Tíminn - 28.10.1962, Side 15
Bóksala í bíl
Framhald af 16. síðu
ágætlega, en við þurftum auð-
vitað að búa okkur vel. Mér fannst
ekkert erfitt að aka bílnum með
vagninn aftan í, en það var auð-
vitað ekki hægt að aka hratt, og
við fórum lítið heim á sveita-
bæi, því að það er svo erfitt að
snúa við. Við fórum sem sagt mest
í kauptúnin og sýndum bækur og
. eftirprentanir í vagninum. Við
vorum bæði með eftirprentanir
á málverkum Muggs, Jóns Stefáns
sonar, Kjarvals og Þórarins Þor-
lákssonar. Svo vorum við með
minni eftirprentanir á verkum Ás-
gríms, og þær seldust frekar vel.
— Af bókum lögðum við megin-
áherzlu á að selja Sölku Völku og
Sjálfstætt fólk eftir Kiljan, tvö
befti af íslandi í máli og mynd-
um, Sumardaga eftir Sigurð
Thorlacius, Bókina um manninn
og Kynlíf eftir Fritz Khan. Salan
varð einna bezt á íslandi í máli
cg myndum og Kynlífi.
Blaðið spurðist fyrir um það í
Helgafelli, hvort ætlunin væri að
halda þessu eitthvað áfram, og
fékk þau svör, að eftir að börn
Ragnars hættu um mánaðamót
ágúst og september, hefði verið
farið með aftanívagninn í mánað-
ar söluferð norður og austur um
land. Sú ferð hefði einnig gengið
vel, og ekkert virtist því til fyrir-
stöðu að halda þessu sölufyrir-
komulagi áfram.
Ritstjórar teknir
,'FramhaId aí 3. síðu)
með, að það gæti nág fram til
Rínar á ekki lengri tíma en einni
viku.
Fulltrúi Sósíaldemókrata minnt
ist á þennan dóm blaðsins í þing-
inu fyrir nokkru en þá vísaði for-
mælandi stjórnarinnar honum á
bug um sinn.
(Framhald af 3. síðu).
hann heimspekinginn hafa litið
heldur einhliða á málið, þar eð
hann einblíni á hættuna, sem
heimsfriðinum geti stafað af að-
gerðum Bandaríkjanna í malinu,
en hafi látið undir höfuð leggj-
ast að áminna Sovétríkin um að
fara varlega og gæta friðarins.
Russel vann að því í nótt að
semja ný bréf, sem hann hyggst
senda Kennedy forseta og Krust-
joff forsætisráðherra í dag.
Fréttamenn á Kúbu skýra frá
því, að svo virðist, sem allur al-
menningur á eyjunni taki átökun
um, sem orðið hafa út af henni
með hinni mestu ró, og líti helzt
út fyrir, ag þeir lá.ti umheiminn
um það, að gera upp um málið.
Á götum Havana hefur verið kom
ið fyrir vélbyssum á svo til hverju
götuhorni, en lífið gengur sinn
vanagang, þrátt fyrir það að
alltaf öðru hverju hljóma áskor-
anir til fólksins, bæði í útvarpi og
sjónvarpi um að vera viðbúið. —
Fólkið er vant vig matarskammt
anir, sem enn halda áfram, því að
mikill skortur hefur verið á mat
vörum síðan í marz ,og erfitt hef
ur verið að fá allar venjulegar
vörur í búðunum.
í morgun söfnuðust saman um
1000 manns fyrir framan sendi-
ráð Bandaríkjanna í- Moskvu til
þess að mótmæla þar aðgerðun-
um við Kúbu. Aðallega voru þarna
samankomnir verkamenn og skóla
fólk, og virtust þeir, sem fyrir
mótmælunum stóðu, vera fremur
ungir. Bar fólkig spjöld með alls
konar slagorðum skrifuðum á lé-
legri ensku. Einnig var varpað j
grjóti að sendirá.ðsbyggingunni. j
Lögreglan reyndi að dreifa mann- j
fjöldanum, en þetta er í þriðja
sinn, sem kemur til óeirða fyrir ,
utan bandaríska sendiráðið í
Moskvu frá því hafnbannið var
sett á Kúbu fyrr í vikunni.
um rjupu
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur veiður I Framsóknarhús-
inu við Fríkirkjuveg, miðvikudaginn 31. þ.m. og hefst M. 8,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.
Kvikmyndin Blóðugar hendur: Þelr héldu lengst út á flóttanum.
