Tíminn - 02.11.1962, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.11.1962, Blaðsíða 2
 Sóknarpresturinn í Langholtssókn, séra Valgeir Helgason í Ásum, — Myndin er tekin við vígslu minnismerkis Þykkvabæjarklausturs á Álftaveri haustið 1958. Yilji safn- aðanna ráði — ef hann er nógu eindreginn, en presfkosningar ætti þó að afnema. Frá héraósfundi V.-Skaft. Þa3 hafði verið úrheliis- rigning alla nóttina og landið var blautt og loftið var grátt, sunnud. 21. þ.m. þegar við ókum heim að Langholti í Meðallandi til að halda þar héraðsfund Vestur-Skaftafells prófastsdæmis 1962. Óveður og annir haustsins höfðu seinkað honum um meira en mánuð. — En nú var vel mætt, allir safnaðarfulltrúar og prest ar héraðsins til staðar eins og vera ber. Hinn nýi prestur í Vík í Mýrdal, sr. Páll Pálsson steig í stólinn við messuna í upphafi fundarins. Síðan fór fram altarisganga. Pró- fasturinn gaf nokkurt yfirlit um kirkjulega starfið í héraðinu árið 1961. Þaö var fljótgert, því allt hafði gengið sinn vanagang — allt of mikinn vanagang. Það tók held ur ekki langan tíma að afgreiða önnur venjuleg héraðsfundarmál, eins kirkjureikningana o .fl. þ.h. Aðalmálið Það var ekki fyrr en áðalmá þessa fundar kom á dagskrá — breyting á lögum um veitingu prestakalla — að fjör komst í um ræðurnar. Þar höfðu allir eitthvað til málanna að leggja og sitt sýnd- ist hverjum eins og eðlilegt er, þar sem skoffana- og málfrelsið ríkir. Þótt menn sæju yfirleitt Framh. á 15. síðu Miklar vegabætur Patreksfirðinga — Nýr vegur lagður um Mikladal. SJ-Patreksfirði, 25. okt. milli Patreksfjarðar og Tálkna- Laugardag 13. þ.m. var lok- fjarðar. Á Mikladal var áður mjög ið við að vta upp nvium vegi 61æmur vegur, sem tepptist strax ' r r ' 1 ^ í -fNrrctii eniAiim \7nrrn hocci 7 km. löngum um Mikladal milli Patreksf jarðar og Tálkna fjarðar. Vegurinn liggur vest- anvert í dalnum. Byrjað var að leggja hann s.l. ár og þá lokið við að ýta upp og bera ofan í 1,5 km. kafla fremst í Mikladal. Seinni partinn í sumar og í haust hefur verið unnið að vega- gerð þessari með þremur stórum jarðýtum. Vegagerð þessi er mikið mannvirki. Vegurinn er allur 8 metra breiður. Á löngu svæði eru mjög miklar fyllingar, þannig að neðri kantur er víffa 10 til 12 metra hár. — Þessi nýja vegagerð er mikil samgöngubót á leiðinni Nýtt sjúkrahús byggt í Eyjum SK-Vestmannaeyjum, 29. okt. S.I. laugardag var formlega haf- in bygging nýs sjúkrahúss hér í Yestmannaeyjum, er frú Sigríffur Magnúsdóttir, formaffur slysavarn- ardeildarinnar Eykyndils, stakk ar, Breiðuvíkur og Hvallátra, var fyrstu skóflustunguna í grunnin- vegurinn stórum bættur, aðallega uni. Gert er ráff fyrir, að í hinu meff nýjum ofaníburði. nýja húsi verffi um 60 sjúkrarúm. | í Vatnsfirði á Barðaströnd hef- Sjúkrahússmálið hefur verið | ur verið lagður nýr, breiffur og í fyrstu snjóum. Vegagerð þessi kostar um eina milljón króna. í Patreksfirffi var tekin í notk- un brú yfir Hlaðseyrará, en brú- in var byggð á fyrra ári. í sam- bandi við þessa brúargerð var veg- inum breytt á tveggja km. svæði og lagður að brúnni nýr uppýttur vegur og kostaffi sú framkvæmd Urn 300 þúsund krónur. í botni Patreksfjarðar, á Ósum hefur verið lagður nýr vegarspotti, er tengir Barðastrandarveg og Ör- lygshafnarveg út með Patreksfirði vestanverðum. Er aff þessu stór bót, sérstaklega fyrir vetrarum- ferð, en gamii vegurinn teppist mjög fljótt af snjóum. Nokkru utar á Örlygshafnarvegi, í Skápadal, er nú verið að byrja á að breyta veginum til að auffvelda vetrarumferff á honum, og er á- ætlað að sú breyting kosti um 80 þúsund krónur, og á að ljúka þessu verki nú í haust. — Er þetta aðallega gert til þess að tryggja umferð á veginum frá Patreksfirði á nýjan flugvöll, sem byggffur var ! sumar á svokölluðum Sandodda vestan Patreksfjarðar, en á flug- völlinn er um hálf-tíma akstur frá Patreksfirði. Á Hafnarfjalli, milli Örlygshafn alllengi á dagskrá og fengið nokk- urn undirbúning. Meðal annars hefur bærinn haft kvikmyndasýn ingar og aflað þannig fjár til bygg iugarinnar. Nemur sá sjóffur nú 1,6 milljónum kióna. Þá hafa kon- ur hér í bænum einnig safnaff fé í sama skyni. í hófi, sem haldið var af þessu tilefni, afhenti frú Dagmey Ein- arsdóttir væntanlegri barnadeild hins nýja sjúkrahúss gjöf að upp hæð rúmlega 200 þúsund krónur. ;r það andvirði