnur að ræða. Annars vegar að draga meira úr útlánum — samdráttarleiðin — og leita jafnvægis við útlönd þá leiðina. Hin stefnan, að tefla djarfara með útlánin til að auka framleiðsluna og þjóðartekjurnar, í því trausti að afkoman út á við og inn á við verði belri með þvf móti. En ekki væri þvTað neita, að með því lagi gæti orðið minna stundum í kass- anum — þótt afkoman í heild yrði betri. Þessari stefnu hefði verið fylgt undanfarna áratugi — glæsileg- asta framfaratímabils í sögu þjóð- arinnar. E.J. lagði áherzlu á, að ekkert hefði komið fram hjá G.Þ.G., hvernig fá ætti nú stóraukið láns- fé f fjárfestingum. Ef ekki yrði lánað meira út af innlenda fjár- magninu, yrði að taka þeim mun meira af erlendum lánum. Spurningin um hvað af leiddi ef 500 miljónirnar frystu, yrðu lánaðar út nú samstundis, væri út í hött, því það væri ekki til- laga flutningsmanna að svo yrði gert í einu vetfangi. — Það væri of stórt stökk og of mikil röskun. Meginatriðið væri, að hætta að frysta af aukningu sparifjárins. Gylfi Þ. Gíslason sagði, að E.J. hefði verið í ríkisstjórn þegar það ákvæði var sett í Seðlabankalögin, að draga niætti af sparifé inn í bankann. Enn fremur að góð gjaldeyrisstaða í árslok 1958 hefði að miklu leyti átt. rót sína að rekja til góðæris þá. j Eysteinii Jónsson svaraði, að á- ■ kvæði Seðlabankalaganna um inn- drátt sparifjár væri hæ-gt að nota I í tvennum tilgangi: Til að frysta; féð, eða til að beina því til út- lána í tiltekin verkefni — það stæði fast sem hann hefði áður upplýst, að inndrátlur sparifjárj hefði ekki átt sér stað meðan; Fram'Sóknarmenn höfðu úrslita- orðið f ríkisstjórn. Út af svari ráðherrans varðandi gjaldeyrisstöðuna 1958 mætti j kannske spyrja, hvort ekki gæti; skeð, að mjög umtalaðar gjald- eyrisinnstæður nú, ættu einhverja rót í góðærinu 1962? Framhaid af 16. síðu kvikmyndahátíðinni 1956) um fjölskyldulíf í nýja Indlandi stjórn fð af hinum fræga indverska kvikmyndastjóranda Satyajit Ray. Fræðsluþáttur um kvikmyndaleik. ; Laugardaginn 1. des. Börnin frá Hiroshima. Mynd viðurkend um allan heiift, tekin í Hiroshima um nckkur börn, sem lifðu af A-bomb ! una séð með augum ungs kenn- ara, sem kemur aftur til heima-1 borgar sinnar, Hiroshima. Æskufólk getur ritað sig í klúbb inn daglega í Tjarnarbæ frá kl. 4—7 e.h. Klúbbgjald fyrir vetur- inn verður kr. 25.00, en aðalfundur klúbbsins mun verða haldinn inn- an skamms og þá fjallað nánar um slarfsemi hans. í tómstundaheimilinu að Lindar götu 50 verður starfað alla daga, og geta unglingar 12 ára og eldri tekið þátt í þessum viðfangsefn- um: — Ljósmyndaiðja, mánudaga fimmtudaga kl. 7,30 e.h. Bast- tága og perluvinna, þriðjudaga kl. 7 e.h. Bein- og hornavinna, mánu- daga kl. 7 e.h. Leðuriðja, þriðju- daga kl. 7 e.h. Taflklúbbur, fimmtu daga kl. 7,30. Málm- og rafmagns- iðja, þriðjudaga kl. 7,30 Frí merkjasöfnun, miðvikudaga kl. 6 e.h. Fiskiræktarkyinning, þriðju- daga kl. 6 e.h. Flugmódelsmíði, fimmtudaga kl. 7,30. Kvikmynda- sýningar fyrir börn, 11 ára og yngri, laugardaga kl. 4 e.h. „Opið hús“ fyrir 12 ára.og eldri laugar- daga kl. 8,30. í tómstundaheimilinu við Bræðraborgarstíg 9, 5. hæð gefst kostur á margs konar fönduriðju, leiklistaræfingum, kvikmynda- fræðslu, skartgripagerð