Magnús k
opnar sýningu
Magnús Á. Árnason listamaður
opnaði í gær málverka- og högg-
myndasýningu í BogaSal Þjóð-
minjasafnsins.
Á sýningunni eru 54 málverk og
2 höggmyndir. Málverkin eru flest
landlagsmyndir frá Þingvöllum, af
Snæfellsnesi og víðar, einnig
mannamyndir. Þetta er þriðja ár-
ið í röð, sem Magnús heldur sýn-
ingu; fyrsta árið sýndi hann í
Félagsheimili Kópavogs, og var
það fyrsta myndlistarsýning, sem
haldin hefur verið í Kópavogi, þar
sem Magnús er búsettur.
Sýningin verður opin til 4. nóv-
ember, kl. 14—22 dag hvern.
Þreföfd geislavirkni
Framhald af 1. síðu.
til slíkra mælinga á Norðurlönd-
um eru aðeins í Stokkhólmi,
Lundi og við Finsen-stofnunina í
Kaupmannahöfn.
Blaðið ræddi síðan við Magnús
Magnússon eðlisfræðing, en hann
sat aðalfund Alþjóða kjarnorku-
málastofnunarinnar í Vín nú í
september og talaði þar, að beiðni
landlæknis, við sérfræðinga um
þá útkomu, sem mælingar á fs-
lendingum hafa sýnt, en þeir
töldu ekki um heilsufarslega þýð-
ingu að ræða í því sambandi. —
Námsmenn sem voru mældir í
Þýzkalandi í fyrra sýndu að með-
altaR 187 einingar, en mefSaltal
í Þýzkalandi er 30 einingar, heims
meðaltalig er 60 einingar eins og
fyrr segir, en mælingar á Norður-
löndum, þ. e. a. s. Bergenbúum
sýndu 477 einingar. Munurinn eft
ir landshlutum í Noregi er mjög
mikill, Lappar hafa komizt upp í
2000—3000 einingar, hópur Osló-
húa sýndi 180 einingar.
Alþjóðanefnd um geislavernd
hefur sett mörkin um um 20—30
búsund einingar, og er geislunin
talin hættuleg, ef hún fer mjög
upp fyrir það. Hér er átt við ces-
orkusprengingum, en það fer úr
líkamanum eftir nokkurn tíma. Þó
mun tæpast vitað hve mikið lík-
ama sinn þolir af cesium 137, ef
verkanirnar eru stöðugar og allt-
af bætist við.
Annag efni, kalíum 40, sem alt-
af er til staðar í líkamanum, hef-
ur þó meiri geislun en það, sem
yfirleitt er vitað, að menn hafi
fengið í sig af cesium 137. Aðal
farvegur þess efnis inn í líkam-
ann eru fæðutegundir, svo sem
mjólk og kjöt, og verkanir þess
bætast við hina náttúrlegu geisl-
un, sem er talin skaðleg. Er með-
al annars talið, að vansköpun
barna stafi að nokkru leyti af
náttúrugeislun, sem mannkynið
hefur búið við í aldaraðir, en hún
er mjög misjöfn, jafnvel á tiltölu-
lega litlum svæðum. Margt kem-
ur til greina varðandi geislun.
Vísindamenn telja líkamshitann
eitt af þessu, þannig að meiri
hætta sé á stökkbreytingum erfða,
ef líkamshitinn hækkar. í því sam
bandi hefur athyglin beinzt að
klæðnaðl manna og því jafnvel
haldið fram, að karlmenn ættu að
ganga í stuttbuxum til að forðast
hitann.
Læknamáliö
Framhald ai 1 síðu.
sínum áfram, meðan félagsdómur
fjallar um mál þetta, en svo sem
kunnugt er, er rekstri mála fyrir
þeim dómi flýtt séráaklega.
RIF í Keflavik
Fundur verður haldinn í FUF
í Keflavík kl. 4 e.h. í dag, að
Iláteigi 7. Fundarefni er bosn
ing fufltrúa á þing SUF.
Stjórnin.
GG—Fornahvammi, 27. okt. —
Ekki er mikill snjór á Holtavöru
heiði, en jafnfallinn hjamsnjór
Rjúpnaveiðar hafa Iitlar sem
engar verið upp á síðkastig vegna
illviðra og hefur ekkert verið far
ið á heiðina í viku. Mikið virðist
vera af rjúpu, og ef sama veður
helzt, má vænta þess að rjúpan
fari að leita til byggða.
FÉLAGSMÁLASKÓLI Framsókn-
arflokksins hefur starfsemi sína
n.k. mámudagskvöld kl. 8,30 e.h.
