Tíminn - 25.10.1962, Blaðsíða 2
Fyrir tveim dögum var rætt
hér á síðunni nokkuð um
Jósefínu, hina illræmdu frú
Napóleons keisara. Það virð-
ist ekkert lát á bókum sem
skrifaðar eru um Napóleon,
skyldulið hans, hershöfð-
ingja og æviatvik. Ef til vill
er ástæðan sú, að Napóleon
er það fjölbreytilegur per-
sónuleiki að hægt er að dást
að honum annan daginn en
fyrirlíta hann hinn daginn.
í þessu sambandi er hægt að
benda á bók eftir hollenzka sagn
fræðinginn Pieter Geyl, sem heit
ir „For and against Napoleon".
(Með og móti Napóleon). Önnur
bók sem er meðal hinna beztu af
öllum aragrúa bóka sem ritað'ar
hafa verið um Korsíkumanninn
sem varð herkonungur Frakka,
er eftir prófessor einn í Cam-
brigde, Herbert Butterfield og
nefnist „The Peasetactics of
Napoleon, 1806—1808“ (Friðar-
tal Napóleons). Sú bók er of fá-
um kunn. Ástæðan er auðvitað
sú að það er góð bók. Varla er
hægt að segja að þar sé borið of
mikið lof á Napoleon en ekki
fer hjá því við lestur bókarinn-
ar að andstæðingar Napóleons
virðast honum að öllu leyti síðri,
einnig siðferðislega, og á það
einkum við konung Prússa.
Trúar eiginkonur
Til eru ýmsar bækur um móð-
ur Napóleons sem af syni sínum
var sæmd nafnbótinni Madame
Mére og ávörpuð keisaraleg tign.
Nýlega bættist við í þeim flokki
ein bók sem er sérstaklega vel
skrifuð auk þess sem hún hefur
að geyma trausta sagnfræði. Bók-
in er eftir Alain Decaux. Decaux
kveður niöui þann gamla orð-
róm sem lengi hefur verið á
kreiki um að Napóleon hafi ver-
ið launbarn franska landstjór-
ans á Korsíku á tímum Lúðvíks
XVI. Marbeuf hershöfðingi var
kvennamaður mikill og fór orð
af honúm sem slíkum. Hann leit
hýru auga til frú Lætizia Bona-
parte en tvenns ber að gæta í því
sambandi, hann var 25 árum eldri
en frúin og auk þess voru kor-
síkanskar húsfreyjur á þeim
tíma staðfastar og trúar mönn-
um sínum. Þó ber þess að gæta
að Lætizia felldi hug til hers-
85 ára
Helgi Valtýsson
AUir Akureyringar þekkja
Helga Valtýsson og allir aðrir ís-
lendingar, sem komnir eru yfir
miðjan aldur, vita hver maður-
inn er. En það vita ekki allir að
hann er 85 ára í dag.
Ef „titla“ á Helga sem títt er
um aðra menn, til ábendingar um
lífsstarf þeirra eða stöðu í þjóð-
félaginu, er það nokkuð vanda-
samt. Athafnasvið hans hefur ver-
ið margþætt, og áhugamálin enn
fleiri, enda fjölhæfni hans með
ólíkindum. Kennari og æskulýðs-
leiðtogi, blaðamaður og ritstjóri
um langt skeið, umboðsmaður fyr-
ir umsvifamikið tryggingarfélag í
12 ár, ferðamaður og fyrirlesari,
rithöfundur og skáld. Að þessu
cllu og fleiru hefur hann unnið á
langri ævi og oft að mörgu í
senn. En fyrst og fremst er hann
hugsjónamaður sem hefur viljað
bæta mannlífið og unnað landi
sínu og þjóð. — Hann hefur allt-
af haft höfuðið fullt af hugmynd-
um og verið óspar á að láta aðra
njóta þeirra verðmæta sem þær
gætu skapað. Hugsjónir hans hafa
margar verið aðlaðandi og girni-
legar, en hann hefur ekki borið
gæfu til að sjá þær rætast nema
að litlu leyti. Svo fer hjá mörgum
þeim sem setja markið hátt og
búast við betri árangri en veru-
leikinn verður, — Trú hans á
iandið og fólkið hefur verið ein-
læg og sönn. Og öll hans störf
hafa haft sömu viðmiðun: umbæt-
ur á öllum sviðum þjóðlífsins. —
Landið og fólkið var honum allt.