o ,fl. Auk þess verður efnt til skemmtistarf- semi. Nánari upplýsingar og innrit- un á staðnum, þriðjudaga og föslu daga kl. 4 e.h. f Háagerðisskóla verður í samvinnu við sóknar- nefnd Bústaðasóknar ftarfað. að. bast-, tága- og leðurvinnu, mánu- daga og miðvikudaga kl. 8,30. — Upplýsingsr og innritun á staðn- um á sama tima. Einnig verða þar kvikmyndasýningar fyrir börn á laugardögum kl. 3,30 og 4,45 e.h. f kvikmyndasal Austurbæjar- skólans verður kvikmyndaklúbb- ur fyrir börn, sunnudaga kl. 3 og 5 e.h. í Áhaldahúsi borgarinnar við Skúlatún verður trésmíði pilta. Upplýsingar og innritun á staðn- um miðvikudaga kl. 8 e.h. f viðgerðarstofu Ríkisútvarps- ins, sænska frystihúsinu, verður Radíó-vinna miðvikudaga kl. 8,15. Leikhús æskunnar. Félag fyrir á- bugafólk 16 ára og eldri um leik- list. Klúbbfundir og innritun á miðvikudögum kl. 8,30 e.h. að Lindargötu 50. Leiksýningar fara fram í Tjarnarbæ. Fræðslufélagið Fróði. Málfundir á fimmtudögum. Ritklúbbur æskufólks. Fundir annan hvern föstudag. kl. 8 að Lindargötu 50. Vélhjólaklúbburinn Elding. — Klúbbur fyrir eigendur vélhjóla, vikulegir fundir, hjólreiðaæfing- ar, fræðsla um umferð, hjálp í við lögum og meðferð vélhjóla. Kvikmyndaklúbbur æskufólks. Fræðsla um kvikmyndir og sýn- ingar úrvalsmynda. Starfsemin fer fram í Tjamarbæ. Tilkynnt verð- ur síðar um störf annarra klúbba. f!U! M ,* F> í> A I . <_ v.' ; ; í t 1 ' . k L • athueasemdir í Tímanum 19. þ.m. ekur val- l.yrja ein áströlsk fram stríðsvagni sínum gegn mér aumum manni og les mér pistilinn. Eg verð að byrja á að óska þessari erlendu konu, sem segist vera búin að dvelja hér rúmt ár, til hamingju méð hinn ram-islenzka skammastíl sinn, sem gæti ekki verið hætis hót betri, þótt hún hefði alið all- ?n sinn aldur austur í sjálfri Suðursveit. — Það er vafalaust ósvífni að álíta, að einhver íslenzk ur vinur minn hafi leiðbeint henni uro orðavalið? Tilefnið er síðasti leikdómur minn, þar sem frökenin telur, að ég geri of lítið úr ástralskri menn- ingu. Slík viðbrögð eru okkur ís- lendingum vel kunn, því að það er gömul saga, að sannleikanum verður hver sárreiðastur. — Eng- um Englendingi, Frakka eða Þjóð- verja dytti í hug að svara manni, sem héldi því fram, að þessar þjóðir hefðu ekki átt nein stór- skáld. Grein fröken Vaughan hefst á misskilningi. Hún segir: ,,Ein alvarlegastá villa Gunnars Dal er sú kæruleysislega tilgáta, að Ástralíubúar hafi engan menn- ingargrundvöll eða menningar- erfðir“. Eg sagði hins vegar: „Það hlýtur að vera erfitt að vera skáld í landi, sem getur ekki ausið af lindum fornra menningarerfða." Vitanlega á ég hér við ástralskar menningarerfðir, en hvorki Plat- on né Shakespeare, sem ég hef aldrei efazt um, að Ástralíu- búar þekki. Eg á heldur ekki við, menningarerfðir frumbyggjanna, enda efast ég um, að áströlsk menning verði nokkurn tíma byggoa'þ~eím grundvelli. — Sú staðhæfing hinnar áströlsku menntakonu, að „Ástralíubúar dragi ekki markalínu milli gstralskra, amerískra og enskra skáldsagna", virðist einmitt benda til, að tími hinna áströlsku bók- mennta sé naumast enn þá kom- inn. Eða hvaða Englendingur mundi vilja halda því fram, að engin markalína sé dregin milli enskra og amerískra