í Tjamargötu 26. Er Gunniar Dal,
skólastjóri hefur sett skólann,
flytur Eysteinn Jónsson erindi um
störf Alþingis.
Á næsta fundi skólans talar
Helgi Bergs um Efnahagsbanda-
lagið.
Haldin verða tvö námskeið á
vegum skólans í vetur. Annað
þeirra verður um ræðumennsku
og hitt um launamál.
Allir Framsóknarmenn, éldri
sem yngri, eru velkomnir á fundi
skólans.
Dauðaslys
MB-Reykjavík, 26. okt.
ÞAÐ SLYS varg á bænum Geir-
bjarnarstöðum í Kinn s. 1. þriðju-
dag, að hálf sjötugur maður, Jón-
as Friðmundsson, féll mannhæðar
hátt fall, þegar hann var vig bygg-
ingarvinnu, og beið bana af völd-
um fallsins.
Jónas var 65 ára að aldri. Hann
var heilsuveill og mun m. a. hafa
þjóðst af hjartasjúkdómi. Jónas
stóð upp eftir fallið, og gekk heim
að bænum, sem er í innan við 100
metra fjarlægð frá útihúsi því,
sem í byggingu var. Eftir stutla
stund fékk hann óþolandi kvafir
og var þá fluttur á sjúkrahúsið^á
Húsavík, þar sem hann andaðist
eftir sólarhrings legu. Jónas mun
ekki ha'fa beinbrotnag við fallið,
en meiðsli hans voru innvortis,
m. a. blæddi inn á lungun. Jónas
hafði alla ævi átt heima i Ljósa-
vatnshreppi, hann var einhleypur
og lætur enga nána ættingja eftir
sig á lífi. Upplýsingar þessar eru
fengnar i viðtali við Baldur Bald-
ursson á Ófeigsstöðum, en þar var
Jónas til heimilis.
Undanfarið hefur Kópavogsbíó
sýnt brazílsku myndina „Blóðug-
ar hendur" við mikla aðsókn, en
nú fer sýningum að ljúka.
Það er í íyrsta lagi girnilegt til
fróðleiks hérlendis að sjá kvik-
mynd frá Brazilíu, og meiri for-
vitni vekur þessi fyrir það, að hún
er byggð á raunverulegum at-
burði, er gerðist þar syðra fyrir
tíu árum og vakti þá heimsathygli,
uppreisn forhertustu glæpamanna
í fangelsinu á Ilha Verda, Grænu
eyjunni undurfögru, rétt undan
Brazilíuströnd. Einn góðan veður-
dag, þegar fangarnir eru að vinna
við skógarhögg, láta þeir til skarar
skríða, drepa verði sina og halda
síðan fylktu liði að vopnabúri
fangelsisins. Eftir æðislegan bar-
daga ryðjast allir fangarnir sem
óargadýr niður í fjöru og út í þá
báta, sem til eru, og róa til lands.
Þar hefst hinn æðisgengnasti
flótti, því að þegar er allt lögreglu-
lið sent á hæla þeim. Fangarnir
renna þegar inn í frumskóginn, og
eltingaleikurinn er æðislegur. Hon
um lýkur á einn veg fyrir föngun-
um öllum. Þetta er vel gerð kvik-
mynd, og hárin rísa á höfði bíó-
gesta, er óhætí að mæla með mynd
inni sem einni hinna beztu sinnar
tegundar. Aðalhlutverkið leikur
gamall kunningi, Arturo de Cor-
dova.
Jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður okkar og afa
PÁLS JÓNSSONAR
Nóatúni 26,
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 31. þ.m. kl. 1,30 e.h.
Steinunn Gísladóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn
Hjartanlega þakka ég öllum, sem sýndu mér samúð og margs
konar vinarhug vlð andlát og jarðarför mannsins mfns,
PÁLS GÍSLASONAR
Víðidalsá.
Sérstaklega þakka ég þeim, sem lögðu á sig löng ferðalög til að
geta fyigt manninum mínum siðasta spölinn.
Guð blessi ykkur öll.
Þorsteinssína Brynjólfsdóttir.
Maðurinn minn og faðir okkar
JÓSEP JÓHANNSSON
frá Ormskoti Vesfur-Eyjafjölium,
andaðist að heimili sínu Laugarnesvegi 82A þann 26. þ.m.
Guðrún Hannesdóttir og börn
T í M I N N, sunnudagurinn 28. október 1962
15