Á fyrri hluta ævinnar var Helgi
Valtýsson þekktastur fyrir braut-
ryðjandastarf sitt meðal ung-
mennafélaganna. Stefnuskrá
þeirra var hans hjartansmál og
han-n hafði tröllatrú á, að þau
gætu komið miklu og góðu til
leiðar. Og víst er um, að þau gerðu
það, — En það hlýtur að hafa
orðig Helga mikil vonbrigði, að
sjá þetta óskabarn sitt staðna á
glæsilegri þroskabraut og koðna
svo niður í þaC sem þau eru nú..
Afskipti hans af verndun og við
haldi hreindýrastofnsins eru öll-
um kunn. En síðasta innlegg hans
ti’ velferðarmála okkar eru grein-
ar sem nýlega birtust í Tímanum
um rafvæðingu Austurlands, —
æskustöðva hans.
Það, sem hér hefur verið sagt,
er ekki nema lítið brot af því
sem segja mætti og segja ætti
um Helga Valtýsson. Lífssaga
hans er orðin svo löng og merk
að vert væri að gera henni betri
skil en hér er kostur á. Þess hefði
mátt vænta að svo yrði gert við
þennan áfanga á ævi hans og má
vera að svo verði annars staðar
Guðm. Þorláksson.
E.s. Nafn H.V. hefi ég ekki
séð á fjárlögum síðustu ára en
mun þó einhvern tíma hafa verið
þar. — Einhvers staðar stendur
að laun heimsins séu vanþakklæti
•r- þótt vel sé gert- Það hefur sann
ast á sumum — Og svo er það
líka, að oft ert gamlir gleymdir
— þótt góðir hafi verið
G. Þ.
höfðingjans, en það gerir hana
aðeins enn kvenlegri. En til eru
nær fullgildar sannanir fyrir því
að mök þeirra hafi aldrei verið
það náin að það' hafi getað leitt
til þess að hún fæddi barn.
Kostir og gallar
Því er þannig farið með Læt-
izia sem son hennar, hinn fræga
keisara, að mynd hennar ger-
breytist við hvert skref sem á-
horfandinn færir sig. Og hver get
ur staðið kyrr í sömu sporum?
Sagnfræðin gerir það að minnsta
kosti ekki Decaux hleður miklu
lofi á móður Napóleons fyrir
beztu kosti hennar, stöðuglyndi
hennar og staðfastleik en hann
dregur heldur enga dul á ýmsa
smávægilega galla í hennar fari.
Stærsti ágalli hennar var ekki fé-
græðgi og nízka því það átti rót
sína að rekja til þess hvað þröngt
var í búi í bernskuheimili henn-
ar. Hún var allfíkin í fé, en all-
an þann tíma sem Napóleon fór
með völd lifði hún í stöðugum
ótta við fátækt og örbirgð, ótt-
aðist að „ævintýrið" yrði enda-
sleppt. Ævintýrið varð að sönnu
endasleppt, hins vegar varð hag
ur Lætiziu erj'u bágari þótt
Napóleoni væri steypt úr stóli,
hún hélt auðæfum sínum.
ApamæSur
Hún var ekki ósvipuð apamóð-
ur. Ekki ósvipuð Katrínu af Med-
ici sem einnig var ítölsk að ætt.
Báðar áttu þær stóran barna-
hóp og var það ærið mislitt fé.
St'olt Lætiziu var auðvitað Napó
leon. Merkasti sonur Katrínar
var aftur á móti Henrik III. en
móðir hans var ein um það af
íafa dálæti á honum. Allir aðrir
ottuðust hann og höfðu horn 1
síðu hans enda var hann grimmd
arseggur, óhófsmaður og lundill-
ur. Báðar áttu þessar konur sam-
merkt í bví að aðaláhugamál
þeirra var framgangur barna
þeirra í lífinu.
Stór í sniðum
Lætiziu hefur verið legið það
á hálsi að börn hennar væru öll
heldur illa innrætt. En er það
réttlátt? Er hægt að saka for-
eldra um lunderni barnanna og
hegðun í lifinu? Lætizia gerði
sitt bezta en tíðarandinn var í
andstöðu við hana. Bismarck
sagði eitt sinn: Hégómleikinn er
leiðarstjarna hverrar mannssál-
ar! Napóleon var ekki sérlega
hégómlegur. Til þess var hann
of stór í sniðum. Hann var frænd
rækinn með afbrigðum og hélt
mjög fram systkinum sínum. Það
er meðal annars vegna korsí-
kansks uppeldis hans. Ef til vill
hefði rás mannkynsögunar orð-
ið með öðrum hætti ef hann
hefði ekki haft þessa áráttu að
ota bræðrum og frændum í all-
ar stöður og gera úr þeim valda-
ætt. Ættin var ekki til þess sköp-
uð og því fór sem fór.
En hinu má ekki gleyma þegar
uppreisnin var gerð 1799 þá var
það Lucien sem bjargaði lífi
bróður síns og veldi hans.