barnaheimilisins elgafell, sem rekið var um skeið af Verkakvennafélaginu Snót, barnaverndarnefnd og fleiri félög um í Vestmannaeyjum. vandaður vegur, á Vestfjarffavegi, frá Hellu í Vatnsfjarffarbotn eða á svokallaðri Helluhlíð, til stór- bóta fyrir umferð á þessu svæði, en vegur var þarna áður mjög erf- iður og viða hættulegur umferðar. Þessi .vegarkafli kostaði um 750 þúsund krónur. Jón Víðis, mælingamaður, hefur nú nýlega lokið við aff mæla fyrir breytingu á veginum í svokölluð- um Kleifum á Kleifaheiði, á leið- inni upp úr Palreksfirði. Á að breyta þarna hættulegasta kafla leiðarinnar, og er ráðgert að Ijúka verkinu nú í haust. Kostnaður við þetta verk er áætlaður 100 til Í30 þúsund krónur. 2Q0 nemendur verða í Tón- istarskólanum í vetur Tónlistarskólinn i Reykja- vík var settur í Tónabíói laug- ardaginn 13. október að við- stöddum kennurum og nem- endum. Mjög mikil aðsókn er að skólanum og eru innritaðir nemendur í haust um 200. Píanódeildin er fjölmennasta deild skólans eins og jafnan áður, en áhugi fyrir öðrum hljóðfærum eykst stöðugt og hafa aldrei verið eins margir nemendur í blásturshljóðfæra og strengjadeild og í vetur. Eins og stendur er skólinn í miklu húsnæðishraki. Hin nýju húsakynni i Skipholtj 33 verða varla tilbúin fyrr en um 'miðjan nóvember. Kennsla er þó þegar hafin og taka flestir kennarar r.emendur sína heim. Auk þess er kennt í Ásmundarsal við Freyju- götu og í einstökum herbergjum víðar um bæinn. Tveir starfsmenn skólans láta ai störfum á þessu hausti, þeir Guðmundur Jónsson píanókenn- arj og Guðmundur Ólafsson, sem verið hefur húsvörður skólans á meðan hano var til húsa í Þrúð- vangi. í skólasetningarræðu sinni þakkaði skólastjóri báðum þessum mönnum vel unnin störf i þágu sliólans. Einnig bauð hann sérstak lega velkominn að skólanum Ein- ar Kristjánsson óperusöngvara, sem ráðinn er kennari við óperu- deildina. Sú deild mun taka til starfa þegar skólinn flytur í nýju húsakynnin og verður nánar skýrt frá tilhögun hennar þá. Heldur EBE en samveldið Síðdegis í fyrradag flutti Roy Jenkins, brezkur hagfræðingur og þingmaður fyrir Verkamanna- flokkinn erindi um Efnahags- bandalagið. Jenkins talaði í klukku tíma , en erindið flutti hann í háskólanum. Hann ræddi um Efna hagsbandalagið frá efnahagslegu og pólitísku sjónarmiði, eins og máliff horfði við af brezkum sjón- arhóli. Það kom fram í erindi Jenkins, að hann áleit hagstætt fyrir Bretland að ganga í EBE, þar sem markaðir þeirra mundu verða hagstæðari en ella viff þá ráðstöfun. Þá sagði Jenkins, að ef svo færi að Bretland ætti um tvo kosti aff velja, samveldjð og EBE, væri hann þeirrar skoðun- ar að Bretland ætti að ganga í EBE, en láta samveldið róa. Líf er að ioknu þessu — ný bók Jónasar Þor- bergssonar. Á vegum bókaútgáfunnar Skuggsjá er nýkomin út bók eftir Jónas Þorbergsson, fyrr- um útvarpsstjóra, og nefnist Líf er að loknu þessu. Eins og nafnið bendir til er bók- in um sálarrannsóknir og fjallar affallega um miðilsstarf Hafsteins Björnssonar og rituð í tilefni af þeirri þjónustu í aldarfjórðung. í formála segjr höfundur, að það hafi allmörg undanfarin ár sótt á huga sinn áð rita opinberjega um kynni sín at spíritismanum og reynslu sína á vegum sálarrann- sóknanna, ef það mætti verða ein- hverjum hugsanlegum lesendum til umhugsunar, veitt þeim stærri útsýn og lægt aff einhverju öldur harmanna. Þessi bók sé fyrsta til- raun í þessu skyni og fjalli um veigamesta þátt reynslu sinnar. En bókin er miklu meira en frásögn af miðdsfundum. Höfund- ur gerir skilmerkilega og skýra grein fyrir spirititisma og kynnum sínúm af þeim og lýsir því gildi, sem þessi þrjátíu ára kynni hafa haft fyrir hann. Síðan er rakinn æviferill Haf- steins miðils og þroskun dular- gáfna hans frá barnæsku. Síðan hefst miðilsferillinn og er honum greinilega lýst. Þá er rætt um sál- farir Hafsteins og veigamikill kafli bókarinnar er „Minningar Finnu lífs og liðinnar11, og mun ýmsum þykja hann harla forvitni- legur. í bókarlok fjallar höfundur um samband kirkju og spíritisma. Jón- as Þorbergsson er svo kunnur rit- höfundur, að ekki þarf að taka það fram, að bókin er rituð í fögrum stíl og máli. Á öðrum stað í blaðinu rilar séra Sveinn Víking. ur umsögn um þessa bók. 2 T í M1N N , föstudaginn 2. nóvember 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.