skáldsagna? Og hvaða Ameríkani mundi vilja sannkenna amerískar bókmennt- ir enskum? Þetta gildir um öll menningarlönd með sjálfstæða, þjóðlega menningu. Ungfrú Vaughan getur ekki fall izt á, að Ástralía sé skáldum verri fóstra en hinn gamli heimur. Eg iropraði á því, að ekki væri í Astralíu hægt að yrkja um hin nrargvíslegu hambrigði náttúrunn- ar, sem skáld hins gamla heims hafa ort um í árþúsundir. Um þettá segir frökenin: „Og allt, sem Gunnari Dal getur dottið í hug í þessu sambandi er, að það sé minni munur á árstíðum í Ástralíu en í Evrópu. Gagnvart slíku hyldýpi vanþekkingar stend ég ráðþrota. Hvað er hægt að gera við slíku?“ Nú vill svo til, að ég er engan veginn einn að svamla í þessu „hyldýpi vanþekkingarinnar“. Þar cr jafnvel að finna ágæta ástralska bókmenntasérfræðinga, jafnvel mun frægari menn en fröken Vaughan: í formála fyrir „The Goldin Treasuiy of Australian Verse“, að vísu nokkuð gamalli bók (útgefinni í Sydney!) stendur t d. þetta: „The absence of those broad, outward signs of the chan- ging seasons which mark the pageant of the year in the old world is probably a greater disad- vantage than we are apt to sus- pect. Here, too, have existed hardly any of the conditions wich obtained in older communitis where great literature rose“. Hér eru sett fram af hinum ástralska fræðimanni nákvæmlega sömu sjónarmið og þau, sem ung- frú Vaugham kallar hyldýpi van- þekkingar. Annað í greininni er eftir þessu, en því hirði ég ekki að svara, enda þær rangfærslur of augljósar til að vera svaraverð- ar. Samtal við Guðmund Framhald af 16. síðu Þýzkalandi í 6 ár, og belgísk sópransöngkona. Meðan Guð- mundur var í Köln, kom að máli við hann hinn frægi, danski Wagnersöngvari, Franz Andersson og bag hann að taka fyrir sig lagið, spurði hann svo, hvort hann gæti hugsað sér að taka að sér hlutverk í óperu norður í Árósum. Guð- mundur gaf lítið út á það. „Það getur verið, að þú heyrir frá mér aftur“ sagði hinn frægi söngvari. En Guðmundur tók það ekki alvarlega. Einn góðan veðurdag, löngusiðar,.. beið Andersson eftir Gumúndi á skólatröppunum og ítrekaði spurninguna og nú hvort hann vildi syngja hlutverk Alfredos í La Traviata á 50 ára afmæli Árósaróperunnar. „Ég veit ekki hvort ég ræð við það og það er líka undir því komið, hvag prófessorinn, kennari, minn segir um það“, svaraði Guðmundur. „Ég veit hvort tveggja, ég er búinn að fá EScki tekið upp Framhald af 16. síðu hefur ekki verið notað hér að ráði fvrr en í sumar. Kartöfluupptöku er nú lokið i Hornafirði. Enn er verið að taka upp rófur, en kál- maðkur hefur eyðilagt megnið af þeim. Hornfirðingar voru að mestu lausir við kálmaðkinn þar til í hitti fyrra. f fyrra var kartöfluupptöku al- mennt lokið um mánaðamótin okt. — nóv. eða mánuði síðar en vant er. Engin rjúpa Framhald af 16. síðu verið illveður, síðan veiði hófst, en fyrsta daginn munu um 40 skyttur hafa verið á heiðinni. Þar virðist vera mikið um rjúpur, en þær eru styggar, eins og venju- lega, þegar veður er vont. í fyrra- dag fóru þrír félagar á heiðina, fengu haglél og rok, en veiddu samt til samans 80 rjúpur. Margir höfðu pantað gistingu í Forna- hvammi nú um helgina, en hafa hætt við það vegna veðurútlits- ins. Þingeyingar