Gott uppeldi
Napóleon hafði ajla ævi mik-
ið dálæti á móður sinni og mat
hana mikils, var henni þakklát-
ur fyrir allt sem hún hafði gert
fyrir hann frá því hann var
ómálga barn i vöggu og reynt að
'.nnræta honum árangurslaust
vmis siðalögmál sem hefðu kom-
ið i veg fyrir framgang hans og
herveldisins ef hann hefði til-
einkað sér þau. Því Napóleon
hlaut viðurnefnið Hinn mikli
þrátt fyrir uppeldi móður hans
sem allt miðaði að þvi að innræta
honum lotningu og virðingu fyr-
ír lífinu En ef hann hefði ekki
verið sonui móður sinnar, þá
er hætt við að hann hefði ekki
Framhald á 13. síðu.
i
lí'
ti
a
sa
Loddaraleikur
Það er athyglisvert, hverntg
Gunnar Thoroddsen fer að því
að te'Ija reikningsskil ríkissjóðs
fyrr á ferð en áður. Ríkisreikn-
ingurinn er ekki saminn eða
tilbúinn fyrr en áður. — Hann
er bara á hinn bóginn sam-
þykktur fyrr á Alþingi en áð-
ur. — og þetta er knúið fram
í sýningarleik fjármálaráð-
herra, sem leggur reikninginn
fram o,g heimtar samþykkt,
þótt mikið af þeim reikningum,
sem ríkisreikningurinn byggist
á, SÉ ÓENDURSKOÐAÐ.
f útúrsnúningum sínum í
fjárlagaumræðunum var fjár-
inálaráðherra auðheyrilega mik
ið í mun að flækja þetta fyrir
mönnum. Eyddi hann nokkrum
tímia í það, og fannst sumum,
að hann hefði heldur átt að
nota þann tíma, til ,að svara því,
sem hann var spurður um og
menn vilja fá að vita, t.d. um
samba,nd'ið milli fjárlaganna
og framkvæmdaáætlunarinnar,
um ríkislántökur utan við heim
i’ldir o*g jafnvel utan við ríkis-
bókhaldið o. fl.
Vafðist tunga
urn tönn
Með ruddalogum hætti hef-
ur Gunnar Thoroddsen bolað
mjög vel hæfum mönnum úr
skattstjómstörfum. Þessu vildi
hann mæla bót I fjárlagaum-
ræðunum, en vafðist alveg
tunga um tönn.
Var sem hann reyndi öðrum
þræði í umræðunum að láta
líta svo út sem han,n hefði orð-
ið að ganga fnam hjá þessum
mönnum sunium, af því þeir
væru hvorki löigfræðingar né
viðskiptafræðingar. Hann
slepipti bara að geta þess, ,að í
lögunum eru einmitt full rétt-
indi áskilin þeim, sem hafa
gegnt skattstjórastörfum. Út í
svona ógöngur og málefnafals
anir lenda menn, þegar þeir
fremja rangindi og sýna rudda-
skap, eins og Gumiar gerði við
þessar embættisveitingar.
Lágt lagzt
Gunnar Thoroddsen er að
reyna að fá á sig það orð, að
bann fækki nefndum ríkisins.
Nú liggur Ijóst fyrir, hvernig
hann fer að því. Hann breytir
textanum j ríkisreikningnum
og kallar nefndirnar ekki leng
ur sínum réttu nöfnum. Ýmsar
þessar nefndir kallar hann nú
kostnað við undirbúning eða
athugun á einu eða öðru, eins
og Eysteinn Jónsson nefndi
skýr dæmi u.m í útvarpsræðu
sinni.
Eru þessi „loddiarabrögð"
mjög einkennandi fyrir „ráð-
deild“ þessa ráðlierr.a og hag-
sýslusparnað þa,nn, sem hann
gumar af. En hvað segja menn
um þann ráðhcrra, sem leggur
sig niður við aðra eins hagræð
ingu oig þessa?
Skuldleysi Gunnars
Annað dæmi um hagsýslu-
hagræðingu Gunnars var sjálfs
hól hans urn það, að við síð-
ustu áramót hafi lausaskuldir
rikissjóðs verið ENGAR. Hvern
ig fór hann að því? Hann
skclltj sjö eða átta milljónatug
um gengishagnaðar eftir geng-
isbreytinguna síðustu inn í rík-
ískassann, En það du,gði ekki
til. Gunnar úró þá fram yfir
áramót að greiða 27 milljóna
áfallnar niðurgreiðslur á land-
búnaðgrvörur Til þess að geta
Framhald á bls. 13
2
T f M I N N, fimmtudagur 25. okt. 1962.