hafa fengið betra veður. Húsvíkingar hafa farið á Reykjaheiði. Veiði þeirra hefur verið misjöfn, sumir hafa fengið talsverða veiði, 60—70 rjúpur yfir daginn og Tjörnesingar hafa feng- ið upp í 70 stykki. Aðrir hafa komið næstum tómhentir heim, j og hefur verið hljóðara um ferða-j sögur þeirra. Akureyringar fóru fyrir skömmu austur í Aðaldal til rjúpnaveiða, og hefur okkur borizt sú vitneskja um þeirra veiðar, að þeir hafi ekki veitt eina einustu rjúpu í ferðnni. Tíð hefur verið suðlæg að undan- förnu, og er þá alltaf meira um rjúpurnar norðanlands, en þegar norðanáttin kemur, flytja þær sig suður á bóginn. Rjúpum virðist nú augljóslega vera að fjölga á landinu, enda mun það í samræmi við sveiflur þær, j sem verða á rjúpnastofninum. j Framhald af 2. sí'ðu. ÞÁTTTÖKU í því. Annag cr ekki innganga. Svoköllug auka aðild yrði aðeins samningur um tiltekin atriði milli EBE og fslands, og fer að sjálfsögðu eftir efni slíks samnings, hvort stjórnarskrárbreytingu þarf til. Þau orð, sem T.íminn hafði eft- ir í þessu efni áttu AÐ SJÁLF- SÖGÐU EKKI VIÐ SLÍKT, held ur inngöngu — þátttöku. Mbl falsar sjálft, gerir Túnanum upp orð og merkingar og kah- ar síðan fölsun. Það er því of- ur augljóst hvorum megin föls unin liggur. leyfi prófessorsins“ sagði hinn. ,Jæja allt í lagi“ anzaði Guð- mundur. Þá er það ákveðið“ sagði hinn frægi Andersson og var allur á bak og burt. Svo er skemmst af að segja að Guð mundur fór til Árósa, lærði hið erfiða hlutverk sitt á dönsku á aðeins hálfum mánuði, söng hlutverkið á ellefu sýningum og hlaut mikið lof fyrir bæði söng og hina hraðsoðnu dönsku. „Hvernig finnst Þér annars að syngja á dönsku?“ spurðum vig Guðmund. „Það er býsna erfitt, og er ekki nema von að ég segi það því að dönsku söngvurunum finnst helzt ó- mögulegt að syngja á dönsku“. Guðmundur var yfir sig hrif inn af söng hinna ítölsku söng- konu Mariu Manni Jottini, sem hann söng á móti í La Traviata, taldi hana engu síðri en hinar frægustu ítölsku söngkonur, Callas og Tebaldi, og kvag það yfirleitt furðulegt, hvað til væri af ungum söngsnillingum úti í löndum og hafa ekki heyrt þessa söngvara nefnda á nafn fyrr. Svo spilaði Guðmundur fyrir okkur tvo dúetta sem hann söng á móti Mariu Manni Jottini í La Traviata, og það var aldeilis stórkostlegt. Á tónleikunum á mánudag syngur Guðmundur lög eftir Handel og Gluck 3 íslenzk þjóð lög raddsett af Róbert A. Ottós syni, lög eftir Jón Leifs, Árna Björnsson og Kaldalóns og loks aríur úr óperum eftir Mozart, Verdi og Puccini. Tónleikarnir verða í Gamla Bíói kl. 19,15 á mánudag. Að- göngumiðar verða seldir í bóka búðum Lárusar Blöndals og Sig fúsar Eymundssonar og í blað söluturni Eymundssonar yfir helgina. Markús Jónsson þingvörður sjötugur MARKÚS JÓNSSON þinghúss- vörður er sjötugur í dag. Mark ús var um langt skeið bóndi að Giljum í Mýrdal í Vestur Skafta fcllssýslu, en gekk í þjónustu Alþingis og gerðist þinghússvörð ur 1. júní 1949 og hefur gegnt því starfi síðan með heiðri og sóma. — Markús er glaður í við móti og spaugsamur, reglusamui og ábyggilegur í bezta lagi. — Hann er því mjöig vinsæll meðal þingmanna. T í MI N N , laugardaginn 20. október 1962 1B

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.